Dagur - 25.03.1995, Blaðsíða 5
KVI KMYNDI R
SÆVAR HREIÐARSSON
Laugardagur 25. mars 1995 - DAGUR - 5
Örugglega heimskastur
Borgarbíó forsýndi í gærkvöldi
grínmyndina Dumb & Dumber með
Jim Carrey og Jeff Daniels í aðal-
hlutverkum og mun þetta vera ein
fyndnasta mynd kvikmyndasögunn-
ar. Það er ekkert skrýtið þó fólk hafi
beðið eftir myndinni með mikilli
eftirvæntingu því hún var frumsýnd
í Bandaríkjunum fyrir síðustu jól og
var mest sótta myndin næsta mán-
uðinn. Hún er búin að hala inn 115
milljónir dollara í Bandaríkjunum
og er enn að. Myndin verður aftur
forsýnd í kvöld og annað kvöld.
Þetta er mynd sem dýpkar hugtakið
„heimska" á afar eftirminnilegan
hátt. Carrey og Daniels eru í hlut-
verkum misheppnaóra náunga, sem
hafa gengið saman í gegnum súrt og
sætt. Otrúlegur hálfvitaskapur hefur
séð til þess að þeir hafa átt í erfið-
leikum með að láta drauma sína
rætast. Lloyd Christmas (Jim Carr-
ey) starfar sem limósínubílstjóri og
ekur föngulegri konu á flugvöllinn.
Lloyd liggur dolfallinn eftir og þeg-
ar hann tekur eftir því að konan
gleymdi tösku á miðju flugvallar-
gólfinu fær hann félaga sinn Harry
Dunne (Jeff Daniels) í lið með sér
til að hjálpa sér að skila töskunni.
Innihald töskunnar er vafasamt og
þeir félagar lenda í miklum raunum.
Carrey hefur heldur betur komið sér
á spjöld Hollywood-sögunnar síð-
asta árið og á ótrúlega skömmum
tíma hækkuðu laun hans úr 25 millj-
ónum króna fyrir hverja mynd upp í
500 milljónir og það virðast engin
takmörk á því hvaö honum er boðið
fyrir hverja mynd í dag. Fyrir síð-
ustu sex myndir sem hann hefur
samþykkt að leika í hefur hann hal-
að inn yfir tvo milljarða og því gat
hann leyft sér að hafna tilboði upp á
1,3 milljarða fyrir að leika í mynd-
inni The Thief of Santa Monica.
Hann segist hafa hafnað tilboðinu af
listrænum ástæðum. Ef hann hefði
þegið boðið hefði hann komist í hóp
þeirra allra hæstlaunuðu í Holly-
wood.
Þrátt fyrir að Carrey sé um þess-
ar mundir boðið að leika nær öll
grínhlutverk sem bjóðast í Holly-
wood vill hann snúa sér að átakan-
legum verkefnum og þykir líklegt
að hann byrji á The Truman Show
fyrir Paramount fyrirtækið þar sem
hann mun leika ráðvilltan ungan
mann.
A meðan að virtari leikarar verða
með hugann við afhendingu Oskars-
verðlauna á mánudaginn verður
Carrey að undirbúa framhaldsmynd-
ina um Ace Ventura en tökur hefjast
á mánudag í San Antonio í Texas.
Upphaflega átti myndin að heita
Ace Ventura Goes to Africa og
myndin tekin upp í Afríku en fallið
var frá þeim hugmyndum og hand-
ritinu breytt.
• Nigel Hawthome, sem er til-
nefndur til Óskarsverölauna
fyrir leik sinn í The Madness
of King George og íslendingar
kannast við úr þáttunum Já
ráðherra, er kominn út úr
skápnum og hefur skýrt frá því
að hann er samkynhneigöur.
Þessi 65 ára leikari segist mæta
á verðlaunaathöfnina á mánu-
dag með elskhuga sinn, hinn
51 árs Trcvor Bentham, upp á
arminn.
• Jack Nicholson hefur neitað
margmilljónadollara tilboði frá
MGM kvikmyndafyrirtækinu
um að leika aukahlutverk í
myndinni Mulholland Falls
með Nick Nolte og Chazz
Palminteri í aóalhlutverkum.
Nicholson þótti hlutverkið of
líkt fyrri vcrkum sínum cn
hann hefði einungis þurft að
vinna í eina viku við gerð
myndarinnar.
• í síðustu viku hófust tökur á
nýjustu mynd Sylvester Stall-
one, Assassins, sem mun vera
hasartryllir af bestu gerð.
Antonio Banderas og Julianne
Moore leika á móti Sly I
myndinni en upphaflega var
búist við Anold Schwarzen-
egger í aóalhlutverkinu.
Ólíklegt íramhald
Nætur-
sjónaukar
Björgunarsveitir -
Sjómenn - Veibimenn
Mjög öflugir infrarauðir/laser nætursjónaukar
á ótrúlega ldgu verði, óbyrgð og meðmæli
björgunarsveita. Gerið samanburð dður en fest
eru kaup d öðrum tækjum.
Öflugt tœki sem enginn œtti að vera án
við erfiðar aðstœður í myrkri.
