Dagur - 23.06.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 23.06.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 23. júní 1995 HVAÐ ER A£> ÖERAST UM HELOINA Gleðigjafarnir á Hótel KEA Hljómsveitin Gleðigjafamir ásamt Hildi Þórhalls og André Back- mann leikur fyrir dansi á Hótel KEA annað kvöld, laugardags- kvöld. Stjórnin í Sjallanum Hljómsveitin Stjórnin leikur fyrir dansi í Sjallanum á Akureyri í kvöld, föstudagskvöld. Annað kvöld verður karlakvöld í Sjallan- um. Hljómsveitin Reggie on ice leikur fyrir dansi. Verð á skemmtun og dansleik er kr. 1790 og 1000 kr. ef einungis er farið á dansleikinn kl. 24. Veiðidagur fjölskyldunnar Veiðifélag Mýrarkvíslar og Langavatns býður fjölskyldufólki til ókeypis veiða í Langavatni og Kringluvatni í Laxárdal á veiði- degi fjölskyldunnar nk. sunnudag. Bæjakeppni Funa Hin árlega bæjakeppni Hesta- mannafélagsins Funa verður hald- in á Meigerðismelum nk. sunnu- dag kl. 13. Keppt verður í 5 flokk- um; barnaflokki, unglingaflokki, kvennaflokki, karlaflokki og auk þess í opnum flokki, sem öllum er heimil þátttaka í. Skráning fer fram hjá formönnum deilda og lýkur henn í kvöld, föstudags- kvöld. Jónsmessuferð Ferðafélags Akureyrar í kvöld er fyrirhuguð Jónsmessu- ferð sem verið hefur fastur liður í starfi félagsins um árabil. Brottför verður frá skrifstofu félagsins kl. 19 og stefnan tekin á Vaglaskóg. Þar verða grillaðar pylsur, varð- eldur tendraður og reynt að gera fólki eitthvað til upplyftingar. Á heimleiðinni verður væntanlega hugað að miðnætursólinni. Á morgun, laugardag, verður gönguferð á Strýtu. Gert er ráð fyrir að fólk komi á einkabílum upp að Skíðahóteli og safnist sam- an í gönguna og sé mæting þar kl. 9. N.k. sunnudag, 25. júní, gefst fólki kostur á skoðunarferð út í Hrísey, Brottför frá skrifstofu fé- lagsins kl. 8.30 og þaðan ekið út á Litla-Árskógssand að ná fyrstu ferju út í eyjuna. Þar verður fyrir heimamaður til leiðsagnar og und- ir handleiðslu hans verður eyjan skoðuð. Ætlunin er að fara norður í Ystabæ og fá að líta á skógrækt og æðarvarp Sæmundar Stefáns- sonar. Á heimleiðinni verður kaffi til reiðu í veitingahúsinu Brekku fyrir göngufólkið. Skrifstofa félagsins, Strandgötu 23, verður opin í dag kl. 16-19. Þar eru veittar upplýsingar um ferðirnar og tekið við skráningu þátttakenda í síma 4622720. Die Hard og Muriel’s Wedding í Borgarbíói Borgarbíó á Akureyri sýnir um helgina kl. 21 og 23 hina stór- brotnu mynd Die Hard með Bruce WiIIis í aðalhlutverki. Einnig sýn- ir Borgarbíói hina frábæru ástr- ölsku mynd Muriel’s Wedding, sem hefur hlotið gífurlega aðsókn víða á Vesturlöndum. Þriðja mynd helgarinnar er Fall Time, sem verður sýnd kl. 23. Á sunnudag verður ókeypis á barnasýningar á fjölskyldumyndinni Týndur í óbyggðum og Tomma og Jenna. Norskur karlakór í Glerárkirkju Álesunds Mandssangforening er nafn á norskum kór sem mun halda tónleika í Glerárirkju á Ak- ureyri nk. sunnudagskvöld kl. 20.30. í hléi syngur Karlakór Ak- ureyrar-Geysir nokkur lög og síð- an syngja kórarnir sameiginlega nokkur lög, bæði