Dagur - 01.06.1995, Blaðsíða 4
10 - DAGUR - Fimmtudagur 1. júní 1995
4
Heimisfélagar syngja hér í Básavik við Hofsós í júní á síðasta ári.
Karlakórinn Heimir
Starf Karlakórsins Heimis á þessu ári hefur
verið mjög þróttmikið sem fyrr. Kórinn hóf
æfingar upp úr miðjum október. Var þá
þegar farið að æfa ný lög fyrir vetrartón-
leikana og einnig voru rifjuð upp lög frá
fyrra starfsári því ákveðið var að fara í tón-
leikaferðir fyrrihluta nóvembermánaðar.
Fyrri ferðin var síðan farin 12. nóvem-
ber til Búðardals og Stykkishólms í blíð-
skaparveðri og góðri færð, kórinn fékk
mjög góða aðsókn og hinar ágætustu undir-
tektir. Seinni ferðin var farin til Akureyrar
og söng kórinn í Akureyrarkirkju fyrir
troðfullu húsi við afskaplega góðar undir-
tektir áheyranda og í Freyvangi um kvöld-
ið.
Syngjandi bændur
Meðan á æfingum og ferðajögum stóð
þessa fyrstu vetradaga var Ómar Þ. Ragn-
arsson að vinna þáttinn „Syngjandi bænd-
ur“ með Karlakómum Heimi, sem sýndur
var á Stöð 2 í ársbyrjun 1995. Þátturinn
þótti takast mjög vel og hafa fjölmargir lát-
ið í ljós ánægju sína með þáttinn og hefur
verið haft samband við forsvarsmenn kórs-
ins víðsvegar af landinu í því sambandi.
Hin hefðbundna þrettándaskemmtun
kórsins var haldin í Miðgarði laugardaginn
7. janúar en þá var tekin formlega í notkun
nýr flygill af Steinway gerð í eigu félags-
heimilisins Miðgarðs. Það voru þeir Stefán
R. Gíslason og Thomas Higgerson sem
tóku flygilinn formlega í notkun og um leið
var gamli flygillinn kvaddur, en hann er af
Yamaha gerð og var gefínn af Kirkjukór
Víðimýrarskóknar fyrir tæpum 30 árum og
hefur staðist vel mikið álag í áranna rás en
er nú nokkuð farinn að slappast.
Margrét Jónsdóttir á Lönguntýri flutti
ávarp við þetta tækifæri og sagði frá að-
dragandanum að kaupum á gamla og síðan
nýja flyglinum. Karlakórinn var með langa
söngdagskrá en varð þó að syngja mörg
aukalög vegna þess hve viðtökur voru góð-
ar. Ómar Þ. Ragnarsson var með gamanmál
og lauk skemmtuninni með dansleik þar
sem Hljómsveit Geirmundar lék af miklu
fjöri. Þessi skemmtun þótti takast vel í alla
staði þrátt fyrir slæmt veður. Sumir voru að
berjast í blindhríð í 4-5 tíma án þess að
komast alla leið.
Á Hótel íslandi
Næst skal nefna að Ólafur Laufdal, veit-
ingamaður á Hótel íslandi, hafði samband
við formann kórsins og fór þess á leit að
hann tæki að sér að skipuleggja dagskrá á
skagfirsku kvöldi á Hótel íslandi þar sem
söngur kórsins yrði aðalatriðið. Forniaður
hófst þegar handa að undirbúa dagskrá sem
var þannig sett upp að kórinn væri með
skemmtilega söngdagskrá. hinir vinsælu
Álftagerðisbræður, Gísli, Óskar, Pétur og
Sigfús, væru einnig með sérstaka söngskrá
og síðan væru hagyrðingar kórsins með
hagyrðingaþátt, Ómar Þ. Ragnarsson gam-
anmál og kynnir kvöldsins sr. Hjálmar
Jónsson. Loks skyldi Hljómsveit Geir-
mundar leika fyrir dansi. Skemmtunin var
síðan haldin 10. mars við mikla hrifningu
áheyrenda fyrir fullu húsi, en áætlað var að
um 1100 manns hafi verið á skemmtuninni.
