Dagur - 22.02.1995, Side 7

Dagur - 22.02.1995, Side 7
Miðvikudagur 22. febrúar 1995 - DAGUR - 7 Karasamningur aðila vinnumarkaðarins Skömmu eftir miönætti í fyrrinótt voru undirritaðir kjarasamningar milli landssambanda innan ASÍ, VSÍ og VMS til næstu tveggja ára. Megináhersla samningsins er á sérstaka hækkun lægstu launa og almenna kaupmáttaraukningu á grundvelli stöðugleika í efnahags- málum. Sérstök hækkun lægstu launa. Samningurinn byggir á krónutöluleið sem felur í sér að lægstu launin hækka hlutfallslega mest. Auk þess hækka lægstu laun sérstaklega umfram almennar launabreytingar við undirritun samningsins. Þannig er það svig- rúm sem til ráðstöfunar er notað sérstaklega í þágu hinna tekju- lægri. Aukinn kaupmáttur. Auk sér- stakrar áherslu á hækkun lægstu launa er með samningnum stefnt að almennri kaupmáttaraukningu á samningstímanum. Stöðugleiki tryggður. Þær kostnaðarhækkanir sem felast í samningnum raska ekki þeim stöðugleika sem við höfum búió við undanfarin misseri og eiga að tryggja áframhaldandi lága verð- bólgu og stöðugt gengi krónunnar. Með samningnum hafa verið sköpuö trygg starfsskilyrði fyrir fyrirtækin á samningstímanum. Þannig hafa samningsaðilar lagt sitt af mörkum til að bæta sam- keppnisaðstöðu íslensks atvinnu- lífs, stuðlað að auknum vexti og árangursríkri baráttu gegn at- vinnuleysi. Launabreytingar Launahækkun við undirskrift. Kjarasamningamir byggja á krónutöluleið þar sem lægstu launin hækka hlutfallslega mest. Við undirskrift hækka öll laun um 2.700 krónur á mánuði. Að auki hækka laun sem eru undir 84.000 krónum sérstaklega. Laun undir 48.000 kr. á mánuði hækka um 1.000 kr. Sú tala lækkar um kr. 100 fyrir hverjar 4.000 krónur. Þessi sérstaka hækkun miðast við föst laun fyrir dagvinnu að með- talinni yfirborgun. Launahækkun 1996. Hinn 1. janúar hækka síðan öll laun: um 3% hjá félagsmönnum í Samiðn, sambandi iðnfélaga og Rafiðnaðarsambandi Islands um 2.700 kr. hjá félagsmönn- um í Verkamannasambandi Is- lands, Landssambandi íslenskra verslunarmanna, Verslunarmanna- félagi Reykjavíkur, Landssam- bandi iðnverkafólks og Þjónustu- sambandi Islands. Hækkun desemberuppbótar 1996. Auk launahækkunar 1996 hækkar desemberuppbót á því ári og verður 15.000 kr. Launabætur. Þá hafa samn- ingsaðilar náð samkomulagi um að framlengja ákvæði . síðustu kjarasamninga um tekjutryggingu þeirra sem ekki ná 80.000 kr. heildartekjum á mánuði með sér- stökum launabótum í maí og des- ember bæði árin. Heildarhækkun launa er mismikil Laun undir 60.000 krónum á mán- uói hækka að meðaltali yfir samn- ingstímann um 11,3%. Laun á bilinu 60.000-84.000 hækka að meðaltali um 9,2%. Meðalhækkun allra launa er um 6,9% á öllu samningstímabil- inu. Samhliða aðalkjarasamningun- um hefur orðið samkomulag um ýmis sérmál. Þar á meðal er nýr kauptryggingarsamningur fisk- vinnslufólks, sem dregur verulega úr því atvinnuóöryggi sem fisk- verkafólk hefur búið við. Þá má nefna að á samnings- tímabilinu mun starfa sérstök launanefnd skipuð fulltrúum samningsaðila. Hlutverk nefndar- innar er að fylgjast með fram- vindu í efnahags-, atvinnu-, og verðlagsmálum. Hvorum aðila er heimilt að segja samningum laus- um með mánaðar fyrirvara fyrir 1. janúar 1996 ef marktæk frávik hafa orðið á samningsforsendum. Sátt um launajöfnun, sem -samningurinn endurspeglar byggir á því aó þeir hærra launuóu í þjóðfélaginu sætti sig við að laun þeirra fyrir dagvinnu hækki um fasta krónutölu 2.700 kr. á mánuói árið 1995. Náist ekki