Dagur - 06.05.1995, Blaðsíða 13
Laugardagur 6. maí 1995 - DAGUR -13
Þeir Stevie Wonder og Ray Charl-
es eiga býsna margt sameiginlegt
þótt á ólíkum aldri séu. Báðir eru
þeir í fyrsta lagi blakkir, báðir
tónlistarmenn, hafa leikið á sama
hljóðfærið, píanó, auk þess að
syngja og... eru blindir. Má trú-
lega halda því fram að vegna
blindunnar hafi þeir fyrst og
fremst orðið það sem þeir eru, af-
burða tónlistarmenn hvor á sinn
hátt og einstakir í sinni röð. Hefur
tónlistargyðjan reynst vera þeirra
ljós í almyrkrinu, sem þeir hafa
þjónað af lífi og sál og uppskorið
ríkulega fyrir. Hinn um þrítugi
Jeff Healey frá Toronto í Kanada
er hvorki píanóleikari né dökkur á
hörund, en hann er afburða söngv-
ari og gítarleikari og blindur. Meó
sínum fádæma spilstíl, að láta gít-
arinn hvíla á knjám sér og leika
þannig á hann ofan frá, vakti He-
aley fljótlega gríðarlega athygli og
aðdáun eftir aö hann hafði sett
saman tríó ásamt bassaleikaranum
Joe Rockman og trommuleikaran-
um Tom Stephen árið 1985.
Kepptust gítarstórmenni á borð
við Stevie Ray Vaughan og B. B.
King vió að hrósa Healey og fór
svo að útgáfan stóra, Arista, gerói
við hann samning.
Fyrsta platan, See the light,
kom út 1988 og fékk mjög góðar
viðtökur og ekki minnkaði veg-
semdin þegar Healey kom fram
ásamt félögum sínum í myndinni
Roadhouse hið sama ár. Seldist
platan með tónlistinni úr mynd-
inni, þar sem Healey tók m.a.
Tore down (Freddy King blúsinn
sem svo vinsæll varð með Eric
Clapton í fyrra) og titillagið, sem
fengið var úr smiðju Doorsjöfurs-
ins, Jim Morrison, vel og kynnti
nafn Healeys víða um heim.
Jeff Heatey.
Btindur en ber
i sér snitti.
Jæja, góðir landsmenn, nær og
fjær. Nú er stóra stundin enn og
aftur að nálgast, Evrópusöngva-
keppnin, og er spennan venju
fremur nokkru meiri í þetta skipt-
ið. Það er líka rík ástæða til, því
ekki er aðeins um að ræða hvað
það varðar að þetta verður í tíunda
skiptið sem við Islendingar tökum
þátt, heldur er nú öllu tjaldað til
að ná sem lengst í keppninni.
Reyndar ekki peningalega séð,
engin forkeppni með öllu sem
henni fylgir, en með söngvara sem
fyrir löngu hefði átt að vera full-
trúi þjóðarinnar í keppninni aó
flestra mati. Semsagt í tíundu at-
rennu eftir að Icyflokkurinn,
Pálmi Gunnars, Helga Möller og
Eiríkur Hauksson, Halla Margrét,
Daníel Ágúst, Ingibjörg Stefáns-
dóttir, Stebbi Hilmars tvisvar, þar
af í seinna skiptið meö Eyjólfi
Kristjánssyni og Sigríður Bein-
teins þrisvar, þar af tvisvar sem
söngkona með Stjóminni, höfðu
reynt sig í hin níu skiptin, fær
loksins hjartaknúsari landsins
númer eitt, Johnny Logan íslands,
hann Bjöggi, Björgvin Helgi Hall-
dórsson loks að spreyta sig. Loks-
ins, loksins, loksins.
VatIa tiltnljun
Þaó er síðan tæpast tilviljun að
lagið sem Björgvin hefur sett sam-
an með öðrum heitir Núna, eða
hvað? Að fullyrða um það er erf-
itt, en það er alveg á hreinu í hug-
um flestra að það sé NÚNA eóa
aldrei sem vió eigum einhverja
raunhæfa möguleika á að vinna
þessa blessuðu keppni. Það skýrist
þann 13., eftir rétta viku þegar
herlegheitin fara fram á írlandi,
hvort það ævintýri gerist að litla
Island vinni, en ef svo fer er ekki
alveg víst að allir fagni því svo
mjög og er þar komið að hinni
hliðinni á söngvakeppninni.
f>\\\ bliðin
Ef Björgvin tekst þetta afrek sem
margir vonast til, að vinna keppn-
ina, verður það ekkert grín að ætla
aó halda keppnina hér á landi að
ári. Myndi það allavega þýða
gríðarlegan kostnað fyrir ríkisút-
varpió, sem yfirmenn þar á bæ
€ðök Veððer t>ill
Eddie Vedder söngvari Seattlerokk-
risanna í Pearl jam hefur hingað til
horft aðgerðarlaus á félaga sína í
hljómsveitinni bregða undir sig betri
fætinum og setja saman nýjar sveitir
sér til gamans þegar lítið hefur verið
aö gera hjá Peari jam. Nú vill hann
hins vegar ekki lengur láta sitt eftir
liggja og hefur sett saman tríó með
eiginkonu sinni, Beth Liebling og
óþckktum gítarleikara og ætla þau
nú í maí að fara í tónleikaferö með
Foo fighters, hljómsveitinni hans
Dave Grohl úr Nirvana. Það sem
ekki hvað síst vekur athygli við þetta
Eddie Vedder meí
nýja btjómstfeit.
