Dagur - 23.06.1995, Blaðsíða 15

Dagur - 23.06.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Föstudagur 23. júní 1995 - DAGUR - 15 SÆVAR HREItJARSSON IA langefst Skagamenn eru enn með fullt hús stiga í 1. deild eftir örugg- an sigur á KR í gærkvöldi, 2:0. Haraldur Ingólfsson skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu og Ólafur Þórðarsson bætti öðru marki við. ÍBV vann stórsigur á FH í Eyjum, 6:3, þar sem Rútur Snorrasson skoraði tvö mörk úr vítum, Leifur Geir Haf- steinsson gerði einnig tvö og þeir Sumarliði Árnason og Tryggvi Guðmundsson eitt hver fyrir ÍBV. Auðunn Helga- son, Óiafur Stephensen og Öl- afur Kristjánsson skoruðu fyrir FH. í Grindavík gerðu heima- menn jafntefli við Fram, 2:2. Grétar Einarsson og Tómas Ingi Tómasson skoruðu fyrir Grindavík en Þorbjörn Atli Sveinsson og Ríkarður Daða- son jöfnuðu síðla leiks fyrir Fram. Á toppnum Stjarnan er enn á toppi 2. deildar eftir að hafa gert 1:1 jafntefli á útivelli gegn Fylki í gærkvöldi. Rúnar Sigmunds- son skoraði fyrir Stjörnuna en Ingvar Óiafsson jafnaði fyrir Fylki og var fyrstur til að skora hjá Bjama Sigurðssyni í deild- inni í sumar. Stjarnan er með 13 stig á toppnum en næst kemur Fylkir með 10 stig. Víð- ir vann Víking, 1:0, með marki Ólafs ívars Jónssonar. Stórsigur KS KS og SM mættust f c-riðli 4. deildar í gærkvöldi. KS sigraði örugglega, 6:0, og er efst í riðl- inum. Hafþór Kolbeinsson og Steingrímur Örn Eiðsson skor- uðu tvö mörk hvor og þeir Ha- seta „Mitsa“ Miralem og Ragnar Hauksson eitt mark hvor. Þórir meiddur Þórir Áskelsson leikur ekki með Þórsurum gegn ÍR í kvöld vegna meiðsla. Þórir tognaði illa á ökkla í leiknum gegn Leikni sl. mánudag. Ince seldur Paul Ince skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Int- ernazionale á Ítalíu, sem þarf að borga Manchester Únited 7 milljónir punda fyrir kappann. Urslit 1. deild karla: Valur-Leiftur 1:2 IA-KR 2:0 ÍBV-FH 6:3 Grindavík-Fram 2:2 Breiðablik-Keflavík 1:1 Staðan: IA 5 5 0010: 1 15 KR 5302 7: 6 9 Keflavík 5221 4: 3 8 ÍBV 521216: 8 7 Breiðablik 5212 6: 7 7 Leiftur 5203 9: 8 6 FH 5203 9:12 6 Fram 5122 4: 9 5 Grindavík 5113 7:10 4 Valur 5 113 6:14 4 2. deild karla: Fylkir-Stjarnan 1:1 Víðir-Víkingur 1:0 • • Knattspyrna -1. deild karla: Oruggur sigur Leifturs - Valsmenn heillum horfnir á eigin heimavelli Leiftur vann öruggan sigur á Val á Hlíðarenda í gærkvöldi. Lokastaðan var 2:1 fyrir gestina eftir að staðan í hálfleik var 1:0 en yfírburðir Leifturs voru mun meiri en tölurnar gefa til kynna. Leiftursmenn unnu þarna öðru sinni á íslandsmótinu í sumar og hafa nú sótt öll sex stig sín í deildinni til Reykjavíkur en liðið vann Fram í fyrstu umferðinni. Leiftursmenn byrjuðu strax af miklum krafti og voru komnir yfir eftir aðeins 5. mínútna leik. Þá skoraði Baldur Bragason, fyrrum Valsmaður, með því að vippa lag- lega yfir Lárus Sigurðsson í marki Vals og í hornið eftir að hafa tekið við fyrirgjöf frá Sigurbirni Jak- obssyni. Valsmenn fengu gott færi til að jafna skömmu síðar en Kristinn Lárusson skaut yfir af markteig. Eftir það voru það Leiftursmenn sem áttu leikinn og Valsmenn sköpuðu litla sem enga hættu við mark gestanna. Minnstu munaði að Gunnar Már Másson næði að pota í netið um miðjan hálfleikinn og stuttu áður en flautað var til leikhlés slapp Pétur Björn Jónsson einn í gegn en skot hans sleikti stöngina og fór hárfínt framhjá. Páll Guðmundsson var nálægt því að