Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 07.03.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Þriðjudagur 7. mars 1995 - DAGUR - 3 Náttúruperla í nágrenni Akureyrar: - stefnt aö friðun svæöisins Um nokkurt skeið hafa verið uppi hugmyndir um friðun á ós- hólmum Eyjafjarðarár, en það er nú þegar orðið vinsælt útivist- arsvæði. Vestari hlutinn tilheyr- ir Akureyrarbæ en sá eystri er í einkaeign og fellur undir lög- sagnarumdæmi Eyjafjarðar- sveitar. Hefur Árna Steinari Jó- hannsyni, umhverfisstjóra Akur- eyrar, og Benedikt Björnssyni, skipulagsráðgjafa Eyjafjarðar- sveitar, verið falið að vinna kort er sýni afmörkun friðaða svæð- isins og hvaða form verndunar er heppilegast. Samkvæmt aðalskipulagi Ak- ureyrar er sá hluti óshólmanna sem bænum tilheyrir friðaður. Aó sögn Áma Steinars hafa menn séð hvað áratugalöng friðun á flug- vallarsvæóinu hefur haft í för með sér en allt yfirbragð svæðisins hef- ur breyst til hins betra. Það er einnig áhugamál Flugmálastjómar að allir óshómamir verði friðaðir því vegna flugöryggis hefur verið reynt aö beina varpi og umferð fugla austar á svæðið. Ámi Steinar sagði menn upp- haflega hafa haft í huga aö svæðið mundi afmarkast sunnan til af gamla þjóðveginum sunnan við flugvöllin og af Leiruveginum í norðri. Á fundi umhverfisnefndar Akueyrarbæjar í byrjun febrúar, þar sem mættir voru Bjami E. Guðleifsson, formaður nátúm- vemdamefndar Eyjafjarðarsveitar, áðumefndur Benedikt Bjömsson og Pétur Þór Jónasson, sveitar- stjóri Eyjafjarðarsveitar, kom fram að hjá Eyjafjarðarsveit hafa menn áhuga á að stækka þetta svæði talsvert þannig að veruleg lönd sunnan gamla þjóðvegarins falli einnig undir hið friðaða land. Þegar búið verður að vinna kort af svæóinu liggur næst fyrir að ræða frekar vió landeigendur, en þeir hafa að sögn Árna Steinars veriö afar jákvæðir í garð þessa máls, en gert er ráð fyrir að um Skátafélagið Víkingur á Húsavík: 75 nýliðar við inntökuathöfn - félagið er að sprengja utan af sér nýfengið húsnæði Fríður hópur 75 ungra nýliða var tekinn inn í nýendurreist skátafélagið Víking á Húsavík við hátíðlega athöfn á afmælis- degi Baden Powell, stofnanda skátahreyfmgarinnar. Skátafélagið Víkingur var upp- haflega stofnaó 1940 og er því 55 ára um þessar mundir, en starf- semi félagsins hefur legið niðri í allmörg ár. Jón Ármann Ámason afhenti foringjunum íslenska fána sem verið höfðu í eigu Víkings. Fánamir voru á fánastöngum sem félagið átti og Jón hefur lagfært. Björg Friöriksdóttir afhenti gjafa- bréf fyrir landareign frá Knúts- stöóum, þar sem skátafélagið átti skála. Stefana Gylfadóttir foringi sagði aó skátamir litu björtum augum til þessarar landareignar og hygóust nota hana sem útivistar- svæði með hækkandi sól. „Við vorum mjög ánægðar með þessa athöfn og stoltar af bömunum, sem stóðu sig vel,“ sagði Stefana um inntökuathöfn- Fríður hópur skáta við inntökuathöfnina í skátafélagið Víking á Húsavík. Mynd: IM ina. Meó fullorðnu foringjunum sem er hreinlega að sprengja utan eru nú um 90 félagar í Víkingi af sér nýfengið húsnæði. IM einhverja hefðbundna notkun á landinu verði að ræða, svo sem beitarhólf og kartöflugaróa. Þá þarf einnig aó taka ákvörðun um hvaða form af friðun verður valið, t.d. bæjar- og byggðafriðun, fólk- vangsfrióun eða friðlandsfriðun. Leirusvæðið er sannkölluð náttúruperla og er nú þegar geysi- lega vinsælt útivistarsvæði, t.d. er fjöldi fólks sem reglulega gengur eftir gamla þjóðveginum. Til em hugmyndir um skipulag svæðisins þar sem gert er ráð fyrir að gamli þjóðvegurinn verði stofnbraut í gegnum óshólmana fyrir bæði gangandi og ríðandi umferð og bílastæði verði bæði að austan- og vestanverðu. Einnig eru stígar og troðningar um allt svæðið. Þá er gert ráð fyrir merkingum á nátt- úrulífi svæðisins, t.d. hinu fjöl- skrúðuga fuglalífi sem þama er. HA Þú sparar 84 kr. ái kíló U1 m i i» (nr. 10289) Bygging íbúðarhúsnæðis Snægil 1, Akureyri Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd félagsmálaráðu- neytisins, óskar eftir tilboðum í byggingu íbúðarhúss að Snægili 1, Akureyri. Húsið verður steinsteypt, einnar hæðar, um 335 fm. að grunnfleti og 1.198 rúmm. Yfir hluta hússins er steypt plata og uppstólað þak, en létt timburþak að hluta. Húsið skal einangra að utan og klæða með sementsmúrkerfi. Verktaki skai grafa fyrir húsi, byggja upp og skila full- búnu að utan sem innan. Einnig skal verktaki ganga frá lóð, bílastæðum, hellulögnum og gróðri. Verkinu skal vera að fullu lokið 17. nóvember 1995. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 6.225.- frá kl. 13.00 þann 7. mars 1995, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 150 Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þann 29. mars kl. 14.00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Æríkiskaup Ú t b o b $k i I a árangr i I BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 91-626739 KOSNINGASKRIFSTOFAN í GLERHÚSINU FUNDUR MEÐ HALLDÓRI ( I KVÖLD, ÞRIÐJUDAGSKVÖLD FRAMTIÐARSYN Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og efstu frambjóðendur flokksins halda fund í kvöld þar sem rætt verður um stöðu ísland í samfélagi þjóðanna og möguleika íslenskra atvinnuvega liér og erlendis. Fundurinn verður haldinn í Glerhúsinu og hefst kl. 20.30 HAGSMUNIR ÞÍNIR ! FIMHTUDAGUR 9.MARS Fimmtudaginn 9. mars heldur Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður, fyrsta morgunfund af mörgum í Glerhúsinu. A þessum fundi mun Jóhannes Geir gera grein fyrir nýsettum lögum um olíugjald, breytingu vörugjalds og um leigu- og langferðabílstjóra. Kl. 17.30 verður svo opinn fundur í Glerhúsinu sem tileinkaður er bifreiðeigendum og þeim sem hafa atvinnu sína af akstri eða þjónustu við bifreiðar. Á fundinn koma þingmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu ásamt sérfræðingum í greininni. Kaffiterían verdur opin. i ^$>5 r Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður Framsóknarflokkurinn í Noröurlandskjördæmi eystra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.