Dagur - 23.06.1995, Síða 16
i
Akureyri, föstudagur 23. júní 1995
Tónar hafsins
í Smiðjunni ásamt ljúffengum
og nýstárlegum eftirréttum
..............................................Illllllllllllllllll............III........Illllllllllllllllllll......Illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll......I.....Illlllllll.......Illllllllllllllllllllllll......Illll.....I........I..........Illllllllll......Illllll......Illlllllllllll.............................................
Heilsuvorur ur
fjallagrösum ný-
komnar á markað
r - stefnt á
Islensk Fjallagrös hf., sem hef-
ur lögheimili á Blöndósi, hóf
nýlega framleiðslu og markaðs-
setningu á heilsuvörum úr fjalla-
grösum. Um ijórar tegundir er
að ræða og eru vörurnar seldar í
Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli
og í apótekum. Verið er að
kanna markaði á Norðurlönd-
unum og Helen Brown, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, seg-
ir að í framtíðinni sé ætlunin að
fara inn á erlenda markaði.
Forsögu þess aó hafin var
vöruþróun úr íslenskum fjalla-
grösum má rekja til slyssins í
Chernobyl árið 1986. Slysið hafði
þau áhrif að fjallagrös á megin-
landi Evrópu og á Norðurlöndun-
um urðu geislavirk og reyndust
óhæf til manneldis. í framhaldi af
því höfðu þýsk lyfjafyrirtæki, sem
Kalskemmdir í túnum:
Óvenju gott
ástand í
Eyjafirði
- miklar skemmdír
á Norðfirði
Tún í Eyjafirði komu
óvenju vei undan vetri en
einhverjar kalskemmdir urðu
í Húnavatnssýslu og Skaga-
flrði. Bjami E. Guðleifsson
hjá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins á Möðmvöllum
segir ástæðuna fyrst og
fremst vera þá að í Eyjafirði
mynduðust ekki svellalög
eins og víða annarsstaðar.
„Snjórinn hlífír túnunum en
svellið hindrar öndun og þeg-
ar þau koma þá er voðinn
vís.“
Bjarni segist ekki hafa
kynnt sér ástandið í Þingeyjar-
sýslunum en hins vegar er
hann nýkominn frá Austur-
landi. „Þar eru kalskemmdir
allvíða á fjörðunum en þó
mcstar í Norðfirði. Þar eru tún
stórskemmd vegna þcss að
svell lágu þar yfir í langan
tíma í vetur. Síðan eru ein-
hverjar kalskemmdir um mið-
bik héraðsins á Austurlandi,“
segir Bjami. AI
VEÐRIÐ
I dag og næstu daga er spáð
sunnan og suóvestan átt,
sumri og sól og 15-20 stiga
hita norðanlands og ekki vert
að orðlengja spána neitt
frekar. Þessi blíða kemur sér
sérlega vel þar sem næsta
nótt er Jónsmessunótt og
eins og flestir vita er þá sióur
að velta sér allsnakinn í næt-
urdögginni sem læknar flest
mein.
útflutning
nota fjallagrös til lyfjagerðar,
samband vió Byggðastofnun og
óskuðu eftir að kaupa nokkur tonn
af grösum. Síðustu 6 árin hafa 3-5
tonn af fjallagrösum verið flutt út
árlega.
Unnið að vöruþróun í 4 ár
Haustið 1991 hrundu Iðnþróunar-
félag Norðurlands vestra, Vilko
(Kaupfélag Húnvetninga) og Iðn-
tæknistofnun af stað verkefni til
þess að auka verömætasköpun úr
fjallagrösunum í stað þess að
flytja þau eingöngu út sem hrá-
efni. Arið 1993 var fyrirtækið ís-
lensk Fjallagrös síðan stofnað.
Auk Iðntæknistofnunar og Iðnþró-
unarfélags Norðurlands vestra eru
Hvatning hf. og Blöndósbær
helstu hluthafar. Markmið fyrir-
tækisins er að þróa og framleiða
nútímalegar og handhægar neyslu-
vörur úr hefðbundnum íslenskum
lækningajurtum og markaðssetja
þær á íslandi og erlendis.
Heildarkostnaður þessa verk-
efnis er orðinn um 20 milljónir
króna og er um helmingur af því
ýmsir opinberir styrkir en hitt er
hlutafé og áhættulán frá Iðnlána-
sjóði.
Tegundirnar fjórar sem nú eru
að koma á markað eru fjallagrasa-
hálstöflur, fjallagrasahylki, fjalla-
grasaáburður og fjallagrasasnafs.
Síðastnefnda tegundin verður til
að byrja með aðeins seld í Lcifs-
stöð sem minjagripur en hinar eru
til sölu í apótekum auk þess að
fást í Islandsmarkaöi í Leifsstöð.
