Dagur


Dagur - 25.01.1995, Qupperneq 6

Dagur - 25.01.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 25. janúar 1995 Bréf Sölumíðstöðvarínnar til bæjaryfirvalda á Akureyri Eins og fram hefur komið áttu forráðamenn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna fund með bæj- arstjórn Akureyrar sl. mánudag. Á þeim fundi lögðu SH-menn fram bréf til bæjarstjórnar þar sem þeir greina frá sínum hug- myndum. Bréfíð er eftirfarandi: Með bréfi dagscttu 30. desem- ber 1994 óskaði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna (SH) eftir fundi með bæjarstjóranum á Akureyri í tilefni þeirrar umræðu, að hugsan- legt væri að bæjarstjóm Akureyrar seldi hlut bæjarins í Utgerðarfé- lagi Akureyringa (UA) og tryggði jafnframt að sala á afurðum UA yrði flutt frá SH til íslenskra Sjáv- arafurða (ÍS), ef ÍS flytti norður. I viðræðum, sem fulltrúar SH áttu við forsvarsmenn Akureyrar- bæjar kom fram, að vegna hins erfiða atvinnuástands í bænum leiti þeir nú allra leiða til að auka á fjölbreytni atvinnulífsins og tryggja fleiri störf í bænum. Af hálfu SH var óskað eftir því, að félaginu yrði veittur frestur til að vinna að tillögum með hvaða hætti SH gæti orðið þar að liði. SH gerir sér ljóst mikilvægi þess fyrir hagsmuni Akureyrar, að þar verói sköpuð skilyrði til frek- ari efnahagslegrar uppbyggingar, sem leiði til eflingar byggðarlags- ins. SH vill leita leiða með Akur- eyrarbæ að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulíf bæjarbúa. Að vel athuguðu máli er það mat forráðamanna SH, að vænleg- ar leiðir til slíkrar uppbyggingar felist m.a. í samstarfí við SH eins og hér er lýst: 1. Að SH flytji umtalsverðan hluta starfsemi sinnar til Akureyrar. 2. Að SH beiti sér fyrir því að efla að öðru leyti atvinnustarfsemi í bænum með ýmsum hætti. 3. Að SH stuðli að stórbættri að- stöðu Akureyrar til að verða miðstöð flutninga að og frá land- inu með því að þar verði mikil- væg inn- og útflutningshöfn. 4. Aö SH taki þátt í að efla Háskól- ann á Akureyri til að takast á við það markmið, að verða viður- kennt menntasetur sjávarútvegs- fræða á alþjóðlegan mælikvarða og kanna forsendur fyrir sam- starfi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna. 1. Starfsemi SH á Akureyri Innan vébanda SH er mjög fjöl- þætt starfsemi og aó vandlega at- huguðu máli er ljóst, aö flutningur hennar til Akureyrar að verulegu leyti mun skapa SH tækifæri til nýrrar sóknar um leið og það eflir mjög atvinnulíf á Akureyri. SH er tilbúið til að stofna félag, SH Akureyri, og flytja þangað innan skamms starfsemi sem nem- ur um þriðjungi af umsvifum fé- lagsins, en heildarsala SH árið 1994 var um 28 milljarðar króna. Heilsársstörf hjá SH eru að jafnaði á milli 80 og 90 og er gert ráð fyrir að fullur þriðjungur þeirra eða um 30 störf verði unnin á Akureyri, þegar starfsemin þar verður komi í eðlilegt horf á næstu fáum misserum. Þau störf sem um er að ræða eru þverskurður af starfsemi SH í Reykjavík. Starfsemi á sviði markaðsmála, afskipunar, skjalagerðar, flutninga- mála, innkaupadeildar, skoðunar- stofu og vörulagers auk vöruþró- unar og rannsókna mun því fara fram á Akureyri. Þá mun og hluti yfirstjómar SH verða á Akureyri. Flutningi lagersins noröur munu t.d. fylgja mikil umsvif á Akureyri í formi vöruflutninga á bílum, hafnarumsvif og fleira því um líkt. SH stundar jafnframt umfangs- mikla þróunarstarfsemi hér heima og erlendis. Hérlendis fer sú vinna að mestu leyti fram í frystihúsun- um, en er jafnframt unnin í sam- vinnu vió opinberar rannsókna- stofnanir. Flutningur þróunarstarfa á vegum SH til Akureyrar mun væntanlega leiða til samstarfs við Háskólann á Akureyri á sviöi fisk- vinnslu og sjávarútvegs. 