Dagur - 10.04.1995, Side 5

Dagur - 10.04.1995, Side 5
FRETTIR Mánudagur 10. apríl 1995 - DAGUR - 5 /Uþingislfosningarnar - Norð urlanti westra Sveinn Allan Morthens: Ágætt miðað við landsmeðaltalið „Ég er sannar- lega ósáttur við niðurstöðu Þjóð- vaka á landsvísu og svekktur yfir að þetta skyldi ekki ganga betur upp. En ef mað- ur horfir á kjör- dæmið hér þá komum við ágæt- lega út miðað við landsmeðaltal- ið.Við rúllum upp Alþýðuflokkn- um en það sem vekur athygli mína er sigur Sjálfstæðisflokksins hér,“ sagði Sveinn Allan Mort- hens, oddamaður Þjóðvaka. „Ég hafði gert mér vonir um 7- 9% fylgi og við endum í 6,8% sem ég er sáttur vió. Þjóðvakamenn unnu hér vió lítil efni og í kosninga- slagnum stóðum við atvinnumönn- unum ekki að baki. En það sýndi sig að flokksmaskínurnar voru sterkar og skiluðu sínu. A landsvísu hafói ég gert mér vonir um 6 menn og niðurstaðan því ekki sú sem maður vonaóist til að sjá. Hins vegar eru það í raun tveir flokkar sem vinna, þ.e. Framsóknar- flokkur og Sjálfstæóisflokkur. Það undirstrikar þá skoóun mína að vinstrimenn veróa aó sameinast. Ef félagshyggjuflokkamir, þ.e. Al- þýðubandalag, Alþýðuflokkur, Kvennalisti og Þjóóvaki skynja ekki þessa áminningu kjósenda núna þá verður að segjast eins og er að þetta er dapurt. Ég held að menn verði að setjast niður og skoða samstarfs- grundvöllinn í alvöru.“ JOH Anna Dóra Antonsdóttir: Kvennabarátt- unni hvergi nærri lokið „Við sjáum að Þjóðvakafram- boðið hefur gert skurk í okkar raðir, því verður ekki neitað. Jó- hanna Sigurðar- dóttir má kannski sitja uppi með þann vafasama heiður að hafa lamað kvennabaráttuna í landinu. En ég vil líka benda á að kvennabarátta hefur ekki unnist á átta árum og vinna okkar heldur áfram. Kannski þurfum við að taka upp aðferðir karlanna með öryggisnetum í öllum kjördæmum og vera harðari. Það má vera að við höfum við verið of linar í bar- áttunni," sagði Anna Dóra Antonsdóttir, sem skipaði 1. sæti Kvennalistans. „Þó Kvennalistanum yrði boóið að koma inn í ríkisstjómina núna þá held ég að það veröi að ígrunda vel. Þingstyrkurinn er enginn með að- eins þrjár konur og ég er hrædd um að þar yrði bara valtað yfir okkur. En þau mál verða bara að koma í ljós. Hins vegar vil ég benda á aó núna erum við eina stjórnmálaaflió, fyrir utan fjórflokkinn, sem lifað hefur af tvö kjörtímabil. Þetta er vert aó hafa í huga en almennt verð- um við að taka mark á þessum nið- urstöðum sem við fáum yfir landið. Kvennabaráttu er ekki lokið, spurn- ingin er um aðferðimar í framhald- inu,“ sagði Anna Dóra Antonsdóttir. Ragnar Arnaids: Sæmilega ánægður „Skýringin á því að við töpum fylgi í þessum kosningum er ósköp einfóld. Við bættum við okkur miklu fylgi í kosning- unum 1991 en núna erum við í nokkurn veginn sama fylgi og 1987,“ sagði Ragnar Arnalds, alþingismaður Alþýðu- bandalagsins á Norðurlandi vestra. „Þaö má heldur ekki gleyma því að í forystu Þjóóvaka í þessu kjör- dæmi er einn af fyrrum forystu- mönnum okkar, Sveinn Allan Mort- hens. Miðað vió allar aóstæður tel ég því að við getum sæmilega unaó við þessa niðurstöðu." Ragnar sagði að það sama hafi verið uppi á teningnum í öðrum landsbyggðarkjördæmunum hvað Alþýðubandalagið varðaði, það hafi tapaó fylgi til Þjóðvaka og einnig Framsóknarflokksins. Hins vegar hafi flokkurinn lagað stöðu sína á höfuðborgarsvæðinu. „Miðaö við allar aðstæður tel ég að útkoma Al- þýðubandalagsins hafi alls ekki ver- ið svo afleit." Ragnar sagóist engu geta um það spá hvort núverandi stjómarflokkar haldi áfram ríkisstjómarsamstarfi. „Það hlýtur að fara eftir vióbrögðum flokksmanna beggja flokka.“ óþh Hjálmar Jónsson: Þarf aö festa málefnasamn- ing traustlega „Mér er efst í huga það traust sem fólkið í kjör- dæminu sýndi Sjálfstæðis- flokknum í þess- um kosningum,“ sagði sr. Hjálm- ar Jónsson, ný- Lúðvík sá yngsti en Egill sá elsti Lúðvík Bergvinsson, lögfræð- Hann hefur lengst af leikió með ingur frá Vestmannaeyjum, ÍBV en einnig með ÍK, Leiftri verður yngsti alþingismaður og ÍA en hefur lagt skóna á hill- landsins á komandi kjörtíma- una fyrir nokkru. bili. Hann er fæddur 29. aprfl Egill Jónsson, alþingismaður 1964 og er því rétt að verða 31 og bóndi, verður elsti þingmaður árs. Lúðvík leiddi iista Alþýðu- landsins á komandi kjörtimabili. flokksins á Suðurlandi og Hann er fæddur 14. desember komst inn sem jöfnunarþing- 1930 og cr því 64 ára gamall. maður. Egill leiddi lista Sjálfstæðis- Lúðvík er kannski þekktari flokksins á Austurlandi en hann scm knattspymumaóur en sem hefur verið þingmaður frá árinu lögfræðingur cóa þingmaóur. 