Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 7. mars 1995 - DAGUR - 7 Handknattleikur - úrslitakeppni: Gríðarlegur kraftur í KA-liðinu - sigraði Stjörnuna öðru sinni og er komið í undanúrslit Handknattleikslið KA er í fyrsta skipti komið í fjögurra liða úrslit íslandsmótsins eftir að liðið bar sigurorð af Stjörnunni í oddaleik liðanna á fostudagskvöld. KA byrjaði betur og hafði yfir nán- ast allan lcikinn. Staðan í leik- hléi var 10:12 KA í vii og eftir að liðið náði að hrista af sér tvo slenkafla í síðari hálfleik inn- byrti það sigurinn og leikmenn liðsins fögnuðu gríðarlega. Lokatölur urðu 23:26 og mætir KA Víkingi í undanúrslitunum. „Ég er rosalega ánægður með strákana og það er virkilega gam- an aö sjá hve vel þeir ungu klára sig í erfiðum leik sem þessum. Það sem réð úrslitum í dag var sú staðreynd að við vorum meó meiri breidd en þeir. Allt liðið lék vel. Sóknin spilaðist á 8-9 mönnum, vömin var frábær og Sigmar Þröstur stórkostlegur á bak við hana. Það var aldrei neinn efi í mínum huga að við myndum vinna þcnnan leik og nú munum við leggja okkur alla fram um að vinna Víking og fara alla leið,“ sagöi Alfreð Gíslason, kampakát- ur þjálfari KA, eftir leikinn á föstudagskvöld. Vöm KA-manna var ekki árennileg í byrjun leiksins og áttu heimamenn í Stjömunni í stökustu vandræðum með að fmna glufu á henni framan af. KA komst í 1:3 og síðan í 3:5 eftir að Stjaman hafði jafnað 3:3. Þá komu þrjú mörk Stjörnunnar í röð eftir aó Patrekur Jóhannesson varð að fara í annað sinn af leikvelli vegna brottvísunar. Stjaman jafnaði leikinn í 7:7 þegar um 12 mínútur voru til leik- hlés en þá gerðu KA-menn þrjú mörk í röð, Þorvaldur eitt af lín- unni og Valdimar tvö í röð úr hraóaupphlaupum. Staðan í leik- hléi var 10:12. Eftir að KA hafði náð þriggja marka forystu í byrjun síðari hálf- leiks gerði Stjaman harða hríð að KA-liðinu. Sóknarleikur gestanna fór í baklás um stund og eftir 10 mínútna leik var Stjaman skyndi- lega komin yfir, 16:15, og virtust Stjömumenn ekkert á því að láta sigurinn eftir baráttulaust. En noróanmennirnir voru einbeittari og breyttu stöðunni úr 17:16 í 18:22. Með mikill seiglu náði Stjaman að jafna að nýju, 23:23, en eftir að Einari Einarssyni var vikið af leikvelli, ósanngjamt aö mati hcimamanna, var aldrei spurning hvorunt megin sigurinn lenti. KA gerði þrjú mörk í röó í lokin og sigraði 23:26. KA lék mjög vel í þessum leik. Vöm liðsins er gríðarlega sterk og Sigmar ótrúlegur þar fyrir aftan. Anægjulegt er aó sjá hve breidd liðsins er að aukast og aó ungu strákamir eru famir aó valda veigameiri hlutverkum. Valdimar skilaði sínu vel en nýting hans á að vera betri. Hjá Stjömunni voru Konráð og Ingvar bestir. Júdó: Glæsilegt hjá Vernharð Vemharð Þorleifsson, júdó- kappi úr KA, hefur gert það gott á mótum víðs vegar um Evrópu eftir áramótin og um helgina tryggði hann sér rétt til að keppa á Evrópu- og Vernharð Þorleifsson glímdi vel í Ungvcrjalandi og hcfur sennilega aidrei vcrið i betra tormi. Hcimsmeistaramótinu í júdó með glæsilegum árangri í Búdapest í Ungveijalandi. Vemharð keppti í 95 kg flokki á opna ungverska meist- aramótinu um helgina sem cr a- mót og niargir sterkir kcppendur mæuu til leiks. Vemharð slapp vel í fyrstu urnferð þar sern hann sat hjá en í annarri umferð sigraði hann sterkan heimantann á glæsilegu ippon. Hann tapaði því næst fyr- ir Rúmena en tók tvíefldur á