B. Haraldsson hf.
sími 91-43933, fax 641733.
Framsóknarvíst
Spílakvöld
Þríggja kvölda keppní
Þriðja spilakvöld.
Framsóknarvíst í Blómahttsínu
míðvíkudagínn 29. mars kl. 20.30.
Myndin um Forrest Gump var til-
nefnd til 13 Oskarsverðlauna og
þar á meðal sem besta myndin en
stóra stundin rennur upp á mánu-
dagskvöld. Tom Hanks skvetti
köldu vatni framan í yfirmenn
Paramountfyrirtækisins þegar
hann sagði í viðtali við Chicago
Tribune að það væri jafn líklegt
að hann léki Gump aftur og að
Sean Connery kynnti sig á ný sem
„Bond, James Bond“ en Para-
Nýtt ógnareðli
Eitt undarlegasta handritió í
Hollywood verður sennilega að
• Nú er orðió ljóst aó fram-
hald veróur gcrt af stórmynd-
inni Jurassic Park og mun það
nefnast hinu frumlega nal'ni
Jurrassic Park II. Michael
Crichton, sem skrifaði upphaf-
legu söguna, er nú að ljúka við
nýja risaeólubók og Stcven
Spielberg mun framleióa
myndina eins og þá fyrri. Bók-
in mun koma út seinna á árinu
en myndin verður fest á filmu
sumarið ’96 og tilbúin til sýn-
inga ári síðar.
• Whitney Houston snýr aftur
á hvíta tjaldió í myndinni Wa-
idng To Exhale þar sem hún
leikur á móti Angelu Bassett.
Leikarinn góðkunni Forest
Whitaker mun leikstýra en
hann sannfærði söngkonumar
um að vinna saman. í næsta
mánuði snýr Withney sér síðan
að gcrð myndarinnar The Bis-
hop’s Wife, ástarsögu þar sem
hún leikur á móti Denzel
Washington.
• Það getur verið erfitt að vera
kvikmyndastjama en einhver
veróur aó vera það. William
Baldwin og Cindy Crawford
fengu að kynnast því þegar þau
cyddu einni hclgí nakin á þaki
lestarvagns í Florida. Þau voru
við tökur á mynd Joel Silver,
Fair Game, og Cindy scgir ást-
arsenumar súrrealískar, undar-
legar og erfióar.
kvikmynd síðar á þessu ári. Hand-
ritshöfundur er Joe Eszterhas, sem
skrifaði m.a. handritin að Basic
Instinct og Showgirls, sem báðar
þykja með þeim frakkari síðustu
ár. Umrætt handrit kallast Sacred
Cows eða Heilagar kýr og fjallar
um forseta Bandaríkjanna sem er
beittur fjárkúgunum eftir að
óprúttnir náungar náðu myndum
af honum í ástaratlotum með
belju! Handritið hefur verið á hill-
um stóru kallanna í MGM kvik-
myndaverinu í nokkur ár en nú
hefur leikstjórinn Betty Thomas,
sem gerði myndina um The Brady
Bunch á síðasta ári, lýst yfir áhuga
sínum á að gera myndina. Talið er
að ærslin í hlöðunni verði fest á
filmu á þessu ári ef einhverjir
leikarar (mannlegir og nautslegir)
fást til aö taka hlutverkin að sér,
en ef marka má fyrri afrek Eszter-
has verða ástaratriðin kyngimögn-
uð.
Joc Esztcrhas er afbragðs pcnni og
cinn sá dýrasti í Hoiiywood.
mount hyggur á framhaldsmynd
af Gump.
Hanks þykir líklegur til að næla
í Oskarinn annaö árið í röð en
áskrifendum Stöóvar tvö gefst
kostur að sjá verðlaunaafhending-
una í beinni útsendingu aðfaranótt
þriójudagsins.
V
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
AJLLIR VELKOMNIR.
Framsóknarfélag Akureyrar.
y
»
HÁSKÓLANÁM
í REKSTRARFRÆÐl
Hagnýtt alhliða háskólanám í rekstrarfræðum.
Víðtækur og vandaður undirbúningur
fyrir stjórnunarstörf og viðskipti.
A Fjöldi námsgreina á sviði stjórnunar, markaðsmála,
fjármála, lögfræði og upplýsingatækni.
Áhersla á tengsl við atvinnulífið m.a. með
raunhæfum verkefnum.
Þjálfun í samskiptum og tjáningu
Gott bókasafn og aðgangur að erlendum gagnabönkum.
Alþjóðleg viðfangsefni
SAMVINNUHÁSKÓLINN Á
311 Borgarnes, sími 93-5000, bréfsími 93-50020
Samvinnuháskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun
sem hefur frá árinu 1990 útskrifaó rekstarfræóinga
eftir tveggja ára nám. Skólinn er staðsettur í fögru
umhverfi á Bifröst í uppsveitum Borgarfjarðar en þar
hefur verið skólahald síóan 1955 er Samvinnuskólinn
var fluttur þangað úr Reykjavík. í vor útskrifar
Samvinnuháskólinn fyrstu rekstrarfræðingana eftir
þriggja ára nám með BS gráðu.
Bifröst