Dagur - 28.03.1995, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. mars 1995 - DAGUR - 7
Sagt eftir leik KA og Vals:
Lokum í götin
og klárum dæmið
- sagði Sigmar Þröstur Óskarsson
„Það er gaman að þessu. Ég hélt
að við værum að missa þetta
niður þegar staðan var orðin
16:14 og við misstum það niður
í 16:17. Þá var maður farinn að
efast aðeins og þetta var hníf-
jafnt í lokin en við höfðum
frumkvæðið og náðum að klára
þetta,“ sagði Sigmar Þröstur,
markvörður KA.
„Það þurfti stáltaugar og Pat-
rekur er bestur þegar spennan er
mest. Við löguðum heilmikið
vamarlega frá síðasta leik en samt
gerðum við vitleysur og við ætlum
að laga það fyrir síðasta leikinn,
loka fyrir götin og klára dæmið,“
sagði markvöróurinn snjalli.
Barátta og læti
„Við tökum þá bara alveg eins og
við höfum verið að gera héma,
með rosalegum Iátum og baráttu.
Það er frábær stemmning í liðinu
og menn trúa því að við getum
gert þetta og við gerum það. Það
er langskemmtilegast fyrir allt og
alla að vinna með einu en ég lofa
engu um þaö. Aðalatriðið er að
við ætlum að vinna. Það er hefó
fyrir því að vió vinnum tvo síð-
ustu leikina og þaó munum við
gera,“ sagöi Ami Stefánsson, liðs-
stjóri KA.
Valsmenn tóku tapinu karl-
mannlega og neituðu að tjá sig
eftir leikinn.
Leó Örn Þorleifsson átti stórleik ó línunni gcgn Vai og skoraði falleg mörk auk þess scm hann fiskaði vítaskot fyrir
KA-liðið. Hann sýndi augljóslega að hann gefur landsliðsfyrirliðanum ekkert eftir í baráttunni. Mynd: Robyn.
Handknattleikur - fjórði leikur KA og Vals um
íslandsmeistaratitilinn:
Hverjir eru bestir?
- KA-menn skákuðu Valsmönnum þvert á spár „sérfræöinga“
og tryggðu oddaleik um titilinn
KA sýndi enn einu sinni hvers
Iiðið er megnugt þegar Vals-
menn komu í heimsókn í KA-
heimilið á laugardaginn. Sjald-
an eða aldrei hefur handbolta-
leikur verið eins jafn og spenn-
andi og þessi leikur og íþróttin
fékk rnikla og góða auglýsingu.
Eftir að jafnt var í hálfleik,
11:11, sigruðu KA-menn verð-
skuldað, 23:22, eftir mikinn
barning á lokamínútunum. Pat-
rekur Jóhannesson skoraði sig-
urmarkið úr vítaskoti þegar
átta sekúndur voru eftir af
leiknum og KA getur nú tryggt
sér tvöfaldan sigur á tímabilinu
1994-95 með sigri á Val í síðasta
leiknum í kvöld.
KA-menn byrjuðu strax á að
taka Jón Kristjánsson úr umferó
eftir aó hann hafði leikið liðið illa
í síðasta leik. Leó Öm setti tvö
falleg af línunni eftir sendingar frá
Patreki og KA náði tveggja marka
forustu, 5:3. Valsmenn náðu að
jafna í 7:7 og komast yfir en aftur
skoraði Leó Öm og þakið var við
það að rifna af KA-heimilinu.
