Dagur - 06.05.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 6. maí 1995
FRETTIR
Hrossabændur að verða heylitlir
- sauöfjárbændur reikna yfirleitt meö að gefa út maímánuð
Freyvangs-
leikhúsið
Kvennaskóla-
œvintýrið
eftir Böðvar Gubmundsson
Leikstjóri Helga E. jónsdóttir
Föstud. 12. maí kl. 20.30
UPPSELT
Laugard. 13. maí kl, 20.30
UPPSELT y
Sunnud. 14. maí kl. 20.30
UPPSEI.T
Miðvikud. 24. maí kl. 20.30
UPPSELT
Síbustu sýningar
Mibasala/pantanir
sími: 31349 og 31196
Kvennaskólacafé
Erfítt tíðarfar og óvenju mikill
snjór í vetur hefur gert það að
verkum að mun minna hefur
verið hægt að halda búfénaði til
beitar en venja er. Meira hefur
þurft að gefa og því gengið á
heybirgðir hjá bændum. Er nú
svo komið að á sumum svæðum
norðanlands eru bændur að
verða heylitlir. Á þetta sérstak-
lega við um svæði þar sem mikið
er af hrossum.
„Þetta er orðið þannig að svona
ótíð hefur lítið að segja fyrir sauð-
fjárbændur. Menn reikna yfirleitt
með því að eiga hey út maí í það
minnsta og það er þá ekki nema
enn verði kuldar og grasleysi þeg-
ar kemur fram í júní að menn færu
að þurfa aukahey,“ sagði Olafur
Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaö-
arsambandi Eyjafjarðar. Að hans
sögn hefði samskonar vetur fyrir
20-30 árum getað haft mun alvar-
legri afleiðingar í för með sér hjá
sauðfjárbændum en þá treystu
menn mun meira á vetrarbeit en
nú er. „Útbeit er nánast alveg úr
sögunni hjá sauðfjárbændum.
Menn eru meira aö setja fé út til
að vióra það og lofa því að fá ein-
hverja hreyfmgu, en eru ekki að
hugsa um það til þess að spara
fóður.“
Á Norðurlandi vestanverðu er
mun verra ástand í heymálum,
enda treysta menn þar mikió á að
geta beitt hrossum úti, sérstaklega
fyrrihluta vetrar. Ovenju snemma
var hins vegar orðið erfitt til jarð-
ar fyrir hross á beit. „Eg veit að
stöku maður er að verða heylítill
eða jafnvel heylaus, en þetta hefur
bjargast. Það eru aðallega þeir
sem eru með hross í einhverju
magni sem eru orðnir heylitlir,
enda veturinn óvenju gjafafrekur.
Héma innan héraós er orðið lítið
um hey á lausu, verð á því mjög
hátt og varla orðin eftir tugga til
sölu,“ sagði Jóhannes Ríkarðsson,
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Skagafjarðar. „Menn fóru reyndar
að huga að þessum málum mjög
tímanlega og snemma í vetur var
keypt þó nokkuð af heyi. Menn
höfðu því vaðió fyrir neðan sig
þegar sýnt þótti í hvað stefndi,“
sagði Jóhannes. HA
Á svæðum þar sem mikið er af hrossum eru bændur að verða heylitiir.
Norðlenskir frystitogarar með 12 þúsund tonna karfakvóta:
Hafa veitt 62% karfa-
kvótans á sjö mánuðum
Matur og aðrar veitingar
í gamla Kvennaskólanum
að Laugalandi
Upplýsingar í síma 31333
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 8. maí 1995 kl. 20-
22 verða bæjarfulltrúarnir Þórar-
inn E. Sveinsson og Siguður J.
Sigurðsson til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2.
hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem að-
stæður leyfa.
Síminn er 21000.
Heildarkarfakvóti 18 norð-
lenskra frystiskipa á yfír-
standandi fískveiðitímabili er
11.956 tonn, og er sá mesti af
einstaka tegundum. Alls hafa
norðlenskir ís- og frystitogarar
yfír að ráða 20.475 tonna karfa-
kvóta. Næst hjá frystitogurun-
um kemur þorskkvótinn sem er
9.618 tonn. Af ýsu er frystiskipin
með 4.675 tonn, af ufsa 5.149
tonn, af grálúðu 7.020 tonn og af
skarkola 458 tonn.
Margir frystitogaranna eru
einnig meó úthafsrækjukvóta, en
stærstan þeirra hefur Sunna SI-67
frá Siglufirði, 2.086 tonn. Sunna
SI hefur aðallega verið á rækju-
veiðum, bæði hér á heimamiðum
og í Flæmska hattinum, og hefur
botnfiskkvóti skipsins að mestu
leyti verið færóur yfir á önnur
skip. Á meðfylgjandi töflu má sjá
kvóta fyrstitogaranna í einstaka
botnfisktegundum fyrir framan
brotastrikið en aftan vió brota-
strikió afla togaranna þegar sjö
mánuðir voru liðnir af kvótatíma-
bilinu í byrjun aprílmánaðar sl.
