Dagur - 10.04.1995, Blaðsíða 1

Dagur - 10.04.1995, Blaðsíða 1
Alþingiskosningarnar: Ríkisstjórnin hélt naumlega velli Ríkisstjórnin hélt naumlega velli í Alþingiskosningunum sl. laugardag en á þessari stundu er alls óvíst um framtíð hennar. Báðir stjórnarflokkarnir töpuðu fylgi og samanlagt eiga Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðuflokkur 32 þingmenn af 63 og naumari getur meirihlutinn ekki verið. Alþýðuflokkur tapaði 3 þing- mönnum og fékk 7 menn kjörna en Sjálfstæðisflokkur fékk 25 þingmenn kjörna og tapaði 1. Framsóknarflokkurinn bætti mest við fylgi sitt og hefur nú Frcyr Ofeigsson, formaður yfirkjörstjórnar á Norðurlandi cystra, t.v. skoðar atkvæðascðil á talningarnott, ásamt fe- iögum sínum þeim Stcfáni Jónssyni, Jóhanni Sigurjónssyni, Þorsteini Hjaltasyni og Guðmundi Þór Bcncdiktssyni. Mynd: Robyn. Norðurland eystra: Mesta fylgisaukningin hjá Sjálfstæðisflokki - Þjóðvaki náði jöfnunarsætinu af Alþýðuflokki og Framsóknar- flokkur missti mann þrátt fyrir 2,5% fylgisaukningu Fylgisaukning Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi eystra í kosningunum á laugar- dag varð 4,5% miðað við kosn- ingarnar 1991 og sú mesta frá 1974. Flokkurinn fékk 28,2%. Framsóknarflokkur sótti einnig i sig veðrið í kosningunum og hefur nú 36,8% fylgi, eða 2,5% meira fylgi en í kosningunum 1991 og mesta fylgi sem hann hefur haft í kjördæminu lengi. Flokkurinn tapaði hins vegar þriðja þingmanni sínum en sem kunnugt er fækkaði þingmönn- um kjördæmisins um einn frá síðustu kosningum. Alþýóuflokkurinn þurfti einnig að sætta sig vió að missa þingsæti sitt yfir til Þjóóvaka en Alþýðu- flokkurinn tapaði 2,3% af kjör- fylgi sínu. Fyrstu tölvuspár á kosninganótt bentu strax til þeirrar niðurstöðu sem varð í kjördæminu. Fylgi Þjóóvaka reyndist 1,6% yfir landsfylgi flokksins og fékk flokkurinn 8,7% fylgi á Noröur- landi eystra og jöfnunarsæti kjör- dæmisins. Þetta er sama fylgi og F-listi Frjálslyndra og Þ-listi Þjóð- arflokks fengu samanlagt í síðustu kosningum. Kvennalistinn tapaði meira en helmingi síns fylgis í kjördæminu. Flokkurinn fékk 4,8% árið 1991 en fékk nú aðeins 2,1%. Fylgistap Alþýðubandalagsins var minna, eöa sem svarar einum af hundraði. Tveir af kjörnum þingmönnum kjördæmisins á síðasta kjörtíma- bili, þeir Jóhannes Geir Sigur- geirsson, Framsóknarflokki og Sigbjöm Gunnarsson, Al- þýðuflokki, duttu nú út af þingi en Svanfríóur Inga Jónasdóttir, Þjóó- vaka, kom ný inn. Aðrir þingmenn eru Guðmundur Bjarnason og Valgerður Sverrisdóttir, Fram- sóknarilokki, Halldór Blöndal og Tómas Ingi Olrich, Sjálfstæð- isflokki og Steingrímur J. Sigfús- son, Alþýðubandalagi. JÓH 23,3% á landsvísu og 15 þing- menn en hafði 13 þingmenn. Framsóknarflokkurinn er nú orö- inn næst stærsti flokkurinn í tveimur stærstu kjördæmunum, Reykjavík og