bæta öðru marki við beint úr aukaspyrnu af um 30 metra færi á 61. mínútu þegar að hörku- skot hans fór undir Lárus mark- vörð Vals, í stöngina og skoppaði eftir marklínunni. Páll var síðan maðurinn á bak við seinna mark Leifturs sex mínútum síðar. Hann vann boltann laglega og renndi út í teiginn þar sem Ragnar Gíslason skoraði með öruggu skoti í fjær- hornið. Enn sóttu Leiftursmenn og á 75. mínútu átti Sigurbjörn Jakobs- son skot sem sleikti slánna en mörk gestanna urðu ekki fleiri. í staðinn gáfu þeir aðeins eftir og það nýttu Valsmenn sér. Á 84. mínútu minnkaði Davíð Garðar- son muninn með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Sigurbirni Hreið- arssyni og lokastaðan var sem áð- ur segir 2:1 fyrir Leiftur. Vörnin var aðall Leiftursliðs- ins, var sterk og byrjaði sóknir liðsins með góðu spili. Gunnar Oddsson var sem kóngur aftast á miðjunni og átti skínandi leik og sömu sögu er að segja af Páli Guðmundssyni sem vann vel fyrir liðið. Vendipunktur varð í leik Vals á 19. mínútu þegar að Hilmar Sighvatsson fór meiddur útaf og Davíð Garðarson kom inná. Leik- ur liðsins hrundi og samspil liðsins var lítið sem ekkert. Sigur Leifturs var í raun aldrei í hættu og mikilvæg stigíhöfn. TH/SH Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson - Júlíus Tryggvason, Slobodan Milisic, Nebosja Corovic - Sig- urbjörn Jakobsson, Gunnar f Oddsson, Ragnar Gíslason, / Sverrir Sverrisson, Páll Guð- mundsson, Baldur Bragason (Pétur Björn Jónsson 33), Gunnar Már Másson (Jón Þór Andrésson 78). Gunnar Odds- son var í aöal- hlutverki hjá Leiftri gegn Val í gærkvöldi og stjórnaöi leik liösins sem herforingi á miöjunni. Aldursflokkamót Islands í sundi: Iðandi æskufjor - í Sundlaug Akureyrar næstu þrjá daga í dag hefst Aldursflokkamót Is- lands í sundi í Sundlaug Akur- eyrar í umsjón sundfélagsins Oðins. Þetta verður langljöl- mennasta sundmót sem haldið hefur verið á Akureyri og stærsta sundmót á íslandi þetta árið. Keppinni lýkur síðla sunnudags og verður Sundlaug Akureyrar lokuð almenningi alla mótsdagana. Allt efnilegasta sundfólk lands- ins, 17 ára og yngri, tekur þátt í Aldursflokkamótinu og verður keppt í öllum flokkum og grein- um. Keppendur verða alls um 360 talsins, hvarvetna að af landinu og auk þeirra kemur til mótsins mik- ill fjöldi þjálfara, fararstjóra og foreldra. Mikið starf liggur að baki skipulagningu mótsins og allra leiða verður leitað til þess að það geti gengið hnökralaust fyrir sig. Þar sem Sundlaug Akureyrar hefur enn sem komið er aðeins fram að bjóða eina keppnishæfa laug verður dagskráin mjög þétt- setin og keppt frá því eldsnemma á morgnana og fram á kvöld alla dagana. Það er því óhjákvæmilegt að Sundlaug Akureyrar verði lok- uð almenningi á meðan á mótinu stendur. Sundfólki er hins vegar bent á að Glerárlaug, Þelamerkur- laug, Hrafnagilslaug, Stóru- Tjarnalaug og Dalvíkurlaug eru opnar almenningi. Sundlaugargarðurinn verður opinn keppnisdagana og tilvalið fyrir áhugamenn og aðra að flykkjast þangað og fylgjast með sundhetjum framtíðarinnar og hvetja þær til dáða. Þarna verður hörkukeppni, mikill buslugangur og iðandi æskufjör. Stórmót sem þetta er mikil lyftistöng fyrir sundíþróttina á Ákureyri og raunar á Norðurlandi öllu. Nú, þegar bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að ráðast í gerð nýrrar 25 metra langrar sund- laugar í Sundlaugargarðinum á næsta ári með möguleikum á að hún verði lengd í 50 metra síðar, aukast til muna möguleikar á því á næstu árum að halda stórmót í sundi norðanlands. Sú fram- kvæmd mun einnig efla hvort tveggja sundæfingar og keppni og almenningssund, en þrengsli í Sundlaug Akureyrar á álagstímum hafa verið mikil og til óþæginda fyrir alla. Iþróttir KNATTSPYRNA: Föstudagur: Mjólkurbikark. kvenna: ÍBA-Tindastóll kl. 20.00 Dalvík/Leiftur-KR kl. 20.00 2. deild karla: Þór-ÍR kl. 20.00 Þróttur R.