Dagur - 25.01.1995, Page 9
Flytjendur á tónleikunum í kvöld eru frá vinstri: Karl Petersen, slagverk, Jón Rafnsson, bassi, Hólmfríður Bene-
diktsdóttir, sópran, og Karl Olgeirsson, píanó. ÖII eru þau kennarar við Tónlistarskólann á Akureyri.
á Við Pollinn í kvðld
- halda einnig tónleika á Hótel Húsavík nk. sunnudagskvöld
í kvöld, miðvikudag, kl. 22
efna þau Hólmfríður Benedikts-
dóttir, sópran, Karl Petersen,
slagverk, Jón Rafnsson, bassi,
og Karl Olgeirsson, píanó, til
tónleika á veitingastaðnum Við
Pollinn á Akureyri. Á efnis-
skránni er söngleikjatónlist,
bæði evrópsk og bandarísk.
Á fyrri hluta tónleikanna verða
flutt tíu lög eftir Kurt Weill
(1900-1950), sem hvað þekktastur
var fyrir Túskildingsóperuna.
Einnig verða flutt lög eftir Bem-
stein, Webber og Kem. Efnisskrá-
in er í léttari kantinum, eins og
söngleikjatónlistin gefur tilefni til.
Efnisskrá tónleikanna í kvöld
verður endurflutt annað kvöld í
Söngsmiðjunni við Skipholt í
Reykjavík og hefjast þeir tónleik-
ar kl. 21. Einnig halda þau tón-
leika á Hótel Húsavík nk. sunnu-
dagskvöld, 29. janúar, kl. 22.
Andlegheit og kaffi
Fríður flokkur flytjenda sótti
Akureyri heim sunnudaginn
15. janúar á vegum Tónlistarfé-
lags Akureyrar og efndi til tón-
leika í Akureyrarkirkju og safnað-
arheimili kirkjunnar. Tónlistar-
mennimir voru söngvaramir Mar-
grét Bóasdóttir, sópran, Sverrir
Guðjónsson, kontratenór, Guð-
laugur Viktorsson, tenór, og
Wolfgang Tretzsch, bassi, og
hljóðfæraleikararnir Rut Ingólfs-
dóttir og Lilja Hjaltadóttir, fiðlu-
leikarar, Sarah Buckley, víóluleik-
ari, Kolbeinn Bjarnason, flautu-
leikari, Örnólfur Kristjánsson,
sellóleikari, Richard Kom, viol-
oneleikari, og Guðrún Óskarsdótt-
ir, sem lék á orgel og sembal.
Á efnisskrá voru tvö verk:
Geistliche Konzerte eftir Heinrich
Schútz og Kaffeekantate BWV
211 eftir Johann Sebastian Bach.
Bæði þessi verk eru frá því tíma-
bili tónlistarsögunnar, sem kennt
er við barokk. I samræmi við þaö
voru öll þau hljóðfæri, sem á var
leikið.
Verkin tvö, sem voru á efnis-
skrá tónleikanna, eru harla ólík,
þó að bæði tilheyri sama tímabili.
Hiö fyrra er trúarlegs eðlis en hið
síðara skemmtistykki þar sem
fjallað er um kaffi og neyslu þess í
gamansömum tón. Því var tónleik-
unum tvískipt. Verk Heinrichs
Schútz var flutt í kirkjuskipi Ak-
ureyrarkirkju en hitt yfir kaffi og
konfekti í Safnaðarheimilinu.
Tónleikarnir hófust á því, að
kvartett skipaóur söngvurunum
fjórum flutti sálminn Syngió Guði
nýjan söng, en síóan fluttu tónlist-
armennimir fyrra verkið á efnis-
skrá sinni: Geistliche Konzerte
eftir Heinrich Schútz. Verkið er í
fimm þáttum. Texti þess er sóttur í
Sálma Davíðs konungs, Prédikar-
ann og Lúkasar guðspjall. Það er
skrifað fyrir einsöng og fjórradd-
aðan kvartett, en undirleikur er á
orgel, tvær fíðlur og violone. í
flutningnum í skipi Akureyrar-
TÓNLIST
HAUKUR ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
kirkju var leitast við aó vekja upp
þann anda, sem væntanlega hefur
verið á verkinu á dögum höfundar
þess. Það tókst í flestum greinum
vel, enda vandaðir tónlistarmenn
að verki, sem lagt hafa sig eftir
þeim stíl, sem við á. Einna helst
mátti finna að flutningi tenórsins,
Guðlaugs Viktorssonar, en hann
virðist ekki hafa fullt vald á flutn-
ingi tónlistar af þessu tagi. Auk
þess hefur rödd hans nokkra til-
hneigingu til þess að lokast og
nær því á stundum ekki viðhlýt-
andi fyllingu. Þá hefði á nokkrum
stöðum mátt pússa fiðlur saman
litlu einu betur. í heild var flutn-
ingur, þrátt fyrir þá galla, sem
fram hafa verið taldir, afar
skemmtilegur áheymar. Raddir
féllu jafnan vel saman og bragur
og styrkur undirleiks voru mjög
við hæfi. Guðjón Sverrisson flutti
kynningar á milli hluta í flutningi
Kafflkantötu Jóhanns Sebastians
Bachs. Honum fórst þetta hlutverk
vel úr hendi og átti stóran og mik-
ilvægan þátt í því að gera stundina
yfir kaffmu í Safnaðarheimilinu
skemmtilega og eftirminnilega.
