Dagur - 11.07.1995, Side 11

Dagur - 11.07.1995, Side 11
Veiðimenn í norðlenskum án hafa sumir ekki haft erindi sem erfiði það sem af er sumri. Nú er það vonandi aö breytast. VE IÐIKLÓ Drottningarnar taka ldpp Þriðjudagur 11. júlí 1995 - DAGUR - 11 Laxveiðiár á Norðurlandi virðast vera að taka vel við sér þessa dag- ana. Gjarnan er talað um Laxá í Aðaldal og Laxá á Ásum sem drottningar norðlenskra laxveiðiáa og þar hefur heldur betur verið að lifna yfir veiði síðustu daga. í Laxá á Ásum voru 375 laxar komnir á land í gær, á móti 165 fyrir viku síðan. Sem kunnugt er eru aðeins tvær stangir í ánni og því margir farið heim með góðan afla. Annars var síðasta vika ekki sérlega hagstæð veiðimönnum í veðurfarslegu tilliti, t.d. fór hitinn niður í 2 stig á láglendi á fimmtu- daginn og víða var slydda. í Laxá í Aðaldal voru 170 fisk- ar komnir á land í gær á svæði Laxárfélagsins. „Þetta hefur tekið mikinn kipp síðustu þrjá daga og yfir 50 fiskar komið á land. Það er allt annað yfirbragð á þessu, enda mál til komið,“ sagði Þórunn Alfreðsdóttir í veiðiheimilinu Vökuholti. Þessi góða veiði hefur enn ekki skilað sér ofar í ána og á svæði Nesbænda var lítið farið að gerast, að sögn Völundar Hermóðssonar í Álftanesi. „Laxinn kemur seinna en maður bjóst við. Trúlega hefur sjávarkuldinn einhver áhrif á það, en þó segir það ekki alla söguna. En ég er bjartsýnn á sumarið og sannfærður um að það er kominn slæðingur af laxi í ána, mun meira en við sjáum. Vatnsmagnið í ánni var auðvitað langt frá því að vera eðlilegt og er ekki orðið það enn- þá. Laxinn hefur dreift sér mikið og er ekki farinn að setjast að á þessum eðlilegu stöðum að neinu marki,“ sagði Völundur. Húnvetnsku árnar „Þetta er bara líflegt núna. Síðasti þriggja daga hópur fór heim með 60. Þetta var nýgenginn fiskur þannig að okkur finnst þetta vera að koma,“ sagði Böðvar Sigvalda- son, formaður veiðifélags Mið- firðinga. Um 170 laxar eru komnir úr ánni. „Það verður gaman ef áframhaldið verður svona. Áin er mjög góð og fiskurinn búinn að dreifa sér um hana alla. Þetta er alveg eins og það á að vera. Okk- ur hefur gengið til þess að gera vel í sumar, ekki síst þar sem útlitið var ekki fagurt þegar við vorum að byrja, allt kolmórautt og hitinn í ánni niður undir 3 gráður. Þetta er því fram úr okkar björtustu vonum og vonandi bara byrjunin á betri tíð,“ sagði Böðvar. Víðidalsá hafði gefið 185 laxa þegar veiði lauk á sunnudags- kvöld. Síðasta vika hefur yerið ágætlega Iífleg og dæmi um að eitt holl hafi fengið upp í 60 fiska. Aflinn hefur verið blandaður, vænir laxar og smáir í bland og 20 pund sá stærsti. Úr Vatnsdalsá voru komnir 69 laxar í gær. „Veiðin hefur verið að glæðast undanfarna tvo daga. Þetta eru mest allt fiskar yfir 10 pund og 17 pund sá stærsti,“ sagði Gylfi Gylfason, í veiðihúsinu Flóðvangi. Rólegt hefur verið yfir veiði í Laxá á Refasveit til þessa. Opnun árinnar var seinkað um viku vegna mikils vatnsmagns og enn er óvenju mikið vatn í ánni miðað við árstíma. Góð veiði í Blöndu hefur hald- ið áfram og um 80 laxar veiddust í síðustu viku. Voru rétt ríflega 200 laxar komnir á land í gær. Mest er þetta á fyrsta svæði, en þó hafa verið að veiðast fiskar upp á öðru svæði, upp í Langadal. „Við von- um að þar sé grimm veiði fram- undan," sagði Jón M. Jónsson, hjá Flugunni á Akureyri, sem hefur Blöndu á leigu. „Hollið sem var að veiða núna á laugardaginn og sunnudaginn fór heim með 19 fiska og ég held að stærsti fiskur- inn sem kominn er í sumar sé 18,5 pund.