Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 25.05.1995, Blaðsíða 6
6 B - DAGUR Afmælisblaó ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995 Þegar Gísli Konráðsson lét af störfum framkvæmdastjóra Útgerð- arfélags Akureyringa fyrir aldurs sakir 1989 var Gunnar Ragnars ráðinn í stöðuna úr hópi umsækjenda. Gunnar hafði lengi verið forstjóri Slippstöðvarinnar og þar af leiðandi í nokkrum tengslum við ÚA en hann hafði líka skapað sér nafn sem bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins ogforseti bæjarstjómar. Enn og aftur komu pólit- ískar umræður upp á yfirborðið þegar Útgerðarfélagið átti i hlut en framsóknarmenn og sjálfstæðismenn höfðu skipt framkvæmda- stjórastólunum tveimur bróðurlega síðan 1958. Gunnar starfaði við hlið Vilhelms Þorsteinssonar fram til ársins 1993 er Vilhelm lést, en síðan hefur Gunnar staðið einn í eldlínunni. Maðurinn er þó aldrei einn. Að sjálfsögðu starfa fleiri stjórnendur hjá ÚA og stjórn félagsins fer með æðsta valdið. Gunnar segir þaó ómetanlegt að hafa fengið að vinna með Vilhelm Þorsteinssyni og njóta leiðsagnar hans í fram- kvæmdastjórastarfinu. I þessu afmælisspjalli við Gunn- ar Ragnars verður einblínt á nokkra þætti, s.s. samskipti ÚA og Slippstöðvarinnar, ráðningu Gunnars til ÚA, stefnu félagsins á tímum kvótaskerðingar og hrær- ingar síðustu ára. ✓ Þrýstingur á UA að láta Slippstöðina smíða togara - Mig langar að víkja fyrst að Slippstöðvarárunum, Gunnar. í ljósi sögunnar hefur Slippurinn lít- ið komið nálægt nýsmíði fyrir Út- gerðarfélag Akureyringa og þetta var á tímabili mikið hitamál. Var ekki töluverður þrýstingur í bæn- um á það að smíða ÚA-togara í Slippnum? „Jú, þrýstingurinn var mikill. Það var í kringum 1970 þegar end- urnýjun togaraflotans komst á skrið, síöutogurunum var lagt og skuttogarar smíðaðir í staðinn. Þetta var auðvitaó mikið fyrirtæki og hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr þá var það ríkið sem hafði forgöngu um þau mál og skipaöi samninganefnd um smíöi skuttogara. Þá var fyrst og fremst verið að hugsa um Bæjarútgerð Reykjavíkur, Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar og Útgerðarfélag Akureyr- inga. Nefndin stóð fyrir útboði og tilboð bárust víóa frá og Slippstöð- in tók þátt í því. Eftir mikið japl, jamm og fuður samdi nefndin við skipasmíðastöð á Spáni um smíði á fjórum skipum. Þá lá ekki fyrir að Útgerðarfélagði myndi eiga aöild að þeim því það var ákaflega mik- ill þrýstingur á að félagið næói samningum við Slippstöðina. Þetta voru afar þungir og erfiöir samn- ingar enda verið að bera saman verö á skipum bæði á Spáni og í Póllandi, en Ögurvík hafði einmitt skömmu áður samið um smíði á tveimur skipum í Póllandi. Slippstöðin átti í talsverðum rekstrarerfiðleikum á þessum tíma. Mikið tap hafði orðið á smíði strandferðaskipanna Heklu og Esju og ýmsar aðstæöur með erfið- asta móti. Hins vegar var Slipp- stöðin aó byrja að smíöa 150 tonna vertíðarbáta og var búin að smíða þrjá slíka þegar hér var komið við sögu, m.a. fyrir Einar ríka í Vest- mannaeyjum. Þessir bátar reynd- ust vel og fleiri fylgdu í kjölfarið og hagur fyrirtækisins vænkaðist. Málin þróuðust þannig að hætt var við togarasmíðina í Slippnum. Út- gerðarfélagið leysti til sín vélar og búnað sem Slippstöðin hafði fest kaup á og togaranefndin samdi við Spánverjana um tvo togara fyrir ÚA." Farsæl málalok fyrir bæði fyrirtækin Og Gunnar heldur áfram: „Eftir á að hyggja held ég að þetta hafi orð- ið til verulegra hagsbóta fyrir Út- gerðarfélagið. I fjórum fyrstu tog- urunum sem Spánverjarnir smíð- uðu var nánast allt spánskt, bæði vélar og búnaður, en í togurum Út- gerðarfélagsins voru vélar og tæki af viðurkenndum vestur-evrópsk- um tegundum og þeir togarar voru mun vandaðri og betur búnir en hinir fjórir, það leyfi ég mér að fullyrða. Til að styðja þá skoðun má benda á aö vélarnar í umrædd- um togurum, Kaldbak og Harð- bak, eru í fullum gangi enn í dag en það er fyrir löngu búið að