Dagur - 31.05.1995, Blaðsíða 1
78. árg. Akureyri, raiðvikudagur 31. raaí 1995 102. tölublað
Skandia
Lifandi samkepp
W
Geislagötu 12 • Sími 12222
m
- lœgri idgjöld
Lausn sjómanna-
verkfalls í sjónmáli?
Viðræðunefndir samtaka sjó-
manna og útgerðarmanna
hittust að nýju síðdegis í gær í
húsakynnum ríkissáttasemjara
og ræddu stöðuna en samninga-
nefndirnar voru í fyrradag á
fundum, hvor í sínu lagi, og
stóðu þeir fundir fram á nótt.
Eitthvað virtist hafa þokast til
samkomulagsáttar í gærkvöld
varðandi fiskverðsmyndun er
blaðið fór í prentun en samn-
inganefndirnar vilja leggja
áherslu á að ná heildarsamning-
um en ekki að samið verði heima
í héraði framhjá samtökum sjó-
manna og útgerðarmanna.
Samningamenn sjómanna segja
aó mcnn verði að fara gera þaó
Lögreglan:
Tveir ungir Dalvík-
ingar á „skytteríi"
Lögreglan á Dalvík stöðvaði
tvo unga menn í gærdag sem
voru með sitt hvora haglabyss-
una undir höndum í landi Dal-
víkur á svæði þar sem meðferð
skotvopna er algjörlega bönnuð.
Þar voru þeir að skjóta á varg-
fugl. Annar reyndist ekki hafa
byssuleyfi og ekki eigandi byss-
unnar og hafði fengið hana að
„láni“, og var byssan og skot-
færin tekin í vörslu lögreglunnar
en hinn maðurinnn var með
byssuleyfi. Málið fer til ákvörð-
unar hjá fulltrúa sýslumanns.
Gerö var tilraun til innbrots um
fimmleytið í fyrrinótt í Kaupfélag-
iö á Hvammstanga með því að
spenna upp glugga en þegar þjófa-
vamakerfið fór í gang forðaði inn-
brotsþjófurinn sér slippur og
snauður. Ekki hafði í gær verið
upplýst hver eða hverjir voru
þarna að verki.
Lögreglan á Akureyri var at-
hafnasöm í gær og klippti núm-
eraplötur af 30 bifreiðum sem
þegar átti aó vera búið að færa til
skoðunar. GG
upp vió sig hvort þeir ætli að
semja en mikil tímapressa er á
mönnum vegna þeirra frétta að
bæði einstaka útgerðir og sjó-
mannafélög á landsbyggðinni vilja
ganga til samninga fram hjá heild-
arsamtökunum takist samningar
ekki næsta sólarhring. Eins er tal-
ió að eftir því sem nær dragi sjó-
mannadegi því minni áhugi sé á
því að skrifa undir nýjan kjara-
samning.
Utgerðarmenn segja að nær eina
deiluatriðið sé ráóstöfun aflans og
verð fyrir hann, en það sé vissu-
lega stórt. Það hefur vakið mikla
óánægju og kvíða í þeirra röðum
hversu seint viðræður ganga.
Milli sjómanna á Skagströnd
og útgerðarfélagsins Skagstrend-
ings hf. mun vera tilbúinn rammi
að samningi slitni upp úr vióræð-
unum í Reykjavík. Þorbjöm Sig-
urósson, formaður Skipstjóra- og
stýrimannafélags Norðlendinga
mun vera tilbúinn að fara þangað
úr Reykjavík og undirrita samn-
inga. GG
Nýju símaskrárnar komnar úr prentun
Laugardaginn 3. júní taka gildi sjö stafa símanúmer um land ailt. Af því tilefni hcfur Póst- og símamálastofnunin
gefið út nýja nafna- og atvinnuskrá og hófst afhending þeirra í gær. Þegar ljósmyndari Dags leit við á Pósthúsinu á
Akureyri í gær, var Bárður Gunnarsson, starfsmaður Útgerðarfclags Akureyringa hf., að sækja skrárnar fyrir fyrir-
tæki sitt og eins og sést á myndinni, þurfa starfsmcnn fyrirtækisins að nota eina og eina skrá. Mynd: Robyn
Hráefnisstaða norðlenskra frystihúsa nokkuð góð í upphafi sjómannaverkfails:
Vinnsla úthafskarfa af erlendum
fiskiskipum tryggir vinnslu í bili
Samtök fiskvinnslustöðva
mæltust til þess við félags-
menn sína fyrir um mánuði síð-
an, þegar verkfallsboðun sjó-
manna lá fyrir, að þeir segðu
öllu starfsfólki upp vinnunni
með lögboðnum Qögurra vikna
fyrirvara eða með þriggja sólar-
hringa fyrirvara þegar yfirvof-
andi væri hráefnisskortur og þá
um leið vinnslustöðvun. Vinnsla
stöðvast um næstu helgi, hvíta-
sunnuhelgina, hjá frystihúsi
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf.
Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar
á Sauðárkróki:
Verulegur rekstrarbati
Aðalfundur Steinullarverk-
smiðjunnar hf. á Sauðár-
króki var haldinn sl. mánudag.
Á honum kom fram að veruleg-
ur rekstrarbati varð hjá fyrir-
tækinu á síðasta ári. Rekstraraf-
koma fyrir fjármagnskostnað og
afskriftir batnaði um 19,6 millj-
ónir milli ára sem leiðir til þess,
ásamt lægri fjármagnskostnaði,
að reksturinn skilaði 6,6 milljón-
um í hagnað á móti 47 milljón
króna tapi árið 1993, eða við-
snúningur upp á 53,6 milljónir.
Heildarsala Steinullarverk-
smiðjunnar á síðasta ári var 5.935
tonn sem var 14% aukning milli
ára. Tekjur jukust úr 376 millj. í
445 millj., eða um 18%. Söluverð-
mæti á innanlandsmarkaði var um
270 millj., fór úr 248 millj., og út-
flutningsverðmæti var 175 millj.
sem er um 38% aukning milli ára.
Nettóskuldir fyrirtækisins lækk-
uðu um 53 millj. og voru u.þ.b.
382 millj. í árslok. Helstu fjárfest-
ingar voru rafhitari fyrir hersluloft,
sem kemur í stað svartolíuhitunar
og búnaður til endurnýtingar
varma frá rafbræósluofni.
Rekstrartekjur fyrirtækisins
fyrstu fjóra mánuði þessa árs
nema um 187 millj. sem er u.þ.b.
45% aukning milli ára, en útflutn-
ingur fyrirtækisins hefur að sögn
Einars Einarssonar, framkvæmda-
stjóra, aukist mikið vegna sérstaks
verkefnis og á innanlandsmarkaói
hafa tekjur aukist um 9%. Afkom-
an fyrstu fjóra mánuði ársins er já-
kvæð um 8 millj. en rekstraráætl-
un ársins gerir ráð fyrir u.þ.b. 10
millj. króna hagnaói.
Stærstu hluthafar í Steinullar-
verksmiójunni eru ríkissjóður og
Parock í Finnlandi með um 30%
eignarhlut hvort og Sauðárkróks-
bær með 23%. Stjómarmenn eru
sjö og er Lára Margrét Ragnars-
dóttir formaður stjómar. HA
verði deila sjómanna við við-
semjendur þeirra ekki til lykta
leidd f vikunni og afli borist að
landi um eða strax eftir næstu
helgi. Öllu starfsfólki frystihúss-
ins var sagt upp með 4ja vikna
fyrirvara sem kemur þá til fram-
kvæmda 6. júní nk.
Hjá Fiskiðju Sauðárkróks hf.
var starfsfólki ekki sagt upp með
fjögurra vikna fyrirvara, en með
þriggja sólarhringa fyrirvara veró-
ur starfsfólki tilkynnt um vinnu-
stöóvun vegna hráefnisskorts
komi til þess vegna sjómanna-
verkfallsins, þ.e. að það veröi ekki
þá til lykta leitt og þá kemur til
endurgreiðslu á launakostnaði úr
atvinnutryggingarsjóði. Ekki sér
enn fyrir cndann á þessari hráefn-
isstöðvun en stjóm Fiskiðju Sauð-
árkróks hf. mun tilkynna þaö strax
og þau mál skýrast. Þessa dagana
er verið að vinna úthafskarfa á
Sauðárkróki og dugir það hráefni
fram í miðja þessa viku og á mið-
vikudag kemur þýskur togari til
löndunar, en hann hefur landaó
áður á Sauðárkróki. Hráefni er því
til staðar þessa viku, en ekki mik-
ið lengur. Allir togarar Skagfirð-
ings hf. komu til löndunar á
fímmtudag og föstudag. Skagfirð-
ingur SK landaði á Grundarfirði,
Sjóli HF í Hafnarfirði en Skafti
SK kom meö 60 tonn af biönduð-
um afla, aðallega karfa, til Sauðár-
króks. Hegranes SK er í slipp en
Drangey SK hefur verið seld til
Vopnafjarðar og var afhent nýjum
eigendum hinn 20. maí sl.
