Dagur - 31.05.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 31.05.1995, Blaðsíða 7
MANNLIF Miðvikudagur 31. maí 1995 - DAGUR - 7 Anna Kristjánsdóttir, ckkja Vilhelms Þorsteinssonar, fyrrv. framkvæmdastjóra ÚA, afhjúpaði listaverk Kristins E. Hrafnssonar, „Mitt á milli nálægðar og endalausrar fjarlægðar“. Útgerðarfélagið 50 ára Útgcrðarfélag Akureyringa hf. fagnaði 50 ára afmæli síóastliðinn föstudag og var af því tilefni efnt til há- tíðarsamkomu í húsakynnum félagsins. Listaverk eft- ir Kristin E. Hrafnsson var afhjúpað, saga ÚA kom út, félagið veitti styrki til menningarmála, cfnt var til kaffisamsætis o.fl. Robyn Redman, ljósmyndari Dags, fylgdist með hátíðarhöldunum og tók mcðfylgjandi myndir. óþh Gunnar Ragnars, framkvæmda- stjóri ÚA, ávarpar hátíðargesti. Við þetta tækifæri flutti Jón Þórð- arson, stjórnarformaður ÚA, ávarp. Stjórnarmennirnir Halldór Jónsson og Pétur Bjarnason næla sér í bakk- elsi. í tilefni af 50 ára afmælinu gaf ÚA hálfa aðra milljón í orgclsjóð Akureyrar- kirkju, en í sumar verður ráðist í fjárfrckar viðgerðir á orgeli Akureyrar- kirkju. Á myndinni afhcndir Jón Þórðarson, stjórnarformaður ÚA, Guðríði Eiríksdóttur, formanni sóknarncfndar Akureyrarkirkju, gjöfína. Á afmælisdaginn kom út saga ÚA í 50 ár cftir Jón Hjaltason, sagnfræð- ing. Sagan ber heitið „Steinn undir framtíðarhöll“ og er það fengið úr ljóði Kristjáns frá Djúpalæk sem hann orti þcgar fyrsti togari ÚA, Kaldbakur, kom til Akureyrar 1947. Jakob Björnsson, bæjarstjóri, ávarpar hátíðargcsti. Haukur Þorbjörnsson, bilstjóri, og löndunarkallarnir Stefán Ingólfsson og Jón Ingason. Kátar starfsstúlkur ÚA; María Meriam Jóhanncsson, Melisa Eiðsson, María Bethsaida Cisncros og Lucivic B. Damisin. Við afhjúpun listaverksins „Mitt á milli nálægðar og cndalausrar fjarlægð- ar“. Frá vinstri: Listamaðurinn Kristinn E. Hrafnsson, Anna Kristjánsdótt- ir, ckkja Vilhelms Þorstcinssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra ÚA, Gísli Konráðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÚA, Gunnar Ragnars, fram- kvæmdastjóri ÚA, og ciginkona hans, Guðríður Eiríksdóttir. v. 4 S0 AKA M4S- Glaðir starfsmcnn á góðum dcgi. Páll Pétursson, gæðastjóri Coldwater í Bandaríkjunum, afhenti Maríu Hall- dórsdóttur fyrir hönd starfsfólks ÚA gæðaskjöld, en þetta var í tíunda skipti scm ÚA hlaut gæðaviðurkenningu. I tilcfni af 50 ára afmæli ÚA var efnt til vcrðlaunagetraunar. Á myndinni eru þau þrjú sem duttu í lukkupottinn; Sigurður Jónsson, Sigríður Jóna Pálsdóttir og Karen Gunnarsdóttir. Að launum fengu þau sýnishorn af framleiðsluvörum Útgerðarfélags Akureyringa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.