Dagur - 01.04.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 1. apríl 1995
FRÉTTIR
Harðnandi samkeppni á svaladrykkjamarkaðnum:
Fríssi fríski með eplabragði
boðinn á aðeins 29 krónur
Ingþór tilbúinn í slaginn, mcð Magclan GPS staðsctningartæki og ýmsan
neyðarbúnað, til að mæta þeim hættum scm leynst geta á öræfum íslands.
Mynd: Robyn.
Mjólkursamlag KEA og kjör-
markaður KEA í Hrísarlundi
hafa gengið frá samstarfssamn-
ingi um kynningarherferð á nýj-
um epladrykk, sem Mjólkursam-
lag KEA er að koma með á
markaðinn þessa dagana.
Fyrsta skrefið í þessu samstarfi
veröur stigiö í dag, en þá veróa 2
lítra fernur af eplasafa boðnar í
kjörmarkaönum Hrísarlundi á að-
eins 29 krónur, en venjulegt veró
er
119 krónur. Um takmarkað
magn er aó ræða á þessu kostaboði
og stendur því aðeins í dag. Segja
má því aó Frissi fríski standi undir
nafni og komi mjög frískur á mark-
aðinn í byrjun mánaóarins. GG
Ingþór Bjarnason leggur einsamall upp í tveggja vikna
skíðagönguferð vestur öræfin til ísafjarðar:
Ævintýraþrá og tilraun
til að styðja aðra
Kennarasamningarnir:
Kynningarfundir á
Akureyri og Húsavík
Samningar kennarafélaganna og
ríkisins verða kynntir á fundum
á Húsavík og Akureyri á mánu-
dag. Fyrri kynningarfundurinn
verður í Borgarhólsskóla á
Húsavík kl. 15 og sá sfðari kl. 18
í Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands íslands,
mætir á fundina og kynnir
samningana.
Sveinbjöm Markús Njálsson,
formaður Bandalags kennara á
Norðurlandi eystra, segir ljóst að
mjög skiptar skoðanir séu meðal
kennara um samningana, flestir
sem hann hafi rætt vió séu ósáttir
við þessa niðurstöðu og telji að
þeir hafi verið sviknir. Sveinbjöm
sagöist þó engu vilja spá um nið-
urstöóu atkvæðagreiðslunnar, en
hún hefst í lok næstu viku og nió-
urstöóur liggja því vart fyrir fyrr
en eftir páska. óþh
„Ætli Grænlandssýkin sitji ekki
enn í manni, þessi óslökkvandi
þörf tU að takast á við eitthvað.
Þetta er það verkefni sem mér
fannst liggja beinast við. Ég hef
haft nokkuð mikil tengsl við fsa-
íjörð, vann þar í langan tíma og
hef farið milli Akureyrar og ísa-
fjarðar á ýmsa vegu, t.d. siglandi
einn á smábát,“ segir Ingþór
Bjamason, sálfræðingur á Akur-
eyri, sem í morgun lagði af stað í
14 daga skíðagönguferð til ísa-
tjarðar, einn síns liðs, 350 km
leið yfir öræfi íslands. Ingþór er
enginn nýgræðingur á þessu
sviði, því hann gekk sem kunn-
ugt er við þriðja mann yfir
Grænlandsjökul fyrir tveimur ár-
um.
Ganga Ingjrórs hefst á Vatna-
hjallanum ofan Eyjatjarðardals en
þangað upp verður búnaður hans
dreginn á vélsleða. Er það eina að-
stoðin sem hann fær í göngunni.
Leið hans liggur síðan vestur eftir
hálendinu, á Eyvindarstaóaheiði,
Auðkúluheiði og Arnarvatnsheiði.
Hann hugsar sér að koma við í Brú
í Hrútafirði, en fer fyrir ofan
byggðina ef þar verður snjólaust.
Þá em 150 km að baki. Afram
heldur Ingþór vestur á heiðamar
milli Bitru- og Gilsfjarðar, sem
sennilega er erfióasti kafli leiðar-
innar og síóan á Kollabúðaheiói,
Þorskafjarðarheiði og Glámuöræfi.
„Ætlunin er að koma niður á hið
nýja skíðasvæði Isfirðinga í
Tungudal á skírdag. Þann dag hefst
skíóavika ísfirðinga og ég ætla
mér að taka þátt í skíðagöngu-
keppni sem fram fer þann dag, ef
þrekió leyfir,“ sagði Ingþór, en
hann er einnig kunnur keppnis-
maður á skíóum.
Ingþór dregur allar sínar vistir
og búnað á eftir sér frá Akureyri
og vega þær um 60 kg. í upphafi
feróar. Hann mun gista í tjaldi allar
nætur og aóeins fara í skála í neyð-
artilfellum. Leiðin er sem fyrr seg-
ir 350 km og áætlar Ingþór að
Sæplast hf. á sýningu í Skotlandi:
Gengið frá sölu á
um 1000 kerum
Á kortinu má i grófum dráttum sjá leiðina sem Ingþór ætlar að ganga vest-
ur yfir öræfin og síðan norðvestureftir Vcstfjarðakjálkanum. Ætlunin er að
koma við á Brú í Hrútafirði ef snjóalög Ieyfa.
ganga að jafnaði 25 km á dag.
Hann verður meö ýmsan öryggis-
búnaö s.s. talstöð, neyðarsendi og
Magellan GPS staósetningartæki
og veróur í sambandi við björgun-
arsveitir á leióinni.
- Þú hefúr viljað fara þetta
eitin?