Reykjanesi. Þjóð- vaki náði ekki þeim árangri sem búist var við, fékk 4 þingmenn kjörna og 7,2% atkvæða á lands- vísu. Flokkurinn náói inn tveimur þingmönnum í Reykjavík, einum á Reykjanesi og einum á Noróur- landi eystra. Alþýóubandalagið, sem aó þessu sinni bauó fram með óháðum, tapaði örlítið á landsvísu, fékk 14,3% atkvæða en hélt sínum 9 þingmönnum. Kvennalistinn fékk aðeins 4,9% atkvæða, fékk 3 þingkonur og tapaði 2 frá síöustu kosningum. A tímabili á kosninganótt var Kvcnnalistinn ekki með eina ein- ustu þingkonu inni en Kristín Ast- geirsdóttir, náði inn á þing sem kjördæmakjörin í Reykjavík og hún tók með sér Guðnýju Guð- björnsdóttur í Reykjavík og Krist- ínu Halldórsdóttir á Reykjanesi sem jöfnunarþingkonur. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði sem fyrr sagði einum manni, flokkurinn fékk 37,1% atkvæða á landsvísu og 25 þingmenn. Al- þýðuflokkurinn tapaði þremur mönnum, fékk 11,4% atkvæða og 7 þingmenn. Pétur Bjarnason og Eggert Haukdal, scm buðu hvor fyrir sig fram sérlista á Vestfjöróum og Suðurlandi, náðu ekki kjöri til Al- þingis og þá áttu N-listi Náttúru- lagaflokks Islands og K-listi Kristilegrar stjórnmálahreyfmgar, sem buðu fram í nokkrum kjör- dæmum, ekki upp á pallborðið hjá kjósendunt. KK Norðurland vestra: Veruleg fyigisaukning hjá Framsóknarflokki - Sjálfstæðisfiokkur bætti einnig við sig en Alþýðuflokkur tapaði miklu Framsóknarflokkurinn á Norðurlandi vestra jók fylgi sitt um 6,4% frá kosningunum árið 1991 og fékk nú tæpum 8% meira fylgi en Sjálfstæðisflokk- urinn. Sjálfstæðismenn bættu sig samt sem áður líka og fengu 2,6% meira fylgi en árið 1991. Alþýðuflokkurinn tapaði hins vegar meira en helmingi fylgis síns og er nú næst minnsti flokk- ur kjördæmisins. Fylgi Framsóknarflokksins í kjördæminu er fjóróa mesta fylgi sem flokkurinn hefur í einu kjör- dæmi. Fylgið í kosningunum var 38,7% og fékk flokkurinn tvo menn kjörna eins og áður. Sjálfstæöisflokkurinn náði einnig tveimur mönnum á þing en annar maður flokksins var jöfnun- armaður. Flokkurinn fékk 30,8%, samanborið við 28,2% fylgi árið 1991. Tap Alþýðuflokksins var veru- legt. Flokkurinn fékk aðeins 5%, samanborið við 11,6% árið 1991. Kvennalistinn þurfti líka aó horfa á eftir 2% af sínu fylgi og fékk listinn nú 3,2%. Þjóðvaki fékk 6,8% án þess aö koma manni á þing. Alþýóubandalagið tapaði 3,7% en kom samt einurn fulltrúa að. Niðurstaða kosninganna á Noróurlandi vestra er óbreytt skipting þingmanna eftir flokkum en Hjálmar Jónsson er nýr þing- maður Sjálfstæóisflokks. Ásamt honum fór Vilhjálmur Egilsson inn fyrir Sjálfstæðisflokk. Eins og áóur eru þeir þingmenn fyrir Framsóknarflokkinn Páll Péturs- son og Stefán Guðmundsson og Ragnar Arnalds fyrir Alþýðu- bandalagió. JOH URSLIT - NORÐURLANDSKJORDÆMI VESTRA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.