GG
Glerárgata 26 á Akureyri:
Samið við Tré-
verk hf. á Dalvík
Samið hefur verið við Tréverk
hf. á Dalvík um innréttingu á
Glerárgötu 26, eign sameignar-
fyrirtækis Akureyrarbæjar og
Lífeyrissjóðs Norðurlands, á
grundvelli tilboðs Tréverks hf.
sem hljóðaði upp á kr.
55.632.801, sem er 76,93% af
kostnaðaráætlun.
Undirverktakar eru í flísalögn
og múrverki Olafur Bjömsson
múrarameistari; pípulögn Bútur
sf., Þorgrímur Magnússon; dúk-
lagningar Viðar Pálsson dúklagn-
ingameistari; loftræstilagnir Blikk
& tækniþjónustan; raflagnir Raf-
iðn hf. og málningarvinna Híbýla-
málun á Dalvík. Hönnuður raf-
magns er Raftákn hf. en arkitekta-
og lagnahönnun var unnin af
Formi sf. á Akureyri. GG
Gerum bæinn
hreinan fyrir HM!
Um þessa helgi streymir fjöldi
útlendinga til Akureyrar í
tengslum við HM ’95.
I þeim hópi er fjöldi fjölmiðla-
fólks sem ekki aóeins mun
fylgjast meó handboltaleikjunum
heldur einnig skoða mannlífið.
Það er því áskorun til bæjarbúa að
þeir taki nú til í kringum sig og
leggi þannig sinn skerf af mörkum
til að gera fallegan bæ enn fal-
legri. GG
Kirkulistavika á Akureyri:
Fjölskyldumessa
kl. 11 í stað 14
í Degi í gær var sagt frá dagskrá
kirkjulistaviku á Akureyri og þar
sagt að fjölskyldumessa á morgun
yrði kl. 14. Hið rétta er að hún
veróur í Akureyrarkirkju kl. 11 og
kl. 12 verður opnuð í Safnaðar-
heimili kirkjunnar sýning á mynd-
verkum bama sem eru við nám í
Myndlistaskólanum á Akureyri.
Kirkjugestum verður boðið að
þiggja veitingar í Safnaóarheimil-
inu.
Mæðraleíkfímí
♦ Mánudaginn 8. maí hefst 5 vikna námskeíð fyrir
bamshafandí konur og konur með böm á bijósti.
♦ Róleg og styrkjandi leikfimi fýrir konur sem vílja
halda sér í formi fyrir og eftir fæðingu.
♦ Kennt verður tvisvar sínnum í víku á mánudögum
og miðvikudögum kl. 10.00.
Mæðar ath! Hjá okkur er boðið upp á frxa bama-
pössun á meðan á leikfiminni stendur. Notið tæki-
færið.
Nánari upplýsíngar og skráning í síma 26211.
FaPULS 180
HEILSURÆKT
KA-heimilinu ■ Sími 96-26211
þorskur ýsa ufsi karfi grálúða
Mánaberg ÓF-42 487/408 567/386 387/74 1264/595 338/73
Sólbakur EA-307 565/457 170/127 218/24 850/418 238/15
Sléttbakur EA-304 527/290 75/56 488/91 1672/495 775/722
Akureyrin EA-110 284/149 429/24 125/1 143/22 1092/51
VíóirEA-910 614/609 151/53 498/44 1249/909 318/104
Siglfirð.r SI-150 715/38 284/126 269/15 199/224 316/33
Margrét EA-710 618/405 302/194 408/33 859/867 168/130
Hjalteyrin EA-110 24/0 176/0 162/0 220/148 16/28
Sigurbjörg ÓF-1 698/526 258/226 215/42 484/472 631/4
Örvar HU-21 961/552 470/436 510/14 487/153 603/11
Stakfcll ÞH-360 444/248 202/12 77/2 215/12 408/15
Oddeyrin EA-210 517/591 79/133 324/364 119/84 300/286
Bliki EA-12 239/214 85/76 32/5 1/1 20/10
Sunna SI-67 363/0 36/0 248/0 560/0 86/50
Baldv. Þorsteins. EA- 10 1394/861 432/314 800/143 1598/1302 298/79
Amar HU-1 982/605 622/240 2603/13 673/787 764/20
Baldur EA-108 562/70 89/0 89/0 1373/0 393/94
Svalbakur EA-2 130/0 0/0 56/0 1233/974 501/164
ineun rmgunnnnn wmmmmmmmmá
¥@stmauns¥atii
lumarbáðir
Knaparnir.
Fjörkálfarnir.
Garparnir.
Könnuðurnir.
Smellurinn.
Aldraðir og blindir.
Þroskaheftir.
Börn 7-11 ára
Börn 7-11 ára
Börn 7-11 ára.
Börn 11-13 ára.
Unglingar 14-16 ára.
26. júní-30. júní.
3. júlí-10. júlí.
11. júlí-18. júlí.
14. ágúst-19. ágúst.
19. ágúst-23. ágúst.
19. júlí-26. júlí.
19. júní-23. júní.
Innritun fer fram virka daga frá kl. 16-19.
Síminn er 96-26605.
Skráning og upplýsingar einnig í símum 96-61685, 96-61068
og 96- 62220.