Dagur - 22.02.1995, Síða 1

Dagur - 22.02.1995, Síða 1
Kjarasamningar til tveggja ára undirritaðir: Meðalhækkun launa 6,9% Skandia Hfandi samkepp W Geislagötu 12.- Sími 12222 m - lœgri iðgjöM - laun undir 60 þús. á mánuði hækka um 11,3% á samningstímanum Kjarasamningar milli lands- sambanda innan Alþýðu- sambands íslands, Vinnumála- sambandsins og Vinnuveitenda- sambands íslands voru undirrit- aðir í fyrrinótt með fyrirvara um samþykki aðildarfélaga. Megin- áherlan er „á sérstaka hækkun lægstu launa og almenna kaup- máttaraukningu á grundvelli stöðugleika í efnahagsmálum,“ eins og segir orðrétt. Sum félög, t.d. Eining í Eyjafirði, ætla að láta fara fram allsherjarat- kvæðagreiðslu og því má búast við að talsvert verði liðið á mars áður en niðurstaða liggur fyrir allsstaðar. í tengslum við kjarasamning- ana sendi ríkisstjómin frá sér yfir- lýsingu í sautján liðum. Fallist var á aö 4% framlag launþega í lífeyr- issjóð verður aö fullu frádráttar- bært til skatts sem hefur það í för með sér, þegar breytingin verður að fullu komin fram, frá 1. júlí 1997, að skattleysismörk hækka í 60.700 kr. Þá á framvegis að miða verðtryggingu við vísitölu vöru og þjónustu í stað lánskjaravísitölu, sem menn telja stærsta atriði þess- arar yfirlýsingar. Einnig verður dregið úr verðtryggingu í áföng- um. Kjarasamningamir byggja á krónutöluleið þar sem lægstu Framkvæmdastjóri VSÍ: Uppbyggingarstarf getur haldið áfram Eg er sáttur við þessa lend- ingu. Hún á að tryggja það að verðbólga verði áfram svipuð eða lægri en gerist í öðrum lönd- um í okkar heimshluta. Hún á að geta geflð fyrirtækjunum færi á að sækja áfram fram og íjölg- að störfum. Hún felur í sér held- ur meiri kostnaðarhækkun en við hefðum talið skynsamlegt, sérstaklega í framleiðslugrein- unum, sem kallar á meiri fram- leiðni í okkar fyrirtækjum. Á móti kemur að tryggur friður í tvö ár gefur færi á að halda áfram uppbyggingarstarfi síð- ustu ára og þeirri hættu sem grúfði yfír að verbólga ryki upp á nýjan leik hefur verið bægt frá,“ sagði Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins. Hann segir ljóst að fyrirtækin hafi haldið að sér höndum á ýms- um sviðum aó undanfömu vegna þeirrar óvissu sem ríkt hefur um þessi mál, en nú hefur henni verið eytt. Nú verði hægt að halda áfram að keyra kaupmáttinn upp hægt og sígandi. „Eins er gríðarlega mikilvægt, út frá sjónarmiði beggja aðila, að ná saman áður en kom til verkfalla, án þess að hafa þurft aó fóma einhverju til. En við metum það svo að þetta hafi í för með sér a.m.k. 10 milljarða aukin launaút- gjöld á tímabilinu. Þetta er samt innan þeirra marka að ekki á að þurfa að koma til skyndilegra verðsveiflna. Reynslan hefur kennt okkur það að tiltölulega litl- ar nafnlaunabreytingar eru líklegri til að skila auknum kaupmætti en stóru breytingamar.“ Að hans mati marka þessir samningar tímamót að ýmsu leyti og samningalotan var strembnari en oft áður. „Það var orðið brýnt að fara yfir fjöldann allan af sér- málum, sem var gert í þessum samningum. Við metum það þannig að með almennum kjaraat- riðum þessara samninga hafi tek- ist að búa til nýjan grunn, þannig að ekki þurfi að rífa þau upp með sama hætti næst þegar við förum í þetta.“ HA launin hækka hlutfallslega mest. Samningurinn er til tveggja ára og við undirskrift hækka öll laun um 2.700 kr. á mánuði. Mánaðarlaun undir 84.000 kr. hækka sérstak- lega, en þeir sem hafa mánaðar- laun þar yfir fá ekki frekari hækk- un en þessa 2.700 kr. Þann 1. janúar 1996 hækka öll laun síðan aftur, annað hvort um 3% eða 2.700 kr. eftir félögum. Desem- beruppbót 1996 hækkar í 15.000 kr. Ákvæði frá síðustu samningum um launauppbót til þeirra sem ekki ná 80 þús kr. heildarlaunum á mánuði hefur verið framlengt. Heildarhækkum launa er mis- mikil. Laun undir 60 þús. kr. á mánuói hækka að meóaltali um 11,3% á samningstímanum, laun á bilinu 60-84 þús. um 9,2% og meðalhækkun allra launa er um 6,9%. Þá varó einnig samkomulag um ýmis sérmál. Launanefnd skipuó fulltrúum samningsaóila mun starfa á samningstímanum og fylgjast með framvindu í efna- hags-, atvinnu- og verðlagsmál- um. Hvorum aðila er heimilt að segja samningnum lausum með mánaöar fyrirvara fyrir 1. janúar 1996 ef víðtæk frávik hafa orðið á samningsforsendum. HA Kjarasamningarnir og yfírlýsing ríkisstjórnarinnar er birt í heild sinni á bls. 7 í blaðinu í dag. Verði Ijós, fyrír HM! Unnið er að því að setja upp nýja lýsingu í íþróttahöllinni