Dagur Sigurðsson hélt Valsmönn-
um gangandi á þessum kafla og
skoraði glæsileg mörk en Alfreð,
þjálfari KA, svaraði með mikilli
bombu, 9:9. Undir lok fyrri hálf-
leiks slepptu KA-menn Jóni úr
gæslunni en hann virtist orðinn
kaldur og Sigmar Þröstur tók
skotin hans með stæl. Erlingur var
rekinn útaf í 2 mínútur en einum
manni færri skoraði Patrekur
glæsilegt mark, 10:9. Stuttu síðar
var Alfreð vikið útaf en enn náðu
Valsmenn ekki að nýta sér liðs-
muninn og Erlingur sendi þrumu-
fleyg í slá og inn, 11:9. Síðustu
mínútuna gáfu KA-menn aðeins
eftir og Valsmenn náðu að jafna
af miklu harðfylgi fyrir hlé, 11:11.
Sama baráttan hélt áfram í síð-
ari hálfleik og jafnt var á öllum
tölum fram að 14:14. Þá varði
Sigmar glæsilega í tvígang og
Valdimar og Patrekur skoruóu sitt
markið hvor fyrir KA, 16:14. Ól-
afur Stefánsson jafnaði úr tveimur
vítaskotum og Davíð Ólafsson
kom Val yfir úr hraðaupphlaupi
en Alfreð sýndi á sér nýja hlið
þegar hann sveif inn í teiginn og
jafnaði 17:17 um miðjan hálfleik-
inn. Valdimar var loksins kominn
í gang og hann gerði þrjú af næstu
fjórum mörkum KA og hélt liðinu
einu marki á undan gestunum.
Dagur jafnaði, 22:22, með gegn-
umbroti þegar tvær og hálf mínúta
var til leiksloka og hjörtu heima-
manna misstu taktinn. Næsta sókn
misheppnaðist og Valsmenn fengu
tækifæri til að klára leikinn en
Dagur gerði afdrifarík rnistök og
fékk dæmda á sig leiktöf þegar
hálf mínúta var eftir. Erlingur, fyr-
irliði KA, nýtti síðustu sekúndum-
ar vel, slapp í gegn og fiskaði
vítakast. Það voru 8,2 sekúndur
eftir þegar Patrekur Jóhannesson
tók skotið og af einstæðu öryggi
og yfirvegun skoraði hann sigur-
markið. Valsmenn gerðu heiðar-
lega tilraun til að jafna á þeim
fjórum sekúndum sem eftir lifðu
leiks en Ingi Rafn skaut framhjá
og hreinn úrslitaleikur í höfn.
Sigmar Þröstur átti mjög góðan
leik í marki KA og sýndi enn einu
sinni að þegar hann nær sér á strik
er hann fremstur í sinni stétt. Pat-
rekur blómstraði undir álaginu og
Valdimar, sem fékk úr litlu að
moða fyrir hlé, var bjargvætturin á
lokakaflanum. Leó Örn og Valur
hafa sannað að þeir eru í hópi
bestu manna í sínum stöðum á ís-
landi í dag og óhætt að segja að
þeir hafi skyggt á stjömumar í
Valsliðinu. Hjá Val voru það Dag-
ur, Júlíus og Davíð sem héldu lið-
inu á floti en Ólafur var ekki svip-
ur hjá sjón og Jón fann sig engan
veginn.
Mörk KA: Patrekur 7/3, Valdimar 5,
Alfreó 4, Valur 3, Leó Öm 3, Erlingur 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 15.
Mörk Vals: Dagur 5, Júlíus 5, Ólafur
5/4, Davíð 4, Geir 1, Ingi Rafn I. Varin
skot: Guómundur 8/1, Axel 2.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Rögn-
vald Erlingsson. Skiluðu hlutverki sínu
afburða vel.
Áhorfendur: Þeir bestu.