2. Aukin tækifæri á Akureyri Akureyri er þekktur iðnaðarbær og forráðamenn Akureyrarbæjar hafa mikinn áhuga á að efla iðn- aðarstarfsemi í bænum. SH mun beita áhrifum sínum eftir megni til að fjölga atvinnutækifærum í iðn- aöi á þeim sviðum sem SH getur beitt áhrifum sínurn. Alþekkt er að auknum iðnaöarumsvifum fylgja mörg önnur störf í flutningum og annarri þjónustustarfsemi. a) Umbúðaframleiðsla í þessu skyni mun Umbúðamið- stöðin hf. (UM) stofna til atvinnu- rekstrar á Akureyri til að annast umbúðaframleiðsíu. Fyrirtækió þarf vélbúnað til aó framleiða pappaöskjur, bylgjupappakassa og plastumbúðir auk nýjunga í fram- leiðslu UM, sem fundinn verður staður á Akureyri. UM hefur starfað við umbúöa- framleiðslu í þrjá áratugi og þar er til staðar mikil þekking á fram- leiðslu og ekki síóur innkaupum aðfanga. Góð sambönd og útsjón- arsemi við innkaupin er lykilatriði til að rekstur sem þessi skili hagn- aði og hafa þessi atriði ekki síst átt þátt í veltuaukningu og góóum hagnaði UM. Öll reynsla UM á þessu sviði mun nýtast fyrirtækinu á Akureyri að fullu. Samkvæmt framkvæmdaáætlun þarf sem svarar 38 ársstörfum þegar áætlunin er að fullu komin til framkvæmda, sem verður innan þriggja ára. Innan örfárra mánaöa er hægt að koma upp pappadeild- inni sem þarf um 1000 fermetra húsnæði og skapar 15 störf. Plast- deildin getur tekiö til starfa innan árs og þarf hún álíka mikið hús- næði og um 13 manna starfslið. Þær nýjungar sem áætlanir eru um þarfnast um 500 fermetra húsnæó- is og skapa 10 manns atvinnu. Kannanir okkar sýna að hér er um lífvænlegt iðnfyrirtæki að ræða sem hefur áætlaða ársveltu um 435 milljónir króna, veitir 38 starfsmönnum atvinnu beint og þarfnast verulegrar þjónustu vegna innflutnings á hráefnum til starfseminnar, flutnings unninnar vöru á markað og viðhaldsþjón- ustu vélanna auk annarra aðfanga. Húsnæóisþörf er um 2500 fer- metrar af iðnaðarhúsnæði, en slíkt húsnæði er líklega til staðar á Ak- ureyri. UM mun leita eftir samstarfi vió aðila á Akureyri með sam- vinnu um reksturinn í huga. Sam- andregið eru umsvifin þessi: Ársstörf Húsn. fm. Velta Pappadeild 15 1000 145 Plastdeild 13 1000 200 Nýdeild 10 500 90 Alls 38 2500 435 b) Slippstöðin hf. Jöklar hf., dótturfyrirtæki SH, DNG rafeindaiðnaður hf. í Glæsi- bæjarhreppi og Málning hf. í Reykjavík hafa tryggt sér kaup á meirihluta hlutabréfa í Slippstöð- inni hf. á Akureyri. SH lítur á kaupin á Slippstöð- inni hf. sem mjög mikilvægan þátt í því að bregðast við beiðni Akur- eyrarbæjar um aukin umsvif í bænum. Með breiðari eignaraðild að Slippstöðinni hf. er skotið sterkari stoðum undir fyrirtækið. Þá má reikna með verulega aukn- um umsvifum í þjónustugreinum, sem tengjast rekstri hennar beint eða óbeint, en þekkt