Dagur - 10.04.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Mánudagur 10. apríl 1995
FRÉTTIR
Alþíngiskosnmgarnar - Norðurlanel eystra
Halldór Blöndal:
Verk mín hafa
falliö í góöan
jaröveg
Sjálfstæðis-
flokkurinn á
Norðurlandi
eystra hélt
tveimur kjör-
dæmakjörnum
þingmönnum
og jók fylgi sitt
úr 23,7% í
28,2% meðan
flokkurinn tapaði 1,5% á landinu
öllu. Þetta er mesta fylgisaukning
flokksins í kjördæminu síðan
1974. Halldór Blöndal, samgöngu-
ráðherra, sagði að alltaf hefði ver-
ið stefnt að því að ná tveimur
kjördæmakjörnum þingmönnum,
og það hefði gengið eftir.
„Þetta er mjög góð niðurstaða,
ekki síst í ljósi þess að framboðum
fjölgaði og því er þetta sigur fyrir
okkur sjálfstæðismenn hér, ckki
síst ef við rifjurn upp úrslit síðustu
bæjarstjórnarkosninga. Þetta er
staðfesting á því að það sem ég hef
verið að gera hér fyrir norðan og í
þjóðmálum sem ráðherra hefur fall-
ió í góðan jarðveg meðal kjósenda.
A síðustu vikum og mánuöum hafa
komið upp ný ágreiningsefni milli
Alþýóuflokks og Sjálfstæðisflokks
og mér hefur stundum fundist í
kosningabaráttunni að miðað við
málflutning Alþýðuflokksins hafi
hann gleymt því að hann væri í rík-
isstjóm. Hann hefur ekki verið í
stjómarandstöðu heldur sem and-
stöðuflokkur við Sjálfstæö-
isflokkinn og hefur gert of mikið úr
þeim ágreiningi sem verið hefur
innan ríkisstjórnarinnar. Það þarf
því að taka upp ítarlegar viðræður
við Alþýðuflokkinn hvemig og
hvert sem framhald stjórnarsam-
starfsins verður og jafnvel hvort
það verður," sagði Halldór Blön-
dal, landbúnaðar- og samgönguráð-
herra. GG
Sigbjörn Gunnarsson:
Mínum verkum
algjörlega
hafnað
Sigbjörn Gunn-
arsson, efsti
maður á lista
Alþýðuflokks-
ins, var á síð-
asta kjörtíma-
bili landskjör-
inn þingmaður,
en náði ekki
kosningu nú. A-
Iistinn fékk nú 1.211 atkvæði og
7,4% atkvæða, en fékk 1.522 at-
kvæði og 9,7% árið 1991.
„Eg og mín verk á Alþingi sl.
fjögur ár vom lögð í dóm kjósenda
og þessi úrslit segja mér að mér og
mínum verkum hefur verið algjör-
lega hafnað. Framboð Þjóðvaka hér
hefur eflaust haft áhrif á fylgi Al-
þýóuflokksins hér eins og víða
annars staðar á landinu. Alþýðu-
flokkurinn átti erfitt uppdráttar eftir
stjómarsamstarfið við Sjálfstæð-
isflokkinn og það hefur verið litið á
okkur sem velferðarflokk og at-
vinnuleysi og önnur óáran hefur
mikið frekar bitnað á okkur, og
kjósendur hafa álitið aö við ættum
frekar aó vemda þá hlið mála og
hafa kannski gert óraunhæfar kröf-
ur til okkar í þeim efnum. Því er
ekki að neita að klofningur í
flokknum þar sem varaformaðurinn
yfirgefur hann hefur gífurleg áhrif,
ekki síður en umræöur um þjón-
ustugjöld í heilbrigðiskerfinu, en
stjómarandstaðan hefur lýst því yf-
ir að hún vilji breyta því komist
hún til valda. En það mun hún ekki
gera. Þaö var óhjákvæmilegt að
gera þetta og við gjöldum meira
fyrir það en samstarfsflokkurinn í
ríkisstjóm.
Eg veit ekki hvað vió tekur hjá
mér nú, þarf að leita mér að vinnu,
en ég kemst til að byrja meö inn á
atvinnuleysisbætur," sagði Sigbjöm
Gunnarsson. GG
Steingrímur J. Sigfússon:
Vonbrigði
að stjórnin
skuli lafa
„Ég get ekki
annað en verið
bærilega sáttur
við það að við
höldum nokk-
urn veginn okk-
ar hlut hér. Við
erum með tæp
17% og hæsta
fylgishlutfall G-
listans um allt landið og þetta er
örugglega í fyrsta sinn í sögunni
sem Norðurland eystra er það
kjördæmi landsins sem skilar Al-
þýðubandalaginu mestu fylgi af
öllurn stöðum,“ sagði Steingrímur
J. Sigfússon, alþingismaður.
Hann sagðist ekki sáttur við aó
Alþýðubandalagið standi í stað á
landsvísu og hafi jafnvel látið und-
an síga við þær aðstæður sem nú
eru. „Ég hefði viljað sjá aö við
væmm að bæta við okkur og taka
þátt í því að fella þessa hægri
stjóm. Þaö eru vonbrigói að stjóm-
in skuli lafa að nafninu til, þó hún
sé í minnihluta með þjóðinni og ég
lít nú svo á að siðferðilega og lýð-
ræðislega sé hún fallin. Þetta er það
mikil höfnun á stjómarstefnunni
sem þama birtist."
