Dagur - 31.05.1995, Síða 4

Dagur - 31.05.1995, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 31. maí 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HAL.LDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285), KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 LEIPARI Góðæríð Nýútkomin ársskýrsla efnahags- og framfara- stofnunarinnar í París um efnahagsmál á íslandi undirstrikar að bati er þegar orðinn í íslensku efnahagslífi og fyrirséð að áfram verður haldið á þeirri braut á þessu ári. Á hinn bóginn er áréttað að hallarekstur ríkissjóðs og skuldasöfnun landsmanna er það atriði sem getur girt fyrir möguleikana á bættum lífskjörum hér á landi, Það þarf engan að undra þó kveðið sé fast að orði um þetta atriði í OECD skýrslunni þegar nettóskuldir hins opinbera hafa vaxið úr 8% af landsframleiðslu árið 1988 í um 30% árið 1994. Og þetta gerist á þeim tíma þegar „sérstakt átak“ er gert til að draga úr ríkissjóðshallanum. „Einsýnt er að taka þarf ríkisfjármálin fastari tökum en gert hefur verið undanfarin ár, “ segir í skýrslu OECD. „Aðgerðir tíl að draga úr hallan- um þegar á þessu ári ættu að vera ofarlega á dagskrá nýrrar ríkisstjórnar. Fjárlög yfir- standandi árs, eins og þau voru ákveðin í des- ember síðstliðnum, miða einungis að því að halda í horfinu frá fyrra ári. Við þessar aðstæður er enn langt í land að skuldasöfnun ríkissjóðs stöðvist.. “ Minnt er á í skýrslu OECD að ýmsar þær skuldbindingar sera stjórnvöld hafa gripið til, t.d. í tengslum við kjarasamninga, geta reynst erfiðar þegar fram í sækir. En stærsta málið er þó að stjórnvöld móti markvissa stefnu út úr hallarekstrinum og skuldasöfnuninni og standi fast á henni. „Og horfur eru á öðru jafn góðu ári 1995. Engu að síður má gera enn betur. Ef stjórnvöld hröðuðu aðgerðum til að ná betri tökum á ríkis- fjármálunum, hættu að auka útgjöld í tengslum við kjarasamninga og sýndu meiri sveigjanleika við að laga vexti að alþjóðlegri vaxtaþróun, legðu þau sitt að mörkum til að tryggja áframhaldandi stööugleika. í samræmi við þetta ber brýna nauðsyn til að skipulagsbreytingum í íslensku efnahagslífi verði haldið áfram, sérstak- lega hvað varðar ábyrga fiskveiðistjórnun og minni ríkisafskipti. Með því móti má skapa skii- yrði fyrir nýsköpun í atvinnulífinu og fyrir aukn- um hagvexti þegar til lengri tíma er litíð, “ segja sérfræðingar OECD. Myndlistaskólinn á Akureyri: I fyrsta skipti efnt til sumamámskeiða 6.-14. júní I 1 1l Myndsmiðjan verður til húsa í húsnæði Myndlistaskólans á Akureyri í Grófargiii. I júní verður í fyrsta skipti boóið upp á sumamámskeið í Myndlista- skólanum á Akureyri. Aðstandend- ur námskeiðanna kalla þetta „myndsmiðju fyrir böm og full- orðna'*. Myndsmiðjan stendur frá 6. júní til 14. júní nk. Um er að ræða þrennskonar námskeið. I fyrsta lagi námskeið sem kall- ast „Myndsmiðja - myndmótun fyr- ir böm á aldrinum 5-8 ára og 9-11 ára.“ Um er að ræöa námskeið þar sen kennt verður hálfan daginn, þrjár klukkustundir á dag, í sjö virka daga. Þemað verður norræn goðafræði og er ætlunin að skyggn- ast eilítið inn í þennan ævintýra- heim á ýmsan hátt. Kenndar verða margskonar mótunaraðferðir og unnið í alls konar efni. Farið verður í vettvangsferðir út í náttúruna þar sem leitað veröur fanga. Mynd- smiðju bama lýkur með sýningu í Myndlistaskólanum. Kennarar verða Jane Darowskikh frá Banda- ríkjunum, sem er fyrsti gesturinn á gestavinnustofu Gilfélagsins, og Rósa Kristín Júlíusdóttir. Þátttöku- gjald er kr. 12 þúsund. I annan stað er boðið upp á nám- skeið sem nefnist „Myndsmiðja - teiknun, málun og þrykk fyrir böm og unglinga." Þetta námskeið verð- ur hálfan daginn í sjö daga. Farið verður í vettvangsferðir, gerðar skissur sem síðan verða útfæröar á margvíslegan hátt í mismunandi efni. Einnig verða kenndar margvís- legar aðferðir m.a. um meðferð vatnslita. Kennarar verða