Dagur - 12.09.1995, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 12. september 1995
FRÉTTIR
Samtökum búvélasafnara við Eyjafjörð bætist góður fengur:
Gómul skurðgrafa á heimaslóðir
Á dögunum tóku Samtök bú-
vélasafnara við Eyjafjörð við
nýju tæki sem þau hafa nýlega
eignast. Kannski er ekki rétt að
tala um nýtt tæki í þessu sam-
bandi, því um er að ræða gamla
skurðgröfu, sem lengi var í eigu
Ræktunarsambands Saurbæjar-
og Hrafagilshrepps í Eyjafirði,
var síðan seld suður á land en er
nú aftur komin á heimaslóðir.
Grafan mun vera gangfær en
þarfnast óneitanlega talsverðrar
aðhlynningar, ekki síst í útliti.
Það var Búnaðarsamband Eyja-
Góðir stó/ar
Færð þú þér
gódan bakstól þegar
bakið þitt er bilað?
- eða færð þú þér
góðan stól til þess
að bakið bili ekki??
tClvutæki
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
k________________Á
fjarðar sem veitti Samtökum bú-
vélasafnara styrk til kaupa á
gröfunni, sem kostaði 50 þús-
und, en Eimskip flutti hana til
Akureyrar án endurgjalds.
Vélina eignaðist Ræktunarsam-
bandið árið 1947, en hún er af
gerðinni Ruston-Bucyrus, fram-
leidd í Englandi, eftir því sem
fram kemur í yfirliti sem Eiríkur
Bjömsson í Amarfelli hefur tekið
saman um feril gröfunnar í Eyja-
firði. Grafan kostaði á sínum tíma
76.264,44 kr. og mun ríkið hafa
greitt fjórðung. Verkefni voru næg
fyrir vélina hjá eyfirskum bænd-
um en fjórir menn voru í upphafi
ráðnir til að vinna á verkfærinu.
Þar af vann einn þeirra, Helgi Sig-
urjónsson, á gröfunni í 20 sumur.
Vélin reyndist í flesta staði vel,
sérstaklega er mótorinn gangviss.
Einn galli var þó á tækinu, en
bremsur voru mjög lélegar og
raunar einskis nýtar þegar árin
liðu. Það vara afar bagalegt þegar
grafa þurfti í bröttu landi. Kom
einu sinni fyrir að lá við stórlysi af
þessum sökum.
Rekstur vélarinnar varð Rækt-
unarsambandinu sífellt erfiðari
þegar leið á sjöunda áratuginn,
enda vélin búin að vera í stans-
lausri notkun í 20 ár. Á stjórnar-
fundi félagsins árið 1970 var
ákveðið að leggja rekstur gröfunn-
ar niður og auglýsa hana til sölu.
Kaupendur lágu ekki á lausu og
eftir margra ára kyrrstöðu keypti
hana verktakafyrirtæki á Kjalar-
Helgi Sigurjónsson í gömlu gröfunni, sem er nú komin aftur heim, en Helgi
vann á gröfunni í 20 sumur. Mynd: Halldór
Menntamálaráöherra:
Skipar í stjórn Vetrar-
íþróttamiðstöðvarinnar
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, hefur skipað stjórn
hinnar nýstofnuðu Vetrar-
íþróttamiðstöðvar íslands á Ak-
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Sími 462 6900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri, föstudaginn 15.
september 1995 kl. 10.00, á
eftirfarandí eignum:
Fagrasíða 15d, Akureyri, þingl. eig.
Hreiðar Eyfjörð Hreiðarsson og
Elsa G. Sveinsdóttir, gerðarbeið-
andi Akureyrarbær.
Fjólugata 13, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eig. Sigurgeir R. Gissurarson
og Anna S. Arnarsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins,
Lífeyrissjóður Dagsbr. og Fram-
sókn og Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Geldingsá, íb. 00-01, Svalbarðs-
strandarhreppi, þingl. eig. Jó-
hannesína Svana Jónsdóttir, gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður rfkis-
ins, Sýslumaðurinn á Akureyri og
íslandsbanki h.f.
Hafnarstræti 77, 3. og 4. hæð, Ak-
ureyri, þingl. eig. Jóna Ákadóttir og
Rolf Jonny Ingvar Svard, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Hafnarstræti 97, hl. 1A, Akureyri,
þingl. eig. Byggingarfélagið Lind
h.f., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður.
Hafnarstræti 97, hl. 2H, Akureyri,
þingl. eig. Byggingarfélagið Lind
h.f., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður.
Heiðarlundur 2L, Akureyri, þing
I. eig. Gyða Guðmundsdóttir, gerð-
arbeiðendur Einar Sigurjónsson,
Helga Rósantsson Pétursdóttir og
Pétur Pétursson.
Karlsbraut 21, Dalvík, þingl. eig.
Guðrún Benediktsdóttir, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður Austur-
lands.