Steingrímur segir að tilkoma
Þjóðvaka dreifi það fylginu á
vinstri hreyfinguna, að stjómar-
flokkamir lafi og um leið sé mynd-
in varðandi stjómarmyndunarhug-
myndir mun flóknari. En hins veg-
ar séu ýmsir möguleikar í stöðunni.
„Það má segja að Alþýðubanda-
lagið hafi staðið af sér þetta umrót
og í Reykjavík og á Reykjanesi
bætir flokkurinn við sig, eftir aö
hafa tapað þar síðast. En aftur láta
sum landsbyggðarkjördæmin, þar
sem unnust miklir sigrar ’91, undan
síga.“ KK
Svanfríður Jónasdóttir:
Félagshyggju-
öflin reyni að
ná saman
„Miðað við út-
komu Þjóð-
vaka, getum við
hér í þessu
kjördæmi verið
bærilega sátt.
Okkar mark-
mið var að ná
inn þingmanni
og það tókst,“
segir Svanfríður Jónasdóttir, ný-
kjörinn þingmaður Þjóðvaka í
Norðurlandskjördæmi eystra.
„Þessi árangur náðist ekki síst
fyrir það að hér var einvala lið sem
vann að þessu framboði. Það lögð-
ust allir á eitt, hlutirnir gengu vel
og það kom hvergi fram brestur í
baráttunni. Þessi niðurstaða kom
mér því ekkert sérstaklega á óvart
og ég þóttist vita að hverju stefndi
síðustu dagana. En þó ég hafi fund-
ið meðbyr, fann ég alveg hvað
þessir erfiðleikar og neikvæða
bylgja á landsvísu voru að gera
okkur."
Svanfríöur segir að árangur
Þjóðvaka á landsvísu séu mikil von-
brigði. Þetta sé hins vegar niður-
staðan og úr henni verði aó vinna.
„Auðvitað höfðum við gert okkur
vonir um meira og fólk hafði gefið
okkur tilefni til að vera meó vænt-
ingar um meira.“
Svanfríður segir að þó ríkis-
stjómin haldi naumum meirihluta á
Alþingi tæknilega séö, sé ekki víst
að hún haldi málefnalega séð. „Þaó
eru ýmis mál óuppgerð úr kosninga-
baráttunni á milli þessara aðila, þar
sem menn voru meó hnífinn í bak-
inu á hver öðrum. Þá hafa þingmenn
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
lýst því yfir að þeir geti ekki stutt
ríkisstjóm með þessa sjávarútvegs-
stefnu.
Þaó eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni en ég vona aó nióurstaóan
verði sú aó þessi öfl á félagshyggju-
kanti þjóðmálanna reyni að ná sam-
an. Þau hafa til þess meirihluta, ef
þau kæra sig um aö nota hann.“ KK
Elín Antonsdóttir:
Kjósendur
að hafna
kvennabaráttu
„Það er afskap-
lega erfitt að
átta sig á hvað
gerðist og hverj-
ar skýringarnar
eru en það leyn-
ir sér ekki að
með þessu er
verið að hafna
kvennabar-
áttu,“ segir Elín Antonsdóttir,
oddamaður Kvennalistans.
„Aðrir flokkar eru búnir að taka
mikið af okkar stefnumálum upp
og þessi dómur kjósenda segir að
þeim sé betur treystandi til að
iýlgja þeim eftir en okkur sem
skópum þau. Auðvitað höfum við
samt náö árangri, á því er ekki vafi.
Við höfum breytt stjómmálaum-
ræðunni mikið en við buðum fram
núna vegna þess að við treystum
engum betur en okkur sjálfum til
að koma baráttumálum okkar í
gegn.
Mér finnst dapurlegt að við
skyldum ekki ná einni landsbyggð-
arþingkonu inn. Það er slæmt fyrir
Kvennalistann og fyrir landsbyggð-
ina. Núna þurfum við að hugsa
okkar mál og átta okkur á að auð-
vitað veróur að fara aö nota aðrar
aðferðir. Ef við höldum baráttu-
þrekinu áfram þá er spuming hvort
til em aðrar leiðir en framboð til
Alþingis til að ná fram baráttumál-
um kvenna. Það er erfitt fyrir konur
að eyða þrekinu í eitthvað sem er
vanvirt en niðurstaðan þýðir að
Kvennalistinn fer eina ferðina enn í
naflaskoðun. JOH
Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Súrt í broti aö
vera í sigurliði
en detta út
„Ég er mjög ánægður með úrslitin
á landsvísu og við höfum ekki
fengið svona góða kosningu síðan
1979. Eins eru þetta einhver bestu
úrslit scm við
höfum fengið
hér í kjördæm-
inu, erum með
tæplega 37% at-
kvæða, bætum
við okkur 2,5%
frá síðustu
kosningum, þar
sem eru sex
framboð í gangi. Út frá því getum
við ekki verið annað en ánægð.
