Dagur - 01.04.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 1. apríl 1995
Árnað heilla
Gefin voru saman í hjónaband 9. júlí sl. í Glerárkirkju af sr. Birgi
Snæbjömssyni, Eygerður Björg Þorvaldsdóttir og Valdimar Steinar
Þorvaldsson. Heimili þeirra er í Þórunnarstræti 132, Akureyri.
Ljósmyndaslofa Páls, Akureyri.
Þann 16. júlí voru gefin saman í hjónaband í Glerárkirkju af sr. Pétri
Þórarinssyni, Halla Hersteinsdóttir og Skúli Jóhannesson. Heimili
þeirra er í Borgarhlíð 7e, Akureyri. Ljósmyndasiofa Páis, Akureyri.
Þann 17. september sl. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju af
sr. Birgi Snæbjörnssyni, Eva Birgitta Eyþórsdóttir og Ingvar Jónsson til
heimilis að Birkihlíð 4b, Hafnarfiröi. Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
Fjölbreytt
mannlíf í Tón-
listarskólanum
- kynningardagur á morgun
Tónlistarskólinn á Akureyri býöur alla vel-
komna á kynningardag skólans 1 Iþrótta-
skemmunni á Akureyri á morgun, sunnu-
dag. Nemendur skólans sjá um vióamikla
tónleikadagskrá sem hefst fyrir hádegi og
stendur til klukkan sex síðdegis. Flutt
veröa tónlistaratriói á hálfrar klukkustund-
ar fresti. I skólanum eru 450-500 nemend-
ur á öllum aldri og þar starfa rúmlega 30
kennarar. Skólinn er einn af stærstu tón-
listarskólum landsins og sá eini sem býður
upp á kennslu í alþýöutónlist og klassískri
tónlist jöfnum höndum. Blaöamaður Dags
sótti Tónlistarskólann heim í vikunni, eig-
um við aö kynnast mannlífinu þar?
KU/Myndir: KU
ímynd og draumur
gítamema
í rafgítardeild alþýóutónlisíardeildarinnar er
Kristján Edelstein aó kenna gítarleik og beitir
til þess allri nútíma tækni. Þaó fór vel á með
honum og nemanda hans Þorvaldi Kristjáns-
syni þegar blaóamann Dags bar þar að garói.
Þorvaldur er ekki aðeins að læra á rafgítar
heldur einnig á klassískan gítar og segir að
ekki megi á milli sjá hvort sé skemmtilegra.
En hver er hinn dæmigerói nemandi í rafgítar-
leik, hvaó segir kennarinn um þaó?
„Þetta er eitthvaó sem fylgir karlhormónum,
hér er því mióur engin stelpa í námi. Strákamir
fá fluguna svona í kringum fermingu og svo
koma þeir í námió á næstu árum frá 14 ára
aldri og upp á fulloróinsaldur. Rafmagnsgítar
er mjög vinsæl fermingargjöf, örugglega sú
vinsælasta í ár. En eins og ég sagði þá er þetta
eitthvaó samtengt karlhormónunum og kyn-
þroskaskeióinu. Imyndin heillar og draumur-
inn um hljómsveit,“ sagöi Kristján Edelstein.
Hávaðasamir
Það heyrðist sannarlega til þeirra
þessara fjörugu pilta sem eru að
læra á slagverk í alþýðutónlistar-
deildinni. Þeir læra ekki aðeins
á trommur heldur á hin ýmsu
slagverkshljóðfæri. Slagverks-
leikaramir heita Karl Halldór
Reynisson í 6. bekk Bamaskóla
Akureyrar, Friðjón Snorrason í
5. bekk Lundarskóla, Ingimar
Bjöm Davíðsson í 3. bekk
Bamaskóla Akureyrar og Vil-
hjálmur Hilmar Sigurðarson
í 3. bekk Glerárskóla.