“ Siðlausar veiðar f Fljótaá í Fljótum var ekki kom- inn lax á land í gær en sæmileg silungsveiði hefur hins vegar ver- ið í ánni, að sögn Trausta Sveins- sonar, bónda á Bjarnargili. Menn hafa þó séð eitthvað af laxi þannig að hann er kominn í ána. Að með- altali hafa veiðst um 200 Iaxar á ári í Fljótaá síðustu 10 ár, hefur farið upp í 380 og niður í 80 á síð- asta ári. Bændur sem veiðirétt eiga í Miklavatni hafa nú hafið netaveiðar, en bændur sem eiga land að Fljótaá eru afar ósáttir við þær veiðar. „Ég tel þessar neta- veiðar alveg siðlausar og ekki í samræmi við nútíma vinnubrögð," sagði Trausti Sveinsson. Lítið er að gerast í Fnjóská og aðeins 5 fiskar voru komnir á land þegar síðast fréttist. Sömu sögu er að segja af Mýrarkvísl, en í Reykjadalsá hefur laxinn verið að láta sjá sig á síðustu dögum. Silungasvæði Laxár Silungasvæði Laxár í Aðaldal, þ.e. ofan Laxárvirkjunar og upp að Mývatni, hefur verið veiðimönn- um gjöfult á þessu sumri. Á neðra svæðinu, frá Laxárvirkjun og að Brettingsstöðum, voru 281 fiskur kominn á land í gær. Líflegt hefur verið undanfarna daga og veiði- menn farið ánægðir heim. Á efra svæðinu, ofan Brettings- staða, hefur verið mjög góð veiði í sumar, þó heldur tregari nú tvo síðustu dagana, að sögn Hólmfríð- ar Jónsdóttir, veiðivarðar á Amar- vatni í Mývatnssveit. „Silungurinn virðist vera stappfullur af mýi og ekki mjög svangur. Menn þurfa því talsvert að hafa fyrir veiði- skapnum eins og gengur. Það eru komnir á blað hjá mér 710 silung- ar, sem er frekar gott. Silungurinn er í stærri kantinum, en það kemur kannski líka til af því að menn eru meira farnir að velja úr og sleppa þeim minni. Menn eru meira hætt- ir að veiða með það að markmiði að fylla kvótann og eru orðnir yfirvegaðri í þessu,“ sagði Hólm- fríður og bætti við að enn séu nokkur laus veiðileyfi í ána. Það er Veiðifélag Laxár og Krákár sem er með silungasvæðið ofan Laxárvirkjunar og rekur m.a. veiðiheimilið Rauðhóla í Laxár- dal. Nú er verið að reisa annað veiðiheimili á vegum félagsins, en það er staðsett við Laxá skammt ffá Amarvatni í Mývatnssveit. Um er að ræða einingar sem verið er að raða saman þessa dagana og er stefnt á að taka húsið í notkun fyr- ir næsta sumar. Þar verður svefn- pláss fyrir 25-30 manns og auk þess eldhús, aðgerðaraðstaða, frystir og kælir o.fl. HA MITCHELL £*Abu Garcia Daiwa Opið á laugardögum kVEIÐI- SPORT hf. Kaupvangsstræti 21 Sími 96-22275 Veiðileyfi Laxá í Aðaldal Múlatorfa Staðatorfa Fnjóská Eyjafjarðará Hörgá Reykjadalsá Húseyjarkvísl Presthvammur Blanda Vöðlur Spúnar Hjól Flugur Maðkar Veiðideild

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.