ByrjAÖi brÁðungur
Jeff Healey var aðeins eins árs
þegar hann missti sjónina og á því
engar minningar um umhverfi sitt.
En líkt og með áðurnefndu
blökkumennina tvo reyndist það
vera tónlistin sem var ljósið í
myrkrinu. Strax þriggja ára göml-
um var honum gefinn gítar, sem
ótrúlega fljótt lagóist fyrir honum
að leika á. Lærói hann fyrst aó
leika á gítarinn á hefðbundinn
hátt, en fannst það aldrei nógu
þægilegt þannig að hann ákvaó að
prófa að láta hljóðfærið á hnén.
Það gekk upp og þykir Healey
þannig hafa skapaó sér einstak-
lega kröftugan stll, þótt vissulega
sé það ekkert nýtt að menn spili
ofan á gítarinn.
Brcytingar
Blúsinn haföi aó mestu ráðið ríkj-
um hjá Healey á See the light og á
sömu nótum var hann í Road-
housemyndinni. Rokk í kraftmeiri
kantinum var hins vegar á dagskrá
á annarri plötunni, Hell to pay,
sem kom út 1990, með poppi í
bland, sem ekki minni gestaleikar-
ar en George Harrison, Mark
Knopfler og Jeff Lynne sáu um.
Platan varó samt ekki eins sigur-
sæl og vænta mátti, nema hvað að
lagið I think I love you too much,
sem Knopfier lagði til, náði nokk-
urri hylli. Enn meiri og kröftugri
breytingar voru síðan á þriðju
plötunni, Fell this, sem kom á
markað 1992. Sýndi hún áfram
góða tilburði hjá Healey við gítar-
ieik og ekki síður söng og var
hinn besti gripur, en gerði samt
vart mikið meira en að halda nafni
hans áfram sæmilega á lofti.
CulkAtiir
Fyrir nokkru kom svo fjórða plata
Jeff Healey og félaga. Kallast hún
Cover to cover og geymir
eingöngu túlkanir á í flestum til-
vikum mjög frægum lögum. Er
það fljótsagt að Cover to cover, er
með betri verkum sinnar tegundar
að margra mati. Snýr Healey
þama að nokkru sér aftur að
blúsnum m.a. og fer hreinlega á
kostum. Sem kunnugt er hefur
Healey notið góðra vinsælda með
Stuck in the middle of you, sem er
eftir Gerry Rafferty, þann sem
varð geysivinsæll með laginu
Baker street, en það er þó langt í
frá besta túlkunin á plötunni. Sem
dæmi um aðrar fremri og sem
jafnframt sýna fjölbreymina hjá
Healey, má nefna Angel eftir Jimi
Hendrix, Communication bre-
akdown af fyrstu Zeppelin-
plötunni, Creamlagið Badge, sem
Clapton samdi með vini sínum
Harrison og Evil eftir blússkáldið
mikla Willie Dixon og þannig
mætti raunar áfram telja. Mættu
þessi og fleiri að ósekju heyrast í
útvarpi og eins og Stuck... svíkur
Cover to cover engan sannan
rokkaðdáanda.
Spennandi. HóaÍ qerir Bjöqqi i Dubtin >
yrðu ekkert of hrifnir af. Annaó
varðandi keppnina nú sem snýr að
laginu (sem nú átti að heita að
nýja tríó, er að um engan söng
verður að ræða og að Vedder sér
um trommuleikinn. Slíku hlut-
verki er hann þó ekki alveg
ókunnur, því í myndinni Singles,
lék hann einmitt trommara í
hljómsveit sem kallaðist Citizen
Dick. Tríóinu, sem kallast Ho-
vercraft, er þó ekki ætlaðir margir
starfsdagar, allavega ekki í fyrst-
unni, því fljótlega eftir að ferðinni
með Foo fighters lýkur, fer í hönd
tónleikaferð Pearl jam um Banda-
ríkin þver og endilöng. Plata er
þar með ekki á dagskrá, en hins
vcgar mun vera farið að styttast í
plötuna sem Vedder og félagar í
Pearl jam tóku upp meó kanadíska
goðinu Neil Young.
væri ekki valið heldur pantað fyr-
irfram) er þetta með hann Gcir-
mund og lagið hans, Þegar sólin
sest, en kappinn gerói sér lítið fyr-
ir og sigraði í dægurlagasam-
keppninni á Sauóárkróki í síðustu
viku, en sem upphaflega var fyrir
Evróvísíon og var hafnað. Hefði
það auðvitað verið toppurinn ef
það hefði sameinast að Björgvin
og Geirmundur færu báðir út í
fyrsta sinn, en líkt og með þann
fyrmefnda hefur mörgum þótt
Geirmundur eiga fullt erindi út. Er
þessi atburðarás hin kátbrosleg-
asta og verður í framhaldinu
spennandi að sjá hvort lagið reyn-
ist lífseigara þegar upp verður
staðið.
En burtséð frá því öllu þá hefur
Skífan nú gefið út Núna og átta
önnur lög sem Björgvin hefur
sungið í Söngvakeppni sjónvarps-
stöðva á plötu sem einfaldlega
nefnist Núna. Auk þess er svo á
henni ensk útgáfa af Núna, sem
nefnist, If it’s gonna end in heart-
ache.