Dagur - 11.07.1995, Qupperneq 5
Þriðjudagur 11. júlí 1995 - DAGUR - 5
Vigdís Finnbogadóttir, forscti Islands, þakkar Margréti Önnu fyrir blómvöndinn. Bæjarstjórn Ólafsfjarðar fyigist
með.
Afimæli Ólafsfjarðar:
Forsetinn í heímsókn
Afmælishátíð Ólafsfirðinga hófst
á laugardaginn með heimsókn
Vigdísar Finnbogadóttur, for-
seta íslands, til bæjarins en hálf
öld er liðin frá því að Ólafsfjörð-
ur hlaut kaupstaðarréttindi.
Vigdís kom til bæjarins rétt fyr-
ir eitt og tók bæjarstjóm á móti
henni á flugvellinum. Þaðan lá
leiðin að Tjamarborg þar sem for-
seti bæjarstjómar í Ólafsfirði, Þor-
steinn Asgeirsson, og forseti Is-
lands fluttu ávarp. Báöum varó
tíðrætt um Múlagöngin en það var
einmitt í tilefni opnunar ganganna
fyrir fimm ámm sem forsetinn
sótti Ólafsfirðinga síðast heim.
„Múlagöngin hafa rækilega sann-
að gildi sitt,“ sagði Þorstcinn í
ræðu sinni og Vigdís kallaði göng-
in „einhverja mestu samgöngubót
sem um getur“.
Forsetinn heiðraði líka eldri
borgara bæjarins en hún var við-
stödd vígslu húss félags eldri borg-
ara í Ólafsfirði. „Þaö eru ekki síst
þið sem Ólafsfirðingar eiga að
,,Til hamingju með afmælið kæru
Ólafsfirðingar. Megi heill fylgja
þessu byggðarlagi og íbúum þcss
öllum,“ sagði Vigdís í ávarpi sínu til
bæjarbúa.
þakka þá velgengni sem er að
finna í þessu byggðarlagi,“ sagði
Vigdís af þessu tilefni og var ljóst
að eldri borgarar kunnu vel að
meta að forsetinn væri með þeim á
þessari stundu.
Fjölbreyttar sýningar
Á laugardaginn vom einnig opnar
nokkrar sýningar í tilefni afmælis-
ins og verða þær opnar alla af-
mælisvikuna. I Gagnfræðaskólan-
um voru safnarar með sýningu og
þar gaf að líta alls kyns hluti sem
fólk safnar, s.s. penna, flöskur,
leikaramyndir og skrautskó. I
bamaskólanum voru ljósmynda-
sýningar þar sem saga Ólafsfjarðar
var rakinn í máli og myndum. Þar
var einnig málverkasýning og á
efstu hæðinni var sýning á búta-
saumi.
Eins og fyrr segir heldur af-
mælishátíðin áfram alla þessa viku
og í kvöld og annað kvöld veröur
leikjanámskeið fyrir börn við
Gagnfræðaskólann, þar sem rykið
veróur dustað af Slagbolta, Yfir og
öðrum gömlum leikjum. AI
Þessi unga Olafsfjarðarmær, Margrét Anna Guðmundsdóttir, var í mót
tökuncfnd á flugvcllinum og færði forsetanum fallcgan blómvönd.
Fjöldi Óiafsfirðinga var samankomin við Tjarnarborg til að bjóða forseta
Islands vclkominn.
Að ræðuhöldum loknum gckk Vigdís um og heilsaði Ólafsfirðingum, ungum
jafnt sem öidnum, með handahandi.
íslenski fáninn blakti við stöng við nær hvert hús í Ólafsfirði á laugardag-
inn. Börnin voru ekki síður þjóðrækin og vcifuðu fánanum glatt á afmælinu.
Frá sýningu safnara sem er til húsa í Gagnfræðaskólanum. Myndir: BG
Séra Sigríður Guðmarsdóttir, prest-
ur í Olafsfirði, les bænarorð á
vígsluathöfn húss eldri borgara.
ARABIA
hreinlætistæki
lKIIÍí fagmann.
Draupnisgötu 2 • Akureyri
Sími 4622360