Dagur - 09.06.1995, Blaðsíða 3
I
,^»ÖD F 'mi'ii 0 mi ir\r>hí «+o.V*3 CJj IDA/1 .... C*
Föstudagur 9. júní 1995 - DAGUR - 3
FRÉTTIR
Hátíðarhöld sjómanna:
Fjolbreytt dagskra bæði
laugardag og sunnudag
Sjómannadagurinn á Akureyri er
aö þessu sinni 11. júní og verða há-
tíðarhöld af því tilefni helgina 10.
og 11. júní. Dagskráin hefst Iaugar-
daginn 10. júní kl. 13 við Torfu-
nefsbryggju með kappróðri sveita
skipshafna, kvenna og fyrirtækja.
Samhliða fer fram keppni í neta-
bætingu og pokahnýtingu. Sjó-
björgunarsveit SVFI aðstoóar og
sér um gæslu á hafnarsvæðinu og
kvennadeildin selur kakó og með-
læti í nýjum húsakynnum við höfn-
ina, en hús þeirra verður einnig til
sýnis. Sjósport Akureyri býður upp
á „River Rafting“ á Pollinum á
laugardag og sunnudag. Ný flotkví
Akureyrarhafnar verður almenn-
ingi til sýnis laugardag og sunnu-
dag frá kl. 10-16. Knattspymuleik-
ir skipshafna hefjast kl. 16 í
íþróttahúsi KA við Lundartún.
A sunnudeginum verða fánar
dregnir að húni kl. 8. Sameiginleg
sjómannamessa Akureyrar- og
Glerárprestakalls verður í Akureyr-
arkirkju kl. 11. Sr. Þórhallur Hösk-
uldsson og sr. Gunnlaugur Garð-
arsson þjónusta og sjómenn að-
stoða vió messuna. Klukkan 13
verður blómsveigur lagður að
minnisvarða um týnda og drukkn-
aða sjómenn við Glerárkirkju.
Klukkan 13.30 mun Lúðrasveit
Akureyrar leika við Sundlaug Ak-
ureyrar, fulltrúar útgerða og sjó-
manna flytja ávörp, sjómenn verða
heiðraðir, stakka- og björgunar-
sund synt og keppt í koddaslag.
Jafnframt fer fram verðlaunaaf-
hending, en Atlaverðlaunin verða
afhent í síóasta sinn í íþróttahöll-
Höfðahreppur:
Fjárfestingar og
framkvæmdir 1995
Höfðahreppur hefur ákveðið að
Qárfesta í eignum SR-mjöls á
Skagaströnd, auk þess að ráðast
í hlutafjárkaup í skóverksmiðj-
unni Skrefinu hf. og sauma-
smiðjunni.
Að sögn Magnúsar B. Jónsson-
ar sveitarstjóra eru hlutabréfin í
skóverksmiðjunni, sem keypt
verða nú, liður í langtímaáætlun
vió fjármögnun fyrirtækisins.
Ekki er endanlega ákveðið hversu
há upphæö fer til þessara kaupa
nú, hvorki á hlutabréfum skóverk-
smiójunnar né saumasmiðjunnar,
en þó hafa nú þegar verið lagðar
um tvær milljónir í Skrefiö hf.
Hins vegar eru kaupin á eignum
SR-mjöls fimm milljónir.
Framkvæmdir veróa nokkuð
hefóbundnar á árinu. Hafnarfram-
kvæmdir eru áætlaðar fyrir 12,8
milljónir. Þar er um að ræða grjót-
vöm vestan síldarverksmiðju og
kantur og lagnir á skúffugarði.
Afram verður haldið við lagningu
gangstétta og lagfæringar á göt-
um. shv
Bikarkeppni Noröurlands
í sveitakeppni í bridds:
Stefan G. og Magnús
spila til úrslita
Báðum leikjunum í undanúrslit-
um bikarkeppni Norðurlands í
sveitakeppni í bridds er nú Iok-
ið.
Sveit Magnúsar Magnússonar,
Bridgefélagi Akureyrar, bar nokk-
uð örugglega sigurorð af sveit
Sveins Aðalgeirssonar, Bridgefé-
lagi Húsavíkur og sveit Stefáns G.
Stefánssonar, Bridgefélagi Akur-
eyrar, heimsótti Formannasveitina
á Siglufirði og sigraði eftir æsi-
spennandi leik, þar sem sveitimar
skiptust á um forystuna.
Það liggur því ljóst fyrir aö Ak-
ureyrarsveitimar tvær leika til úr-
slita aö þessu sinni. Urslitaleikur-
inn fer fram í Hamri, félagsheimili
Þórs, á laugardaginn kemur, 10.
júní og hefst hann kl. 12. Bridds-
áhugamenn eru hvattir til að koma
og fylgjast með spennandi leik.
Kvennakórinn Lissý 10 ára:
Sumarkaffi með
söng að Breiðumýri
- á morgun kl. 15.00
Kvennakórinn Lissý, kór Kven-
félagasambands Suður-Þingey-
inga, er 10 ára í vor. Kórinn
hyggur á Norðurlandaferð
næsta vor, en laugardaginn 10.
júní kl. 15 verður kórinn með ár-
Iegt sumarkaffi með söng að
Breiðumýri í Reykjadal.
Stjómandi kórsins er Hólmfríó-
ur Benediktsdóttir en píanóleikari
er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Á
afmælis- og vortónleikunum að
þessu sinni eru Hildur Tryggva-
dóttir og Gunnfríður Hreiðarsdótt-
ir einsöngvarar með kómum, en
Elma Atladóttir sópransöngkona
syngur nokkur lög. Kaffi með
söng og kökum kostar 1000 krón-
ur. Um Jónsmessuna fer Kvenna-
kórinn Lissý á kvennakóramót,
sem haldið er í Reykjavík. IM
inni um kvöldið. Kvennadeild
Slysavamafélagsins mun sjá um
blaða- og sælgætissölu á svæðinu
og kaffisölu að Hótel KEA frá kl.
15. Að síðustu verður sjómanna-
dansleikur í Iþróttahöllinni og hús-
ið opnað kl. 18.30. Bjami Hafþór
Helgason annast veislustjóm og
hljómsveitin Bylting Ieikur fyrir
dansi til kl. 3. Miðasala veróur hjá
Sjómannafélagi Eyjafjarðar föstu-
dag og laugardag að Skipagötu 14
Og VÍð innganginn. (Fréttatilkynning)
Að venju verður fjölbreytt dagskrá á sjómannadaginn víða um land.
Gtœsileg btlasýning
laugardaginn 10. júní kl. 11-17 og sunnudaginn 11. júní kl. 13-18
Sjáið nýja HUMMER jeppann á sýningunni um helgina.
Fullkomnasta farartæki á vegleysum sem til er (16 ára ábyrgð).
Björgunarsveitir og fjallafarar sérstaklega velkomnir (þetta er tækið!).
WPPOLO
WAGON
Kynning á
SONNAX
bónvörum
Komið, skoðið og reynsluakið
Höldur hf.
Tryggvabraut 10, sími 461 3000