Dagur


Dagur - 07.03.1995, Qupperneq 2

Dagur - 07.03.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriójudagur 7. mars 1995 FRÉTTIR Reykjahverfi: Ný atvinnu- sköpun í deiglunni Aðalsteinn Árnason, deildar- stjóri Matbæjar KÞ, hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Stöplafisks hf. í Reykjahverfi. Aðalsteinn tekur við stöðunni 1. apríl af Tryggva Óskarssyni, sem gegnt hefur starfinu fyrir hlutafélagið frá 1. des. sl. en var áður með rekstur fyrirtækisins á leigu. Tryggvi er formaður atvinnu- málanefndar hreppsins og segir hann aó rekstur Stöplafisks hafa gengið nokkuð vel. Tíóarfar spili þó inní, færri komi til aó kaupa haröfisk á staónum vegna ótíóar- innar, minna sé um mannfagnaði og félagslíf og menn eigi jafnvel erfitt með að komast til vinnu. Tryggvi sagði að unnið væri af fullum krafti við nýja atvinnu- sköpun hjá fyrirtækinu og ef allt gengi upp gæti orðið veruleg aukning á störfum í haust. Tryggvi sagði að uppsveifla væri í atvinnumálum í hreppnum, en hún skapaðist mest af þeirri von aó menn Iosnuðu við ríkis- stjómina í vor. Þrjú íbúöarhús eru í byggingu, á Laxamýri, við Hrísateig og á Þverá. „Það er ótalmargt hægt að gera í feróamálum ef samstaða næst um málin og hægt er aó byggja upp í ferðaþjónustu ef við stönd- urn rétt aö. Stórir hópar útlendinga sækjast t.d. eftir aó komast í kyrrð, jafnvel þó stórhríð geysi úti og við höfum aðstöðu til að byg&ja upp sumarhúsasmíði og fara meó fólk í jeppaferðir og sleðaferðir,“ sagði Tryggvi, bjart- sýnn á atvinnumálin. IM Fyrsta sendingin af loönuhrognum til frystingar barst Útgerðarfélagi Akurcyringa hf. frá Krossancsverksmiðjunni sl. sunnudag eftir að Sigurður VE hafði landað þar. Mynd: GG Loðnuhrognafrysting hafin hjá ÚA - ný hrognatæki í Krossanesi reyndust mjög vel Sigurður VE-15 landaði 1250 tonnum af loðnu í Krossanes- verksmiðjuna sl. fóstudagskvöld og fóru um 400 tonn af aflanum gegnum ný tæki sem sett hafa verið þar upp og skilja hrognin frá loðnunni. Þessi fyrsta notk- un hrognatækjanna tókst mjög vel. Loðnan var kreist aófararnótt laugardagsins og fram eftir laug- ardcginum og síðan var hrognun- um ekið til Utgerðarfélags Akur- eyringa hf. og var hafist handa við frystingu þeirra þegar á sunnudeg- inum. í þessari fyrstu loönukreist- ingu hjá Krossanesi og frystingu hjá UA komu um 18 tonn af þokkalega góðum hrognum en þroskastigið var tæplega nógu gott í um þremur tonnum af heildar- magninu. Ekki er von á lleiri bátum til löndunar í Krossanesi í bili, enda bræla á miðunum og siglingarleið- in vestur fyrir Hom ekki árennileg vegna norðanhvassviðris. Nú er orðið heldur styttra af loðnumið- unum vestur fyrir land á Noróur- landshafnir heldur en suður fyrir á Austfjarðarhafnimar. GG Jarðverk bauð lægst Ágúst Einarsson, ritari Þjóðvaka: 10 þúsund ný störf með aukinni framleiðni í gær voru opnuð tilboð í vega- gerð í Aðaldal. Um er að ræða 3,6 km kafla á Aðaldalsvegi frá Hvammavegi að Lindahlíð. Verður vegurinn endurbyggður og styrktur og síðan lagður bundnu slitlagi. Jarðvek hf. á Dalvík bauð Iægst, tæpar 9,5 milljónir króna, 75,51% af kostnaðaráætlun sem var 12,5 milljónir rúmar. Klæðning hf. í Garðabæ átti næst lægsta tilboð, 76,51% af kostnaðaráætlun, þá kom Amar- fell hf. á Akueyri með 80,76%, Jarðverk hf. Nesi 82,53%, Borgar- verk hf. Borgamesi 85,87%, Snið- ill hf. Mývatnssveit 