Dagur - 11.07.1995, Page 7

Dagur - 11.07.1995, Page 7
Þriðjudagur 11. júlí 1995 - DAGUR - 7 Knattspyrna - 2. deild karla: Stjörnuhrap - Þórsarar kláruðu efsta liðið á 12 mínútum Þórsarar voru heldur betur á skotskónum á föstudagskvöldið þegar efsta lið 2. deildar, Stjarn- an, kom í heimsókn. Eftir rúmar 11 mínútur var staðan orðin 3:0 fyrir Þór en þeir nýttu færi sín til fulls. Eftir það róaðist leikur- inn en hvort lið náði þó að skora eitt mark og lokastaðan var 4:1 fyrir Þórsara. Óhætt er að segja að Þórsarar hafi byrjað af krafti því sjaldan hefur sést annað eins á Akureyrar- velli. Eftir aðeins fjórar mínútur kom fyrsta markið og það skoraði Sveinbjörn Hákonarson úr víta- spyrnu eftir að Hreinn Hringsson var felldur í teignum. Á 10. mín- útu bættu Þórsarar síðan öðru marki við og gestinir vissu vart í hverju þeir höfðu lent. Sveinbjörn tók hornspyrnu og fékk boltann aftur út við hliðarlínu. Sending hans inn á miðjan teiginn fór í gegnum þvögu leikmanna og beint fyrir fætur Radovan Cvij- anovic, sem skoraði með öruggu skoti frá vítapunkti, 2:0. Þessi byrjun væri sennilega nóg til að gera út af við flest lið en Þórsarar voru ekki hættir. Aðeins mínútu síðar fékk Hreinn Hrings- son boltann á svipuðum slóðum og Radovan og skoraði með glæsilegu skoti efst í markhornið hjá Bjarna Sigurðssyni. Gull af marki og staðan orðin 3:0. Lítið markvert gerðist næstu mínúturnar en á 24. mínútu var dæmd vítaspyrna á Þórsara þegar Valdimar Kristófersson féll í teignum en hann þótti krydda fall- ið vel. Guðmundur Steinsson skoraði af öryggi úr vítaspyrn- unni, 3:1. Þórsarar voru þó ekki lengi að kvitta fyrir þetta mark og Dragan Vitorovic bætti við fjórða marki Þórsara á 27. mínútu eftir að Bjarni Sigurðsson hafði gert klaufalega tilraun til að slá fyrir- gjöf frá markinu. Dragan stóð einn og yfirgefinn við fjærstöng og renndi í netið, 4:1. Þetta hafði verið undarleg byrj- un á leiknum þar sem fimm mark- tækifæri litu dagsins ljós og fimm mörk voru skoruð. Þórsarar höfðu alltaf yfirhöndina og þannig var það reyndar út fyrri hálfleik án þess þó að færin væru áberandi. Þórsarar áttu þó annað tilkall til vítaspyrnu þegar Lúðvík Jónsson, Stjörnumaður, handlék boltann greinilega í teignum en slapp með skrekkinn. „Þetta var fínn fyrri hálfleikur en hundleiðinlegur seinni hálfleik- ur,“ sagði Andri Marteinsson, sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði Þórs, og er það í raun allt sem hægt er að segja um síðari hálf- leikinn. Lítið sem ekkert markvert gerðist ef frá eru taldar nokkrar innáskiptingar. Stjömumenn sóttu aðeins síðustu mínúturnar en laus og léleg skot þeirra sköpuðu lítil Hreinn Hringsson lætur skotið ríöa af og skorar þriðja mark Þórs þegar 11 mínútur og 8 sekúndur eru liðnar af leiknum. Myndir: BG vandræði fyrir Þórsara. Á síðustu mínútunum munaði síðan minnstu að Þórsarar bættu fimmta markinu við en Bjarni Sigurðsson varði meistaralega utan vítateigs og slapp með gula spjaldið. Erfitt er að taka einstaka Þórs- ara út úr sem bestu menn því allt liðið lék skínandi vel fyrstu mín- úturnar en eftir það var það með- almennskan sem var allsráðandi og bæði liðin voru á Iágu plani. Þórsarar voru búnir að gera meira en nóg til að sökkva Stjörnumönn- um og léku skynsamlega það sem eftir lifði leiks. Andri Marteinsson kom inn í lið Þórsara og var sprækur framan af. Hann féll ágætlega inn í leik liðsins og var að vonum ánægður með byrjunina með Þórsurum. „Þetta er sem ævintýri og hefur aldrei verið svona jákvætt áður. Mér hefur verið rosalega vel tekið og það eyðileggur ekki þegar vel gengur. Eg held að það eigi eftir að koma aðeins betri reynsla á hvernig ég fell inn í leik liðsins. Ég hef ekki fallið þarna inn eins og flís við rass enda kannski ekki