Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 25. maí 1995 - Afmælisblað ÚA
DAGUR-B 19
Fiskvinnsla í landi:
Söltun hjá ÚA 1978. Það var einmitt saltfiskverkun sem markaði upphaf
landvinnslu hjá félaginu en söltunin hefur legið niðri síðustu ár.
(Myndasafn Dags).
Sumarið 1951 hófst söltun í
nýrri fiskverkunarstöð Útgerð-
arfélags Akureyringa hf. á
Oddeyri. Þetta markar upphaf
landvinnslu hjá félaginu. Fram
til þessa hafði allur fiskur tog-
aranna verið ísaður en nú var
líka farið að fletja og salta um
borð og aflinn síðan þveginn
og þurrkaður í landi. Árið 1953
var byrjað að verka skreið og
birgðaskemma reist. Næsta ár
var fiskverkunarstöðin stækk-
uð en hér ætlum við að staldra
við upphaf hraðfnistihússins
árið 1957.
Umræður um frystihús höfðu
vissulega staðið í nokkur ár og var
Helgi Pálsson, stjórnarformaður
UA, iðinn við að halda málinu
heitu.
„Með hraðfrystihúsi fáum við
meiri fjölbreytni í framleiðsluna og
möguleika til að nýta betur en ver-
ið hefir veiði, sem okkur hefir oft
orðið lítið úr, svo sem ýsu, lúðu
o.fl. Þá skapast okkur möguleikar
til að gera út á karfaveiðar, sem
næstum hefir verið lokaö fyrir
okkur áður, vegna erfiðleika á að
geta komizt að í frystihúsum ann-
ars staðar. Þegar hraðfrystihúsið er
komiö upp, munu togararnir hætta
að selja afla sinn á öörum höfnum,
og þá mun atvinna í bænum í sam-
bandi við togarana stóraukast."
(Islendingur, 15. júní 1955).
Byggingaframkvæmdir hófust
sumarið 1955 og kölluðu á aukið
hlutafé og lánsfé. Húsið 1785 fer-
metrar að flatarmáli. Vinnsla hófst
í hluta hraðfrystihússins síðsumars
1957, nánar tiltekið 16. ágúst þegar
Kaldbakur kom með 40 tonn af
karfa til að prufukeyra vélarnar. í
máli Guðmundar Guðmundsson-
ar, framkvæmdastjóra, í Degi (31.
ág. 1957), kom fram að 100-120
manns myndu starfa í frystihúsinu
og hægt yrði að vinna úr 100 tonn-
um af fiski á dag miðað við 8 tíma
vinnu við flökun og 10 tíma við
frystingu.
Frystihús í skugga
rekstrarerfiðleika
Eins og gefur að skilja ríkti almenn
ánægja á þessum tímamótum.
Hraðfrystihúsið skapaði mörgum
atvinnu, sjómennirnir vissu nú
alltaf að leiðin af miðunum lá til
heimahafnar, frystihúsið sá togur-
unum fyrir ís og jákvæð teikn virt-
ust hvarvetna á lofti, eða hvað?
Nei, sumarið '57 markaði svo
sannarlega annaö og meira en
bjartsýnisspor í sögu Útgerðarfé-
lags Akureyringa. Reksturinn gekk
illa, tap á öllum togurunum og
saltfiskverkuninni og nú fóru blöð-
in að kalla óskabarn Akureyringa
„skuldahreiður" og ráðast á stjórn-
endur þess. Aratugur mikilla
rekstrarerfiðleika var runninn upp.
Framtíð ÚA varð mikið hitamál í
kosningunum árið eftir og litlu
munaði að félagið yrði gert gjald-
þrota og bæjarútgerð stofnuð á
rústunum. En það var ákveðið að
berjast áfram. Guðmundur fram-
kvæmdastjóri hætti og Gísli Kon-
ráðsson og Andrés Pétursson
komu inn. Nú reri félagiö lífróður.
Rétt úr kútnum og
frystihúsið stækkað
Pólitískar deilur, samdráttur á
flestum sviðum og fjárhagskreppa
setti mark sitt á ÚA fram eftir sjö-
unda áratugnum en þótt félagið
væri í kreppu og undir verndar-
væng Akureyrarbæjar létu menn
bölmóðinn ekki yfirbuga sig. Og
loks skilaði erfiðið árangri.
Hraðfrystihúsið sem tók til
starfa í upphafi erfióleikatímabils-
ins fór að mala gull þegar kom
fram yfir miðjan sjöunda áratuginn
og vorið 1969 var ráðist í stækkun
þess. Umræðan í bænum breyttist
og skuldahreiðrið varð aftur óska-
barn Akureyringa.
