Dagur - 01.04.1995, Blaðsíða 5
FRETTIR
Laugardagur 1. apríl 1995 - DAGUR - 5
Mettúr á rækju hjá Geira Péturs ÞH-344 frá Húsavík:
Fékk 90 tonn á 17 dögum að
verðmæti 18 milljónir króna
Frystiskipið Geiri Péturs ÞH-
344 frá Húsavík landaði sl. mið-
vikudag 90 tonnum af frystri
rækju í heimahöfn, sem er mesti
afli sem báturinn hefur komið
með að landi úr einni veiðiferð.
Aflaverðmæti er um 18 milljónir
króna en aflinn fékkst á 17 dög-
um.
Geiri Péturs ÞH var aðallega á
veiðum fyrir norðan land, m.a. út
af Melrakkasléttu á Rifsbanka og
austur á Bakkaflóa. Nokkur skip
eru á rækjuveiðum á þessum slóð-
um en stærri togaramir eru aðal-
lega vestar, m.a. við Kolbeinsey
og á Hombanka. Þrátt fyrir um-
talsverða ótíð eftir áramót hefur
aflast vel á rækjunni og ekki síður
á innfjarðarrækjunni. Þeir bátar
sem hafa verið á Skjálfandaflóa
hafa fengið góðan afla og eins
hefur sú rækja flokkast vel, þ.e.
nokkuð stór.
Sigurður Olgeirsson, útgerðar-
maður Geira Péturs ÞH, segir
vandamálið við svo góða veiði
vera fyrst og fremst þá að hraðar
gengur á úthlutaðan rækjukvóta
og erfiðleikum bundið að fá
keyptan eóa leigðan kvóta um
þessar mundir. Það sé vegna þess
að ekki sé vitaó hvort þeir loðnu-
bátar sem eiga rækjukvóta fari á
rækju eða leiti að síld í Síldar-
smugunni, en þær veiðar gætu
hafist seinni hluta aprílmánaðar.
Ef það gengur eftir gæti rækju-
kvóti verið falur en gangverð á
rækjukvóta er 45-50 kr/kg til
leigu, sem er mjög hátt veró, ekki
síst fyrir báta sem ísa aflann og fá
e.t.v. um 90 krónur fyrir kílóið.
Þaó er enginn afgangur af slíkri
útgerð.
Geiri Péturs ÞH heldur aftur á
rækjuveiðar í dag. GG
Árásarmaðurinn
úrskurðaður í
gæsluvarðhald
Karlmaðurinn sem særði mann
alvarlega á heimili hans sl. mið-
vikudagskvöld með hmfsstungu
hefur verið úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 28. apríl nk.
Arásarmaðurinn hefur dvalið á
sambýli fyrir geðfatlaða á Akur-
eyri, en mun sæta geðrannsókn
samkvæmt dómsúrskurði. Maður-
inn sem varó fyrir árásinni er á
góðum batavegi eftir aðgerð, en
hann skaddist nokkuð innvortis.
GG
Snæfinnur snjókarl
Þcssi myndarlegi snjókarl, scm cr stækkuð mynd af Snæfinni snjókarli,
sparibauk Búnaðarbankans, hefur verið gerður á Ráðhústorgi á Akureyri.
Hann er samstarfsverkefni Búnaðarbankans á Akureyri og Myndlistaskól-
ans á Akureyri og tengist hátíðinni Páskar á Akureyri, scm sett verður á
þriðjudag. Mynd: Robyn
Hélt að snjóleysið
væri verst
- segir ívar Sigmundsson,
forstöðumaður Skíðastaða
„Hér er blinbylur og 10 vindstig
og þetta er 28. dagurinn síðan
um áramót sem er lokað vegna
veðurs. Það er því ekki nema
von að maður sé að verða pirr-
aður,“ sagði ívar Sigmundsson,
forstöðumaður Skíðastaða í gær,
en þá var vitlaust veður í Hlíðar-
Qalli. Um helgina er fyrirhugað
þar 400 mann skíðamót en það
var allt í óvissu í gær.