87,20% af kostnaðaráætlun og Steinsteypir hf. Hafralæk átt lang hæsta tilboð- ið, 16,2 milljónir, sem er tæpum 30% yfir kostnaðaráætlun. HA Halldór með fúnd á Akureyri í kvöld - formaður Framsóknarflokksins á ferð um Norðurlandskjördæmi eystra Þessa dagana er Halldór As- grímsson, formaður Framsókn- arflokksins á ferð um Norður- landskjördæmi eystra, ásamt frambjóðendum flokksins í kjör- dæminu. Þeir hafa heimsótt fyr- irtæki og vinnustaði í kjördæm- inu en í kvöld verður haldinn fundur í kosningaskrifstofu flokksins, Glerhúsinu, og hefst hann kl. 20.30. Yfirskrift fundarins er „Fram- tíðarsýn" þar sem rætt verður um stöðu Islands í samfélagi þjóðanna og möguleika íslenskra atvinnu- vega hér og erlendis. Fimmtudaginn 9. mars verður svo haldinn fyrsti morgunfundur af mörgum sem veróa í Glerhús- inu fram til kosninga. Á þessum fyrsta morgunfundi mun Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaó- ur, gera grein fyrir nýsettum lög- um um olíugjald, breytingu vöru- gjalds og um leigu- og langferða- bílstjóra. Einnig verður rætt um önnur hags- munamál sem tengjast bif- reiðaeigendum og flutninga- starfsemi. Síðdegis, kl. Halldór Ásgríms-17.30, verður svo son. opinn fundur í Glerhúsinu, sem tileinkaður er bifreiðaeigendum og þeim sem hafa atvinnu sína af akstri eða þjónustu við bifreiðar og öðrum áhugamönnum. Á fund- inum verða frambjóðendur Fram- sóknarflokksins í kjördæminu ásamt sérfræðingum í greininni. Allir eru hjartanlega velkomnir hvar í flokki sem þeir eru og veró- ur leitast við að svara þeim spum- ingum sem bomar verða fram. Kaffiterían verður opin eins og alla aðra daga fram til kosninga. Skoðanakannanir hafa leitt í Ijós að fylgi Þjóðvaka hefur dalað um nær helming frá því sem það var fyrir áramót, er nú um 10%. Ágúst Einarsson, ritari Þjóð- vaka, segir að sú niðurstaða komi ekki á óvart því finna megi mikinn hljómgrunn meðal þjóð- arinnar með stefnumálunum og það fari vaxandi þegar kjósend- ur hafi kynnt sér þau betur. Ágúst segir fylgi Þjóðvaka fara vaxandi á ný og í komandi kosn- ingum verði fylgið um 20%. Sókn í atvinnumálum er eitt af stefnumálum Þjóðvaka fyrir kom- andi kosningar og gert er ráð fyrir að skapa megi a.m.k. 10 þúsund ný störf á kjörtímabilinu með áherslu á aukna framleiðni í fyrir- tækjunum. Ágúst Einarsson segir þetta raunhæfa áætlun því fram- leiðni íslenskra fyrirtækja í dag sé með því lægsta sem gerist í Evr- ópu. „Þessi lága framleiðni þýðir aó hér eru færri störf en þyrfti aó vera og fólk þarf að vinna langan vinnudag til að hafa í sig og á. Með markvissu átaki í markaðs- málum, bættri stjómun, áherslu á rannsóknir og þróun tengt sókn í menntamálum er þetta raunhæfur möguleiki. Það á meirihlutafylgi meóal þjóðarinnar að taka upp veiði- leyfagjald og það er lióur í mark- vissri fiskveiðistjómun auk þess að allur afli verði seldur á fisk- mörkuöum en þá mun leiguliða- kerfið innan kvótakerfisins leggjast af. Við þetta skapast ýmis markaðstækifæri sem er eðlilegri leið en að hlaða sífellt erlendum skuldum á íslenskan sjávarútveg. Vió viljum heimila takmarkaða erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi en takmörkum heimildina viö 20% eignarhlut í einstökum fyrir- tækjum og að fyrirtækin lúti ís- lenskum lögurn," sagói Ágúst Ein- arsson. GG Ályktun útifundar kennarafélaganna: Stjórnvöld gangi til viöræöna af alvöru í