Sama dag hélt kórinn tónleika í hinni
nýju og glæsilegu Digraneskirkju í Kópa-
vogi. Aðsóknin var slfk að kirkjan troð-
fylltist svo að um tvö hundruð manns urðu
að gera sér að góðu að standa, en áætlað
var að um 700 manns hafi verið á tónleik-
unum. Kórnum var frábærlega tekið og
varð að endurtaka mörg af lögunum og
syngja öll aukalög sem hann hafði tiltæk.
Tónleikarnir hófust kl. 18.30 og stóðu í
fulla tvo tíma og máttu félagar ekki seinni
vera til að ná skemmtuninni á Hótel íslandi
í tæka tíð.
Á heimaslóðum
Seinnipartinn í vetur og vor hefur kór-
inn haldið fjögur Heimiskvöld með blönd-
uðu efni. Söng- og skemmtikvöld voru
haldin í Miðgarði í Varmahlíð, Höfðaborg
á Hofsósi og tvisvar í Bifröst á Sauðár-
króki. Hagyrðingaflokkur kórsins kom
einnig fram og flutt voru gamanmál sem
þeir Einar Halldórsson og Jón Ormar
Ormsson sáu um. Þá kom Harmoniku-
hljómsveit Skagafjarðar fram á seinna
kvöldinu í Bifröst. Heimiskvöldin voru vel
sótt þrátt fyrir óhagstætt tíðarfar. Konur
Heimismanna sáu um glæsilegar veitingar
og voru allar viðtökur mjög góðar.
Hinn 24. mars hélt kórinn tónleika í
Blönduóskirkju við góða aðsókn og undir-
tektir. Sæluvikutónleika hélt kórinn að
venju í lok vikunnar, 29. apríl, ásamt
Rökkurkórnum. Gestakórar voru Samkór-
inn Björk og Kór Landsvirkjunar. Troðfullt
hús var og margir urðu að standa. Að lokn-
um vel heppnuðum tónleikum lék Hljóm-
sveit Geirmundar fyrir dansi fram eftir
nóttu. Allur ágóði af skemmtuninni rann í
sjóð til að greiða nýja flygilinn sem áður
var nefndur.
Geisladiskur og sjónvarpsþáttur
Kórinn hefur nú látið hljóðrita efni sem á
að koma út á geisladiski og snældu síðar á
árinu. Þar verður að finna vinsæl lög af
söngskrám kórsins sl. 2-3 ár og einnig ný
lög sem eru á söngskránni um þessar
mundir. Þá má einnig geta þess að Ómar Þ.
Ragnarsson er að hefja upptöku á nýjum
þætti með kórnum og fleiri kórum, sem
sýndur verðu á næsta ári.
Söngstjóri kórsins er Stefán R. Gísla-
son, undirleikarar Thomas Higgerson og
Jón St. Gíslason. Einsöngvarar með kórn-
um í vetur eru Einar Halldórsson, Pétur
Pétursson, Sigfús Pétursson og Hjalti Jó-
hannsson. Tvísöng og þrísöng syngja Gísli,
Pétur og Sigfús Péturssynir og Bjöm
Sveinsson. Söngfélagar eru 60.
Eins og fram hefur komið þá hefur starf
kórsins verið mjög mikið og árangursríkt í
vetur og það sem er ánægjulegast er hin sí-
vaxandi aðsókn að öllum tónleikum kórs-
ins og hinar stórkostlegu undirtektir áheyr-
enda hvar sem kórinn hefur sungið. Fyrir
það erum við Heimisfélagar afar þakklátir.
Okkur er það vel ljóst að stærstan hlut í
þessari velgengni kórsins á Stefán R.
Gíslason, söngstjóri, en sér við hlið hefur
hann haft hinn ágæta tónlistarmann Thom-
as Higgerson, sem einnig hefur unnið kórn-
um mjög gott starf. Fyrir það eiga þeir sér-
stakar þakkir skildar.
Nú í maílok hefst starfið aftur að nýju
eftir mánaðarhlé. Þá er áætlað að halda
tónleika í Þingeyjarsýslu og Eyjafirði og í
byrjun júní á Siglufirði. Hinn 8. júní er
áætlað að fara í fjögurra daga söngferð
suður á land.
Stjóm Heimis skipa: Þorvaldur G. Ósk-
arsson, formaður, Ám Bjamason, gjaldkeri
og Pétur Pétursson, ritari.
Porvaldur G. Óskarsson.