Dagur - 28.03.1995, Síða 8

Dagur - 28.03.1995, Síða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 28. mars 1995 ÍÞRÓTTIR SÆVAR HREIÐARSSON íslandsmótiö í blaki: KA-strákar mæta HK í úrslitum - töpuðu fyrir liðinu um helgina „Þetta var hálf tilgangslaus leik- ur fyrir báða aðila því úrslitin gátu í sjálfu sér ekki breytt neinu um stöðuna í deildinni,“ sagði Haukur Valtýsson, leik- maður KA, eftir að lið hans tap- aði, 3:1, fyrir HK um helgina. KA lenti í þriðja sæti og mætir því HK í fjögurra liða úrslitum á miðvikudag. Leikurinn á laugar- dag var hnífjafn. í fyrstu hrin- unni var jafnvægi upp í 12:12 en þá skoruðu heimamenn síðustu þijú stigin og unni 15:12. HK hafði síðan yfirburði í annarri hrinunni, vann þá 15:5, en KA minnkaði muninn með sigri í þeirri þriðju, 12:15. KA hafði síðan frumkvæðið í Qórðu lot- unni, HK jafnaði leikinn í 13:13 og vann síðan, 15:13. „Það voru ágætar rispur í þessu en við gerðum mistök sem uróu okkur dýr og þeir náðu að nýta sér. Pétur Olafsson og Bjami Þór- hallsson gátu ekki leikið vegna meiðsla og því voru ýmsar tilraun- ir gerðar í sambandi við uppstill- ingu í leiknum. Fyrirfram tel ég að þægilegra hefði verið að mæta Þrótti í úrslitum en þar sem okkur hefur gengið betur í leikjum okkar gegn HK í vetur sé ég ekki annað en það verói bara ágætt að mæta liðinu í úrslitakeppninni,“ sagði Haukur Valtýsson, leikmaður KA. Hann sagðist bjartsýnn á að þeir gætu stillt upp sínu sterkasta liði gegn HK annaó kvöld og að menn stefndu að því aö mæta frískir til leiks og reyna aó bíta vel frá sér. Mikið lagt á sig Leikjum KA og HK var frestað í fyrri viku vegna veðurs og ekki gekk þrautalaust fyrir leikmenn að komast suður yfir heiðar að þessu sinni, eins og reyndar stundum oftar. Eftir að hafa lagt af stað klukkan hálf sjö á laugardags- morgun var komið til Reykjavíkur klukkan hálf fjögur. Kvennaleikn- um var frestað fram á kvöld en hinum um klukkustund. Litlu munaói að Stjömuleikmennimir sem léku gegn KA á Akureyri á föstudagskvöld yrðu veðurtepptir í eigin heimaleik á laugardag. Nokkrir leikmenn liðsins sátu lengi vel fastir á Holtavörðuheiði og komu suður um svipað leyti og KA. SV íslandsmótið í biaki kvenna: Stelpurnar enduðu í fjórða sæti - mæta Víkingi i Kvennalið KA í blaki hafnaði í Qórða sæti íslandsmótsins en það tapaði fyrir HK á Iaugar- dagskvöld, 3:1. Liðið mætir Vík- ingi í fjögurra liða úrslitum sem heQast annað kvöld. Það lið kemst áfram sem fyrr vinnur tvo leiki. Bjami Þórhallsson mun ekki þjálfa liðið áfram. Leikur helgarinnar gegn HK var hnífjafn og hefði getað endað hvemig sem var. Liðin unnu hvort sína hrinuna í byrjun, fyrst HK, 17:15, og svo KA, 14:16. Eftir að KA hafði haft yfir 6:12 í þriðju hrinunni náðu HK-stúlkur mjög góðum leikkafla og unnu 15:13. Heimastúlkur í HK unnu síðan fjórðu lotuna 15:9. KA-liðið hafn- aði í fjórða sæti deildarinnar og leikur því gegn efsta liðinu í úr- slitum, Víkingi. Bjami Þórhalls- urslitakeppninni son er ekki ánægður með árangur- inn og segist ekki munu halda áfram að þjálfa liðið. „Vió settum stefnuna á annað af efstu tveimur sætunum og ef allt hefði verið eðlilegt hjá okkur hefði það átt að geta gengió eftir. Eg var hins vegar að stilla upp okkar sterkasta liði í fyrsta skipti í þrjá mánuði nú um helgina. Við sumar ástæður þess verður vita- skuld ekki ráðið því meiðsl geta alltaf sett strik í reikninginn í svona dæmi. Það alvarlega í þessu er þó það metnaðar- og áhugaleysi sem ég hef þurft að glíma við á stundum. Æfmgasókn hefur verið gloppótt og stundum hafa leik- menn jafnvel setið heima í