á Akureyri vegna Heimsmeistarakeppninnar í handbolta, sem eykur Ijósmagnið um heiming. Fyrsti ieikurinn á Akureyri verður miiii Spánverja og Kúvæta 8. maí. GG/Mynd: Robyn Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar: Lengra varð ekki komist - fram fer allsherjaratkvæðagreiðsla hjá Einingu um samningana Eg er sáttur við þessa samn- inga á þann hátt að það sem samið var um kemur mest til þeirra sem eru á lægstu launun- um. Það er stór áfangi,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formaður verkalýðsfélagsins Einingar í Eyjafírði, sem var í samninga- nefnd Verkamannasambands- ins. Hann segir það sitt mat að lengra hafi ekki verið komist að þessu sinni enda árangurinn um- talsverður. „í beinni kauphækkun náðum við 65% af því sem farið var fram á og síðan var ýmislegt lagfært í sambandi við sérmál, t.d. hjá fiskverkafólki. Eins skiptir miklu það sem kom frá ríkinu í sambandi við lánskjaravísitöluna, Spáð er 2,5% verðbólgu ef nýgerðir kjarasamningar verða forsenda annarra samninga: Sama verðbólga og í öðrum ríkjum 0ECD - segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar Nýir kjarasamningar aðila verðbólguhvetjandi ef þeir yrðu vinnumarkaðarins sem forsenda annarra kjarasamn- samþykktir voru í fyrrinótt eftir inga á vinnumarkaðnum á næst- að ríkisstjórnin hafði komið að málinu fela m.a. í sér 6,9% með- alhækkun launa á samnings- tímabilinu sem stendur til árs- loka 1996 og að skattleysismörk hækka í kr. 60.700 þegar þau hafa að fullu skilað sér til laun- þega. Talið er að samningarnir kosti ríkissjóð liðlega 4 milljarða króna á samningstímabilinu. Þórður Friðjónsson, Þjóðhags- stofustjóri, var inntur eftir því hvort þessir kjarasamningar sem undirritaðir hafa verið, væru unni, m.a. samninga við kenn- ara. Þórður segir aö sama svipmót verði á nýrri þjóóhagsspá sem tek- ur tillit til þessara breytinga en það væri þó margvísleg áhrif sem þessir kjarasamningar hefðu á ýmsa liði og þær aógerðir sem geróar voru í tengslum við þá. „Það sem mestu máli skiptir er að verðbólgan verður aó þessum forsendum gefnum u.þ.b. 2,5%, bæði á þessu ári og á árinu 1996 sem er sama verðbólga og spáó er í öðrum ríkjum OECD þar sem stöðugleiki ríkir. Verði samning- amir fyrirmynd annarra kjara- samninga samræmast þeir þjóð- hagslegum skilyröum eins og við getum metið þau nú. Samningam- ir gera ráð fyrir meiri aukningu þjóðarútgjalda en við gerum ráð fyrir sem stafar af því að samning- amir leiða til meiri aukningar á kaupmætti heldur en gert var ráð fyrir vegna lækkunar á sköttum og launabreytinga. Samningamir byggjast að skilningi aðila á því að meiri launabreytingar hefðu getað leitt til kjaraskerðingar þvert á markmið þeirra, þ.e. kaupmátt- araukningu. Þessi samningur er byggður á raunsæjum forsendum og sam- rýmist þjóðhagslegum skilyrðum. Vandamálið er hins vegar það að afkoma ríkissjóðs versnar og á því þarf aó taka, en kostnaðaraukning ríkissjóðs er um 3 milljaróar króna, þar af um 1,8 milljarður á þessu ári og síðan viðbót á ámn- um 1996, 1997 og 1998. Það er mikils virói að friður haldist á vinnumarkaðnum og stöðugleik- inn er forsenda þess að hægt sé að ná sem bestum lífskjörum hér,“ sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóóhagsstofnunar. GG sem og aö skattleysismörkin hækka og tvísköttun af lífeyris- greiðslum verður afnumin. Það er því ýmislegt jákvætt í þessu sam- bandi og ef ég ætti að nefna þaó þrennt sem stendur uppúr þá er það kjarajöfnunin, lánskjaravísi- talan og kauptryggingasamningar fiskverkafólks.“ Hann segir það hafa verið mat manna innan Verkamannasam- bandsins að óráðlegt hefði verið að slíta samningaviðræðum þar sem aðeins fá félög hafi verið bú- in að afla sér verkfallsheimildar, t.d. aðeins 4 af 12 félögum innan Verkamannasambandsins á Norð- urlandi. „Önnur sambönd innan ASI voru tilbúin að semja á þess- um nótum. Ég tók því þá ákvörð- un að best væri að fara þessa leið og er þokkalega sáttur við aó þessi lending náðist án þess aó fara í að- gerðir.“ Um næstu helgi er stefnt á aó kynna samningana í öllum deild- um Einingar og einnig hefur verið ákveðið að láta fara fram allsherj- aratkvæðagreiðslu innan félagsins og veróur seðill sendur í pósti heim til hvers og eins, en félags- menn eru á fimmta þúsund og fé- lagið það lang stærsta á Norður- landi. Niðurstaða úr henni gæti legið fyrir á bilinu 7.-8. mars. HA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.