gær héldu kennarafélögin úti- fúnd á Ingólfstorgi í Reykjavík. Fundurinn skoraði á stjórnvöld að ganga til viðræðna við kenn- ara af alvöru, enda kennarar „fyrir löngu orðnir þreyttir á fögrum yfirlýsingum stjórnvalda um skólamál sem birtast í orði en ekki á borði,“ eins og segir orðrétt í ályktun fundarins. Þar segir jafnframt að vænting- ar kennara séu byggðar á endur- teknum yfirlýsingum stjómmála- manna um gildi menntunar, breytt hlutverk kennara og nauðsyn á leiðréttingu á launakjörum þeirra. Nú sé komið aö stjómvöldum að standa við stóru orðin, hætta pró- sentuleikfimi og ganga til alvöru viðræðna við kennara sem byggist á þekkingu á skólastarfi og metn- aði fyrir hönd menntunar á Is- landi. Stjórnvöld verði að átta sig á því að gott menntakerfi kostar peninga. HA Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bygginganefnd hefur sam- þykkt eriridi Guðnýjar Önnu Annasdóttur um leyfi til að reka sérskóla í austurhluta fé- lagsheimilis Þórs v/Skarðshlíð „enda verói skilyrói í umsögn Vinnuefúrlits ríkisins fullnægt og staðfesting þess send bygg- ingafulltrúa". ■ Þá hefur bygginganefnd samþykkt erindi Guðnýjar Önnu um leyfi til aó reka og breyta í leikskóla verslunarhús- næói á 1. hæð Móasíóu 1 á Ak- ureyri. Erindió er samþykkt með fyrirvara um samþykki allra ineðeigenda. ■ Á fundi menningarmála- nefndar nýverið var lagt fram til kynningar bréf frá Tryggva Hansen, þar sem reifaðar eru hugmyndir um atvinnuskap- andi verkefni á sviði menning- ar- og ferðamála. Menningar- málanefnd tók jákvætt í erindió og samþykkti að fela menning- arfulltrúa að kynna erindið íyr- ir atvínnumálanefnd, skipu- lagsnefnd og skólanefnd MA. ■ Menningarmálanefnd hefur samþykkt eftirfarandi skipt- ingu fjár vegna gjaldfærðs stofnkostnaðar á árinu 1995: Amtsbókasafnið: Tölvuvæðing 250 þúsund, hillur í geymslu 120 þúsund, skrifborðsstólar í sal 160 þúsund. Héraösskjala- safnió: Tölvuvæóing 100 þús- und, hillur í gcymslu 120 þús- und. Listasafnið: Tölvuvæðing 400 þúsund, listaverkakaup 600 þúsund. ■ A fundi menningarmála- nefndar var lagt fram uppgjör vegna útgáfu 2. bindis Sögu Akurcyrar og upplýsingar um birgðir af 1. og 2. bindi af Sögu Akureyrar. Fram kom að óseld væru einungis um 80 eintök af 1. bindi sögunnar. Fulltrúar sem voru í ritnefnd 2. bindis mættu til viðræóna um hvcmig staðið vcrði að áframhaldandi ritun Sögu Akureyrar. ■ Á fundi íþrótta- og tómstund- ráðs 22. febrúar sl. var rætt um fund sem íþrótta- og tóm- stundaráð mætti á 14. febrúar sl. að frumkvæði Foreldrafélags G.A. meó stjóm þess. í framhaldi af því var lagt fram bréf frá fulltrúaráói for- eldrafélaga í grunnskólum á Akureyri þar scm fram kemur ósk um aó böllum í Dynheim- um ljúki kl. 24 og einnig að böm í 8. bekk fái aðgang að þessum böllum frá áramótum. Iþrótta- og tómstundaráð sam- þykkir að verða við óskum fulltrúaráðs foreldra. Oddur Halldórsson óskaði sérbókað: „Dansleikjahald í Dynheimum fellur undir viðurkcnnda æsku- lýðsstarfsemi og því heimferó firá þeim undanþegin útivistar- reglum. Unglingar 16-17 ára sækja töluvert dansleiki í Dyn- heimum. Ég hef áhyggjur af aó unglingar hópist saman annars- staðar séu danslcikir úl 24. Að framantöldu tel ég að dans- leikjahald eigi að vera óbreytt eða til kl.01.“ Guðmundur Jóhannsson sat hjá við afgreióslu málsins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.