Dagur - 25.01.1995, Page 5
FRETTIR
■
Miðvikudagur 25. janúar 1995 - DAGUR - 5
Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki:
Súrmjólkin selst vel
Mjólkursamlag Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki hef-
ur sent frá sér nýja tegund af
blandaðri súrmjólk. Fyrir eru á
markaði fjórarar bragðtegundir
og nú bætist við súrmjólk með
perum. Var hún kynnt á Sauð-
árkróki í vikunni fyrir jól en
kom fyrir síðustu helgi í versl-
anir á Akureyri. Fyrst um sinn
verður þessi nýja tegund aðeins
á boðstólnum á Norðurlandi.
Að sögn Bjama R. Brynjólfs-
sonar, framleiðslustjóra Mjólkur-
samlags KS, hefur sala á blönd-
uðu súrmjólkinni aukist ár frá ári
og var árið 1994 engin undantekn-
ing þar á. „Salan á liðnu ári var
um 400 tonn og jókst um 1% milh
ára. Lang stærsti markaðurinn ei
auðvitað Reykjavíkursvæðið og
þar var söluaukning 1,16% á síð-
asta ári. Á sama tíma dróst sala á
júgúrti saman um tæp 4,5% ;
landinu öllu og við erum því mjög
sáttir við okkar hlut,“ sagði
Bjami.
Nýja KS-súrmjólkin með per-
unt er seld í hálfslíters femum líki
og hinar tegundimar. HA
Þokkalegt heilsufar
streptókokka-hálsbólgutilfelli, 18
lungnabólgutilfelli, 10 hlaupa-
bólutilfelli og 9 kláðamaurstilfelli.
Friðrik segir að heilsufar bæj-
arbúa í dag sé þokkalegt, hins
vegar hafi talsvert borið á maga-
verkjum, hita og nióurgangi en
ekki hefur oróið vart vió inflúensu
eins og oft á þessum tíma. Friðrik
tók við stöðu yfirlæknis nú um
áramót, af Magnúsi Ólafssyni,
sem gegnt hefur stöðunni sl. tvö ár
og var Friðrik kjörinn yfirlæknir
til tveggja ára. KK
Tólf útgerðarfyrirtæki með 40% úthafsrækjukvótans:
Margrét EA komin til heimahafnar
Margrét EA, togari Samherja hf. kom til Akureyrar í gær en togarinn er á leið í viðgerð hjá Slippstöð-
inni-Odda hf., eftir að hafa fengið á sig brotsjó á leið til Súðavíkur fyrir skömmu. Töluverðar skemmdir
urðu á brúnni og verður togarinn frá veiðum í nokkrar vikur. Mynd: Robyn
Heilsufar Akureyringa í jólamán-
uðinum, var nokkuð svipað og
undanfarin ár, en þó var heldur
minna um þessar venjulegu kvef-
pestir en iðrakvef heldur meira
áberandi, að sögn Friðriks Vagns
Guðjónssonar, yfirlæknis Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri.
I desembermánuði voru skráó
rétt tæp 500 kvef- og hálsbólgutil-
felli, 142 iðrakvefstilfelli, 40
Samherji hf. hæstur með 8,98%
að meðtöldu dótturfyrirtæki
Þeim útgerðum sem eiga meira
en 2% af heildarúthafsrækju-
kvótanum hefur fjölgað frá því
á fiskveiðiárinu 1991/1992 og
hlutfall þeirra af heildinni
einnig aukist, þ.e. úthafsrækju-
kvótinn, sem á fiskveiðiárinu
1994/1995 er 63.002 tonn, hefur
safnast á færri hendur, en 12 út-
gerðarfyrirtæki eru með um
40% alls kvótans.
