Dagur - 25.01.1995, Qupperneq 3
FRETTIR
Miðvikudagur 25. janúar 1995 - DAGUR - 3
Beinar millilandasiglingar frá Akureyri:
Eykur möguleika
á að fleiri fiskiskip
komi til löndunar
- segir Guðmundur Sigurbjörnsson,
hafnarstjóri á Akureyri
„Mér hlýtur að lítast vel á að út-
flutningur verði aukinn frá Ak-
ureyri, enda það sem lands-
byggðin hefur verið að berjast
fyrir. Hins vegar höfum við áður
orðið vitni að því að héðan eigi
að stunda millilandasiglingar en
það alltaf dagað uppi. Það er
hins vegar ekkert náttúrulögmál
að allir hlutir þurfí að fara í
gegnum Reykjavíkurhöfn með
öllum þeim kostnaði sem því
fylgir,“ segir Guðmundur Sigur-
björnsson, hafnarstjóri á Akur-
eyri, í samtali við Dag.
I tilboði Sölumiðstöðvarinnar
til bæjarstjómar, er gert ráð fyrir
því aó Akureyrarhöfn veröi gerð
að miðstöó vikulegra flutninga að
og frá landinu með beinum tengsl-
um við viðskiptalönd Islands.
Eimskipafélag Islands hefur unnið
að athugun á breytingum á fyrir-
komulagi flutningaþjónustu sinn-
ar, að frumkvæði UA og SH og
þar er m.a. gert ráð fyrir að milli-
landaskip félagsins hafí viðkomur
á Akureyri á leið sinni til Evrópu.
I dag er öll útflutningsvara frá Ak-
ureyri Iestuð í strandflutningaskip
til Reykavíkur, þar sem vörunni er
umhlaðið í millilandaskip.
Hafnaraðstaóa á Akureyri er
talin góð og aðstaða Eimskips
einnig og með beinum viðkomum
millilandaskipa þar skapast einnig
tækifæri til að gera Akureyri að
mikilvægari hlekk í flutningastarf-
semi félagsins og auka um leið
fjölda atvinnutækifæra á þessu
sviði á Akureyri.
„Ef boóið er upp á beinar milli-
landasiglingar frá Akureyri, er
möguleiki á því aó fleiri fiskiskip
komi til löndunar, sem um leið
þýðir auknar tekjur fyrir höfnina.
Þessi þjónusta kemur því til með
aó hlaóa utan á sig. Hér eru miklir
möguleikar á uppbyggingu, bæði
við Fiskihöfnina og Vöruhöfnina
og þá mun myndast fjögurra hekt-
ara land innan við grjótgarðinn
sem verió er að byggja í Krossa-
nesi,“ sagói Guðmundur. KK
I báðum fyrirtækjum er um-
talsverð þekking og reynsla
- segir Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri
„Eg er auðvitað ánægður með
að svona öflug fyrirtæki vilji
eiga samstarf við Háskólann og
það eru ákveðin svið sem við
höfum sérstakan áhuga á í því
sambandi, eins og t.d. við fyrir-
hugaða matvælamiðstöð, sem
við erum að vinna við að koma á
fót,“ segir Þorsteinn Gunnars-
son, rektor Háskólans á Akur-
eyri. Bæði ÍS og SH hafa sýnt
málefnum Háskólans mikinn
áhuga í þeirri umræðu sem átt
hefur sér stað síðustu daga og
vikur.
„Einnig er möguleiki á sam-
ráðningum starfsmanna og við
fögnum því ef þessi fyrirtæki eru
tilbúin að kosta kennarastöður við
skólann. Það er ljóst aó inni í báð-
um þessum fyrirtækjum er umtals-
verð þekking og reynsla í gæða-
stjómun, markaðssetningu og
vöruþróun. Það er því mjög gagn-
legt fyrir okkar kennara og nem-
endur að vera í tengslum við þessa
aðila.“
Þorsteinn segir ennfremur að
bæði ÍS og SH hafi líka gagn af
því að vera í nábýli við akadem-
ískt umhverfi Háskólans og því sé
þetta beggja hagur. Fulltrúar
beggja fyrirtækjanna hafa rætt við
Þorstein og hann fylgist því vel
með gangi mála. „Eg útiloka alls
ekki samstarf við fyrirtækin þótt
þau komi ekki til Akureyrar og
við lítum á samvinnu við þau
mjög mikilvæga. Hins vegar eru
fyrirtæki í nábýli við okkur samt
hentugri samstarfsaðilar." KK
Engir samningar en
rætt við báða aðila
- segir Daníel Árnason,
framkvæmdastjóri Akopiast & POB
Ein af þeim leiðum sem Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hef-
ur bent á til uppbyggingar at-
vinnulífsins á Akureyri í bréfí til
Bæjarstjórnar Akureyrar er að
Umbúðamiðstöðin hf. stofni til
atvinnurekstrar á Akureyri til
að annast umbúðaframleiðslu.
Fyrirtækið þarf vélbúnað til að
framleiða pappaöskjur, bylgju-
pappakassa og plastumbúðir
auk annarra nýjunga í fram-
leiðslunni.
Umbúðamiöstöðin mun leita
eftir samstarfí við aðila á Akureyri
með samvinnu um reksturinn í
huga og samkvæmt framkvæmda-
áætlun þar sem svarar 38 ársstörf-
um þcgar áætlunin er að fullu
komin til framkvæmda innan
tveggja ára.
Daníel Arnason, framkvæmda-
stjóri Akoplast & POB, segir að
bæði forsvarsmenn Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna (SH) og Is-
lenskra sjávarafuröa (IS) hafa rætt
um samstarf á sviði umbúðafram-
leiðslu.
„Hér er ekki um að ræða að
neitt sé fast í hendi og engir samn-
ingar hafa verió geröir en málin
hafa verið rædd við báða aðila.
Málið er nú í frekari athugun og
vió munum halda öllum leiðum
opnum um samstarf við hvom að-
ilann sem væri ef áhugi er fyrir því
af þeirra hálfu að ræða við okkur,“
sagði Daníel Ámason. GG
>
Q
O
O
O
H
m
Frystiskápur CCV-250
Hraöfrystiroti. Mál 143x60x60
VERÐ ÁÐUR 69.900
Kæliskápur CDP-280
K. 216 Itr. fr. 64 Itr. Mál 143x60x60
VERÐ ÁÐUR 59.900
Kæliskápur CCB-3210
K. 216 Itr. fr. 64 Itr. 163x60x60
VERÐÁÐUR 78.400
pressur
Þvottavél C-836 XT
14 þv. kerfi, 800 og 400 sn. vinda
VERÐ ÁÐUR 59.900
Þvottavél C-825X
14 þv. kerfi, 800 sn. vinda
VERÐ ÁÐUR 53.700
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565