Dagur - 11.07.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 11.07.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Þriðjudagur 11. júlí 1995 - DAGUR - 3 Þróunarsjóður sjávarútvegsins: Áhugi á aö veita styrk til úreldingar fiskvinnsluhúsa Þróunarsjóður sjávarútvegsins hefur ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um úreldingu fisk- vinnsluhúsa. Magnús Gunnars- son, stjórnarformaður sjóðsins, hefur átt viðræður við sjávarút- vegsráðsherra um breytingar á framkvæmdinni, svo segja má að úrelding fískvinnsluhúsa sé í lausu lofti eins og er. Hugmyndir hafa verið uppi um að í stað þess að Þróunarsjóður leysti til sín fiskvinnsluhúsin yrði veittur styrkur til úreldingar líkt og verið hefur með úreldingu fiskiskipa, því litil hrifning er inn- an sjóðsins að þurfa að leysa til sín þau fiskvinnsluhús sem fengju úreldingarstyrk. Eftir sem áður yrði það skilyrði að húsin yrðu ekki nýtt til fiskvinnslu. Andri Teitsson hjá Kaupþingi Norðurlands hefur tekið saman skýrslu fyrir Þróunasjóð sjávarút- vegsins þar sem fram kemur að 74 fiskvinnslufyrirtæki sem voru með starfsemi á árinu 1991 voru það ekki árið 1994; um 21 fyrirtæki til viðbótar fengust ekki upplýsingar og 103 fyrirtæki hafa undanþágu. Það gæti t.d. verið fyrirtæki sem löggiltar skoðunarstofur hafa veitt undanþágu til að uppfylla einhver gæðastjórnunarleg atriði fyrir árs- lok 1995 og einhver þeirra gætu því bæst í áðurnefndan hóp. Upp- lýsingar liggja því fyrir um 185 fyrirtæki; 74 hafa hætt starfsemi, um 21 fyrirtæki fengust engar upplýsingar, í 6 tilvikum hefur fiskvinnsluhúsum verið ráðstafað til annarra nota, í 67 tilvikum hef- ur nýr eigandi tekið við rekstrin- um, 8 fyrirtæki hafa flutt starf- semina og í 9 tilfellum er um ein- hverjar aukatilfærslur að ræða. Fasteignamat þessara fiskvinnslu- húsa gæti verið liðlega 2 milljarð- ar króna. Næsti stjórnarfundur í Þróunar- sjóðnum er í dag 11. júlí og ekki er ólíklegt að framkvæmd laga um úreldingu fiskvinnsluhúsa verði þá á dagskrá en ekki er líklegt að af framkvæmdum verði fyrr en á haustmánuðum. Krókabátar hafa mjög aukið hlutdeild sína þorskveiðum lands- manna. Það er því brýnt að koma í veg fyrir aukna sókn og afkasta- getu bátanna. Líklegt er talið að þessir bátar geti enn aukið afla sinn og við því verður að spyrna fótum að mati Alþingis. Með breytingu á lögum um Þróunar- sjóð sjávarútvegsins er lagt til að úreldingastyrkir nái einnig til krókabáta en við það tekst Þróun- arsjóður enn betur á við það hiut- verk sitt að stuðla að minnkun fiskiskipaflotans og auka arðsemi þeirra sem eftir standa. Sjávarútvegsráðherra er heimilt að ákveða að til ársloka 1995 skuli styrkur vegna úreldingar krókabáta vera hærra hlutfall af húftryggingarmati en gildir um önnur skip. GG Sería skrifstofu húsgögn i m Gerum tillögur að uppsetningu og fö5t verðtilboð án kostnaðar Falleg hönnun Hagkvæmt verð íslensk framleiðsla T| LVUTÆICI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100 Metverð á grálúðu á Japans- og Taiwanmarkaði - ástæðan svipuð eftirspurn en þverrandi framboð Tveir togarar Skagstrendings hf. á Skagaströnd, Arnar HU-1 og Örvar HU-21, hafa verið á grá- lúðuveiðum fyrir vestan land og aflað þokklega, en Amar II HU- 101 hefur bæði verið á grálúðu- veiðum og á karfaveiðum fyrir sunnan land. Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri Skagstrend- ings hf., telur að allt of margir togarar séu nú á grálúðuslóðinni vestur á Torgi og það komi verulega niður á afíabrögðum einstakra togara. ísfisktogarinn Amar II HU-101 landaði nýlega í Þorlákshöfn og var aflinn seldur á innlendum mörkuðum og einnig var hann seldur út í gámum. Hinir togaram- ir, sem em á frystingu, landa væntanlega á Skagaströnd í þessari viku. Amar II er kvótalaus en fær kvóta frá hinum togumnum en kvótastaða þeirra er nokkuð góð, m.a. nokkuð eftir að þorskkvóta. Mjög gott verð fæst nú fyrir grálúðu í Japan og Taiwan, og hærra en þekkst hefur til langs tíma. Því veldur minna framboð, veiði íslendinga hefur dregist saman og eins hefur veiði Norð- manna og Kanadamanna dregist verulega saman. í dag em að fást um 300 krónur fyrir kílóið en grá- lúðan er heilfryst, haus- og sporð- skorin. GG ÓLAFSFJARflARBÆR 50 ÁRA1005 „Horfðu glaður um öxl" söguannáll Ólafsfjarðar í léttum dúr eftir Guðmund Ólafsson í uppsetningu Leikfélags Ólafsfjarðar. m m B Sýningar í Tjarnarborg Ólafsfirði fimmtudaginn 13. júlí kl. 20.30 og laugardaginn 15. júlí kl. 20.30. Miðapantanir í Tj'amarborg kl. 19-21 í síma 466 2188. Þórsarar til Danmerkur Það var stór og glæsilegur hópur frá Akureyrarflugvelli og var unum enda mikið ævintýri fram- Þórsara sem hélt frá Akureyrar- greinilegur spenningur í krökkun- undan. Mynd: bg flugvelli til Randers í Danmörku á sunnudagskvöld. Um 120 krakkar á aldrinum 13- 16 ára eru nú á keppnisferðalagi í vinabæ Akureyrar í Danmörku ásamt þjálfurum og fararstjórum. Þar mun 3. og 4. flokkur félagsins í handknattleik og knattspymu, karla og kvenna, keppa næstu daga á stómm mótum. Flogið var með leiguflugi beint Frosti hf. kaupir Jóhann Togarinn Jóhann Gíslason EA-201 Iandaði á Akureyri í síðustu viku 90 tonnum af blönduðum afla, aðallega karfa en einnig er í afíanum ýsa, þorskur og koli. Aflinn verður unninn hjá Útgerðar- félagi Akureyringa hf. Aílann fékk togarinn fyrir austan land og aflaðist vel, en skipið var aðeins fjóra daga á veið- um. Frosti hf. á Grenivík hefur keypt togarann af Útgerðarfé- lagi Akureyringa hf. sem áður keypti hann af Kirkjusandi hf., dótturfyrirtæki Landsbankans. Skipið mun fá nafnið Frosti en óvíst er enn um einkennisstafi. Með í kaupunum fylgdi 800 tonna þorskígildiskvóti en í upphafi fískveiðitímabilsins var þorskígildiskvóti skipsins 1.599 tonn. Fyrr á þessu ári seldi Frosti hf. samnefnt skip til vesturstrandar Kanada og færist þorskígildiskvóti þess skips, 868 þorskígildistonn, yf- ir á Jóhann Gíslason (Frosta) þannig að alls er þorskígildis- kvóti togarans nú 1.668 tonn. GG Afli Björgúlfs til Þýska- lands Togarinn Björgúlfúr EA-312 frá Dalvík átti söludag í Þýskalandi 3. júlí sl., en þar sem aflinn reyndist trauðla nægur, var ákveðið að landa 86 tonna afla í gáma á Fá- skrúðsfirði 28. júní sl. og var uppistaðan karfí en einnig eitthvað af grálúðu. Björgúlfur EA landaði svo aftur um 25 tonnum f gáma á Fáskrúðsfírði 4. júlí sl. en síð- an koma hann heim til Dalvík- ur með nokkur tonn af þorski og ýmsum aukfiski sem fór til vinnslu hjá Frystihúsi KEA á Dalvík. Togarinn fer til karfa- veiða nk. sunnudag. Björgvin EA-311 er á grá- lúðu- og karfaveiðum fyrir vestan land, en aflbrögð hafa ekki verið nema rétt sæmileg. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.