Dagur - 25.05.1995, Page 20

Dagur - 25.05.1995, Page 20
20 B - DAGUR Afmælisblað UA - Fimmtudagur 25. maí 1995 Við sendum öllum starfsmönnum og stjórnendum Útgerðarfélags Akureyringa hf. okkar bestu óskir í tilefni 50 ára afmælis fyrirtœkisins og þökkum fyrir góð og ánœgjuleg viðskipti á undanförnum árum TOGHLERAR „FYRIR ALLAR TOGVEIÐAR" J. HINRIKSSON H.F. SÚÐARVOGI4 SÍMAR 588 6677 /568 0775 104 REYKJAVÍK MYNDSENDIR 568 9007 „FRAMLEIÐENDUR TOGBÚNAÐAR í ÁRATUGI" Birna Tobíasdóttir og Maria Evangelina slá á létta strengi. Mynd: Robyn. „Langar aðfara að kenna<( - segir Maria E. Bjarnason frá Filippseyjum Útgerðarfélag Akureyringa hef- ur eins og mörg önnur sjávar- útvegsfyrirtæki ráðið til sín er- lent starfsfólk í fiskvinnslu. Er- lendar konur hjá ÚA eru eitt- hvað á annan tuginn, frá Thai- landi, Filippseyjum, Græn- höfðaeyjum og víðar. Við hitt- um að máli eina úr þessum hópi. Maria Evangelina Bjarnason er frá Filippseyjum. Hún er gift Sveini Bjarnasyni á Brúarlandi í Eyjafjarð- arsveit og er búin að fá íslenskan ríkisborgararétt. Maria kom til ís- lands í júní 1990. „Eg kom fyrst til Reykjavíkur með frænku minni sem er líka gift íslenskum manni. Svo fór ég norð- ur og vann fyrst í Lindu en síöan hjá UA." - Vannstu líka í fiski á Filipps- eyjum? „Nei, ég er gagnfræða- skólakennari. Eg kenndi ensku og líffræði og hafði ekkert komið ná- lægt fiski." - Hvernig líkar þér að vinna í frystihúsinu? „Þetta er bara ágætt. Fólkið er gott. Eg vinn á flæðilínunni og það er allt í lagi. Mér líkar vel að vera hérna, það er fínt að búa í sveitinni og ég er gift góðum manni." - Ætlaröu að halda áfram í fisk- inum eða langar þig til að gera eitt- hvað annað? „Mig langar að fara að kenna aftur. Eg var næstum búin með master-nám, á eftir eitt ár, en vant- ar kennararéttindi hérna. Það er draumurinn aö fara í nám til að fá fullkomin réttindi en ég verð að bíða og sjá til. Islenskan er svo erf- ið," sagði Maria á vel skiljanlegri íslensku, en hún taldi þó aö tungu- málið gæti orðið sér fjötur um fót í námi og kennslu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.