Langahlíð 5D, Akureyri, þingl. eig.
Árni Gunnarsson og Ingunn Jóns-
dóttir, gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær og Whaleys (Brandford) Ltd.
Melgata 9, Grenivík, þingl. eig. þrb.
Kaldbaks h.f., gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins.
Múlasíða 1a, íb. 101, Akureyri,
þingl. eig. Lilja Sigurðardóttir, gerð-
arbeiðendur Akureyrarbær og
Byggingarsjóður verkamanna.
Norðurgata 17, suðurhl. Akureyri,
þingl. eig. Jóna Ingibjörg Péturs-
dóttir, gerðarbeiðandi Akureyrar-
bær, Byggingarsjóður ríkisins,
Landsbanki Islands, Vátryggingafé-
lag íslands h.f. og íslandsbanki h.f.
Oddeyrargata 34, neðri hæð, eign-
arhluti Akureyri, þingl. eig. Þröstur
Ásmundsson, gerðarbeiðandi
Lánasjóður ísl. námsmanna.
Vanabyggð 6d, Akureyri, þingl. eig.
Björk Dúadóttir og Jón Carlsson,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Norð-
urlands.
Sýslumaöurinn á Akureyri,
11. september 1995.
ureyri, en sem kunnugt er var
hún stofnuð síðastliðinn vetur.
Eins og fram hefur komið verð-
ur Þórarinn E. Sveinsson for-
maður stjórnarinnar en hann
var tilnefndur af Akureyrarbæ.
Varaformaður stjómar verður
Tómas Ingi Olrich, sem er skipað-
ur án tilnefningar, Benedikt Geirs-
son, sem er tilnefndur af íþrótta-
sambandl íslands, Steingrímur
Birgisson, sem er tilnefndur af
Akureyrarbæ og Þröstur Guðjóns-
son, sem er tilnefndur af Iþrótta-
bandalagi Akureyrar.
Varamenn í stjóm eru Guð-
mundur Stefánsson og Logi Már
Einarsson, báðir tilnefndir af Ak-
ureyrarbæ, Ellert B. Schram, til-
nefndur af Iþróttasambandi Is-
lands, Jón Bjömsson, tilnefndur af
Iþróttabandalagi Akureyrar og
Margrét Baldvinsdóttir, sem skip-
uð var í stjómina án tilnefningar.
JÓH
Rauðinúpur ÞH:
Seldi þorsk fyrir
9,5 milljónir kr.
ísfisktogarinn Rauðinúpur ÞH
frá Raufarhöfn, seldi um 100
tonn af „Smuguþorski“ í Eng-
landi í gærmorgun, fyrir samtals
9,5 milljónir króna. Meðalverðið
var rétt um 95 kr. á kílóið.
Rauðinúpur kemur til heima-
hafnar undir helgina. Ekki er gert
ráð fyrir að togarinn fari fleiri
ferðir í Smuguna að sinni, heldur
fari aftur á karfa og grálúðu, sem
reyndar gekk ágætlega sl. vetur og
vor. KK
nesi, þaðan sem vélin var nú
keypt. Ekki hefur verið tekið sam-
an hversu margir rúmmetrar komu
upp úr þeim skurðum sem vélin
gróf á ríflega 20 ára ferli í Eyja-
firði, en merki um hana má víða
finna á bújörðum á svæðinu. Fyrst
um sinn fer grafan í geymslu, en
síðan bíður mikið verk við endur-
bætur hennar. HA
Hollustuvernd ríkisins:
Ingunnn St.
Svavarsdóttir
stjórnar-
formaður
Guðmundur Bjarnason, um-
hverfisráðherra, hefur skipað
Ingunni St. Svavarsdóttur for-
mann stjórnar Hollustuverndar
ríkisins. Ingunn er sveitarstjóri í
Öxarfírði. Framkvæmdastjóri
stofnunarinnar er Hermann
Sveinbjörnsson, líffræðingur.
Ráðherra skipar stofnuninni
fímm manna stjórn, en stofnun-
in heyrir öll undir umhverfis-
ráðuneytið.
„Ég tel vel valið að fá Ingunni
sem stjómarformann Hollustu-
vemdar og er ánægður með að
hún hefur tekið þetta að sér. Ing-
unn er með menntun og þekkingu
sem ætti að nýtast henni vel og
hún hefur reynslu af sveitarstjóm-
annálum en Hollustuvemd þarf að
hafa mikið samstarf við heilbrigð-
isnefndir sveitarfélaga," sagði
Guðmundur Bjamason í samtali
við Dag.
Hollustuvernd ríkisins hefur
yfirumsjón með heilbrigðiseftir-
liti, mengunarvamaeftirliti á landi,
lofti og legi, eiturefnaeftirliti, og
rannsóknum sem þessu tengjast.