Á fiskveiðiámu 1991/1992
voru þau fyrirtæki sem réðu fyrir
meiru en 2% rækjukvótans alls 9
talsins með 27,19% kvótans; á
fiskveióiárinu 1992/1993 voru þau
8 talsins meó 27,43%; á fiskveiði-
árinu 1993/1994 voru þau 10 tals-
ins með 31,28% og á yfir-
standandi fiskveiðiári eru þau 12
talsins með alls 39,30% af úthafs-
rækjukvótanum.
Öll þessi ár hefur útgerðarfyrir-
tækið Samherji hf. verið með
stærsta hlutann. Á þessu fiskveiði-
ári er úthafsrækjukvóti fyrirtækis-
ins 5.487 tonn eða 8,71% af heild-
inni, en ef tekinn er með kvóti
Nóa EA-477 frá Dalvík, 176 tonn,
er hlutur Samherja hf. 8,98%. Nói
EA er eign Hamars hf., en það
fyrirtæki eiga Dalvíkurbær, Sölt-
unarfélag Dalvíkur hf., sem Sam-
herji hf. á meirihluta í, Oddeyrin
hf. og Olíuverslun Islands hf.
Fiskveiðiárið 1993/1994 var hlut-
ur Samherja hf. 9,33%, fiskveiði-
árið 1992/1993 var hann 8,76% og
fiskveiðiárið 1991/1992 var hlutur
Samherja hf. 6,42%
Rækjukvóti einstaka skipa
Samherja er: Akureyrin EA með
656 tonn, Víðir EA með 600 tonn,
Margrét EA með 1.027 tonn,
Hjalteyrin EA með 664 tonn,
Oddeyrin EA með 1.387 tonn og
Baldvin Þorsteinsson EA með 952
tonn.
Annaó stærsta fyrirtækið er
Ljósavík hf. í Þorlákshöfn með
4,72%, en það gerir út Hersi HF
og Gissur ÁR, sem aðallega hefur
Iandað aflanum hjá Strýtu hf. á
Akureyri. Síðan kemur Þormóður
rammi hf. á Siglufirói meó 3,85%,
Stálvík SI með 277 tonn, Sigluvík
SI með 63 tonn og Sunna SI með
2.086 tonn; Síldarvinnslan hf. í
Neskaupstað er með fjögur skip
og 3,08%; Togaraútgcrð Isafjarðar
meö eitt skip, Skutul IS, og
2,84%; Ingimundur hf. á Siglu-
firði með 2,57%, Helga RE meó
744 tonn, Ögmundur RE með 166
tonn og Helga II RE með 711
tonn; Pétur Stefánsson með eitt
skip, Pétur Jónsson RE, og 2,53%;
Hraðfrystihús Eskifjaróar með
þrjú skip og 2,32%; Akkur hf. Fá-
skrúósfirði meó eitt skip, Klöru
Sveinsdóttur SU, og 2,20%; Leiti
hf. á Isafirði með eitt skip og
2,20%; Nökkvi hf. á Blönduósi
með 1.387 tonn á Nökkva HU og
2,20% og Þorbjöm hf. í Grindavík
meó þrjú skip og 2,07%.
Fyrir dyrum stendur sala á
Klöru Sveinsdóttur SU til Isa-
fjarðar og verður þá sameiginleg-
ur kvóti áðumefndra ísfirskra fyr-
irtækja auk nýs fyrirtækis sem
stofnað var um kaupin á Fáskrúös-
fjaróartogaranum kominn í 4.562
tonn eða 7,24% af heildinni. Vest-
firðir hafa verið á bæta vió sig
rækjukvóta undanfarin ár, fyrst og
fremst á kostnað Reykjaness, en
nú flyst skip og kvóti frá Aust-
fjörðum til Vestfjarða.
Aðeins tveir togarar Utgerðar-
félags Akureyringa hf. eru með
úthafsrækjukvóta. Það eru Hrím-
bakur EA meó 326 tonn og Sval-
bakur EA með 160 tonn, en sant-
tals er þessi kvóti 0,77% af úthafs-
rækjukvótanum á yfirstandandi
fiskveiöiári. GG
Vitni óskast
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri óskar eftir vitnum að
árekstri sem varö á umferðar-
ljósunum á gatnamótum Þing-
vallastrætis og Þórunnarstrætis
í hádeginu, þriðjudaginn 17.
janúar sl., nánar tiltekió kl.
