Dagur - 09.06.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 9. júní 1995
HVAÐ E R Af> OERA5T
Rúnar Þór
í Hlöðufelli
Rúnar Þór og félagar leika í fyrsta
skipti á Húsavík í kvöld, föstu-
dagskvöld, í Hlöðufelli. Aldurs-
takmark er 18 ár. Annað kvöld,
laugardagskvöld, er aldurstakmark
20 ár, en miðaverð er kr. 1000. Ef
til vill verður haldið áfram með
fjörið
Söludagar Slysa-
varnadeildar kvenna
Slysavamadeild kvenna á Akur-
eyri verður með sölu á kaffi og
kleinum í nýja slysavarnahúsinu á
morgun, laugardag. Á sunnudag
verður sælgætis- og pylsusala við
sundlaugina og kaffisala á Hótel
KEA.
Stórdansleikur
nikkara
Félag harmonikuunnenda við
Eyjafjörð og harmonikuunnendur
á Vesturlandi halda sameiginlegan
dansleik á Fiðlaranum 4. hæð, Al-
þýðuhúsinu á Akureyri, annað
kvöld, laugardagskvöld, kí. 22-03.
Skiptimarkaður í
KA-heimili
Á morgun, laugardag, og mánu-
daginnn 12. júní verður haldinn
skiptimarkaður í KA- heimilinu.
Ýmislegt verður í boði, þ.á.m. fót-
boltaskór og ýmsar aðrar vörur.
Skiptimarkaðurinn verður opinn
frá kl. 11 til 15 á morgun og kl.
17-20 á mánudag.
Sixties á sjómanna-
dansleik í Sæluhúsinu
í kvöld, föstudagskvöld, 9. júní,
mun bítlahljómsveitin Sixties
leika á sjómannadansleik í Sælu-
húsinu á Dalvík frá kl. 23.30.
Síðasti flóamarkaður
Hjálpræðishersins
Síðasti flóamarkaður Hjálpræðis-
hersins að sinni verður í dag,
föstudaginn 9. júní, að Hvanna-
völlum 10. Hann verður opinn kl.
10-18. Flíkin kostar kr. 100 og er
einnig hægt að „prútta“. Fyrir
fasta „kúnna“ vilja forráðamenn
markaðarins benda á að á honum
er mikið af nýkomnum vörum.
Frá og með 10. júní og fram á
haust verður gert hlé á móttöku
fatnaðar á markaðinn.
Aðalfundur Félags
hjartasjúklinga
Félag hjartasjúklinga heldur aðal-
fund sinn að Bjargi, laugardaginn
10. júní nk. og hefst hann með
göngu þaðan kl. 10. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf. Gestir
fundarins verða Sigurður Helga-
son, formaður landssamtakanna,
og Árni Kristinsson, hjartalæknir
á Landspítalanum, sem mun flytja
erindi um kransæðaþrengingar, út-
víkkanir og nýjustu aðferðir við
fræsingar o.fl. Nýir félagar eru
boðnir velkomnir. Boðið verður
upp á veitingar.
Arleg kvennareið
á morgun
Annað kvöld, laugardagskvöld,
verður efnt til árlegrar kvenna-
reiðar kvenna í hestamannafélag-
inu Létti. Farið verður af stað kl.
19.00 annað kvöld. Þátttökugjald
er kr. 1500.
SS Sól í Ýdölum
Hljómsveitin SS Sól spilar á dans-
leik í Ýdölum í Aðaldal í kvöld, 9.
júní. Aðrir dansleikir sveitarinnar
á Norðurlandi í sumar verða sem
hér segir: 16. júní Miðgarður í
Skagafírði, 7. júlí Ýdalir í Aðal-
dal, 14. júlí Sjallinn á Akureyri og
15. júlí Miðgarður í Skagafirði.