Dagur (7. maí 1969) greinir frá
miklum afla togaranna og stækkun
á vinnslusal hraðfrystihússins sem
á að kalla á 50 starfsmenn til við-
bótar. Þarna er líka verið að huga
að endurnýjun togaraflotans og
horfa menn til skuttogara. Og and-
inn er greinilega jákvæður:
„Togarar Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf., fjórir að tölu, hafa skil-
að miklum afla á land það sem af
er árinu, þótt komnir séu til ára
sinna. Starfsemi Ú.A. hefur skapað
mikla og dýrmæta vinnu í bænum
og verðmætasköpun til útflutnings
er einnig mikil." (Dagur, 9. júlí
1969).
Afköst í frystihúsinu áttu að
aukast um helming eftir að við-
byggingin var tekin í notkun 8. júlí
1969 en þegar kom fram á áttunda
áratuginn var vinnslan aftur búin
að sprengja húsnæðið utan af sér.
Lokakaflinn í byggingar-
framkvaemdum
Á stjórnarfundi ÚA í ágúst 1976
var ákveðið að ráðast í byggingu á
húsi sem yrði vel á annað þúsund
fermetra að stærð. Viðbyggingin
átti að hýsa fiskmóttöku, fisk-
vinnslu, vélasal, skrifstofur, fiski-
kassaþvottastöð og fiskkassa. Um
haustið var síðan hafist handa við
byggingaframkvæmdir. Þessi nýja
bygging gekk til suðurs frá þáver-
andi aðalbyggingu.
Árið eftir var ný bogaskemma
keypt og reist sunnan við skemm-
una sem hafði hýst skreiðarverkun
félagsins í áratugi. Þessar tvær
skemmur sem blasa við vestan að-
alhússins hýsa nú trésmíða- og
járnsmíðaverkstæði.
Uppbyggingin hélt áfram og ef
við höldum okkur við hraðfrysti-
húsiö þá voru ný frystitæki tekin í
notkun árið 1981 og frystiklefi
stækkaður. Og enn var byggt, t.d.
stálgrindarhús milli norður- og
suðurmálmu vinnslustöðvarinnar
og 1983 var farið að huga að nýrri
forstofu austan hússins, bættri
matstofu og nýju geymsluplássi.
Hér er ekki getið um allar bygg-
ingaframkvæmdir og húsnæðis-
kaup Útgerðarfélags Akureyringa
en til að setja endapunkt við þetta
stikl er rétt að staldra við árið 1987.
Þá var byrjað að steypa sökkla
undir u.þ.b. tvö þúsund fermetra
grindarhús syðst á Ióð ÚA á Silfur-
tanga. Þarna átti að byggja yfir raf-
virkja, trésmiði og löndunarmenn
svo og viðgerðarverkstæði skip-
anna og verkstæðisgeymslur. Áð
vísu hefur enn ekki verið lokið viö
verkið en þetta eru síöustu bygg-
ingaframkvæmdir Útgerðarfélags-
ins.
Endumýjun véla og
gæðaframleiðsla
Eins og gefur að skilja hefur al!a
tíð veriö mikil endurnýjun á tækja-
búnaði í landvinnslunni og stjórn-
endur ÚA hafa kappkostað að vera
í fremstu röð á því sviði og skila
gæðavöru í hendur neytenda.
Þegar húsnæðismál ÚA voru
komin í núverandi horf var langt
frá því að þetta væru aöeins bygg-
ingar yfir starfsmenn og fyrri
tækjakost. Endurnýjun á vinnslu-
búnaði hélst í hendur við þessar
framkvæmdir. Af síðustu verkefn-
um í þeim geira, fyrir utan nýju
vélarnar 1981, má nefna nýjan
lausfrysti 1984, Baader-flökunar-
vélar voru keyptar, fullkomið
tölvustýrt tæki til að greina bein í
flökum var sett upp 1986 og 1989
voru komin ný ísframleiðslutæki í
hús.
Árið 1988 voru blaöamenn kall-
aðir á vettvang þegar ÚA var að
reyna nýtt undratæki. Þetta var
tölvustýrð vatnsskurðarvél sem
skar flökin með örmjóum og kroft-
ugum vatnsbunum. Ekki þurftu
fiskvinnslukonurnar aö óttast
þennan nýja keppinaut því undra-
tækið reyndist ekki nógu vel og
var því skilað.
Oll þessi uppbygging hefur
skilað árangri. Hraðfrystihús Út-
gerðarfélags Akureyringa hf. er
margverðlaunaö frá Coldwater
fyrir gæóaframleiðslu enda hefur
þar verið lögð rík áhersla á snyrti-
mennsku og vandvirkni.
Breyttir tímar. Þessi mynd er tekin f vinnslusal ÚA í nóvember 1979.
(Myndasafn Dags).
Sendum okkar
bestu kveðjur í tilefni
50 ára afmœlis
Útgerðarfélags Akureyringa
og góðar óskir um
gœfuríka framtíð
Endurskoðun Akureyri hf.
Endurskoðun • Rekstrarráðgjöf • Skattaráðgjöf • Bókhaldsþjónusta • Ráðningar