12.58. Þar rákust saman Niss-
an Terrano jeppi og Fiat fólks-
bifreið. Þeir sem geta veitt
upplýsingar eru beðnir að snúa
sér til rannsóknarlögreglunnar
á Akureyri. HA
Jólakrossgáta Dags:
FERÐAFELAG AKUREYRAR
Ferðakynning
verður í starfsmannasal Ú.A. sunnudaginn
29. janúar nk. kl. 20.
Dagskrá:
Ferðaáætlun 1995 kynnt. Ingvar Teitsson, læknir, ræðir
um útbúnað og varúð í vetrarferðum.
Vörukynningar frá Skíðaþjónustunni og Vöruhúsi KEA.
Kaffiveitingar.
Sigurgeir B. Þórðarson sýnir litskyggnur frá vetrarferða-
lögum.
Aðgangseyrir kr. 300.-
Ferðanefnd.
Geirlaug fekk ferðatækið
,Ja, hérna. Og ég sem hef alltaf
sagt að ég fái aldrei svona vinn-
inga,“ sagði Geirlaug Ingvars-
dóttir á Balaskarði í Austur-
Húnavatnssýslu, þegar henni var
tilkynnt í gær að hún hefði hlotið
aðalvinning fyrir rétta lausn í
jólakrossgátu Dags, JVC ferða-
tæki frá Hljómdeild KEA á Akur-
eyri. Fjórir vinningshafar til við-
bótar fá hver sinn geisladiskinn.
Þeir skiptu hundruðum sem
sendu lausnarseðla til blaósins og
voru nöfnin fimm dregin úr bunk-
anum í gær. Ferðatæki Geirlaugar
er hið glæsilegasta, búið inn-
byggðu útvarpi, segulbandi og
geislaspilara og er það aó andvirði
tæpar 22 þúsund krónur.
Geirlaug sagðist ráða allar
krossgátur í Degi og hafa mikið
gaman af. Þaö sé hins vegar alveg
nýtt fyrir henni að fá vinning fyrir
þátttökuna. Geirlaugu verður færð-
ur vinningurinn innan skamms og
sömu sögu er að segja um þá fjóra
sem fá send gjafabréf fyrir geisla-
diski í Hljómdeild KEA. Þeir eru:
Pálína Magnúsdóttir, Núpasíöu
2d á Akureyri, Gísli Bjamason,
Drekagili 28 á Akureyri, Margrét
Sveinbjömsdóttir, Skálholtsstíg 2a
Reykjavík og Ragnheiður Egg-
ertsdóttir, Melavegi 17 á
Hvammstanga. JÓH
Elsa Jóhannsdóttir, starfsmaður
Dagsprents hf., dró úr innsendum
lausnarscðlum i jólakrossgátunni í
gærmorgun. Hún hcldur hér á um-
slagi Geirlaugar Ingvarsdóttur.
Mynd: Robyn
S Akureyringar s
| Nærsveitamenn jj
I dag 25. janúar er eitt ár liðið síðan handverks- og
tómstundamiðstöðin Punkturinn tók til starfa.
Á þessum tímamótum viljum við bjóða öllum
Akureyringum að skoða staðinn og starfsemina
og þiggja veitingar. K
Afmælisbarnið tekur á móti gestum frá
kl. 10-21 á afmælisdaginn.
| Allir bæjarbúar og nærsveitamenn
sem áhuga hafa eru eindregið hvattir til að líta inn
og kynna sér starfsemi staðarins.
Punkturinn er opinn alla virka daga frá kl. 10-17 og
á mánudögum einnig frá kl. 19-22.