leikj- um og við slíkt er ekki hægt aó sætta sig,“ sagði Bjami Þórhalls- son, þjálfari liðsins. SV Heiðar Ingi Ágústsson er án efa besti íslenski íshokkíleikmaðurinn í dag og hann skoraði tólf mörk gegn Birninum um hcigina. Hér sést hann fagna einu þeirra. Mynd: Robyn Íshokkí: Skautafélag Akureyrar íslandsmeistari 1995 - yfirburðirnir algjorir a mótinu í vetur Skautafélag Akureyrar tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í ís- hokkí fjórða árið í röð með sigri á Birninum í tveimur úrslita- leikjum á skautasvellinu á Ak- ureyri um helgina. Sigurinn kom engum á óvart þar sem SA hefur verið með yfirburðalið í allan vetur. Fyrri leikurinn vannst 18:7 á laugardag en sá seinni 11:5 á sunnudaginn. Það var vel fagnað í leikslok enda farsælt keppnistímabil á enda. SA-Björninn 18:7 Greinilegt var strax í byrjun í hvað stefndi og SA komst í 7:0 með mörkum frá Heiðari Inga (4), Sigurði Sveini, Haraldi og Sigur- geir áður en Jouni Törmanen náöi að svara fyrir gestina. Patrik Virt- anen og Tryggvi bættu við mörk- um áður en fyrsta lota var á enda og staðan því 9:1 þegar blásið var til fyrsta leikhlés. Blíðskaparveður í byrjun leiks hafði greinilega góð áhrif á Akureyringa en þegar veðrið versnaði fóm gæði leiksins að sama skapi niður á við. Jouni skoraði þrjú fyrir Bjöminn áður en Heiðar Ingi svaraði með þremur. Sigurgeir bætti tveimur í safnið fyrir SA en Steve Mitchell skoraði eitt fyrir Bjöminn áður en lotan var úti og staðan var því 14:5 eftir tvær lotur. Heiðar Ingi bætti tveimur vió í lokalotunni og Agúst og Sigurður Sveinn skoruðu sitt markið hvor fyrir SA en Mitchelle gerði tvö fyrir gestina. Öruggur sigur var unninn, 18:7. Mörk/stoðsendingar: SA: Heiðar Ingi Agústsson 9/2, Sigurgeir Haraldsson 3/2, Sigurð- ur Sveinn Sigurðsson 2/0, Harald- ur Vilhjálmsson 1/0, Ágúst Ás- grímsson 1/0, Patrik Virtanen 1/5, Tryggvi Hallgrímsson 1/0. Bjöminn: Jouni Törmanen 4/1, Steve Mithcelle 3/0, Wendy Peace 0/2, Andri Óskarsson 0/1, Friðrik Sigurðsson 0/1. SA-Björninn 11:5 Á sunnudag tryggðu Akureyringar sér svo titilinn en það gekk þó upp og ofan. Allt annað var að sjá til leikmanna liðsins en daginn áður og engu líklegra en þeir teldu sig- urinn í höfn áður en flautað var til leiks. Heiðar Ingi byrjaði leikinn strax með góðu marki á fyrstu mínútu en Jouni Törmanen jafnaði fyrir Bjöminn. Haraldur og Heiðar Ingi bættu tveimur við en Þórhall- ur og Steve Mitchelle náðu aó jafna á ný, 3:3. Rúnar kom SA yf- ir en Jouni jafnaði enn fyrir gest- ina. Patrik Virtanen skoraöi síðan fimmta markið og staðan eftir fyrstu lotu var 5:4 fyrir SA. I ann- ari lotu gekk liðunum illa að skora en Jouni jafnaði fyrir Bjöminn um miðja lotuna og það var ekki fyrr en leikhléið var farið að nálgast að Sigurður Sveinn kom SA aftur yf- ir. Eftir fimm mínútur af þriðju lotu fór vamarmúr Bjamarins loks að gefa eftir og Heiðar Ingi, Pat- rik, Sigurgeir, Sigurður og Rúnar innsigluóu sigurinn, 11:5, og Is- landsmeistaratitillinn var í höfn. Mörk/stoðsendingar: SA: Heiðar Ingi Ágústsson 3/3, Siguróur Sveinn Sigurðsson 2/3, Patrik Virtanen 2/1, Rúnar Rúnarsson 2/0, Haraldur Vil- hjálmsson 1/0, Sigurgeir Haraldsson 1/0, Agúst Ásgrímsson 0/1. Björninn: Jouni Törmanen 3/0, Steve Mitchelle 1/1, Þórhallur Sveinsson 1/0. Hart barist á íslandsmótinu í vélsieðaakstri Fyrsta umferð íslandsmótsins í vélsleðaakstri fór fram í Mý- vatnssveit um helgina. Að keppn- inni stóðu Kvennadeild Slysa- varnafélagsins, Björgunarsveitin Stefán og íþróttafélagið Eiltfur. Keppnisgreinar eru fjórar, spyrna, fjallarall þar sem keppt er í þriggja manna