Salsa Picante á
sjómannadansleik
á Hótel KEA
Ný hljómsveit, Salsa Picante, spil-
ar á sjómannadansleik á Hótel
KEA annað kvöld, Iaugardags-
kvöld. Hljómsveitin byggir efnis-
skrá sína aðallega á danstónlist
fyrir flesta aldurshópa, með sterk-
um áhrifum frá Suður-Ameríku.
Innanborðs í hljómsveitinni er
einvalalið sem starfað hefur í vin-
sælum hljómsveitum landsins á
undanförnum misserum. Tveir
meðlimir „Milljónamæringanna"
hafa sagt skilið við þá sveit og
Suzuki Boleno
Mjög gott verð
BSA Laufsdsgötn 9, Akureyri, sími 462 6300
„í kaupstað verður farið
og kýrnar leystar út...“
Starfsmenn Leikfélags Akureyr-
ar hyggjast kveðja leikárið sem
nú er að ljúka og áhorfendur
sína með fjölbreyttri skemmtun í
Samkomuhúsinu sunnudaginn
11. júní nk. kl. 17. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
„í kaupstað verður farið og
kýrnar leystar út...“ er yfirskrift
dagskrárinnar. Fyrri hluta henn-
ar hefur Þráinn Karlsson leikari
tekið saman úr ljóðum og sögu-
köflum þar sem sumarkomunni
er kveðinn óður, eða „sitthvað
um þá árstíð sem við köllum
vor.“ Flytjendur ásamt Þráni eru
leikarnir Rósa Guðný Þórsdóttir,
Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg og Viðar Eggerts-
son, Ieikhússtjóri LA. Karl O.
Olgeirsson er við píanóið.
Eftir hlé kemur fram í fyrsta
sinn Leikhússkór LA, en hann
var stofnaður fyrr á þessu ári og
er stjórnandi hans Roar Kvam.
Kórinn skipar hátt í tvo tugi
söngvara sem hafa æft stíft að
undanförnu. Þeir flytja syrpu úr
frægum Broadway-söngleikjum:
My Fair Lady, Cats, Annie, Ev-
ita, Oklahoma og Sound of Mus-
ic o.fl. en sungið er úr 20 söng-
leikjum. Inn í lögin er ofin saga
og uppbygging söngleikjanna í
stuttu máli annast Aðalsteinn
Bergdal, leikari, kynningar.
Þriggja manna hljómsveit leikur
undir.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
(Úr fréttatilkynningu)
Sýning á verkum Hauks
Stefánssonar í Listasafninu
Nú stendur yfir sýning í Lista-
safninu á Ákureyri á verkum
Ingvars Hauks Stefánssonar,
sem á merkan þátt í myndlistar-
sögu Akureyrar, bæði sem ein-
hver fremsti listmálari bæjarins
og einnig sem leiðbeinandi fjöl-
margra listmálara okkar og má
þar nefna Aðalstein Vestmann,
Gunnar Dúa, Elísabetu Geir-
mundsdóttur og Kristinn G. Jó-
hannsson.
Sýning á verkum Ingvars
Hauks var opnuð 3. júní s.I. að
viðstöddu fjölmenni. Haraldur
Ingi Haraldsson, forstöðumaður
Listasafnsins, bauð gesti vel-
komna og þá einkum Ástu Jós-
efsdóttur, ekkju Hauks. Haraldur
fór nokkrum orðum um lista-
manninn og viðfangsefni hans.
Haraldur Sigurðsson rakti í
stuttu máli helstu æviatriði
Hauks, bæði í námi og störfum
hans vestanhafs og hér heima.
Hann afhenti síðan fjölskyldu
Hauks málverkabók um Hauk
sem hann skráði. Haraldur Ingi
sá um val mynda, en Haraldur
Bessason sá um enska þýðingu
bókarinnar. Þeir Haraldar þrír
sem stóðu að bókinni afhentu
síðan Ástu blómvönd. Sonur
Hauks, Snorri Hauksson, arki-
tekt í Reykjavík, þakkaði öllum
er unnu að uppsetningu sýning-
arinnar og þeim sem lánuðu
myndir. Sérstaklega þakkaði
hann þeim þremenningum fyrir
málverkabókina um föður sinn.
