Dagur - 25.05.1995, Side 4

Dagur - 25.05.1995, Side 4
4B-DAGUR Afmælisblað ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995 „Finnst ég vera að fara í langtfrí“ - segir Jón E. Aspar sem er að kveðja eftir 48 ára starf hjá ÚA Jón Aspar á svölum skrifstofubyggingar ÚA á sólríkum maídegi. Hann ætlar að njóta útivistar í sumar og prófa golfsettið sem vinnufélagarnir gáfu honum á 70 ára afmælinu. Mynd: SS Jón E. Aspar, skrífstofustjóri Útgerðarfélags Akureyringa, hefur unnið manna lengst hjá félaginu eða alvegfrá því það hóf eiginlega starfsemi á árinu 1947. Starfsferillinn spannar 48 ár og er næstum jafn langur sögu félagsins en nú er komið að starfslokum. Jón varð sjö- tugur í janúarmánuði síðast- liðnum og hann mun láta af störfum á 50 ára afmæli ÚA 26. maí, eða í kringum þau tíma- mót. Eftir að hafa helgað sama fyrirtæki krafta sína alla tíð hlýtur að vera margs að minn- ast og Dagurfékk Jón til að rifja fáein atriði upp á þessum nterku tímamótum. - Nú er komið að leiöarlokum, Jón. Hvernig er þér innanbrjóst á síðustu starfsdögum þínum hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa? „Ég hef það ekki á tilfinning- unni að ég sé að hætta. Mér finnst frekar eins og ég sé að fara í langt frí. Ég geri ráð fyrir að hugurinn veröi alltaf hér." - Því skal ég trúa, eftir svona langan starfsferil. En nú varðstu sjötugur 24. janúar og vinnufélag- arnir gáfu þér forláta golfsett. Sérðu ekki fram á golfsumarið mikla 1995? „Jú, ég hef að minnsta kosti hugsað mér það að halda áfram að prófa kylfurnar. Reyndar er það þrennt sem ég hef hugsað mér að gera. Ég ætla að sinna Botni (sum- arbúðir fyrir þroskaheft börn, innsk. blm.), vera í golfi og fara að veiða." - Þú óttast þá ekki að verða að- gerðarlaus í fríinu langa? „Nei, maður reynir einhvern veginn að eyða tímanum. Ég hef líka gert mikið af því að lesa bæk- ur og er alæta á þær," sagói Jón Aspar. Fór í land vegna veikinda - Hverfum aftur í tímann, Jón. Hvenær var fyrsti starfsdagur þinn hjá Útgerðarfélagi Akureyringa? „Það var 19. apríl 1947. Þá fór- um við frá Reykjavík með togaran- um Baldri til að sækja Kaldbak, fyrsta togara Útgerðarfélagsins. Ég hafði verið ráðinn loftskeytamaður á skipið. Auðvitað grunaði mig ekki þá hver æviferillinn yrði og að ég ætti eftir að standa hérna sjö- tugur hjá sama fyrirtæki. Aðalmál- ið þarna var að standa sig og ég kveið mikið fyrir fyrsta túrnum." - Þú starfaðir síðan sem loft- skeytamaður næstu árin. Varstu alltaf á Kaldbak? „Nei, ég fór að sækja Harðbak um jólin 1950 og var á honum þar til ég fór í land í apríl 1958 og byrj- aði að vinna á skrifstofunni." - Hvað kom til að þú söðlaðir um og fórst í Iand? „Ég veiktist svo illa af munn- angri að ég gat ekki talað og varð að fara í land. Ég var því reyndar ekkert mótfallinn eftir að hafa ver- ið á sjó í meira en tólf ár. Mér fannst verst hvað launin lækkuðu þegar ég byrjaði á skrifstofunni. Mánaðarkaupið var 3.750 krónur og á þessum tíma var ég nýbúinn aðbyggja." - Voru launin mun betri á tog- urunum? „Þau voru góð en það voru að vísu engin uppgrip. Það var mikið siglt með aflann og undir hælinn lagt hvort salan var góð eða slæm. Jæja, en ég fór sem sagt á skrifstof- una og hér er ég enn." Tæknin til góðs en reglur orðnar flóknar Jón Aspar varð skrifstofustjóri Út- gerðarfélagsins um áramótin 1960- 61 og hefur gegnt þeirri stöðu síð- an. Hann segist hafa þurft að liggja mikið yfir þessu, enda ekki mennt- aður til skrifstofustarfa, og gamli kvíðinn um að standa sig ekki nógu vel hafi látið á sér kræla í fyrstu en síðan horfið. - Við gætum eflaust rætt mikið um breytingar og tækninýjungar í skrifstofuhaldi en varst þú alltaf tilbúinn að læra á tölvur og til- einka þér nýjustu tæknina? „Já, það þýðir ekki að berjast á móti tímanum, enda vonlaust verk. Það er kannski hægt að hægja aðeins á honum en ekki stöðva hann. Mér finnst tækniþró- un í skrifstofuhaldi hafa verið til góðs. Aftur á móti eru ýmsar regl- ur í sambandi við skattalega með- ferð fyrirtækja orðnar afar flóknar og óþarflega mikill frumskógur." - Einmitt. Það skýtur dálítið skökku við að á sama tíma og tölvutæknin á að auðvelda skrif- stofuvinnu þá