Aðrir flytjendur, þrír söngvarar,
tvær fiðlur, víóla, flauta, selló,
sembal og violone, skiluðu ekki
síður vel sínum hlut. Öryggi ein-
kenndi jafnt leik sem söng. Ekki
spillti heldur leikrænt fas og túlk-
un söngvaranna og þá einkum
Margrétar Bóasdóttur, sem söng
hlutverk hinnar kafflelsku Lie-
schenar, og Wolfgangs Tretzschs,
sem fór með hlutverk hins stranga
föðurs, Schlendrians, sem reynir
að fá dóttur sína ofan af ásókninni
í hinn svarta drykk.
Þetta voru ánægjulegir tónleik-
ar þrungnir hinni dularfullu og
seiðandi löðun barokktónlistarinn-
ar. Blær flutningsins, léttur, tær og
síferskur, vakti ljúfar kenndir jafnt
undir prédikun Heinrichs Schútz
sem yfir kaffinu í félagsskap
meistara Bachs og jók á velsæld-
ina þar sem setið var innan dyra á
meðan norðlensk stórhríð þeytti til
mjöllinni utan við snæbarða
gluggana. Sannarlega góð stund í
félagsskap kærkominna gesta,
sem vonandi láta ekki langt líða til
næstu heimsóknar.
11
Tvær leiöir eru hentugar til þess að verja ungbarn í bíl Látið barnið annaðhvort liggja i bilstól fyrir ungbörn eða barnavagni sem festur er með beltum. mIumferðar Uráð 1P
Miðvikudagur 25. janúar 1995 - DAGUR - 9
| Hvatning
| til unglinga
á
A
A
A
■y
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
1
A
A
A
■y
A
A
A
A
'y
A
■\
A
A
A
1
A
4
A
A
A
A
A
A
A
A
1
4
frá íþrótta- og tómstundaráði.
Eftirtalin námskeið verða í félagsmiðstöðv-
unum í Síðuskóla, Lundarskóla og Glerár-
skóla á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Ak-
ureyrar nú á næstunni:
• LEIKLIST:
Framsögn - tjáning - leikæfingar.
• SKARTGRIPAGERÐ:
Kennt verður að búa til eyrnalokka og aðra litla
muni.
• SNYRTING:
Andlitssnyrting, handsnyrting, fótsnyrting, létt förðun
og umhirða líkamans.
• SAUMAR:
Kennt að taka upp snið upp úr blöðum og að sauma
einfaldar flíkur.
• PIZZUR OG PASTARÉTTIR:
Kennt verður í eldhúsum skólanna.
• LEIRVINNA:
Leirmótun og brennsla - Kennt verður í kjallara
Glerárskóla.
• SKRAUTSKRIFT:
Pennar seldir á staðnum.
• PAPPAMASSAGERÐ:
Kennt að búa til skálar og litla muni.
• GIPSVINNA:
Steypt er í mót.
Allar nánari upplýsingar og skránlng hjá umsjón-
armönnum félagsmiðstöðvanna.
í Lundarskóla: Sigrún í síma 24888.
í Síðuskóla: Ármann í síma 22588.
í Glerárskóla: Hjörleifur í síma 26992.
Takið þátt í heilbrigðu og gefandi
tómstundastarfi!
íþrótta- og tómstundaráð.
Cfa 02 brstið
Salat, pasw os
Salat, brauðsalöt, pasta og
pastasalöt selt eftir kg vigt.
Einars múslíbrauð 99.- kr. stk.
ir
\
j\m
mhpr9S$