„Það er ákveðinn áfangi að fara
svona langa ferð einn og nokkurs
konar rannsókn á sjálfum sér, við
getum kallað þetta sálfræðilega til-
raun. Sá sem einu sinni hefur farið
í langferð, eins og j>egar við fórum
yfir Grænlandsjökul, fýsir gjaman
að fara aftur. Hvorugur ferðafélaga
minna úr Grænlandsferðinni átti
heimangengt þannig að ég ákvað
að nota tækifærið og fara þetta
einn.“
Tvíþætt ferð
Segja má aö ferð Ingþórs sé tví-
þætt. „Ég hef áhuga á að safna
peningum til styrktar ungum
gönguskíóakrökkum og áheitalistar
munu liggja frammi á bensínstöðv-
um, auk þess sem dagblaöió Dagur
mun taka á móti áheitum í gegnum
síma. Þetta er því bæði ævintýra-
þrá og tilraun til aö styðja ein-
hverja aðra. Eins veit ég ekki hvort
nokkur hefur gert þetta áður og
þaö er einnig það sem vakir fyrir
mér,“ sagói Ingþór Bjamason. HA
Fyrirtækið Sæplast hf. á Dalvík,
tók þátt í sjávarútvegssýningu í
Aberdeen í Skotlandi í síðustu
viku og þar var gengið frá sölu-
samningum við 5 aðila í fisk-
vinnslu og útgerð, um sölu á
tæplega 1000 kerum á þessu ári.
Sýninguna, sem haldin er ár-
Iega, sækja sjómenn og fisk-
vinnslufólk frá Skotlandi, fr-
landi, Bretlandi, Orkneyjum og
vtðar.
Það er ekki oft sem slíkur ár-
angur næst á sýningu sem þessari,
því í flestum tilfellum eru sýning-
ar notaöar til að treysta viðskipta-
sambönd og koma á nýjum. Þá
voru á sýningunni lögð drög að
sölusamningum við fleiri aðila um
sölu á vel á annað þúsund kerum.
í frétt frá Sæplasti kemur fram, að
árangur á þessari sýningu hafi far-
ið fram úr björtustu vonum og
ljóst að sala fyrirtækisins á þetta
markaðssvæði fer langt fram úr
söluáætlun þessa árs.
Sæplast hefur tekið þátt í sýn-
ingunni í Aberdeen frá árinu 1988
og hefur fyrirtækið náð mjög góð-
um árangri á þessu svæði frá árinu
1990. Markaðshlutdeild Sæplasts í
fiskvinnslu á svæðinu er mjög
mikil og þá hefur fyrirtækið á síð-
ustu 3 árum náð mjög góðum ár-
angri í sölu fiskkera til fiskiskipa í
Skotlandi. A síðasta ári seldi Sæ-
plast vel á annað þúsund fiskker á
þessu svæði en salan undanfarin
ár hefur verið á bilinu 1000-3000
ker á þetta svæði. KK
Húsavík:
Meindýraeyðirinn safnar
rusli til fiskkaupa
ili£rð lájiLU 3-líiUilltá1
Erla Sigurðardóttir,
framhaldsskólanemi, Lauguin:
Mín áhugamál eru ekki síst menntamál og
ferðamál. Áherslur G-listans í þeim efnum
I falla vel að mínum sjónarmiðum.
„Nú er svo komið að þeir vilja
frekar fá gömul biluð heimilis-
tæki og götótta sokka en doli-
ara,“ sagði Árni Logi Sigur-
björnsson, meindýraeyðir á
Húsavík. Hann hefur verið tíður
gestur um borð í togurum og
skipum austantjaldslanda sem
komið hafa með fisk til íslands,
og nú ætlar Árni að reyna að fá
aukið magn fisks til Iandsins
með því að bjóða þá borgun sem
best er þegin.
Ámi Logi hefur verið á eitur-
efnasnámskeiói í Reykjavík, en
ætlar að reyna að komast heim í
dag til aó geta verið við sorpeyð-
ingarstöðina um hádegið. Þar mun
hann taka á móti gömlu dóti sem
fólk vill gefa til nota við fiskvið-
skiptin. Ami Logi segir aó nær
engin takmörk séu fyrir hvaó fisk-
seljendurnir þiggi: gömul biluó
rafmagnstæki, úreltur fatnaður og
jafnvel götóttir sokkar eru vel
þegnir.
Aðspurður hvort gefendur
dótsins fengju einhverja umbun
fyrir að láta draslið af hendi rakna,
sagði hann að menn mættu í leið-
inni koma með meindýrin sín og
hann skyldi eyða þeim á staðnum,
eigendum aó kostnaðarlausu.
Menn sem koma meó mikið magn
af drasli verða skrifaóir niður og
munu þeir fá að njóta góðs af ef
Árni Logi fær kaupbæti með fisk-
inum um borð í skipunum. IM
Vélsleðaslys I Búðarárgljúfri
Alpýöuoaíidaiaylö cg oiiaöir
Vélsleðaslys varð í Búðarárgili
ofan Húsavíkur sl. miðvikudag.
Ungur maður ók vélsleða ofan í
gilið með þeim afleiðingum að
hann brotnaói á báðum úlnliðum.
Hann komst hjálparlaust áleiðis til
byggðar, þar sem hann gat stopp-
að bifreið sem ók honum á sjúkra-
húsið. Gert var aó meiðslum
mannsins, sem enn dvelur á
sjúkrahúsinu. Lögreglunni var
tilkynnt um slysið á fimmtudag.
IM
Q HELGARVEÐRIÐ
Veðurfræðingarnir á Veður-
stofu íslands spá rysjóttu
veðri um helgina. Norðan
og norðvestan átt og élja-
gangi á Noróurlandi einkum
á Norðurlandi eystra. Frost-
ið verður á bilinu 0-8 stig. Á
mánudag og þriðjudag
verður hæg breytileg átt á
landinu, þurrt að mestu og
víðast bjartviðri, áfram verð-
ur kalt í veðri.