íslensk og norsk. Síðasta helgi sýningar á verkum Hauks Stefánssonar Nú fer hver að verða síðastur að sjá hina sérstæðu málverkasýn- ingu sem er í Listasafninu á Akur- eyri á verkum Hauks Stefánsson- ar. Henni lýkur nk. sunnudag, 25. júní. Aðsókn hefur verið með ágætum og á annað þúsund manns séð sýninguna nú þegar. Sérstök listaverkabók var gefin út um Hauk Stefánsson, hún er einungis til sölu í Listasafninu á sérstöku kynningarverði út sýningartím- ann. Listasafnið á Akureyri er opið kl. 14-18 alla daga nema mánu- daga. Söngfélag Porlákshafnar í Glerárkirkju Söngfélag Þorlákshafnar heldur tónleika í Glerárkirkju á Akureyri á morgun, Iaugardag, kl. 17.15. í Söngfélaginu eru 30 söng- menn. Stjórnandi er Robert Darl- ing. Á tónleikunum verða flutt hefðbundin kórlög. Jóhanna Hjart- ardóttir syngur einsöng, kvartett tekur lagið og stjórnandinn spilar á franskt horn. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir boðnir vel- komnir. Sálin í Ýdölum Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns spilar fyrir dansi í Ýdölum í Aðal- dal annað kvöld, laugardagskvöld. Sætaferðir verða með Sérleyfisbíl- um Akureyrar frá Umferðarmið- stöðinni. Þess má geta að nk. mánudag kemur í verslanir nýr diskur með hljómsveitinni sem nefnist „Sól um nótt“. Hundasýning á Akureyri Næstkomandi sunnudag, 25. júní, stendur Hundaræktarfélag íslands og Svæðafélag HRFÍ á Akureyri fyrir hundasýningu í íþróttahöll- inni á Akureyri. Sýningin hefst kl. 11 og úrslit eru áætluð kl. 16.30. Sýndir verða um 160 hundar af 30 mismunandi tegundum. Dómarar sýningarinnar eru þau Moa Pers- son og Anders Cederström frá Svíþjóð. Miðaverð er kr. 600 fyrir fulll- orðna, frítt er fyrir börn 12 ára og yngri auk þess sem frítt er inn fyr- ir el I i 1 ffeyri sþega. Fjölskyldudagur í Minjasafninu Næstkomandi sunnudag, 25. júní, stendur Minjasafnið á Akureyri fyrir fjölskyldudegi í Minjasafn- inu kl. 13-17. Boðið verður upp á tvenns konar ratleiki. Annars veg- ar ratleik um Minjasafnið þar sem fjölskyldan verður að vinna saman að því að leysa gátur og spurning- ar sem leiða hana í gegnum sýn- ingar safnsins. Hins vegar ratleik sem hefst við Laxdalshús eftir kl. 13.30 en þar verður vísbending sem á að leiða þátttakendur á safnaslóðir í Innbænum og Fjör- unni. Viðurkenningar verða veitt- dJlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!^ tliíi»%A Gróðar- stöSin I í Kjarna ( sími 462 4047 fax 461 1247 ♦ Trjáplöntur ♦ Skraut runnar ♦ Skógarplöntur ♦ Rósir ♦ Áburður ♦ Fræ 1 ♦ Plöntulyf ♦ Áhöld Ótrúlega fjölbreytt úrval! | Opið frá kl. 8-20 virka daga og 10-1 7 um helgar .^iiiminiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!"iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiir. %* %* %^ %A V* %^ V* v^ %* %^ %* %A t/ %^ %* %* %* t/ V* V* V* %^ %* %* V* V* V* %* V* %* %* %* V* %^ %* V* V* %* %* Hótel KEA Laugardagskvöldið 24. júní HLJómsvcuin ásamt Hildi Þórhalls og Andra Backmann 4= Súlnaberg opið til kl. 22.00 sími 462 2200 %* v* %* v* V* %* V* %* %^ %* t/ %* %* v* %* v* v* %^ %* %<“ V* %/* tÁ %* v* •Á V* V* V* %* %* V* %^“ V* %^“ v«“ tÁ %^ ar fyrir þátttöku og þá fá þátttak- endur í ratleiknum einnig frítt í Minjasafnið og önnur söfn sem það kann að verða leitt í. í Minjasafninu er nú síðasta sýningarhelgi á verðlaunagripum Handverks-reynsluverkefnis. Sýn- ingin hefur vakið mikla athygli þar sem hún hefur verið sýnd og ættu allir að finna eitthvað sem höfðar til þeirra. Laxdalshús verður opið á sunnudaginn og verður það opið alla sunnudaga kl. 13-17. Ljós- myndasýningin „Akureyri - svip- myndir úr sögu bæjarins" er þar til sýnis en hún sýnir þróun byggðar á Akureyri. Einnig er boðið upp á sýningu á myndbandinu „Gamla Ákureyri“. Fyrsta gönguferð sumarsins verður farin frá Laxdalshúsi kl. 13 á sunnudag. Gengið verður um gömlu kaupstaðarlóðina, inn eftir Fjörunni og endað við Minjasafn- ið. Þátttaka er fólki að kostnaðar- lausu. Minjasafnið er opið alla daga kl. 11-17 og er aðgangseyrir 250 krónur en frítt fyrir börn að 16 ára aldri og eldri borgara. Eins og áð- ur hefur komið fram fá þátttak- endur í ratleikjum fjölskyldudags frítt inn á sunnudag. Landsmót í Ieirdúfuskotfimi Landsmót í leirdúfuskotfimi verð- ur haldið á morgun, laugardag, á félagssvæði Skotfélags Akureyrar, og hefst það kl. 9 í fyrramálið. Skotmenn allsstaðar að af landinu, sem næst 30, mæta galvaskir til leiks. Keppt verður í flokki ein- staklinga, liða og flokka. Gilitrutt opnuð í Grófargili Á morgun, laugardag, kl. 13 verð- ur opnuð í Grófargili á Akureyri ný verslun, sem ber nafnið Gili- trutt. Að versluninni standa Prjónastofa Sigríðar í Ólafsfirði, HÁB saumastofa á Árskógs- strönd, Bára Höskuldsdóttir á Ár- skógssandi og Hagar hendur í Eyjafjarðarsveit. Boðið verður upp á Fleecefatnað, prjónafatnað, saumaðar, heklaðar og þrykktar vörur, myndir og kort úr endur- unnum pappír, silfurskartgripi, pastelmyndir, vatnslitamyndir o.fl. Verslunin verður opin daglega alla daga kl. 10-18. Gilitrutt er til húsa í Kaup- vangsstræti 23 þar sem auglýs- ingastofan Ari & Co var áður til húsa. Húsnæðið er nú í eigu Vign- is Þormóðssonar og Þormóðar Einarssonar. Bílasýning hjá Höldi Á morgun, laugardag, kl. 14-17 verður sýning á bílum frá Heklu hf., Volkswagen, Audi, Mitsubishi og KIA ásamt Scania vörubíl hjá Höldi hf. á Akureyri. Jónsmessuhátíð á Dalvík og í Ólafsfirði I dag, föstudaginn 23. júní, munu hinir ýmsu flytjendur koma frá Egilsstöðum og skemmta á Jóns- messudansleik í Sæluhúsinu á Dalvík og á morgun, laugardag, á Grillbarnum í Olafsfirði. Mikið mun verða um dýrðir enda eru áð- urnefndir aðilar þekktir fyrir stuð, stemmningu og lífsgleði í heima- héraði sínu. Þessi hópur manna hefur starfað saman í u.þ.b. 6 ár en hefur aldrei náð að koma sinni skemmtidagskrá út fyrir fjórðung- inn. Hópurinn hefur tekið að sér skemmtanahald á Austurlandi þegar færi hefur gefist en aðilarnir koma víða að svo að erfitt hefur stundum verið að halda hópinn. Forsvarsmenn hópsins hvetja alla Austfirðinga á Norðurlandi nær og fjær til að láta sjá sig á þessum skemmtunum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.