1979. KK kjörinn alþingismaður Sjálfstæðis- flokksins á Norðurlandi vestra. „Ég var viss um að ríkisstjómin var að gera hluti sem voru nauðsyn- legir en ég vissi ekki að þeir ættu þetta mikið fylgi,“ sagði sr. Hjálmar. Hann sagði að þessi niðurstaða Sjálfstæðisflokksins á Norðurlandi vestra væri í samræmi við það sem hann hafi getað frekast gert sér vonir um. „Ég er hæstánægður með þessa niðurstöðu." „Mér finnst sjálfsögð kurteisi og eðlilegt upphaf áður en stjómar- flokkamir segja sig frá hlutunum að tala saman. Én ég er á því að það þurfi aó festa afar traustlega mál- efnasamning þessara flokka, miklu traustar en síðast," sagði sr. Hjálmar. Hann sagði að meðal annars yrði að horfa á í hugsanlegu samstarfi að báðir stjórnarflokkamir hefðu sterka stöðu á landsbyggðinni, en því væri ekki að heilsa á t.d. Noróurlandi þar sem Alþýðuflokkurinn hafi engan þingmann. - Spáirðu því að þessir flokkar nái samstöðu uru nýjan stjórnarsátt- mála? „Ég er ekki tilbúinn að segja neitt um það núna,“ sagði sr. Hjálmar Jónsson. óþh Páll Pétursson: Stórglæsileg úr- slit hjá okkur „Ég er auðvitað mjög ánægður og það eina sem skyggir á er að ríkis- stjórnin skyldi ekki falla. Það er gremjulegt að Pétur Bjarnason skyldi ekki ná þessum 35 at- kvæðum á Vest- fjörðum til að fella Sighvat Björgvinsson því þá hefði stjórnin fallið. Að öðru leyti er ekki ann- að hægt en vera mjög ánægður", sagði Páll Pétursson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins á Norð- urlandi vestra. „Þetta em stórglæsileg úrslit hjá okkur í kjördæminu og fylgið það fjóróa traustasta á landsvísu, þ.e. bara þrír flokkar sem geta státað af hærri prósentutölu kjósenda í sínum kjördæmum. Eins er stórfenglegt að Framsókn skuli vera næst stærsti flokkurinn bæði í Reykjavík og á Reykjanesi." Páll þakkaði þessa góóu útkomu í kjördæminu mörgum samverkandi þáttum, fyrst og fremst mjög góðri og hyggilegri vinnu. Þó tveir efstu menn listans hafi tekist hart á í próf- kjöri fyrr í vetur virðist það ekki hafa haft áhrif til hins verra. „Við emm engir byrjendur við Stefán Guðmundsson og höfum unnið saman í áratugi." Páll sagði erfitt að spá í næstu ríkisstjórn. „Ríkisstjórn núverandi stjórnarflokka verður ákaflcga veik og mörg harkaleg ágreiningsmál hafa komið upp. A hinn bóginn tel ég útilokað að mynda ríkisstjóm án Sjálfstæóisflokksins því ég tel eng- an gmndvöll fyrir málefnalegri samstöðu Framsóknarflokksins með Alþýðuflokki," sagði Páll. HA Jón Hjartarson: Sárast að falla fyrir eigin flokks- mönnum Jón Hjartarson, skólameistari á Sauðárkróki, skipaði efsta sæti Alþýðu- flokksins á Norðurlandi vestra en flokk- urinn fékk að- eins 4,9% atkvæða á móti 11,7% fyrir íjórum árum. En hvað fór helst úrskeiðis? „Við vorum seinir að ákveða framboð og okkur margt andstætt í baráttunni en það sem kemur mér mest á óvart og er mér einnig sárast hversu margir Alþýðuflokksmenn snemst á sveif með Þjóðvaka. Ég horfi í eigin barm gagnvart fylgis- hruninu hér og ásaka sjálfan mig í þeinr efnum. Eg væri sáttur við að tapa fyrir verðugum andstæðingum en að falla fyrir eigin flokksmönn- um er okkur sárast. Miðað við mál- efnastöðu Alþýðuflokksins finnst mér útkoma hans á landsvísu slök og við höfum greinilega ekki komið málurn okkar á framfæri. Við berum nreiri þunga og ábyrgð af gerðum ríkisstjómarinnar en Sjálfstæðis- flokkurinn, sérstaklega í umdeildum málurn, en ég býst við því að fram- hald verði á ríkisstjórnarsamstarfinu fyrst meirihluti stjómarflokkanna hélt velli,“ sagði Jón Hjartarson. GG KÆRU VINIR OG STUÐNINGSMENN Viö viljum þakka ykkur stuðninginn og þá ómetanlegu vinnu sem þið lögðuð á ykkur í kosningabaráttunni til að gera árangur okkar sem glæsilegastan. Frambjóðendur B-listans Framsóknarflokkurinn í Norðurlandskjördæmi eystra

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.