Dagur - 25.03.1995, Blaðsíða 20
Formannafundur SSÍ leitar eftir samstöðu
um boðun vinnustöðvunar:
Líkur á verkfalli á
fiskiskipaflotanum
Fundur formanna aðildarfé-
laga Sjóinannasambands ís-
lands, sem haldinn var í Reykja-
vík sl. fimmtudag, samjrykkti að
fela samninganefnd SSÍ að leita
eftir samstöðu með samtökum
sjómanna um boðun vinnustöðv-
unar á fiskiskipaflotanum til að
knýja á um gerð nýrra kjara-
samninga.
Náist samstaða um boðun
vinnustöðvunar og kjaraviðræður
hafi ekki skilað árangri á næstunni
er samninganefndinni falió að
boða til aðgerða fyrir 4. apríl nk.
Konráð Alfreðsson, formaóur
Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir
að verði boðað til verkfalls 4. apríl
komi það til framkvæmda 25.
apríl nk. Konráð segir vaxandi lík-
ur aó til verkfalls komi því við-
ræður við viðsemjendur sjómanna
hafi verió árangurslausar og öllum
tillögum samninganefndar SSI
verið hafnaó. GG
Lengsti togari landsins,
Akureyrin EA, til heima-
hafnar í gærkvöld
Akureyrin EA-110 kom til
Akureyrar í gærkvöld en
togarinn hefur verið í Póllandi í
lengingu, dekk hækkað, renna
að aftan breikkuð, settur niður
nýr toggálgi, skipt um allan
vindubúnað o.fl. og er áætlaður
kostnaður við verkið um 250
milljónir króna.
Hafist verður handa við niður-
setningu á vinnslubúnaöi á milli-
dekki og gert ráð fyrir að það verk
taki um 10 daga. Akureyrin EA er
lengsti togari flotans eftir breyt-
ingar, 71,80 metra langur, og verð-
Heldur fer veður kólnandi á
landinu um helgina og á
Norðurlandi búast veðurfræð-
ingar vió norðanátt og élja-
gangi. Frost gæti orðið á bil-
inu 4-10 stig á morgun í fjórð-
ungnum og él. Á mánudag
verður hitastig svipað og
norðan gola eða kaldi. Ekki
er því útlit fyrir neinn meiri-
háttar snjóakafla þó minna
sjáist til sólar en fyrir helgina.
ur þaó væntanlega í nokkra mán-
uði en á heimleióinni mætti Akur-
eyrin Venusi HF frá Hafnarfirði
sem var á leið út en hann verður
lengdur þar í a.m.k. 80 metra.
Akureyrin EA fer á karfaveiöar
á Reykjaneshrygg að lokinni niður-
setningunni, sem framkvæmd verð-
ur af Slippstöðinni-Odda hf. GG
rln"nanhúss-”1
málning
10 lítrar
kr. 4.640.
KAUPLAND
Kaupangi • Simi 23565
Sýnum um helgina
Toyota Corolla Special Series
Glæsilegir og vel útbúnir bílar é góðu verði
Geislaspildri fylgir öllum Special Series bílum
Corolla Sedan Special Series Corolla HB Special Series
Reynsluakstur á Toyota Rav 4
Opið laugardag (rá kl. 12-16 og sunnudag frá kl. 13-17.
Bílasalan Stórholt ®TOYOTA
Óseyri 4, sími 23300