Dagur - 11.10.1995, Blaðsíða 1
78. árg.
Akureyri, miðvikudagur 11. október 1995 195. tölublað
Samherji hf. hyggst fjárfesta í þýska útgerðarfyrirtækinu DFFU:
Sameiginleg markaðssetning
getur styrkt okkar markaðsstöðu
- segir Kristján Vilhelmsson, einn eigenda Samherja hf.
Utgerðarfyrirtækið Samherji
hf. á Akureyri hefur átt í
samingaviðræðum við útgerðar-
fyrirtækið Deutche Fischfang
Union GmbH & Co. KG (DFFU)
í Cuxhaven í Þýskalandi um
þátttöku Samherja hf. í hinu
þýska fyrirtæki. Viðræðurnar eru
vel á veg komnar og er stefnt að
því að ljúka þeim í byijun næsta
mánaðar. Ef samningar takast
mun hlutur Samherja hf. í tyrir-
tækinu verða umtalsverður en ein
meginforsenda þess að Samherji
hf. taki þátt í rekstrinum er að
breytingar verði á starfsmanna-
haldi og núverandi atvinnustarf-
semi DFFU í landi verði aðskilin
frá útgerð fyrirtækisins.
Núverandi eigendur DFFU eru
Fiskmarkaðurinn í Cuxhaven, Cux-
havenborg, Forzen Fish Intema-
tional GmbH (áður Nordsee Deut-
sche Hochseeficherei GrnbH) og
Nordstem Lenbensmittel. Fyrirtæk-
ið á nú og rekur þrjá verksmiðju-
togara og eitt skip sem gert er út á
ísfiskveiðar. Rekstur DFFU hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár og
hefur það leitt til þess að félagið
liefur þurft að fækka starfsfólki og
selja skip. Nú síðast verksmiðju-
togarann Hannover, sem er hjá
Slippstöðinni-Odda hf. á Akureyri
vegna breytinga, en hann hefur ver-
ið seldur til Namibíu.
Fyrirhugað er að endur-
skipuleggja rekstur DFFU með
þátttöku Samherja hf. og nýta með
þeim hætti íslenska þekkingu á svið
veiða og vinnslu um borð og er
reiknað með að í rekstri verði fjórir
verksmiðjutogarar. DFFU hefur
veiðiheimildir í Barentshafi, við
Grænland og í Norðursjó.
Kristján Vilhelmsson, einn eig-
enda Samherja hf., segir ekki
ákveðið hverstu stór hlutur Sam-
herja hf. verði gangi samningar eft-
ir en ekki sé um að ræða meirihluta
í fyrirtækinu og eingöngu sé urn að
ræða þátttöku í útgerðinni, ekki
landvinnslu. „Þessi kaup hafi ekk-
ert að gera með skipastól Samherja
hf., kaup á skipum af DFFU eða
með öðram hætti. Við komum til
með að eiga mann eða menn í
stjóm í samræmi við okkar hlut ef
þessar samningaumleitanir verða
jákvæðar. Fyrirtækið á veiðiheim-
ildir í Barentshafi, við Grænland og
í Norðursjó og þær eru nægjanlega
miklar til að gera út skipin á þessi
mið. Við teljum að þama getum við
byggt upp öflugt fyrirtæki og það
er hagur að eiga hlut í þannig fyrir-
tæki. Síðan kemur til markaðsþekk-
ing og þannig gæti markaðssetning
orðið að verulegu leyti sameiginleg
fyrir Samherja hf. og DFFU og
þannig styrkt okkar markaðsstöðu,“
sagði Kristján Vilhelmsson.
f byrjun þessa árs gerði Samherji
hf., Strýta hf. og Söltunarfélag Dal-
víkur hf. samning við Royal Green-
land as. á Grænlandi um samstarf á
sviði markaðsmála og vöraþróunar,
sem m.a. þýðir að rækju verður
framvegis pakkað í neytendapakkn-
ingar. Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja hf„
sagði við undirritun þess samnings
að stefnt væri að víðtækara sam-
starfi í framtíðinni og frekari vöra-
þróun á öðrum sviðum. Verði af
samningum við DFFU nú ætti það
að tryggja markaðsstöðu og vöra-
þróun enn frekar. GG
Fengu litabækur
um brunavarnir
Lionsklúbbarnir Hængur og Ösp
á Akureyri afhentu í gær og
fyrradag öllum börnum í þriðja
bekkjardeildum grunnskóla á Ak-
ureyri litabók að gjöf, sem fjallar
um brunavarnir á heimilum.
Þetta gera Lionsmenn í tilefni af
þjónustudegi Lionshreyfingarinn-
ar sem var 8. október sl. A mynd-
inni, sem var tekin í gærmorgun,
er Jón Knutsen, slökkviliðsmað-
ur, að kynna nemendum þriðja
bekkjar Lundarskóla innihald
litabókarinnar. óþh/Mynd: bg.
UA leigir tvo Suðurnesjabáta:
Fara á línutvöföldun
Utgerðarfélag Akureyringa
hf. og íslenskir aðalverk-
takar sf. á Keflavíkurflugvelli
skrifuðu í gær undir leigusamn-
ing á skipunum Aðalvík KE-95
og Ljósfara GK-184 og er gildis-
tími samningsins frá 20. október
nk. til 29. febrúar 1996. Skipin
verða gerð út á línutvöföldun frá
Suðurnesjum en afli þannig
veiddur telst aðeins að hálfu leiti
til aflamarks.