fjölgar ýmsum pappírum og umstangið eykst. „Ég held að skýringin sé sú að það er orðið svo mikiö vantraust milli fólks og skattayfirvalda. Nú þarf helst að gera skýrslu um hverja krónu sem menn þéna eða eyöa. Þó að það sé gert eftir bestu samvisku þá er samt dregið í efa að menn hafi gert rétt." Atvinnuöryggið breyttist þegar aflinn var unninn heima - Þegar menn heyra minnst á Út- gerðarfélag Akureyringa í dag dettur þeim ósjálfrátt í hug vel- gengni og hagnaður. En ÚA átti líka sín mögru ár. Voru ekki miklir erfiðleikar einmitt þegar þú komst í land 1958 og næsta áratuginn? „Fyrstu tíu árin voru fyrirtæk- inu erfið vegna uppbyggingarinn- ar og það er satt að á árunum 1957- 58 var reksturinn nánast kominn í þrot. Akureyrarbær tók að sér að ábyrgjast reksturinn og Gísli Kon- ráðsson kom inn sem fram- kvæmdastjóri 1958. Næsti áratug- ur var ákaflega erfiður vegna lé- legra aflabragða og það var orðiö erfitt að manna skipin. Þetta þró- aðist þó í rétta átt og eftir 1968-69 hefur félagið verið á beinu braut- inni." - Þegar þú komst í land var ver- ið að taka frystihúsið í notkun. Það hefur ekki skipt sköpum í rekstrin- um strax, eða hvað? „Ekki strax því fyrstu árin lá vinnan í frystihúsinu mikið til niðri yfir vetrarmánuðina. Gísli Konráösson vann ötullega að því að togararnir hættu siglingum og allur aflinn yrði unninn hér heima. Þetta gjörbreytti atvinnuöryggi fólksins og reksturinn varð smám saman jafnari og öruggari. Upp úr 1970 hófst síðan skuttogaraþróun- in og þannig mætti rekja söguna áfram en Útgerðarfélagið er í dag eitt af sterkustu fyrirtækjum bæjar- ins." Félagið alltaf heppið með fólk Jón segir að árin sem Akureyrar- bær hafi styrkt Útgerðarfélagið, 1958-68, þá hafi bærirtn engu að síður hagnast á því. Hann hafði náttúrlega útsvarstekjur af starfs- fólkinu og þær voru hærri en styrkurinn og niöurfelling gjalda af hálfu bæjarins. Jón segir líka að Út- gerðarfélagið hafi verið heppið að fá Gísla Konráðsson til starfa því hann hafi komið svo góðri reglu á alla hluti. „ÚA hefur alla tíð verið heppið með fólk. Nú er töluvert um að þriðji ættliður fólks sem byrjaöi hjá félaginu sé kominn hingað í vinnu og þetta sýnir og sannar tilverurétt fyrirtækisins," sagði Jón. - Svartsýnisraddir voru býsna áberandi á upphafsárum félagsins. Sumum þótti fráleitt að stofna út- gerðarfélag langt inni í firði og síð- an þyrlaðist oftlega upp pólitískt moldviðri í kringum ÚA, ekki síst þegar reksturinn var orðinn erfið- ur. Eru slíkar raddir ekki löngu þagnaðar? „Jú, jú. Þetta voru ióulega mjög yfirborðskenndar gagnrýnisraddir. Sumt fólk er haldið þeirri áráttu að ekki sé hægt að þéna nema á ör- skammri stundu og ekki sé hægt að tala um gróða nema greiddur sé út stór arður. I umræðunni, til dæmis í blöðunum, gleymdist allt- af að tala um atvinnusköpunina og margfeldisáhrifin af launum starfs- fólksins." Sáttur við guð og menn „Það er í tísku núna að stofna verðbréfafyrirtæki," hélt Jón áfram. „Ég hef ekki séð að koma þessara fyrirtækja hafi á nokkurn hátt skapað aukna atvinnu í land- inu fyrir utan nokkur skrifstofu- störf. Bankarnir gátu alveg eins lánað peninga í gamla daga, en þetta virðist vera þróun tímans. Mér finnst það líka árátta mikils fjölda Islendinga að vilja sýnast einhver stórþjóð og taka upp at- hafnir sem hægt er að nota með góðu móti meðal milljónaþjóða en er fáránlegt að heimfæra hér á ís- landi sem er bara eins og gata í sumum stórborgum. Fólk fer til útlanda og lærir þar í háskólum og vissulega er menntun öllum mönnum til góðs, en mér finnst hún snúast upp í andhverfu sína þegar menn koma heim og ætla að sníða þjóðfélagið að líkön- um sem eiga aðeins við hjá stór- þjóðum." - Jæja, Jón, mig langar að bera upp eina spurningu að lokum. Ertu sáttur þegar þú gengur héðan út? „Við guð og menn? Já, ég er sáttur. Ég hef átt gott líf. Ég hef haft vinnu sem mér líkar vel og raunar hefur mér fallið vel við öll störf sem ég hef fengist við. Ég var verkamaður, fór í skóla, síðan á sjó og endaði í landi. Ég á hús og bíl, góða konu, börn og barnabörn. Það er ekki hægt að biðja um meira," sagði Jón Aspar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.