Út frá góðri útkomu í síðustu
sveitarstjórnarkosningum styrkir
þetta yfirburða stöðu flokksins í
kjördæminu,“ sagði Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, þriðji maður á
lista Framsóknarflokksins í Norð-
urlandi eystra, sem nú fellur út af
þingi.
Hann sagði það vissulega súrt í
broti að vera í sigurliði en detta út,
en miðað við sömu reglur og í síð-
ustu kosningum hefði flokkurinn
glansað inn með þriðja mann, þó
vissulega hafi lítinn tilgang að
velta sér upp úr slíku. „Ég fann
það, bæði í fjölmennu kosninga-
kaffi á kosningadaginn og um
kvöldið, að mitt persónufylgi átti
töluverðan þátt í því sem við náð-
um héma. Ég fékk mjög skýr skila-
boö á sínum tíma um að taka að
mér þetta baráttusæti, nú er sá tími
liðinn og maður verður að bíða og
sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“
A síðari árum sagði Jóhannes að
áhugi sinn og starf hefði skipst á
milli þingsetunnar og þátttöku í at-
vinnulífinu hér heima fyrir, á fleiri
en einu sviði. „Það hefur mjög tog-
ast á í mér hvort væri áhugaverðara
og mér finnst mjög líklegt núna að
ég snúi mér af krafti að störfum hér
í heimbyggð.“ Hins vegar sagði
hann allt of snemmt að spá í hvað
muni gerast að fjómm árum liðn-
um. HA
Níu alþingismenn á síðasta kjör-
tfmabili náðu ekki kjöri til Al-
þingis í kosningunum á laugar-
dag og þar af tveir úr Norður-
landskjördæmi eystra. Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, sem var
þriðji maður á lista Framskókn-
arflokksins og Sigbjörn Gunn-
arsson, efsti maður á lista Al-
þýðuflokks.
Tveir aðrir þingmenn Alþýðu-
flokksins misstu stóla sína, Gunn-
laugur Stefánsson, sem var í efsta
sæti á Austurlandi og Petrína
Baldursdóttir, sem var í þriðja
Tómas Ingi Olrich:
Einar bestu
niöurstöður í
þessu kjördæmi
Tómas Ingi 01-
rich, annar
maður á D-
lista, náði kosn-
ingu sem kjör-
dæmakjörinn
þingmaður en
kosningaspár
síðustu daga
höfðu ekki spáð
honum brautargengi. Hann segir
að síðustu dagana hafi frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins fundið
mikinn velvilja meðal kjósenda
en óvissa hafi ríkt um hvort hann
skilaði sér í kjörkassana.
„Það ríkti því mikil tvísýna um
stöðuna í þessu kjördæmi, ekki síst
í ljósi niðurstöðu skoðanakannana,
og því kom þessi árangur mér á
óvart. Ég held að það fylgi sem
virtist vera komið til Þjóðvaka
skömmu fyrir kosningar hafi skilað
sér til baka til Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags. Én það sem vekur
mesta athygli mína er að Sjálfstæð-
isflokkurinn er í sókn í þessu kjör-
dæmi meðan hann er í vöm í öðr-
um kjördæmum landsins. Þetta eru
einar bestu niðurstöður sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur fengið í
þessu kjördæmi á sama tíma og við
höfum verið í mjög erfiðum að-
gerðum í landsmálum og það er
mikilvæg traustyfirlýsing. Ég vil á
þessari stundu ekkert tjá mig um
stjómarmyndunarviðræður, hvorki
við Alþýðuflokk né aðra flokka,“
sagði Tómas Ingi Olrich. GG
sæti á Reykjanesi. Tveir þing-
menn Alþýðubandalagsins náðu
ekki kjöri, þau Guðrún Helgadótt-
ir, sem var í fjórða sæti í Reykja-
vík og Jóhann Ársælsson, oddviti
listans á Vesturlandi.
Framsóknarmaðurinn Ólafur Þ.
Þóröarson, sem nú var í öðru sæti
á Vestfjörðum náði ekki kjöri og
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
oddviti Kvennalistans í kjördæm-
inu, féll einnig út af þingi. Þá náði
sjálfstæðismaðurinn Eggert Hauk-
dal ekki þingsæti en hann bauð
l'ram sérlista á Suðurlandi. KK
Hvað á ég nú að kjósa?
Mynd: Robyn
Níu þingmenn
náðu ekki kjöri