Dagur - 23.06.1995, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 23. júní 1995
LEIÐARI
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
UÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
Þrír ferðaþjónustuaðilar í Suður-Þingeyjar-
sýslu hafa gert samning við svissnesku ferða-
skrifstofuna Saga Reisen um vetrarferðir frá
Sviss til fslands á tímabilinu 20. febrúar fram
í apríl á næsta ári. Um er að ræða ævintýra-
ferðir á jeppum eða vélsleðum að Dettifossi, á
Þeístareyki, kennslu á vélsleða, þátttöku í ís-
lenskum þorrablótum o.fl.
hafa aðilar í ferðaþjónustu verið að einbeita
sér að í mörg ár. Hægt hefur miðað í rétta átt,
en hvert eitt skref sem stigið er, eins og þessi
samningur við Saga Reisen, er mikílvægur lið-
ur í að styrkja ferðaþjónustuna sem atvinnu-
grein.
Það er auðvitað svo að hinn harði íslenski
vetur heillar ekkert siður en íslensk náttúra
yfir sumarmánuðina, en til þessa hefur lítið
Einn ferðaþjónustuaðilanna, Rúnar Óskars-
son, sem er með hópferðabíla, segir um þenn-
an samning í Degi sl. miðvikudag: „Þetta hef-
ur lítið verið gert hérna en við höfum þó farið
með hópa og það er vaxandi eftirspurn eftir
vetrarsporti. Þetta er ekki ný hugmynd hjá
mér, ég hef skoðað landið hér í kring í mörg
ár og hugsa mikið um þetta. Nú fyrst ætlum
við að framkvæma. “
Þessi samningur við svissnesku ferðaskrif-
stofuna, sem hefur um nokkurra ára skeið
selt ferðir til íslands, m.a. í beinu flugi til Ak-
ureyrar, er ánægjuleg viðbót við ferðaflóruna
á Norðurlandi. Það er vissulega afar mikil-
vægt að lengja ferðamannatímann og það
verið farið inn á þennan markaö. Um þetta
segir Jean Marc Mange frá Saga Reisen í
Degi sl. miðvikudag: „íslendingar hafa í raun-
inni aldrei reynt að selja vetrarferðir, en þeir
þurfa bara að trúa að það sé
skipuleggja sölumálin vel og þá munu
sjá að þeir geta selt ferðir til íslands allan árs-
ins hring."
Þessi orð svissneska ferðaskrífstofumanns-
ins eru allrar athygli verð og það verður gam-
an að sjá hvernig til tekst með þá 40-70 er-
lendu ferðamenn sem von er á til að skoða
þingeyskar náttúruperlur í vetrarklæðum
næsta vetur.
Þórshamar, hús minjasafnsins var byggt um 1930 á Húsavík, en flutt síðast-
iiðið haust á Mánárbakka.
Það kcnnir ýmissa grasa á minjasafninu. Á myndinni má m.a. sjá gamlar myndir af þekktum mönnum, fjölda penna
og gleraugna og ekta Remington ritvél. Myndir: im
Minjasafh á Tjöraesi
Um helgina var opnað minja-
safn á Mánárbakka á Tjörnesi.
Safnið er til húsa í Þórshamri,
gömlu húsi sem flutt var frá
Húsavík síðastliðið haust.
Að safninu standa Aöalgeir
Egilsson og Elísabet A. Bjama-
dóttir, en þan hafa lengið safnað
gömlum munum og haldið til
haga. A safninu má sjá allt milli
himins og jarðar, frá gömlu leirtaui
til sörvisperlu frá landnámstíð,
uppbúin rúnt með damaskverum,
gömul póstkort og margt fleira. Að
sögn eins opnunargesta var „alveg
dásamlegt að koma þama inn.
Þetta var cins og að stíga hálfa öld
aftur í tímann, inn á íslenskt hcim-
ili, þar sem voru gamlir munir í
bland við nýrri.“ Safnið verður op-
ið daglega í sumar frá kl. 10-18,
og eftir samkomulagi. shv
Elísabet og Aðalgcir, eigcndur safnsins.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn:
íslensk bókaskrá 1992
Uppbúið rúm, kanna og þvottaskál og Kristur sem horfir til himins.
Nýkomin er út Islensk bókaskrá
fyrir árið 1992, sem er skrá um
alla bókaútgáfu þess árs. Skráin
er nú í fyrsta sinn gefin út af
hinu nýja sameinaða safni,
Landsbókasafni Islands - Há-
skólabókasafni. Breyting hefur
orðið á vinnsluhætti skráarinn-
ar, en hún er nú unnin í hinu
nýja tölvukerfi, Gegni. Islensk
bókaskrá fyrir 1993 kemur út
eftir fáeinar vikur og skráin fyr-
ir 1994 í ágúst. Vonast er til að
íslensk bókaskrá fyrir 1995
birtist síðan snenuna á árinu
1996.
íslensk bókaskrá 1992 er rúm-
legá 220 blaðsíður. að lengd. Alls
komu út á árinu 1992 1695 rit, eða
1093 bækur (49 blaósíður aó
stærð og þar yfir) og 602 bækling-
ar (5-48 blaðsíður). Frumútgáfur
eru 1250 alls. Barnabækur eru 243
að tölu og kennslubækur 319. Um
455 rit voru þýdd á íslensku úr
öðrum tungumálum, aðallega
ensku, eða 263 rit, en 54 úr
snæsku, 39 úr dönsku og 30 úr
norsku. Um 28 rit voru þýdd úr ís-
lensku á önnur tungumál, þegar
miðað er við rit er tengjast ís-
lenskum bókaútgefendum og/eöa
prentsmiðjum á Islandi. Einnig er
í Islenskri bókaskrá skrá um blöð
og tímarit sem hófu útkomu hér á
landi árið 1992, svo og skrá um
landakort.
Islenskri bókaskrá fylgir enn-
fremur íslensk hljóðritaskrá 1992,
rúmlega 50 blaósíður, þar sem
skráð er með nákvæmum hætti allt
efni gefió út á hljómplötum,
geisladiskum og snældum. Fjöldi
slíkra útgáfna var 139 á árinu
1992, miðað við 130 á árinu 1991.
Ritstjóri ofangreindra skráa er
Hildur G. Eyþórsdóttir.
Skrárnar eru nt.a. til sölu í af-
greiðslu safnsins í Þjóðarbók-
hlöðu, auk þess sem þar eru fáan-
leg önnur útgáfurit safnsins og
eldri árgangar Islenskrar bóka-
skrár, þar á meðal samsteýpu-
skrár, sem ná yfir fimm ár hver.
Ritin er einnig hægt að panta í
safninu, bréflega eóa símleiðís.