AI
Vegagerðarmenn frá öllum Norðurlöndunum funduðu á Sauðárkróki í vikunni.
Mynd: Deborah
Samnorræn ráðstefna á Sauðárkróki:
Vegagerðarmenn fra ollum
Norðurlöndunum funda
Vegagerð ríkisins er aðili að
Norræna vegtæknisam-
bandinu (Nordisk Vejteknisk
Forbund), en nefndir á vegum
sambandsins frá öllum Norður-
löndunum hafa undanfarna
daga setið ráðstefnu um við-
haldsmál á Sauðárkróki.
Sjálfstæðar nefndir starfa í
hverju Norðurlandanna og koma
þær saman einu sinni á ári til
skrafs og ráöagerésr. Ráóstefnuna
sitja um 70 fulltrúar ríkis, verk-
taka og verkfræðiráðgjafa. Að
sögn Jónasar Snæbjörnssonar hjá
Vegagerð ríkisins hafa Islending-
ar frekar verið þiggjendur í sam-
starfmu en virkir þátttakendur.
„Það hafa farió fram mjög merki-
legar rannsóknir á vegum NVF
sem við höfum notið góðs af, en
allt er svo miklu smærra í snió-
um hjá okkur heldur en í Skand-
inavíu aó við höfum ekki getað
lagt mjög mikið af mörkum.
NVF hefur sýnt því skilning og
gerir ekki kröfur til þess aó viö
séum jafn vísindalegir og ná-
grannalöndin.“
Astæðuna fyrir því að
ráðstefnan var haldin á Sauðár-
króki segir Jónas aðallega vera
gistirými, eða öllu heldur skortur
á því. „Dagsetning ráðstefnunnar
var löngu ákveðin hjá samband-
inu og henni varð ekki hnikað.
Hins vegar lá gistirými ekkert á
lausu á þessum hefðbundnu stöð-
um og því var gripið til þess ráðs
að halda hana á Sauðárkróki.
Raunin varð sú að ráðstefnan
heppnaðist mjög vel, aðstaðan
var góð og gestirnir mjög ánægð-
ir. Töluvert margir ráðstefnugest-
anna tóku makana með og reynt
var aó hafa ofan af þeim, t.d.
með ferð að Hólum í Hjaltadal
og í Glaumbæ.“
Formlegu ráðstefnuhaldi lauk
á miðvikudag og fundarmenn og
makar fóru frá Sauðárkróki í
gær, en ætlunin var að ferðast um
Snæfellsnes áður en haldió yrði
til Reykjavíkur. shv
Súlan og
Guðmundur Ólafur
búin með kvótann
Utgeröarfélag Akureyringa:
Vinnsla komin á fullt
Hrímbakur EA landaði í gær,
fyrstur togara Útgerðarfé-
lags Akureyringa eftir þriggja
vikna verkfall. Vinnsla hófst því
einnig í frystihúsi félagsins í
gær.
Að sögn Gunnars Vigfússonar,
starfsmanns Útgerðarfélagsins,
var fólk ánægt með að geta loks
hafið störf að nýju og var góð
stemmning hjá starfsfólki. Það
hráefni sem Hrímbakur landaði
nægir sennilega eitthvað fram yfir
helgi, en von er á hinum togurum
Útgeróarfélagsins hverjum á fætur
öðrum í næstu viku svo hráefnis-
staðan ætti að vera nokkuð góð.
GH
Allt útlit er fyrir að flest ís-
lensku sfldveiðiskipin muni
á næstu dögum fylla kvóta sinn.
Indriði Kristinsson hjá Fiski-
stofu íslands segist búast við að
menn nái að klára sinn kvóta á
yfirstandandi tímabili, en um
49.000 tonn voru eftir af heildar-
kvóta íslendinga er verkfall sjó-
manna skall á þann 25. maí s.I.
Sverrir Leósson, útgerðarmað-
ur á Akureyri, sagði í samtali við
blaðamann aö Súlan hefði þegar
fyllt sinn kvóta. „Þeir voru mjög
heppnir Súlumenn. Eftir verkfall
máttum við fara og fiska um 1.300
tonn af síld og þaó tók ekki nema
4 til 5 daga að ná í það og er skip-
ið nú komið til Akureyrar." Sömu
sögu er að segja af Guðmundi
Ólafi ÓF en von var á honum til
Ólafsfjarðar síðastliðna nótt og
þar með er kvóti hans fullnýttur.
Loðnuveióitímabilió hefst 1.
júlí og aðspurður sagði Sverrir að
Súlan myndi halda til loðnuveiða
strax og leyfilegt væri enda sömu
veiðarfæri notuð. Ekki er mikið
vitað hversu mikið er af loðnu eða
hvernig ástand hennar er, en
Sverrir sagði að menn yrðu bara
að vera bjartsýnir. GH
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
□
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565