spænskum mótherja sínum í fjórðu umferð og felldi hann glæsilega á ippon. Vemharð glímdi við Þjóð- verja í aukaglímu um sæti og tapaði, enda orðinn þreyttur eftir fyrri átök. Vemharð endaði mót- ið í 7. sæti og tryggði sér þar með rétt til að keppa á Evrópu- og Hcimsmeistarmótinu og er þaó lfábær árangur. Vemharð tekur stefnuna upp styrkleikalistann í Evrópu til að tryggja sér sæti á Ólympíulcik- unum í Atlanta á næsta ári. Ætluðum alla leið „Þetta var nákvæmlega það sem við ætluðum okkur. Okkur tókst ekki að vinna hér í fyrsta leiknum og því urðum við að vinna í kvöld. Það tókst og ég er mjög ánægður. Við ætlum að sjálfsögðu í úrslitin,“ sagði Erlingur Krist- jánsson, fyrirliði KA, eftir leikinn. Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjömunnar var ósáttur í leikslok. „Þaó var ljóst aö annað liðið varð að lúta í lægra haldi og það kom í okkar hlut. Auðvitað er ég svekkt- ur yfir því en mér fannst vanta stemmningu hjá okkur og við réð- um ekki við Valdintar í hraðaupp- hlaupunum. Dómgæslan var okk- ur óhagstæð, sérstaklega í lokin, en ég óska KA-mönnum til ham- ingju og óska þeim góðs gengis.“ Atli Þór Samúclsson, leikmaður KA, var að vonurn himinlifandi með sigurinn. „Þetta var rosalega gaman en geysilega erfitt. Valdi- mar spilaði eins og sannkallaður gulldrengur og það var frábært að fá annan eins stuðning frá áhorf- endum eins og við fengum." SV Mörk Stjörnunnar: Konráð 7/1, Fil- ippov 5/1, Sigurður 4, Jón 4, Magnús 2 og Einar 1. Ingvar varði 18 skot. Mörk KA: Valdimar 10/3, Patrekur 4, Erlingur 4, Atli Þór 3, Helgi 2, Valur 2 og Þorvaldur 1. Sigmarvarói 19/1 skot. Dómarar: Óli Ólsen og Gunnar Kjartansson: Stóðu sig mjög vel þar sem þeir voru undir miklu álagi vegna néi- kvæðrar umfjöllunar undanfarið og leik- urinn síóur en svo auðdæmdur. Valdimar Grímsson var „sannkallaður gulldrengur“ fyrir KA-menn á föstudagskvöldið þrátt fyrir að Stjörnumenn tækju oft hart á honum. Mynd: Robyn. Skíði - alpagreinar: Kristinn aldrei betri - varð sjötti á sterku móti í Þýskalandi Kristinn Björnsson, skíðamaður frá Ólafsfírði, er í feikna góðu formi um þessar mundir og bæt- ir árangur sinn reglulega. Hann keppti ásamt félögum sínum í karlalandsliðinu á skíðum á móti í Schleching í Þýskalandi um helgina og náði þar besta ár- angri sínum í svigi til þessa. Kristinn endaði í 6. sæti og fékk 9,32 keppnistig en styrkstig mótsins var 7,12 stig. Þaó þýóir að Kristinn fékk 16,44 FIS punkta fyrir þetta mót sem er glæsilegur árangur. Arangur Kristins að undan- fömu hefur vakið verðskuldaða athygli og hann bætir sig stöóugt. Skemmst er að minnast 17 punkta mótsins í stórsvigi í Kóreu og 14 punkta mótsins í risasvigi. Amór Gunnarsson var einnig að gera góóa hluti á þessu móti en hann lenti í 12. sæti og fær fyrir það 25,9 punkta. Punktastaða hans á heimslistanum er 40,68 og er ljóst að hann mun lækka mikið á nýja listanum sem er væntanlegur. Vilhelm Þorsteinsson, Gunnlaugur Magnússon og Haukur Amórsson keyrðu allir út úr og vom þar með úr leik á mótinu í Schleching. Framundan eru áframhaldandi mót í Evrópu og síðan koma strákarnir heim um mánaóamótin mars/ajtríl til að taka þátt í Skíða- móti Islands og Icelandair Cup, sem er FIS mót Skíðasambands Islands. Kristinn Björnsson hefur sennilcga aldrei verið sterkari en nú og bætir ár- angur sinn hvað eftir annað.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.