skipta um vélar í hinum fjórum. Það má því segja að þetta mál hafi endað farsællega. Slippstöðin var komin á góðan skrið með að smíða vertíöarbátana og þeir urðu alls 16 áður en yfir lauk árið 1976. Þessi smíði gerði gæfumuninn í rekstri Slippstöóvarinnar sem skil- aði nú góðum hagnaði." - En nú liðu ekki mörg ár þar til svipaðar þreifingar komu upp aft- ur um smíði Slippstöðvarinnar á togara fyrir ÚA. Hvernig þróuðust þau mál? Gunnar Ragnars er framkvæmda- stjóri ÚA, en aðrir stjórnendur fé- lagsins eru Björgólfur Jóhannsson, fjármálastjóri, Gunnar Aspar, fram- leiðslustjóri, Gunnar Larsen, tæknistjóri, Magnús Magnússon, útgerðarstjóri, og Jón Aspar, skrifstofustjóri. Mynd:Robyn. „Vildi ekki h danda neinni pólitík í þetta“ - segir Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA „Já, það var í kringum 1983 sem Útgerðarfélagiö lét teikna fyrir sig skuttogara og bauð hann út. Slipp- stöðin gerði tilboð en mig minnir að japönsk stöð hafi verið lægst. Líkt og hinu tilfellinu urðu miklar umræður og vangaveltur en Slipp- stöðin átti í erfiðleikum með að keppa við erlendar stöðvar sem fengu ódýrari lán en buðust hér heima. Það er skemmst frá því að segja að ekkert varð úr smíöinni. Aðstæðurnar voru að breytast, kvótakerfi var komið á og Útgerð- arfélagió tók aðra stefnu og útveg- aði sér skip og kvóta í leiðinni." Vel heppnaðar endurbætur á Sléttbak - Voru samt ekki iðulega mikil viðskipti milli ÚA og Slippstöövar- innar í sambandi við viðhald á tog- urunum? „Jú, fyrirtækin áttu löngum mikil viðskipti á þeim vettvangi. Eg man sérstaklega eftir nokkrum stórum verkefnum, t.d. á fyrstu ár- um stöðvarinnar þegar síðutogar- inn Harðbakur kom í mikla klöss- un, 20 ára klössun að mig minnir. Þegar „Stellurnar" komu (skuttog- ararnir Svalbakur og Sléttbakur ár- ið 1973, innsk. blm.) sá Slippstöðin alveg um að endurnýja vinnslu- dekkið á þeim og það var mikið verk. Eitt stærsta verkið sem Slipp- stöðin tók að sér fyrir Útgerðarfé- lagið var lenging og endurbygging Sléttbaks 1987 þegar honum var breytt í frystitogara. Þetta var gíf- urlega mikið verk sem reynslan hefur sýnt að heppnaðist vel. Eg man þó að þetta þótti taka of lang- an tíma en maður reyndi að malda í móinn og segja að þegar frá liði myndu menn fljótt gleyma því þótt verkið færi aðeins fram úr í tíma og jafnvel kostnaði og spyrja frekar hvernig til heföi tekist. Eg held að þetta hafi verið ákaflega vel heppnuð endurbygging og það sést best á því að Sléttbakur hefur verið ein af kjölfestunum í rekstri Útgerðarfélagsins á undanförnum árum," sagði Gunnar Ragnars. Taldi mig hafa reynslu og þekkingu til að sækja um starfið Næst snúum við okkur að því hvernig það atvikaðist að Gunnar hætti sem forstjóri Slippstöðvar- innar og gerðist framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. „Eg var búinn að vera í Slippn- um í 20 ár þegar árið 1989 rann upp og mér fannst tími til kominn að huga að breytingu. Gísli Kon- ráðsson var kominn á aldur og starf framkvæmdastjóra Útgerðar- félagsins auglýst. Eg vildi helst ekki flytja úr bænum sem hafði fóstrað mig nánast helming ævinn- ar en hins vegar var ekki úr miklu að velja í sambandi við störf. Þegar starfið var auglýst hjá Útgerðarfé- laginu ákvað ég að sækja um þaö enda taldi ég mig alveg hafa reynslu og þekkingu til þess. Nið- urstaðan varð sú að ég fékk starfið og byrjaði hér fyrir sex árum, 5. maí 1989." - Ráðning þín varð tilefni pólit- ískra deilna og framsóknarmenn töldu sig „eiga" sæti Gísla. Var ekki erfitt að byrja í nýju starfi undir þessum kringumstæðum? „Jú, ég get ekki neitað því að það var erfitt. Hins vegar hafði ég mikla reynslu af alls kyns þrasi úr bæjarpólitíkinni og þar hafði margt sáfnast á herðar mínar. Ég vildi ekki blanda neinni pólitík í þetta. Ég leit fyrst og fremst á mig Frá aðalfundi Útgerðarfélagsins í síðasta mánuði. Gunnar Ragnars fær sér væna sneið af ÚA-kökunni. Mynd: Robyn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.