Að lokum tilkynnti hann að fjöl-
skyldan gæfi Listasafninu í
þakkarskyni mynd nr. 13 á sýn-
ingunni, sem ber nafnið sagna-
ritarinn.
Sýningin á verkum Ingvars
Hauks í Listasafninu á Akureyri
stendur til 25. júní nk.
gengið til liðs við Salsa Picante,
þeir Sigurður Perez Jónsson, sax-
ófónleikari, og Jón Björgvinsson,
slagverksleikari, sem mun sjá um
trommuleikinn í hinni nýju hljóm-
sveit. Úr „Þjóðleikhúskjallara-
bandinu" koma þeir Agnar Már
Magnússon píanóleikari og Sig-
urður Flosason saxófónleikari sem
sjá mun um slagverk, en sax-
ófónninn verður þó ekki langt
undan. Þórður Högnason bassa-
leikari sem gert hefur garðinn
frægan með Borgardætrum að
undanförnu og Berglind Björk,
þriðjungur Borgardætra, mun sjá
um sönginn. Þá mun Eyþór Gunn-
arsson úr Mezzoforte spila á slag-
verk.
Miðaldamenn og
Milljónamæringarnir
í Sjallanum
Að vanda verður mikið um að
vera í Sjallanum á Akureyri um
helgina. í kvöld, föstudagskvöld,
verða hinir eldhressu Miðalda-
menn frá Siglufirði á sviði Sjall-
ans ásamt spéfuglunum Fílapensl-
um frá Siglufirði. Annað kvöld,
laugardagskvöld, sjá síðan Millj-
ónamæringamir og Páll Óskar um
fjörið í Sjallanum.
Höldur sýnir
Hummer jeppann
Höldur á Akureyri verður með
glæsilega bílasýningu um helgina.
Meðal annars verður sýndur
Hummer jeppinn, sem verða mikil
tíðindi í heimi jeppanna. Björgun-
arsveitarmenn og fjallafarar eru
sérstaklega boðnir velkomnir á
sýninguna, sem verður opin á
morgun, laugardag, kl. 11-17 og á
sunnudag kl. 13-18.
Stórholt sýnir Toyota
Á bílasölunni Stórholti á Akureyri
verða sýndar um helgina nýjustu
tegundirnar frá Toyota. Meðal
annars verður sýndur nýi 5 dyra
RAV4 jeppinn. Einnig Pick-up
bíll og Toyota Landcmiser Turbo
Diesel, svo eitthvað sé nefnt.
Bruce Willis
í Borgarbíói
Eins og fram kemur annars staðar
í blaðinu mun Borgarbíó á Akur-
eyri forsýna Die Hard with a
Vengeance með Bruce Willis í að-
alhlutverki annað kvöld, laugar-
dagskvöld, kl. 23 og á sunnudag
kl. 21 og 23. Einnig sýnir Borgar-
bíó um helgina stórmyndina Nell,
þar sem Jodie Foster fer á kostum,
en hún var tilnefnd til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í myndinni.
Nell verður sýnd kl. 21 um helg-
ina. Sakamálamyndin The Last
Seduction verður sýnd í Borgar-
bíói í kvöld kl. 21 og 23, annað
kvöld kl. 21 og á sunnudagskvöld
kl. 23. Þá skal síðast en ekki síst
nefnd myndin Outbreak með
Dustin Hoffmann, Rene Russo og
Morgan Freeman, sem verður
sýnd í kvöld og annað kvöld kl.
23. Á sunnudag, sjómannadag,
verða kl. 15 sýndar barnamyndirn-
ar Lassie og Tommi og Jenni. í
tilefni dagsins verður ókeypis að-
gangur að sýningunum.