Dagur - 25.03.1995, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 25. mars 1995
Bragi Halldórsson,
starfsmaður Sjálfsbjargar, Akureyri:
Ég treysti G-listanum best til að bæta stöðu
fatlaðra. Staða þeirra hefur versnað veru-
lega í tíð þessarar ríkisstjórnar og það þarf
að lagfæra.
Framtíðaratvinna
Óskum eftir að ráða fyrir einn af viðskiptavinum
okkar, kerfisfræðing eða mann vanan tölvum, með
mjög góða bókhaldsþekkingu.
★ Starfið felst m.a. í sölu á tölvum og hugbúnaði, uppsetn-
ingu og kennslu á hugbúnaðinn og öðru sem viókemur
þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins og sviói tölvu- og
hugbúnaðar.
★ Við leitum að starfskrafti sem er ósérhlífinn og áhugasam-
ur og á auðvelt með að umgangast fólk.
★ Um heilsdagsstarf er aó ræða og er starfið laust nú þegar.
★ Umsækjendur þurfa að geta farið í námsdvöl til Reykjavík-
ur í allt að sex mánuði.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni, þar sem
umsóknareyðublöð liggja frammi.
nnnnRÁÐNiNf.AR
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600
Sjúkrahús Skagfirðinga
Sauðárkróki
Óskum eftir hjúkrunarfræðingum
til starfa frá 1. júní
Um er að ræða störf á sjúkradeild og öldrunardeildum.
Upplýsingar um laun og fleira veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 95- 35270.
Nordlenskir dagar
í matvöruverslun KEA,
Grenivík
Mánudaginn 27. mars
kynna framleiðslu-
fyrirtæki KEA vörur
sínar í verslun
félagsins á Grenivík.
(Ath. breyting frá áður
auglýstri dagskrá)
Norðlenskir dagar
Trygging hf. flutt í Hofsbót
Trygging hf. hefur flutt starfsemi sína úr Glerárgötu á Akureyri
í Hofsbót 4, í rúmgott og bjart húsnæði á jarðhæð. Fyrirtækið
býður allar tryggingar, jafnt fyrir einstaklinga sem fyrirtæki og
er áhersla lögð á persónulega þjónustu. í tilefni flutningsins, var
boðið til teitis á nýja staðnum og voru þessar myndir teknar við
það tækifæri. Á innfelldu myndinni eru starfsmenn Tryggingar
hf. á Akureyri, Alfreð Almarsson, forstöðumaður, og Erna
Hrönn Magnúsdóttir. Myndir: KK
Nú verður gaman í Glerhúsinu
Á morgun sunnudag verður
kaffisamsæti fyrir eldri borgara
kl. 15.00 í Glerhúsinu. Þetta er í
ekki fyrsta skipti sem Fram-
sóknarflokkurinn stendur fyrir
kaffisamsæti fyrir eldri borgara
en það hefur verið föst venja
áratugum saman.
Heiðar Jónsson, snyrtir, mætir í
samsætið og fræðir eldri borgara
um allt sem tengist tískunni og
umgengni við hverja aðra. Þá
standa Tískuverslun Steinunnar og
Ynja fyrir tískusýningu.
Um kvöldið, kl. 20.30, verður
haldið eitt af þessum sérstöku
konukvöldum, þar sem Heiðar
Jónsson, snyrtir, fer á kostum. Þá
syngur Björg Þórhallsdóttir létt
• lög við undirleik Daníels Þor-
steinssonar og Ynja og Tísku-
verslun Steinunnar standa fyrir
tískusýningu.
Hestamannafélagið Léttir:
Vetrarleikar á Sanavellinum
f dag verða árlegir vetrarleikar
Léttis haldnir á Sanavellinum á
Akureyri. Leikarnir hafa um
árabil verið fastur liður í starfl
hestamanna á Akureyri og þrátt
fyrir óvenjulega slæm skilyrði til
þjálfunar og útreiða að undan-
förnu halda hestamenn sínu
striki og á morgun sýna þeir
gæðinga sína og etja kappi hver
við annan.
Vetrarleikamir hefjast klukkan
tíu árdegis með forkeppni í tölti
og verður sú nýbreytni viðhöfð aó
tveir keppendur verða dæmdir
samtímis.
Eftir hádegi hefst dagskráin
með fánareið og síðan setur bæj-
arstjóri Akureyrar, Jakob Björns-
son, Vetrarleikana. Þá mæta á
völlinn stóðhestar og hryssur,
bæöi upprennandi stjömur og
gamlir jaxlar, gæðingar og hross
ræktunarbúa. Unglingar sýna
hesta sína og ýmis áhættuatriði
verða á dagskrá.
Þetta er fyrsta hestamót ársins
noróan heiða en Vetrarleikamir
eru fyrst og fremst sýning og leik-
ur fyrir knapa á öllum aldri,
skemmtum fyrir þátttakendur og
áhorfendur. KLJ
Hestamenn hafa komið um langan
veg til að keppa á Vetrarleikum
Léttis, hér situr hin kunni þýski
hestamaður Andreas Trappe stóð-
hestinn Gassa á Vetrarleikum árið
1990. Mynd: KU
Sjálfstæðisflokkurinn:
Davíð á (undum í Ólafs-
firAi og Akureyrí í dag
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 27. mars 1995 kl.
20-22 verða bæjarfulltrúarnir Sig-
fríður Þorsteinsdóttir og Þórarinn
B. Jónsson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2.
hæó.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem að-
stæður leyfa.
Síminn er 21000.
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til
tveggja funda með Davíð Odds-
syni forsætisráðherra, í Noróur-
landskjördæmi eystra í dag, laug-
ardaginn 25. mars.
Fyrri fundurinn verður í Tjam-
arborg í Olafsfirði í dag kl. 11.
Fundarstjóri verður Gunnar Þór
Magnússon. Síóari fundurinn
verður á skemmtistaðnum 1929 á
Akureyri kl. 13.30. Fundarstjóri
verður Valgerður Hrólfsdóttir.
Það skal ítrekað að fundurinn er
kl. 13.30 en ekki 15 eins og fyrst
var auglýst.
Að lokinni framsögu mun Dav-
íð sitja fyrir svörum ásamt þrem
efstu mönnum á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi eysfra,
þeim Halldóri Blöndal, Tómasi
Inga Olrich og Svanhildi Ama-
dóttur. (Fréttatilkynning)
Fundað hjá Sam-
hjálp kvenna
Á mánudagskvöld kl. 20.30 verð-
ur fundur hjá Samhjálp kvenna í
skrifstofu Krabbameinsfélagsins
við Glerárgötu á Akureyri. Þar
mætir Guðmundur Magnússon frá
Stoð og fjallar um notkun gervi-
brjósta.