Dagur - 11.07.1995, Page 8

Dagur - 11.07.1995, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 11. júlí 1995 IÞROTTIR SÆVAR HREIPARSSON Knattspyrna - 3. deild karla: Völsungar tróna á toppi deildarinnar - sigruðu í toppslagnum viö Leikni „Það er engin ástæða til að sleppa toppsætinu. Við spiluð- um þennan leik mjög vel og þetta var mjög mikilvægur sig- ur. Við fórum með rétt hugarfar í leikinn og létum boltann ganga vel og einfalt á gervigrasinu. Það er það sem dugar,“ sagði Sigurð- ur Lárusson, þjálfari Völsungs, eftir að liðið tryggði sér efsta sæti 3. deildar með 1:0 sigri á Leikni á gervigrasinu í Breið- holti. Liðin voru efst og jöfn fyr- ir leikinn en með þessum sigri eru það Völsungar sem tróna einir á toppnum og stefna hrað- byri upp í 2. deild. Leikurinn var jafn framan af og bæði Iið sóttu nokkuð í fyrri hálf- leik. Völsungar sköpuðu sér þó fleiri marktækifæri og þeir Viðar Sigurjónsson; Jónas Grani Garð- arsson og Asmundur Amarsson voru allir nálægt því aó skora. Þegar líða tók á hálfleikinn kom loks mark hjá Völsungum og var það sigurmarkið í leiknum. Eftir góða aukaspyrnu kom stungubolti inn fyrir vöm Leiknis og þar var Viðar Sigurjónsson mættur og vippaði yfir markvörðinn og í net- ið, 1:0. I seinni hálfleik fengu Leiknis- menn tvö góó færi en Björgvin Björgvinsson í marki Völsunga varði vel. Völsungar fengu þrjú mjög góð færi eftir hlé og þar af eitt fyrir opnu marki en Guðni Rúnar Helgason skaut framhjá. Guðni Rúnar fékk annað færi og Viðar einnig en mörkin létu á sér standa og lokastaðan því 1:0. I jöfnu og sterku liói Völsungs var Guðni Rúnar besti maður en þetta var þó fyrst og fremst sigur Íiðsheildarinnar. Viðar Sigurjónsson skoraði ^ markið sem tryggði Völsungum ^ toppsæti 3. deildar. Mynd: sh Knattspyrna - 3. deild karla: Markalaust á Dalvík - daufur leikur Dalvíkur og Fjölnis Dalvíkingar eru enn taplausir í 3. deildinni í knattspyrnu og í 3. sæti deildarinnar. A föstudags- kvöld komu Fjölnismenn í hcim- sókn til Dalvíkur og cndaði leik- ur liðanna með markalausu jafntefli. Þetta er fimmta jafn- tefli Dalvikinga í sumar en þeir voru þó klaufar að taka ekki þrjú stig úr jressum leik þar sem Úrslit 2. deild karla: Þór-Stjaman 4:1 HK-KA 1:2 Fylkir-Víkingur 4:0 Skallagrímur-ÍR 1:1 Þróttur-Víðir 0:1 Staðan: Fylkir 75 1 1 15: 7 16 Stjaman 74 1 2 14: 9 13 Þróttur 741 213: 8 13 Skallagrímur 7412 11: 7 13 Þór 7403 12:11 12 KA 7 3 2 2 8: 7 11 Víðir 73 13 5: 6 10 Víkingur 7205 8:16 6 ÍR 7 115 11:18 4 HK 3. deild karla: 7 106 9:17 3 Leiknir-Völsungur 0:1 Dalvík-Fjölnir 0:0 BÍ-Selfoss 0:1 Höttur-Þróttur N. 0:1 Ægir-Haukar 4:2 Staðan: Völsungur 86 1 1 17: 7 19 Leiknir 85 1 2 16: 8 16 Dalvík 8 350 13: 7 14 Ægir 8413 13:12 13 Þróttur 840411: 9 12 Selfoss 8404 13:17 12 BÍ 8233 9:11 9 Fjölnir 82 15 12:14 7 Haukar 8 206 5:20 6 Höttur 8 1 25 8:12 5 4. deild karia: C-riðill: Tindastóll-SM 2:1 Hvöt-Magni 1:1 Neisti-Þrymur 5:0 Staðan: KS 660 0 33: 3 18 Tindastóll 64 1 1 13: 5 13 Magni 632 1 13: 9 11 Hvöt 6 2 1 3 23:11 7 SM 620413:15 6 Neisti 620 4 11:22 6 Þrymur 6 0 0 6 2:43 0 greinilegur getumunur var á lið- unum. Leikurinn var ekki mikið fyrir augaó. Spilið var tilviljunarkennt og boltinn átti erfitt með að rata til samherja. Leikurinn byrjaði ró- Iega og jafnræði var með liðunum. Færin voru fá og ekki merkileg og má segja að fyrri hálfleikur hafi lióið án þess að mikil hætta skap- aðist upp við mörkin. í seinni hálfleik ver allt annað að sjá til Dalvíkinga. Liðió átti gersamlega leikinn og sótti grimmt án þess þó að skapa veru- lega hættuleg færi. Um miðjan hálfleikinn kom eina verulega hættulega færi leiksins. Sverrir Björgvinsson skaut þá að marki langt utan af kanti en líklega var ætlunin að gefa fyrir markið. Bolt- inn stefndi í netið en markvörður gestanna náði að koma fingur- gómunum í knöttinn og slá hann í þverslána og yfir. Annað atvik var markvert í síðari háflleik þegar aö Bjami Sveinbjömsson, þjálfari og leikmaður Dalvíkinga, var togaður niður í vítateig Fjölnismanna og verðskuldaði það brot vítaspymu en dómarinn var ekki í aðstöðu til að sjá atvikið og því var ekkert dæmt. Fjölnir átti einn