Hjá frystihúsum KEA á Dalvík
og í Hrísey verður starfsfólki sagt
upp með þriggja sólarhringa fyrir-
vara komi til skorts á hráefni en
talið cr að hráefni dugi til vinnslu
út þessa viku. Hjá Söltunarfélagi
Dalvíkur hf. er nægjanlegt af
rækju til vinnslu út maímánuö.
Starfsfólki Fiskiðjusamlags
Húsavíkur hf. var sagt upp störfum
með fjögurra vikna fyrirvara og
taka þær uppsagnir gildi 5. júní nk.
Vinnsla getur gengið eitthvaó fram
í júnímánuð en eitthvaó mun vera
fyrirliggjandi aö frosnu hráefni,
þ.e. frosnum þorski af rússneskum
togurum í Barentshafi sem landað
hafa á Húsavík nýverið.
Hjá Fiskiðju Raufarhafnar hf.
var öllu starfsfólki sagt upp störf-
um með fjögurra vikna fyrirvara
cn ekki er reiknað með aó vinnsla
stöðvast þar, a.m.k. ekki í bili.
Bæði berst þangað úthafskarfi til
vinnslu og eins hafa krókaleyfis-
bátar afiað ágætlega og séð frysti-
húsinu fyrir hráefni.
Á Þórshöfn var starfsfólki Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf. sagt
upp störfum með tilskyldum fjög-
urra vikna fyrirvara sem tekur gildi
5. júní nk. Öljóst er með framhald
vinnslu í húsinu verði sjómanna-
verkfall langvinnt en þar hefur út-
hafskarfi af færeyskum togurum
verið verið unninn að undanfömu
eins og á Raufarhöfn. Framkvæmd
vinnustöðvunar kann því að dragast
á langinn á Raufarhöfn.
Frystihús Þormóðs ramma hf. á
Siglufirói hefur um 5 vikna hrá-
efni og hefur starfsfólki ekki verió
sagt upp störfum en gripið verður
til þess að segja því upp með
þriggja daga fyrirvara ef nauðsyn
kann að reynast vegna hráefn-
isskorts. Rækjuverksmiðja fyrir-
tækisins á einnig hráefni til nokk-
urra vikna vinnslu. Hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa hf. var öllu
starfsfólki sagt upp meó fjögurra
vikna fyrirvara scm kemur til
framkvæmda 5. júní en síóur er
reiknaó þar meó aó til vinnslu-
stöðvunar komi vegna hráefn-
isskorts. Þá er alltaf hægt að segja
upp fólki með þriggja daga fyrir-
vara, þrjóti hráefni.
Hráefnisstaða annarra rækju-
verksmiöja á Norðurlandi en áður
er getið er nokkuð misjöfn, sumar
eiga hráefni aðcins út þessa viku,
aðrar mun lengur. GG
Sleipnisverkfallið:
Sáttahljóð
ígær
Síðdegis í gær töldu menn
merki á lofti um batnandi
andrúmsloft milli málsaðila í
deilu bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis og viðsemjenda bíl-
stjóra. Mikil harka hljóp í deil-
una eftir að upp úr samninga-
fundi slitnaði aðfaranótt mánu-
dags en síðdegis í gær vildu bfl-
stjórar ekki útiloka að þeir fari
fram á sáttafund hjá sáttasemj-
ara.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, vildi lítið tjá sig um
stööu mála þegar blaðið ræddi við
hann siódegis í gær. Hann viður-
kenndi þó að hugmyndir hefðu
gengið með óformlegum hætti
milli deiluaóila í þeirri von að
nálgast mætti samninga. Óskar
sagði það í höndum sáttasemjara
aó kalla aðila á fund að fengnum
óskum deiluaðila og kl. 21 i gær-
kvöld mættu samninganefndir til
fundar í Karphúsinu. Gieinilegt
var fyrir fundinn aó vonir höfðu
vaknað um lausn deilunnar. JÓH