víðtæk sam- staóa um þessa leið er ljóst að meginmarkmiðum samningsins um áframhaldandi stöðugleika og launajöfnun er telft í tvísýnu. Skilyrði þess að samnings- markmiðunum verði náð er að víðtæk samstaða skapist meðal allra tekjuhópa í samfélaginu um að sá bati, sem kominn er fram í þjóðarbúskap okkar gangi ríkar fram til þeirra sem lægri hafa launin. Dæmi um hækkun launa á samningstímabilinu m.v. að valin sé krónutöluleiðin 1. janúar 1996 Laun fyrir hækkun Við undirskrift Janúar 1996 Samtals 44.000 3.700 2.700 50.400 48.000 3,600 2.700 54.300 52.000 3.500 2.700 58.200 56.000 3.400 2.700 62.100 60.000 3.300 2.700 66.000 64.000 3.200 2.700 69.900 68.000 3.100 2.700 73.800 72.000 3.000 2.700 77.700 76.000 2.900 2.700 81.600 80.000 2.800 2.700 85.500 84.000 2.700 2.700 89.400 og hærri 2.700 2.700 Yfirlýsing ríkisstjómarinnar í tengslum við kjarasamninga lands- og svæðasambanda innan ASI og vinnuveitenda I tengslum við kjarasamninga á al- mennum vinnumarkaði lýsir ríkis- stjómin yfir eftirfarandi: 1. Verðtrygging fjárskuldbind- inga, sem nú miðast við lánskjara- vísitölu, verður framvegis miðuð við vísitölu framfærslukostnaðar. Ríkisstjómin undirbýr nú að hrinda þessari breytingu í fram- kvæmd þannig að hún hafi al- mennt gildi, einnig gagnvart verð- tryggingu núverandi fjárskuld- bindinga. Jafnframt verður unnið að því að draga úr verðtryggingu í áföng- um. 2. Á árinu 1995 verður heimilt að draga 2% af 4% framlagi laun- þega í lífeyrissjóð frá tekjum við álagningu skatta og komi þetta til framkvæmda 1. apríl. Frá og með 1. júlí 1996 verður heimilt að draga frá 3% og allt 4% framlagið frá 1. júlí 1997. Hér er um mjög víðtæka breytingu að ræða sem hefur í för meó sér verulegt tekju- tap fyrir ríkissjóð og sveitarfélög- in. Þessu verður að mæta með auknum tekjum og/eða niður- skurði útgjalda. 3. Eingreiðslur í almanna- og atvinnuleysistryggingum verða greiddar í samræmi vió ákvæði um eingreiðslur í kjarasamning- um. 4. I framhaldi af viðamiklum aðgerðum til að draga úr skatt- svikum verður enn gert átak til að fylgja eftir þeim árangri sem náðst hefur og efla skattrannsóknir. Þrjú frumvörp sem styrkja þetta átak eru nú til afgreiðslu á Álþingi og stefnt verður aó afgreiðslu þeirra. 5. Ríkisstjómin mun beita sér fyrir afgreiðslu fmmvarps til laga um breytingar á skattalögum þar sem m.a. er kveðið á um að reki vinnuveitandi hópferðabifreið til að flytja starfsmenn sína til og frá vinnu teljist hlunnindi starfs- manna af slíkum ferðum ekki til skattskyldra tekna. 6. Skattmati á kostnaói vegna ferða verður breytt þannig að heimilaður verður frádráttur vegna þeirra ferða sem famar eru á veg- um atvinnurekenda, án tillits til fjölda ferða á ári, en þó þannig að hámark í hverri ferð sé 30 dagar. 7. í fjárlögum ársins 1995 er heimild til að hækka framlag rík- isins til jöfnunar húshitunarkostn- aðar um 50 m. kr. gegn jafnháu framlagi orkufyrirtækjanna. Þessi hækkun kemur í kjölfar rúmlega 50% raunaukningar niður- greiðslna á undanfömum ámm. Reiknað verður með framlagi orkufyrirtækjanna þannig að nið- urgreiðslur húshitunarkosmaðar aukist á þessu ári eins og heimild er fyrir í fjárlögum. 8. Reglugeró um endurgreiðsl- ur á kostnaði vegna ferða- og dvalarkostnaðar vegna sérfræði- heimsóknar og innlagna á sjúkra- hús verður endurskoðuð. 9. Ríkisstjómin mun skipa nefnd sem geri tillögur um að- gerðir til að lækka framfærslu- kostnað heimilanna. Nefndinni verður sérstaklega falið að leita leiða til að lækka vöruverð á landsbyggðinni. 