Dagur - 25.05.1995, Síða 8

Dagur - 25.05.1995, Síða 8
8B-DAGUR Afmælisblað ÚA - Fimmtudagur 25. maí 1995 Kassarnir teknir inn í hús með lyftara. Mynd: SS g-----------------------------e Sendum okkar kstu kv&ðjur í tilefni 50 ám afmális Útgerkrfélags Akureyringa Raftákn hf. _ Glerárgötu 34 • Akureyri • Sími 462 4766 eD________________________________________0 ÖsJui/n lltcje/HkinflJacjl ^ í/ui/'ecj/HMjtí tilhtímuujju/ /necí oO á/Hi apmelici PDæstosj KRÓKHÁLSI 6 SIMI5671900 *FAX 5671901 Löndun á úthafskarfa: Föram vel meðfiskmn - segja Sævar og Vignir í lönduninni Harðbakur EA 303 var að koma með um 250 tonn afút- hafskarfa þegar blaðamaður mætti á staðinn ogfylgdist með lönduninni. Karfinn var jafn ófrýnilegur ogfyrri daginn en það segir ekkert um gæðin því ekki er öllfegurð t„and- liti" fólgin. Nokkrir ýsukassar slæddust líka með. Vignir Stefánsson og Sævar Þor- steinsson voru að vinna í löndun- inni og slógu á Iétta strengi. Þeir frelsuðu nokkra fiska úr ísnum í kössunum og klöppuðu þeim blíð- lega. Þetta sögðu þeir vera liö í góðri meðferð á afla! - Hvaö ert þú búinn að vinna lengi hjá Utgerðarfélaginu, Sævar? „Eg byrjaði 1986 og var í salt- fiskinum í tvö ár en hef verið í lönduninni síöan. Þetta eru miklar tarnir en því miður oft hlé á milli. Það væri vissulega betra að fá afl- ann jafnt og þétt en vinnan er ágæt og tekjurnar sömuleiðis." - En þú, Vignir, hvenær hófst þú störf hjá ÚA? „Eg er búinn að vera héma í tíu ár og hef alltaf verið í lönduninni og líkar bara vel." - Er ykkur uppálagt að fara svona vel með fiskinn? „Ja, það er náttúrlega búið að vera mikið gæðaátak hérna undan- farin ár," sagði Sævar. „Það á að skila sér gegnum allt vinnsluferlið, frá sjómönnunum og þar til varan er fullunnin." - En nú er blessuðum karfanum troðið í kassana. Fer nokkuð vel um hann þarna? „Kannski ekki, en þetta er út- hafskarfi og kvótalaus og þess vegna er fyrst og fremst hugsað um að moka honum upp þegar hann gefst. En þetta sleppur alveg og úthafskarfinn er kærkomin bú- bót," sagði Sævar. Sá rauði fór síðan í móttökuna til vinnslu og endar sjálfsagt flak- aður, snyrtur og pakkaður í frysti- borðum matvöruverslana erlendis. Sævar Þorsteinsson og Vignir Stefánsson fara blíðum höndum um úthafs- karfann. Mynd: SS Ný stjóm UA Stjómarskipti urðu á aðal- fundi Útgerðarfélagsins 24. apríl 1995. Akureyrarbær hafði áður tilnefnt alla fimm stjóm- armennina en nú skipaði bær- inn þrjá fulltrúa, Kaupfélag Eyfirðinga einn og aðrirfjár- festar einn. Nýr stjórnarformaður er Jón Þórð- arson, forstöðumaöur sjávarút- vegsdeildar Háskólans á Akureyri. Hann er skipaður af Akureyrarbæ sem og Pétur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiöenda, og Hall- dór Jónsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og fyrrverandi bæjarstjóri. Pétur Jón Þórðarson, stjórnarformaður Útgerðarfélags Akureyringa. (Myndasafn Dags). og Halldór voru áður í stjórn. Nýir menn auk Jóns eru Jóhannes Geir Sigurgeirsson, bóndi og fyrrver- andi alþingismaður, frá KEA, og Kristján Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sæplasts hf. á Dal- vík, frá öðrum hluthöfum. Úr stjórninni gengu Erlingur Sigurðarson, Sigurður Jóhannes- son og Sverrir Leósson. Akureyrarbær á ríflega 53% hlutafjár í ÚA en afganginn eiga 1.800 hluthafar. Bærinn hyggst selja talsverðan hlut í félaginu eða nýta ekki forkaupsrétt sinn þannig að hann verður ekki meirihlutaeig- andi í framtíðinni en væntanlega þó langstærsti hluthafinn. Vátryggingafélag íslands hf.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.