-KA kl. 20.00 3. deild karla: Dalvík-Selfoss kl. 20.00 Höttur-Völsungur kl. 20.00 4. deild karla: Tindastóll-Hvöt kl. 20.00 Laugardagur: 4. deild karla: Neisti-Magni kl. 14.00 Sunnudagur: 1. deild karla: Leiftur-ÍBV kl. 20.00 SUND; Aldursflokkamót íslands Sundlaug Akureyrar Fös., lau. og sunnudag. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR: Meistaramót Islands Laugardalsvöllur Laugardag og sunnudag Handknattleikur: Patrekur áfram í KA Það veröur hörkukeppni, mikill buslugangur og iöandi æskufjör í Sundlaug Akureyrar næstu daga og tilvaliö fvrir fólk að mæta í sundlaugargaröinn og hvetja sundhetjur framtíöarinnar til glæsilegs árangurs. Nú er orðið ljóst að handknatt- leiksmaðurinn snjalli, Patrekur Jóhannesson, verður áfram í herbúðum KA næsta vetur en Frjálsar íþróttir: Meistaramót íslands um helgina - búist við heljarkeppni í spretthlaupum Meistaramót íslands í frjáls- íþróttum fer fram á Laugardals- velli á morgun og á sunnudag. Þar keppa flestir af bestu frjáls- íþróttamönnum og konum landsins og er stórmót í uppsigl- ingu. Ber þar fyrstan að nefna hinn nýbakaða Islandsmethafa í 110 m grindahlaupi og frábæra tugþrautamann, Jón Arnar Magnússon. En Norðlendingar eiga fleiri fulltrúa sem líklegir eru til afreka og þær Sunna Gestsdóttir, USAH, og Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE, blanda sér eflaust í baráttuna um verð- launasætin. Uppgangur í frjálsum íþróttum er mikill og er hópur góðs frjáls- íþróttafólks stór og sennilega sterkari en nokkru sinni fyrr. Bú- ast menn við að mikil spenna verði í spretthlaupum karla og kvenna. Sérstaklega athyglisvert er 200 metra hlaup kvenna, þar sem Sunna Gestsdóttir mætir ís- landsmethafanum Guðrúnu Arnar- dóttur. Met Guðrúnar er 24,18 sekúndur en besti árangur Sunnu í sumar er 24,24 sekúndur og virð- ist hún bæta sig á hverju móti. Þá má einnig reikna með að 8 kepp- endur hlaupi undir 11 sekúndum í 100 metra hlaupi karla. Stiga- keppni verður milli félaga um tit- ilinn íslandsmeistari félagsliða í frjálsum íþróttum. Mótið er í umsjá Ungmenna- sambands Borgarfjarðar og hefst kl. 13.30 báða dagana. þó nokkur óvissa hefur verið um það hvar hann myndi leika. Pat- rekur var á Akureyri í gær og skrifaði undir eins árs samning við KA-menn. „Mér líst vel á þetta. Það gekk vel hjá KA síðasta vetur og það var gaman að vera hérna og því tók ég þá ákvörðun að vera um kyrrt,“ sagði Patrekur í samtali við Dag. Mikið hefur verið skrifað um það í fjölmiðlum að undanförnu hvar Patrekur myndi leika og val- ið stóð á milli KA og hans gamla félags, Stjörnunnar. „Svona smá læti á vorin hafa alltaf átt við mig. Þetta er þó allt í góðu og engin læti,“ sagði Patrekur. Bikarmeistarar KA hafa misst Valdimar Grímsson, Þorvald Þor- valdsson og Val Arnarson til ann- arra félaga og í staðinn er kominn Kúbverjinn Julian Duranona og var Patrekur vongóður um að þeir ættu góða samvinnu í vetur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.