við því að búast. Ég á von á að það komi smátt og smátt,“ sagði Andri. LiB t’órv Ólafur Pélursson - Birgir Karls- son, Sveinn Pálsson, Þórir Áskelsson, öm Við- ar Amarson, GuBmundur Hákonarson (Páll Pálsson 61) - Andri Marteinsson, Sveinbjöm Hákonarson, Dragan Vitorovic - Radovan Cvijanovic. Hreinn Hringsson. Serbarnir Dragan Vitorovic og Radovan Cvijanovic fagna marki þess fyrrnefnda en báðir komust þeir á markalistann í leiknum gegn Stjörnunni. Knattspyrna - 2. deild karla: Sigurmarkið á síðustu stundu „Þetta var mjög tæpt og ekki góður leikur af okkar hálfu. Við komumst yfir snemma en síðan dettur botninn úr þessu hjá okk- ur og við gerum okkur þetta erf- itt,“ sagði Pétur Ormslev, þjálfari KA, eftir að liðið náði þremur stigum úr leiknum gegn HK í Kópavogi á föstudagskvöld. KA sigraði 2:1 en þetta gat ekki verið tæpara hjá norðanmönnum þar sem sigurmarkið kom aðeins ör- fáum sekúndum fyrir leikslok. KA-menn sóttu fyrstu mínút- urnar og sóknarþunginn skilaði marki á 8. mínútu. Eftir auka- spyrnu barst boltinn til Englend- ingsins Dean Martin utarlega í teignum. Hann snéri baki í markið og tók glæsilega hjólhestaspymu sem skilaði boltanum aftur á hættusvæðið. Á markteig var Hall- dór Kristinsson staddur og við- stöðulaust skot hans með vinstri fæti söng í netinu, 1:0 fyrir KA. Eftir markið datt leikur KA- manna niður á sama plan og leikur heimamanna og leikurinn var lítið fyrir augað. KA-menn voru fremur daprir eftir hlé og freistuðu þess að halda - KA sigraði HK í Kópavogi fengnum hlut. Leikmenn liðsins virtust áhugalitlir um að hafa sig- urinn stærri eða ömggari og leikur- inn einkenndist af háloftaspyrnum og tilgangslitlum hlaupum fram og aftur. Svo fór að HK jafnaði á 53. mínútu með marki frá Sindra Grét- arssyni, sem skoraði með þmmu- skoti í markhornið eftir að hafa sloppið í gegnum vörn KA. Þegar rúmar 47 mínútur vom liðnar af síðari hálfleik kom sigur- mark KA-manna. Sending Gísla Guðmundssonar fann Bjama Jóns- son, sem stakk sér inn í teiginn með boltann. Markvörður HK kom langt út á móti en Bjami kom bolt- anum fyrir markið á Stefán Þórðar- son, sem skoraði af öryggi. Eftir markið var mikill hasar á vellinum og það sem fylgdi í kjöl- farið er nokkuð óljóst og ber sög- um ekki saman. Miodrag Kujundz- ic, leikmanni HK, og Dean Martin lenti saman en þeir áttust við oft í leiknum og Kujundzic hafði m.a. brotið mjög gróflega á Martin. Þegar þeir gengu af velli höfðu þeir orðaskipti og endaði með því að Kujundzic hrækti á Martin, sem hafði gert grín að tapliðinu. Eftir leikinn kom síðan dómarinn, Guð- mundur Stefán Maríasson, til KA- manna og tilkynnti þeim að Dean Martin fengi rautt spjald á leik- skýrslu eftir ábendingar frá línu- verði um að hann hafi sparkað í HK-manninn en hvorki Martin né aðrir KA-menn kannast við neitt atvik sem verðskuldar þann dóm. í frétt í DV í gær var sagt að Martin hafi hrækt á Kujundzic eftir leikinn en KA-menn eru ósáttir við það. „Ég hef aldrei hrækt á nokkurn mann,“ sagði Martin í samtali við Dag. Martin verður væntanlega í leikbanni í næsta leik, gegn Skalla- grími á Akureyri nk. fimmtudag. Snemma leiksins urðu KA- menn fyrir mikilli blóðtöku þegar Steingrímur Birgisson meiddist og sennilega leikur hann ekki með lið- inu á næstunni. Stðar í leiknum fór Árni Stefánsson einnig útaf meidd- ur. LiÖ KA: Eggerl Sigmundsson - Steingrímur Birgisson (Bjarki Bragason), Ámi Stefánsson (Hermann Karlsson), Halldór Kristinsson - Jó- hann Amarsson, Helgi Aðalsteinsson, Bjami Jónsson, Dcan Martin, Sverrir Ragnarsson - Þorvaldur Makan Sigbjömsson (Gísli Guð- mundsson), Stefán Þórðarson. Stefán Þóröarson skoraöi sigurmark KA á síöustu sekúndum leiksins gegn HK. Mynd: BG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.