10. Ríkisstjómin fagnar áhuga launþegasamtakanna á framgangi frumvarps um framhaldsskóla þar sem m.a. verður boðið upp á nýjar verk- og starfsmenntabrautir. Rík- isstjómin mun beita sér fyrir því að frumvarp um framhaldsskóla verði afgreitt á Alþingi en með því fmmvarpi eru skapaðar for- sendur til margvíslegra breytinga á verk- og starfsmenntun. 11. Húsnæðismál. Seðlabanki íslands, Félagsvís- indastofnun og Húsnæðisstofnun ríkisins munu skila athugun sinni á umfangi vanskila og eðli greiósluerfiðleika heimilanna á næstunni. Næstu vikur verða nýtt- ar til að skilgreina til hvaða að- gerða eigi að grípa í skuldbreyt- ingum hjá þeim, sem eru í greiðsluerfiðleikum. I fmmvarpi til laga um breyt- ingar á lögum um Húsnæðisstofn- un ríkisins, sem nú er til meðferð- ar á Alþingi, er að finna eftirtalin atriði: Verkalýðshreyfingin eigi áfram fulltrúa í húsnæðisnefndum sveit- arfélaga. Afskriftir í félagslega kerfinu verði lækkaðar úr 1,5% í 1%. I stað þess að vextir í félags- lega kerfinu lækki á ný þegar laun fara niður fyrir viðmiðunarmörk, hefur félagsmálaráðherra kynnt áform um að þrengja vemlega skilyrði fyrir því að vaxtahækkun geti orðið. Stefnt verður að fjölgun greiðsludaga vegna vaxtabóta og að greiðslur þeirra gangi til greiðslu afborgana af lánum hjá Húsnæðisstofnun. Því verður beint til bankastofn- ana og lífeyrissjóða að gert verði átak í að skuldbreyta lánum. Gera þarf ráðgjöf Húsnæðis- stofnunar og fmmkvæðisskyldu hennar í því efni öflugri. 12. Unnið verður að úrbótum í málum fólks í atvinnuleit með virkum aðgerðum á sviði verk- menntunar og starfsþjálfunar. Á þessu ári verður 15 m.kr. viðbót- arframlagi ráðstafað sérstaklega til þessara mála. 13. Ríkisstjómin mun í samráði við aóila vinnumarkaóarins undir- búa aðgerðir sem takmarki svo- nefnda gerviverktöku og tryggi réttindi launþega. 14. Til þess að tryggja fram- hald verkefna sem miða að því aó gera tillögur um aðgerðir til að draga úr launamun milli karla og kvenna mun ríkisstjórnin leggja fram viðbótarfé á þessu ári, allt aó 3 m.kr. 15. Ríkisstjómin mun beita sér fyrir afgreiðslu fmmvarps til laga um breytingu á skattalögum þar sem m.a. er kveðið á um að sann- anlega tapað hlutafé í félögum, sem orðið hafa gjaldþrota, skuli teljast til rekstrargjalda. Sama Verkfræðingafélag íslands hélt árshátíð sína í byrjun febrúar á Hótel Sögu. Á meðal góðra gesta var forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir og dr. Jóhannes og Dóra Nordal. Á árshátíðinni sæmdi formaóur félagsins, Jóhann Már Maríusson, þrjá félagsmenn gullmerki VFI og afhenti þeim heiðursskjöl sem á var letrað. Þetta voru þeir Þóroddur Th. Sig- mun gilda um hlutafé, sem tapast hefur vegna þess að það hefur ver- ió fært niður í kjölfar nauðasamn- inga. 16. Athugað verði að skipta ábyrgðasjóði launa þannig að fyr- irtæki innan VSÍ og VMS myndi sérdeild og aórir atvinnuveitendur sérstaka deild. 17. Lögum um Atvinnuleysis- tryggingar verði breytt í því skyni að gera fastráðningu fískvinnslu- fólks mögulega. urðsson, vélaverkfræðingur, Vífill Oddsson, byggingarverkfræðingur og dr. Geir A. Gunnlaugsson, vélaverkfræðingur. Myndin var tekin við afhendingu gullmerkj- anna, f.v. eru Ambjörg Edda Guð- björnsdóttir, framkvæmdastjóri VFI, Jóhann Már Maríusson, for- maður VFÍ, Vífill Oddsson, Þór- oddur Th. Sigurðsson og dr. Geir A. Gunnlaugsson. Heiðursveiting Verkfiræð- ingafélags Islands

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.