Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 5
West Side Story í Þjóðleikhúsinu Málþing hjúkrunar- fræðinga á Norðausturlandi: Dr. Vilhjálmur Amasonflytur eríndi Fræðsludagur Norðausturlands- deildar Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga verður haldinn laugar- daginn 11. mars á Hótel KEA á Akureyri kl. 10-15 og er ætlaður hjúkrunarfræðingum og öðru heil- brigóisstarfsfólki. Yfírskrift dagsins er siðfræði - samskipti - ákvarðanataka og verða fimm erindi flutt. Valgerður Valgarðsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur og djákni, flytur erindi um sál- gæslu. Dr. Gyða Halldórsdóttir, sálfræðingur, talar um samskipti við aðstandendur fatlaöra. Heiða Hringsdóttir, hjúkrunarforstjóri, og Lilja Vilhjálmsdóttir, hjúkrun- ardeildarstjóri Dalbæ Dalvík, ræóa urn siðfræðilega umfjöllun tengda öldruðum. Olafur Odds- son, héraóslæknir Norðurlands eystra, ræðir um heimilislækninn og sjúklinginn. Dr. Vilhjálmur Amason, dósent í heimspeki við Háskóla Islands, flytur erindi um höfuðþætti siðferðilegra ákvaró- ana. A eftir fundinum verða pall- borðsumræður. Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félagsmenn og kr. 1000.- fyrir aóra, innifalið er kaffi og matur. Pátttaka tilkynnist eigi síðar en 9. mars til: Alfheiðar Atladóttur, vs. 30156 eða hs. 23682, Heiðu Davíðsdóttur, vs. 30156 eða hs. 26606, Árúnar Sig- urðardóttur, vs. 30909 eða hs. 11545. Frétlalilkynning. Þjóðleikhúsið frumsýndi söngleik- inn West Side Story, Saga úr vest- urbænum, á Stóra sviðinu sl. föstu- dagskvöld. Þessi heimsfrægi söng- leikur, sem þótti marka tímamót í bandarískri söngleikjahefð, er nú í fyrsta sinn sýndur á íslensku leik- sviði. I vesturbæ New York borgar takast götuklíkur á um völdin. Hver á götumar, „sannir" ameríkanar eða innflytjendur frá Púertó Ríkó? Olgandi tilfinningar leita útrásar í slagsmálum og spennu, vilítum dansi, heiftugu hatri - og ást. Mitt í allri hringiðunni fella ung stúlka og ungur maður af ólíkum uppmna hugi saman, þvert gegn vilja sinna nánustu. Ospillt æskuást þeirra má sín þó lítils gegn valdastríði og blóðhefndum. Söngleikurinn er byggður á hug- mynd bandaríska danshöfundarins Jerome Robbins, tónlistin er eftir Leonard Bemstein, söngtexta gerði Stephen Sondheim en leiktextann Arthur Laurents. Söngleikurinn var fyrst fmmsýndur í New York 1957. Þýðandi verksins er Karl Ágúst Ulfsson, danshöfundur og dans- stjómandi Kenn Oldfield, tónlistar- og hljómsveitarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson og hljóðstjóri Sveinn Kjartansson. Lýsing er í höndum Bjöms Bergsteins Guðmundssonar, leikmynd hannaði Finnur Amar Amarsson og búninga María Olafs- dóttir. Aðstoðarleikstjóri er Randver Þorláksson en leikstjórar em Karl Ágúst Úlfsson og Kenn Oldfield. Leikendur í West Sidé Story eru á fjórða tug talsins, söngvarar, dansarar og leikarar. Með aðalhlut- verk elskendanna ungu, Tóný og Maríu, fara Marta G. Halldórsdóttir og Felix Bergsson, til skiptsis við Valgerði G. Guðnadóttur og Garðar Thór Cortes. Foringjar götuhóp- anna eru þeir Baltasar Kormákur og Hilmir Snær Guðnason, kæmst- ur þeirra em Sigrún Waage og Ástrós Gunnarsdóttir. Ur fréttatilkynningu. Þriðjudagur 7. mars 1995 - DAGUR - 5 OPIO HÚS JAFNRÉTTISNEFNDAR AKUREYRAR Hótel KEA á alþjóðlegum baráttudegi kvenna miðvikudagskvöldið 8. MARS kl. 20.30. Það sem við vissum hefur verið staðfest 0 0 0 Kjör kvenna eru lakari en kjör karla: § ♦ í sambærilegum störfum i ♦ Með sambærilega menntun OG HVAÐ SVO??? * M Rannveig Sigurðardóttir formaður tölfræðihóps Norræna 0 jafnlaunaverkefnisins greinir frá niðurstöðum rannsóknar- y 0 innar um launamyndun og kynbundinn launamun. Kaffi Umræður JAENRÉTTISNEFND AKUREYRAR ItmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmJ Slys gera ekki boð á undan sér! ssfK? mÉUMFERÐAR Uráð / I tilefni átaksviku um fjármál flölskyldunnar býður Búnaðarbankinn upp á fjármálanámskeið þar sem leiðbeint verður um hvernig lækka má rekstrarkostnað heimilanna. Á námskeiðinu er fjallað um heimilisbókhald, áætlanagerð, lánamál og leiðir til sparnaðar svo eittlivað sé nefnt. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Handbókin „fjánnál heimilisins“ verður á sérstöku tilboðsverði, 900 kr. þessa viku. Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 8. mars í Sjallanum (Góða dátanum) kl. 19.30-22.30. Skráning í Búnaðarbankanum í síma 27600/26566 BÚNAÐARBANKINN Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.