„Ég hélt að það versta sem
maður lenti í væri snjóleysi. Þetta
ástand er hins vegar verra í sjálfu
sér. Aðstæðumar eru fyrir hendi
og fáir dagar sem skíóafærió hefur
ekki verið alveg í toppi, en veðrið
er bara aldrei í lagi. Þetta er orðið
með hreinum ólíkindum og ég
man aldrei eftir öðru eins þau ár
sem ég hef verið hér og þau eru
orðin þó nokkur.“
- Er þetta þá ekki búið aðfara
illa með vertíðina?
„Þaó er víst óhætt að segja það.
Tekjuhlióin er gersamlega í rúst.
Þaó eina sem við getum vonað er
að páskamir bjargi einhverju. Þeir
þurfa helst að vera þannig að það
sé sól, logn og púðursnjór frá
pálmasunnudegi fram yfir Andrés-
arleika. Ef þú veist um einhvem
sem getur reddað mér svoleiðis
veðri þá læturðu mig vita,“ sagði
Ivar Sigmundsson. HA
Hrímbakur EA fékk drasl í skrúfuna í ofsaveðri:
Til Eyja fyrir
eigin vélarafli
Akureyrartogarinn Hrímbakur
EA-306 fékk drasl í skrúfúna í
gærmorgun þegar skipið var
statt suður af Vestmannaeyjum í
10 til 11 vindstigum.
Fyrr um nóttina fékk skipió á
sig brot og uróu vió það smávægi-
legar skemmdir á brúnni. Skipið
sigldi fyrir eigin vélarafli til Vest-
mannaeyja í fylgd með Kaldbaki
EA-301 og komu skipin þangað
um hádegisbiliö í gær. Til stóð að
reyna þá að ná draslinu af skrúf-
unni. GG
Framtak ONA og Fjöregg:
Heimild til greiðslustöðvunar
Fyrirtækin Framtak ONA hf. á
Akureyri, sem m.a. framleiðir
ofna, og kjúklinga- og eggjabúið
Fjöregg í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd fengu 28. mars
sl. heimild til greiðslustöðvunar
hjá Héraðsdómi Norðurlands
eystra á Akureyri og gildir heim-
ildin til 18. apríl nk.
Greiðslustöðvunartímabiliö
skal nota til að koma bættri skipan
á fjármálin meðan ekki þarf að
standa skil gagnvart kröfuhöfum;
auka hlutafé eða hagræða í rekstri
o.s.frv. GG
KOSNINGASKRIFSTOFAN í GLERHÚSINU
MENNINGARVAKA I
GLERHÚSINU
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ ,1. APRÍL KL. 2 I .00
Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður
Laugardagskvöldið I. apríl verður tileinkað
menningu. Dagskráin hefst kl. 21.00 með fiðluleik Sigríðar
Baldvinsdóttur ásamt Richard Simm á píanó.
Þá mun Leikfélag M.A. sýna brot úr Silfurtúnglinu undir leikstjórn Rósu
Guðnýjar Þórsdóttur.
Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður gerir lauslega grein fyrir stefnuskrá
Framsóknarflokksins í menningarmálum og tilgangi Menningarmálasjóðs
Norðurlanda. Aðrir gestir kvöldsins verða Haraldur Ingi Haraldsson,
forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri, Guðmundur Oddur, formaður
Gilfélagsins, Þórey Aðalsteinsdóttir, fjárreiðustjóri L.A. og Ingunn St.
Svavarsdóttir, sveitarstjóri og frambjóðandi.
Islenska menntanetið og Internet verður kynnt og til sýnis verða
myndverk eftir nemendur Myndlistaskólans á Akureyri.
Ljúf kvöldstund með léttum veitingum á vægu verði.
Framsóknarflokkurinn í Noröurlandskjördæmi eystra
Kosningaskrifstofan Akureyri, Glerhúsinu, símar 21 180,23150, fax 23617