sveitum, brautarkeppni þar sem tveir keppa í samhliða braut og loks snjókross þar sem margir sleðar eru í brautinni í einu og aka til- tölulega lítinn hring. Keppnin gekk nokkuð vel og tókst að ljúka henni á tilsettum tíma áður en veður versnaði á laugardaginn. Án efa má segja að Jóhann Ey- steinsson úr Eyjafjarðarsveit og Garðbæingurinn Sigurður Gylfa- son hafi verió menn mótsins en báðir unnu til fjölda verðlauna. Jóhann náði bestum tíma í fjallar- allinu og var auk þess í sigursveit- inni. I brautarkeppninni vann hann til tveggja gullverðlauna auk bronsverðlauna, silfurverðlaun hlaut hann í snjókrossi og fékk að auki bikar fyrir bestan árangur í brautarkeppninni. Árangur Sig- urðar var ekki síðri og er þrek þessa frábæra ökumanns með ólíkindum. Hann keppti í öllum þremur flokkum snjókrossins, sigraði í tveimur en Skagafirðing- urinn Stefán Álfsson vann minnsta flokkinn þar sem Sigurð- ur varð þriðji. Hann hirti cinnig gull og brons í spymunni, gull- verðlaun í brautarkeppni og átti næst bestan tímann í fjallarallinu. Hér á eftir fylgja síðan úrslit frá mótinu. Fjallarall: Bestu tíraar: 1. Jóhann Eysteinsson, P-1, XCR 440 16:43,71 2. Sigurður Gylfason, S, MXZ-x 470 17:13,29 3. Magnús Þ. Samúelsson, P-1, XCR 440 17:13,80 4. Gunnar Williamsson, S, 440 17:36,22 5. Stefán Álfsson, P-2, XCR 440 18:12,70 6. Daníel Daníelsson, P-2, XCR 440 18:14,75 Sveitatímar: (tímar tveggja bestu í hverri sveit) 1. Polaris-sveit 1 34:14,51 2. Ski-doo 34:49,51 3. Polaris-sveit 2 36:27,45 Spyrnukeppni: (Tímar í úrslitaferð) 0-500 cc 1. Sigurður Gylfason, S. MX Z-x 9,88 2. GunnarWilliamsson, S. 440 10,37 3. Stefán Álfsson, P. XCR 440 10,16 501-600 cc 1. Jóhann Bessason, S. Form. Mach 1 9,79 2. Valgeir Magnússon, P. XCR 440 11,06 3. Gísli Ólafsson S. Form. Plus 10,82 601-700 cc 1. Bogi Amarson S. Mach 1 9.08 2. Amar Oddsson AC Wildcat 700 9,66 3. Valgcir Magnússon P. XCR 440 10,83 701-800 cc 1. Kristján Bragason P. Storm 8,83 2. Aðalsteinn R. Gunnarsson S. Mach Z 9,35 3. Ásmundur Stefánsson AC ZRT 800 8,95 Opinn 600 cc og minni 1. Guðlaugur Halldórsson P. XCR 600 8,89 2. Þórir Gunnarsson P. XLT 9,35 3. Sigurður Gylfason P. XCR 600 9,24 Opinn 601 cc og stærri 1. Gunnar Hákonarson AC Thundercat 8,56 2. Aðalsteinn R. Gunnarsson S. Mach Z 9,53 3. Finnur Aðalbjömsson P. Indy 650 9,11 Brautarkeppni 0-500 cc 1. Jóhann Eysteinsson P. XCR 440 4:18,67 2. Magnús Þ. Samúelsson P. XCR 440 4:20,13 3. Stefán Álfsson P. XCR 440 4:29,75 501-600 cc 1. Jóhann Eysteinsson P. XCR440 4:27,12 2. Helgi R. Ámason AC 580 ZR 4:32,66 3. Guðni R. Tómasson P. XLT 580 4:40,98 601cc og stærri 1. Halldór Jóhannesson P. Storm 2. Hjörleifur Harðarson Y. V-max 4 3. Jóhann Eysteinsson P. XCR Breyttir 500-600 cc 1. Sigurður Gylfason P. XCR 600 2. Vilhelm Vilhelmsson P. XCR 600 3. Guðlaugur Halldórsson P. XCR 600 Brcyttir 601 cc og stærri 1. Finnur Aðalbjömsson P. XCR 440 4:19,55 2. Sigurður Sigþórsson P. Indy 650 4:42,39 3. Alexander Kárason Y. V-max 500 4:25,61 Lávarðadciid: 1. Halldór Jóhannesson 4:39,33 2. Samúel Magnússon 4:58,44 3. Kristján Kristjánsson 5:06,92 Snjókross 0-500 cc 1. Stefán Álfsson P. XCR 440 2. Gunnar Williamsson S. 440 3. Sigurður Gylfason S. MX Z 4. Steinar F. Gíslason S. MX Z 501-600 cc 1. Siguróur Gylfason P. XCR 600 2. Gunnar Hákonarson Y. V-max 600 3. Þórir Gunnarsson P. XLT 580 4. Vilhelm Vilhelmsson P. XCR 600 601 cc og stærri 1. Sigurður Gylfason P. XCR 600 2. Jóhann Eysteinsson P. Indy 650 3. Jón H. Stefánsson S. Mach 1 4. Sigurður Sigþórsson P. Indy 650

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.