Kristján Jóhannsson og Guðmundur Ar- mann. Þátttökugjald er kr. 12 þús- und. Þriðja námskeióið ber nafnið „Myndsmiðja - teiknun, málun og þrykk fyrir fullorðna". Þetta er fjöl- breytt námskeið sem stendur allan daginn í sjö daga. Um er að ræða alhliða myndsmiðju (workshop) fyrir áhugasama byrjendur. Byrjað verður á grunnatriðum, þ.e. teiknun grunnforma, fjarvídd, litafræði og verkefnum þar sem teiknað verður eftir fyrirmyndum. Síðan verða vettvangsferðir, gerðar skissur og þær útfærðar á mismunandi efni. Námskeiðið ætti að henta vel þeim sem hefur langað til að læra mynd- list en ekki fyrr gefið sér tíma til þess. Kennarar verða Kristján Jó- hannsson og Guðmundur Ármann. Þátttökugjald er kr. 23 þúsund. Eins og áður segir hefst nám- skeiðið nk. þriðjudag, 6. júní, og stendur til 14. júní. Allar frekari upplýsingar og innritun í síma 4624958 fram til 2. júní. Þau Guðmundur Ármann og Rósa Kristín Júlíusdóttir sögðu í samtali við Dag að ekki hafi áður verið efnt til slíkra sumamámskeiða og því gætu þau ekki gert sér hug- mynd um undirtektir. Hins vegar sögðust þau hafa orðið vör við mik- inn áhuga fólks, bæði hér á Akur- eyri og ekki síst í nágrannabyggð- um, á að sækja styttri myndlistar- námskeið og þama væri loks komið kærkomið tækifæri til að láta verða af því að reyna fyrir sér í myndlist- inni. óþh Tíminn líður hratt. Nú eru tíu ár liðin frá útskrift fyrstu stúdenta VMA og af því tilefni ætla tíu ára stúdentar að hittast og gera sér glaðan dag. Tíu ár liðin frá útskrift fyrstu stúdenta VMA: Tíu ára stúdentar hittast í Sjallanum Nú eru lióin tíu ár frá því Verk- menntaskólinn á Akureyri útskrif- aði fyrstu stúdentana. Af því til- efni ætlar fyrsti stúdentahópurinn, tíu ára stúdentar, að hittast í Sjall- anum að kvöldi hvítasunnudags, 4. júní nk. Eftir kl. 24 verður húsið opnað og eru kennarar og nemendur, sem samtíða voru þeim fyrst í Gagnfræóaskólanum og síðar í VMA, hvattir til að koma og hitta þennan hressa hóp. Þetta sama kvöld taka eins árs stúdentar niður hvítu kollana. (Frétta(ilkynning) Hvítasunnuhelgin á Akureyri: Fjölbreytt dagskrá Hvíta- suimumanna í Glerhúsinu Um hvítasunnuhelgina mun Hvítasunnukirkjan á Akureyri standa fyrir samkomuherferð og ýmsum uppákomum í Glerhúsinu (Blómahúsinu) á Akureyri. Frá föstudeginum 2. til mánu- dagsins 5. júní verða uppákomur af ýmsu tagi frá kl. 14 til 18 alla dagana. Meðal annars mun Helgi Vápni opna myndlistarsýningu og sýnd verða og sungin ljóð Onnu Elísu. Á hverjum heilum tíma munu margir einstaklingar koma fram og það verður m.a. sungið, lesin upp ljóð, flutt bamaleikrit og sögur og leikir fyrir yngstu börn- in. Kaffiterían verður opin og verslunin Jata verður á staðnum. Öll kvöldin kl. 20 verða samkom- ur með miklum og líflegum söng. I tengslum viö þessa hátíð Hvíta- sunnumanna verður rekin útvarps- stöðin „Vonin" þar sem allri dag- skrá frá Glerhúsinu verður útvarp- að beint á FM 98,7 og notaleg kristileg tónlist ilutt. Vikuna fyrir hvítasunnuna verður kynningar- bæklingi um Hvítasunnukirkjuna og það sem hún hefur uppá að bjóöa, dreift í öll hús á Akureyri. Næstkomandi mánudag, annan í hvítasunnu, opnar Aðalsteinn Þórisson myndlistarsýningu í Hótel Hjaiteyri. Aðalsteinn útskrifaðist árið 1993 frá málunardeild Myndlista- skólans á Akureyri. Síðan stund- aði hann nám við Lahti Institut of fme Arts í Finnlandi veturinn Allir eru hjartanlega velkomnir í Glerhúsið um þessa helgi og njóta þess sem þar er í boói. (Fréttatilkynning) 1993- 1994 og voru flestar mynd- irnar á sýningunn í Hótel Hjalteyri unnar ytra. Myndimar eru nokkurs konar leit að kennileitum í framandi um- hverfi eða kannski dagbókarfærsl- ur. Sýningin veróur opin kl. 14-22 og stendur til 24. júní. Þetta er fjórða einkasýning Aðalsteins. Hótel Hjalteyri: Myndlistarsýning Aðalsteins Þórissonar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.