Spilaö á Hlíðarenda:
Barist um miðana
Forráðamenn KA eru ekkl
sáttir við þá ákvörðun Vals-
manna að láta úrslitaleikinn
fara fram í Valsheimilinu á
Hlíðarenda. Ljóst er að bæði
lið verða af miklum tekjum
fyrir vikið auk þess sem Vals-
menn hafa gert allt scm þeir
geta til að sem fæstir KA-
menn fái aðgang en aðkomu-
liðið á rétt á Ijórðungi
aðgöngumiða. „Þeir segja okk-
ur að þeir ætli að sclja 700
miða, sent er náttúrulega bara
tómt kjaftæði, og við fengum
25% af þeim miðum eða sam-
tals 175 miða. Það er nú allt og
sumt og við erum ntjög ósáttir
við þessi vinnubrögð og flnnst
þau mjög óeðlileg,“ sagði Þor-
valdur Þorvaldsson, formaður
handknattleiksdeildar KA, í
samtali við Dag.
,J>eir ætla að hefja forsölu
klukkan tvö á þriðjudag en vió
erum búnir að fá það staðfest aö
þcir cru að sclja Valsmönnunt
ntióa í dag (í gær, innsk. blm.) á
meðan KA-mönnum er bent á að
tala við stjómarmenn síns félags
útaf þessum 175 rniðurn. Þeir
eru að selja rniða áóur en við fá-
urn séns og cm skíthræddir um
að vió hefðunt keypt upp rnið-
ana. Þcir hafa vcrið aó selja um
þúsund miða á leikina og við
eigum að fá 25% af þeim mið-
urn. Það er vonandi að við kom-
um sem flestum KA-mönnum
þama inn og það er greinilegt að
þeir cru hræddir við þcssa áhorf-
endur okkar, sem er kannski
ósköp skiljanlegt, þeir eru frá-
bærir. Þeir fá þá bara að kenna á
því á vcllinum í staðinn,“ sagði
Þorvaldur.
Sýndur beint
Leikurinn hcfst kl. 20.30 og
fimm mínútum síðar hcfst bein
útsending í Ríkissjónvarpinu frá
leiknum. KA-menn verða með
opið hús í KA-heimiIinu bæði á
meðan á lciknum stendur og eft-
ir leik þar sem lcikmenn munu
koma eins fijótt og auðió er eftir
leikinn. Leikmenn KA fóru til
Reykjavíkur í gær til að undir-
búa sig fyrir leikinn og scgjast
staðránir t að „koma með doll-
una heim.“
Skíði - alpagreinar:
Kristinn með ótrúlegar framfarir
- varð fjórði á móti í Frakklandi
Ólafsflrðingurinn snjalli, Krist-
inn Björnsson, er enn að bæta
árangur sinn og er alveg með
ólíkindum hversu vel honum
hefur gengið að undanfórnu. í
síðustu viku keppti hann á móti
í Frakklandi og endaði þar í 4.
sæti í stórsvigi.
Fyrir þennan árangur fær Krist-
inn 15,5 FIS punkta en áður hafði
hann náð sér í 17,75 FIS punkta á
móti í Kóreu í febrúar. Þetta þýðir
að ný punktastaða Kristins er nú
16,63 FIS punktar og aó öllum
líkindum er hann með þessum ár-
angri að stökkva úr sæti 216 frá
síðasta heimslista niöur í kringum
150. sæti.
Arangur Kristins í vetur hefur
verið glæsilegur og hann hefur
bætt sig svo um munar í öllum
greinum. I upphafi vetrar var hann
með 30,66 punkta í svigi og í 164.
sæti á heimslistanum en er nú
kominn niður í 17,35 punkta og í
kringum 125. sætið. í stórsvigi var
kappinn í 170. sæti með 23,10
punkta en er nú með 16,63 punkta
og í kringum 150. sætió. I risa-
svigi hefur stærsta stökkið verið
tekið þar sem Kristinn er kominn
niður í 11,38 punkta og undir 50.
sæti á heimslista en var í 319. sæti
með 42,56 punkta.
Aðrir landsliðsmenn Islands
keyrðu út úr brautinni í Frakklandi
nema hvað Akureyringurinn
Gunnlaugur Magnússon lenti í 27.
sæti. Það dugði honum ekki til aó
bæta punktastöðu sína.