og einn sprett í leiknum og með smá heppni hefðu þeir getað stolið sigrinum með skyndisóknum sínum þegar Dal- víkingar sóttu hvað mest í síðari hálfleik. Dalvíkingurinn Marinó Ólafs- son var áberandi besti maður leiksins, stoppaði margar sóknir gestanna og skilaði boltanum vel frá sér. Rúnar Steingrímsson dæmdi leikinn og skilaði sínu hlutverki vel. Dómur fallinn Knattspymudómstóll Reykjaness hefur tekið fyrir kæru Stjömunn- ar vegna leiks liðsins við Þrótt Reykjavík í 2. deildinni í knatt- spymu fyrir skömmu. Þróttarar unnu leikinn 4:2 en Stjðmumenn töldu að þjálfari Þróttarliósins mætti ekki stjóma liðinu frá varamannabekk þar sem hann var í leikbanni sem leikmaöur. Dómstóllinn sýknaði kærða af kröfu kæranda og úrslit leiksins munu því standa. Þetta eru um- deild má! og segja þcir sem til þekkja aö ef þessi dómur standi geti þjálfarar nú eftirleiðis skrif- að sig sem leikmenn á leik- skýrslu ef þeir eru í leikbanni og stjómað liðinu af bekknum þrátt fyrir leikbannió. Knattspyrna: Einkaframtak á Sauðárkróki - Tindastóll lagöi SM - jafnt á Blönduósi - stórsigur Neista Heil umferð var í 4. deild karla um helgina og þar voru markverðustu úrslitin sigur Tindastóls á SM á Sauðárkróki. Á Blönduósi skildu Hvöt og Magni jöfn 1:1 og á Hofsósi Sigurbjörn Viðarsson var sem klcttur í vörn Magna á Blönduósi og bjargaði m.a. á marklínu með glæsibrag þegar hann skallaði frá glæsilegt skot Gísla Torfa Gunnarssonar. Mynd: sh sigraði Neisti botnlið Þryms örugglega, 5:0. Tindastóll-SM 2:1 Á Sauðárkróki sigruóu heimamenn í Tindastóli lið SM, 2:1, á föstudagskvöld. Það var fyrst og fremst einkaframtak Guðbrands Guðbrands- sonar sem tryggði heimamönnum sigurinn. Fyrri háfleikur var nokkuð jafn og mátti vart á milli liðanna sjá. Staðan í hálfleik var 0:0 en mörkin komu eftir hlé. Fyrri hlutann af síðari hálfleik voru það leikmenn SM sem höfðu yfir- höndina og uppskám mark á 59. mínútu. Amar Kristinsson var þar á feróinni. Heimamenn tóku þá öll völd á vellinum og sóttu stíft. Þeir jöfnuöu á 68. mínútu og markið var glæsilegt. Guðbrandur Guóbrandsson einlék upp kantinn og þaðan Iá leið hans þvert á völlinn og í gegn- um vöm SM og endaði sóknina með góðu marki. Guðbrandur var síðan aftur á ferðinni á 77. mínútu þegar hann fékk boltann einn á auð- um sjó í teignum og skoraði örugglega. Gest- imir misstu einn leikmann útaf með rautt spjald á 82. mínútu þegar Sævar Þorsteinsson fékk aðra áminningu sína í leiknum og fékk að launum reisupassann. Hvöt-Magni 1:1 Magni sótti annað stigió til Blönduóss þar sem þeir náöu 1:1 jafntefli í mjög fjörugum leik. Eftir 10 mínútna leik skoruðu Magnamenn fyrsta mark leiksins. Vamarmenn Hvatar misstu fyrirgjöf klaufalega framhjá sér og bolt- inn datt fyrir fætur Bjarna Áskelssonar, sem var einn á móti markverði og skoraói örugg- lega. Á markamínútunni, 43. mínútu fyrri hálf- leiks jöfnuðu heimamenn og er umdeilt hver hafi skoraó það mark. Hörður Guðbjömsson tók homspymu, boltinn fór í bakið á Pétri Haf- steinssyni og þaðan í vamarmann Magna og í netió. Markið var skráð á Hörð í leikskýrslu. Hvatarmenn sóttu meira í seinni hálfleik og sérstaklega undir lokin. Magnamenn spiluðu aftarlega og áttu síðan mjög skæðar skyndi- sóknir. Bæói lió áttu fjölda góðra marktæki- færa og leikurinn var opinn og skemmtilegur. Heimamenn sóttu undir lokin en Magnamenn fengu góðar skyndisóknir og voru aðeins hárs- breidd frá því að stela sigrinum. „Þrátt fyrir að við hefðum alla burði til að sigra þá tókst það ekki. Menn voru að klikka í opnum færum,“ sagði Helgi Amarson, þjálfari Hvatar, í samtali við Dag. Neisti-Þrymur 5:0 Neisti viróist kominn í gang og sigraði Þrym örugglega, 5:0. Gestimir fengu eitt færi í byrj- un leiks en síðan ekki söguna meir og Neista- menn áttu leikinn. Staóan var 2:0 í hálfleik. Jón Þór Oskarsson gerði tvö mörk en fékk reyndar góða aðstoð vamarmanna Þryms í síð- ara markinu. Magnús og Sigmundur Jóhannes- synir skoruðu sitt hvort markið og Haukur Þórðarson skoraói úr vítaspymu. Neistamenn fengu færi til aó gera fleiri mörk en það gekk ekki eftir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.