Ahafnir verða frá Suðumesjum
og afla landað þar en Útgerðarfé-
lag Akureyringa hf. ntun með
samningnum hafa ráðstöfunarrétt
á aflanum. Aðalvík KE var áður
gerð út af Stakksvík hf. sent sleit
leigusamningi við Islenska aðal-
verktaka fyrr á árinu og Ljósfari
GK hefur legið í Sandgerðishöfn í
liálft annað ár. Aðalvík KE er 211
tonn að stærð, srníðuð í Þýska-
landi 1965 og hefur 1020 tonna
þorskígildiskvóta sem fylgir.
Ljósfari KE er 132 tonn að stærð,
smíðaður í Noregi 1960 en er
kvótalaus á þessu fiskveiðiári.
Þess má geta að einn togara ÚA,
Sólbakur EA-307, var keyptur frá
Keflavík fyrir nokkrum árum og
hét þá Aðalvík. GG
Obreytt afuröastöövakerfi
leiöir bændur til glötunar
- aö mati Gunnlaugs A. Júlíussonar
Igær hófst í Reykjavík auka-
fundur Bændasamtaka ís-
lands um nýgerðan búvöru-
samning bænda og ríkisvalds
um framleiðslu kindakjöts.
Gunnlaugur A. Júlíusson, nú-
verandi sveitarstjóri á Raufar-
höfn og fyrrv. aðstoðarmaður
Steingríms J. Sigfússonar í land-
búnaðarráðuneytinu og hagfræð-
ingur bændasamtakanna, fjallar
um búvörusamninginn í Degi í
dag og heldur því fram að bænd-
ur ríghaldi í dýrt og óskilvirkt
afurðastöðvakerfi sem sé að
ieiða þá til glötunar.
Orðrétt segir Gunnlaugur í
greininni: „Einungis örfá slátur-
hús era í eigu annarra en bænda
og samvinnufélaga. Að mínu
mati liggur vandinn í því að
bændur eru í dag ósamstíga og
sundraðir þegar kemur að skipu-
lagningu afurðastöðvakerfisins.
Það ríkir sundurlyndi miíli fyrir-
tækja, hrepparígur ræður ferð-
inni varðandi samstarf og sam-
rekstur og önnur framtíðarsýn en
að hanga á núverandi fyrirkomu-
lagi virðist varla vera fyrir
hendi. Bændur, verkalýðsfélög
og sveitarstjómir berjast á
hverjum stað gegn því að fækka
sláturhúsum til að missa ekki at-
vinnuna út af svæðinu. Þannig
ríghalda bændur sjálfir í of dýrt
og óskilvirkt kerfi, sem er að
leiða þá til glötunar.“ óþh
Sjá „Sjónarmiti á Miðvikudegi“ á bls. S.
Forstöðumaður atvinnuskrifstofu:
Nöfn umsækjenda
Eins og fram hefur komið
voru tólf umsækjendur
um stöðu forstöðumanns at-
vinnuskrifstofu Akureyrar-
bæjar.
Þeir eru: Baldvin Bjömsson,
Staðarfelli, Berglind Hallgríms-
dóttir, Akureyri, Helgi Jóhann-
esson, Hvolsvelli, Hrafn
Hrafnsson, Glæsibæjarhreppi,
Ingimar R. Ingimarsson, Akur-
eyri, Magnús Þorvaldsson, Ak-
ureyri, Ólafur Þ. Jónsson, Akur-
eyri, Sigurður Sigurðsson,
Reykjavík, Símon H. Vilbergs-
son, Akureyri, og þrír umsækj-
enda óskuðu nafnleyndar.
Atvinnumálanefnd voru
kynntar umsóknir á fundi í gær,
en Guðntundur Stefánsson, for-
maður nefndarinnar, sagði erfitt
að segja á þessu stigi hve langur
tími mun líða þar til ákvörðun
verður tekin. HA
Melrakkaslétta:
Tvo háhyrninga
rak á land
Tvo háhyrninga hefur rekið á
Sléttu, annan rétt norðaust-
an við Núpskötlu en hinn á
Oddsstaðareka, tæplega tvo
kílómetra þar frá. Það var í
fyrradag sem Haraldur Sigurð-
arson á Núpskötlu fann háhyrn-
ingana og gaf hann björgunar-
sveitinni á Kópaskeri hvalrek-
ann í landi Núpskötlu.
Háhymingamir eru rúmlega
sex metra langir og mun óvenju-
legt að slíkar skepnur reki þama
þar sem þær era lítið á grunnslóð.
Haraldur sagðist ekki vita hvort
hvalrekinn yrði rannsakaður, en
hann telur að hvalina hafi rekið
lifandi á land. Björgunarsveitar-
menn tóku prafu af kjöti í fyrra-
kvöld, en Sigurði var ekki kunn-
ugt um framhald málsins. Ýmsir
hafa haft samband við Sigurð og
falast eftir ýmsum líkamshlutum
skepnunnar í Núpskötlufjöru, en
hún er karlkyns. M.a. hefur verið
spurt eftir beinagrindinni af hvaln-
um en einhverjir munu hafa hug á
að koma henni á safn. Sigurður
hefur vísað slíkum erindum á
björgunarsveitina, sem eiganda
hvalsins. IM
Skandia
tifc Lifandi samkepp
W
m
- lœgri idgjöld
Geislagötu 12 • Sími 461 2222