Eftirlitið er í höndum heilbriðgis-
nefnda sveitarfélaganna að svo
miklu leyti sem Hollustuvemd er
ekki falið beint eftirlit með sér-
hæfðum verkefnum. Eftirlit stofn-
unarinnar er fólgið í eftirliti með
innflutningi matvæla og eiturefna
og hættulegra efna og eftirliti með
iðnaði, sem valdið getur meiri
háttar mengun. Stofnunin annast
framkvæmd laga um hættuleg
efni, vamir gegn mengun og ann-
ast eða hefur umsjón með rann-
sóknum. Stofnunin hefur enn
fremur eftirlit með framkvæmd al-
þjóðasamþykkta og samninga sem
Island er aðili að og eru á verk-
sviði hennar. IM
Talsvert var um rúðubrot á
Húsavík um helgina og nokkuð
um að fólk gerðist brekóttara en
góðu hófi gegnir. Á sunnudags-
kvöld var ökumaður sviptur
ökuleyfi á staðnum, eftir að
hann mældist á 105 km hraða á
Stangarbakka, þar sem Ieyfileg-
ur hámarkshraði er 50 km.
Mikið hefur verið um rúðubrot
og skemmdarverk vestan við billj-
ardstofuna í sumar, bæði á hús-
eignum, bílum og öðru. Þessum
skemmdarverkum var fram haldið
á laugardagskvöldið. Þá fóru sex
piltar yfir strikið í ærslum er þeir
hentu grjóti í glugga á hólnum.
Stofugluggi brotnaði og rúða í
öðrum skemmdist svo að skipta
þarf um. Lögreglan hljóp piltana
uppi, þeir játuðu verknaðinn og
munu greiða tjónið. Skemmdir
voru unnar í gróðurhúsi í bænum
og við hótelið var kveikt í rusla-
pokum sem dregnir höfðu verið að
frá húsum í nágrenninu. Lögregl-
an hafði því í ýmsu að snúast við
að stoppa ærsl sem gengu of langt.
Á sunnudagsmorgun var látið
vita um brotna rúðu í Bahaíhúsinu
en það hefur oft orðið fyrir barð-
inu á skemmdarvörgum. Sá sem
þar var að verki hefur ekki náðst
enn, en ábendingar eru vel þegnar.
IM
Enginsíld í
Síldarsmugunni
Tveir færeyskir sfldarbátar hafa
undanfarna daga leitað sfldar
vítt um Sfldarsmuguna austur af
landinu en ekki haft árangur
sem erfiði það sem af er. Færey-
ingarnir munu halda leit áfram
enn um sinn, en víst er að marg-
ir útgerðarmenn íslenskra sfld-
arbáta munu fylgjast grannt
með framvindu mála.
Margir hafa gert ráð fyrir að
senda báta á þetta svæði, ekki síst
nú þegar enga loðnu er að finna
fyrir norðan land. Þrír bátar hafa
verið að leita loðnu en ekki fundið
neitt, að undanskildum 170 tonn-
um sem Hólmaborg fékk en
reyndist vera mjög smátt. Bátamir
hafa allir hætt leit. í fyrra hegðaði
loðnan sér mjög svipað og hún
hefur gert til þessa, góð veiði
seinni hluta sumars en síðan ekki
söguna meir fyrr en í lok janúar-
mánaðar. Hvort það gengur eftir
skal ósagt látið enda erfitt að ráða
í hegðunarmynstur loðnunnar.
GG
Sæbergs hf. í Olafsfirði:
Smuguafli þriggja
togara 1.770 tonn
Afli togara Sæbergs hf. í Ólafs-
firði í Smugunni á þessu sumri
og hausti var í gær orðinn 1.770
tonn. Á síðasta ári var afli tog-
ara útgerðarinnar um 2.100 tonn
úr Smugunni. Þorskkvóti þeirra
þriggja togara útgerðarinnar
sem hafa verið á veiðum í Smug-
unni er á nýbyrjuðu fiskveiðiári
1.396 tonn, eða 79% af þeim
þorskafla sem fengist hefur í
Smugunni til þessa, og á því
hlutfallið eftir að lækka enn,
jafnvel umtalsvert mikið.
Frystiogarinn Mánaberg ÓF-42
hélt í Smuguna 1. september sl. og
hefur verið á veiðum í sex daga og
var veiðin í gær um 66 tonn af
frystum afurðum. Þá var gott veð-
ur þar norður frá. ísfisktogarinn
Sólberg ÓF-12 hélt í Smuguna á
sunnudag, en hann kom í síðustu
viku með 125 tonna afla þaðan
eftir 20 daga veiðiferð, um 10
daga á veiðum. Múlaberg ÓF-32
landaði svo 170 tonnum af ísfiski
og fer aftur norður eftir á mið-
vikudag. Rækjutogarinn Baldur
EA hefur verið á rækjuslóð fyrir
norðan land og var aflinn eftir
þriggja vikna túr um 100 tonn af
rækju á Japansmarkað. GG