er, aó skipa- smíðaiðnaðinum fylgja margar hliðargreinar. Þaó er trú SH og þeirra fjár- festa, sem standa að þessum kaup- um á Slippstööinni hf., aó fyrir- tækið eigi mikla möguleika til að vaxa og auka enn við þá þekk- ingu, sem lengi hefur verið til staðar á Akureyri í skipaiðnaói. Þá liggur og fyrir áhugi eig- enda DNG á Akureyri á nánu samstarfi eða sameiningu þessara fyrirtækja auk þess sem ýmsir möguleikar eru til staðar við sam- runa og endurreisn fyrirtækja sem starfa aó svipuóum verkefnum víðar á landinu. Þar hefur Slipp- stöðin hf. mikilvæga möguleika til að verða leiðandi aðili. Nýleg ákvörðun Akureyrarbæj- ar um kaup á flotkví til notkunar við Slippstöðina hf. á Akureyri mun einnig geta skipt sköpum um framtíð skipaiónaðarins á Akur- eyri. Fyrir liggur á næstunni að semja við Akureyrarbæ um afnot af flotkvínni. 3. Akureyri, miðstöð flutninga Það er skoðun SH að uppbygging atvinnulífs á Akureyri I framtíð- inni hljóti að verulegu leyti að byggjast á auknum tækifærum í útflutningi þar sem nýtt yrði aukin þekking og hæfni starfsfólks og fyrirtækja. Til aó ná árangri í slíkri starf- semi skiptir miklu að vera sem næst markaðnum og því þarf að gjörbreyta núrverandi möguleik- um Akureyringa til samgangna við helstu markaði. Akureyrarhöfn verður gerð að mióstöð vikulegra flutninga að og frá landinu meó beinum tcrigslum við megin viðskiptalönd Islands. Er ekki að efa, að síík þjónusta mun gjörbreyta aðstöðu norð- lenskra fyrirtækja til aukinna utanríkisviðskipta sem auka var- anlega hagsæld í byggðarlögum þar nyrðra. Reynslan hefur margsannað, að bættar samgöngur stuðla öllu öðru fremur að auknum umsvifum um- hverfis slíkar samgöngu- og flutn- ingamiðstöðvar og þeim fylgir jafnan mikil aukning atvinnutæki- færa. Að frumkvæði forráðamanna ÚA og SH hefur Eimskipafélag Islands nú um nokkurra mánaða skeið unnið að athugunum á viða- miklum breytingum á fyrirkomu- lagi flutningaþjónustu sinnar við SH, sem náð gætu þessu mark- miði og liggja nú fyrir tillögur fé- lagsins sem gera m.a. ráð fyrir að millilandaskip þess hafi beinar viðkomur á Akureyri á leið sinni til Evrópu. í dag er öll útflutnings- vara frá Akureyri lestuð í strand- flutningaskip til Reykjavíkur þar sem vörunni er umhlaóið í milli- landaskip. Meó því að lesta vör- una beint í millilandaskip á Akur- eyri næst að helminga flutnings- tímann frá Akureyri til helstu markaðssvæða í Evrópu: Flutningstími í: Bretland Frakkland Þýskaland Núverandi kerfi lOdagar 13 dagar lldagar Nýju kerfi 5 dagar 6 dagar 5 dagar Hafnaraðstaða á Akureyri er góð. Aðstaða Eimskips er einnig góð á Akureyri og með beinum viðkom- um millilandaskipa þar skapast einnig tækifæri til að gera Akur- eyri að mikilvægari hlekk í flutn- ingastarfsemi EIMSKIPS og auka þannig fjölda atvinnutækifæra á þessu sviöi á Akureyri. Skipta má þessu í tvo flokka: a) Aukin verkefni vegna viðkomu millilandaskipa Flutningsmagn með uppruna- og A rl c ici r%i a/ P 1 I vr^l QyO cJs> JL n i fí\ \ ff\ i t j (I ]) KJJ VU/ l\JJ Nautasnitsel kr. kg Áðurkr. 1.195 kg ^^Hrísalundi Afgreiðslutími: Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30 laugard.kl. 10.00-18.00

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.