Dagur - 11.10.1995, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 11. október 1995 - DAGUR - 9
Daníel Guðjónsson er nýr yfir-
lögregluþjónn á Akureyri:
„Áherslur í
lögregíustarfí
að breytast"
„Lögreglan er ílialdssöm stofnun í
eðli sínu. En þegar þú spyrð mig
hvort breytinga sé að vænta í
starfi lögreglu á Akureyri svara ég
því til að alltaf fylgi nýjum mönn-
um nýjar áherslur. Þær hygg ég þó
að verði fyrst og fremst í okkar
innra starfi, meðal annars hvað
varðar tölvuvæðingu og tækjabún-
að,“ segir Daníel Guðjónsson, ný-
ráðinn yfirlögregluþjónn á Akur-
eyri.
Fyrir röskum mánuði var Daní-
el Guðjónsson lögregluvarðstjóri á
Húsavík skipaður yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri í stað Erlings
Pálmasonar, sem hafði starfað
innan raða lögreglunnar í tæplega
hálfa öld. Dómsmálaráðherra
valdi og skipaði Daníel til starfs-
ins úr hópi tíu umsækjenda. Þar af
voru sjö starfandi lögreglumenn
hjá embætti sýslumanns á Akur-
eyri.
Fæddur á Ströndum
„Ég er búinn að starfa í lögregl-
unni frá árinu 1979. Ef ég fer yfir
æviferilinn þá er ég fæddur á
Kjörvogi í Arneshreppi á Strönd-
um árið 1952. Þar ólst ég upp í
foreldrahúsum allt til fimmtán ára
aldurs, fór þá í Héraðsskólann í
Reykholti í Borgarfirði og að
loknu landsprófi þaðan innritaðist
ég í Menntaskólann í Reykjavík.
Lauk þaðan stúdentsprófi 1973 og
nam viðskiptafræði við Háskóla
íslands í tvö ár, en hætti svo.
Svona gekk þetta koll af kolli. Ég
réði mig í byggingavinnu norður á
Húsavílc 1975 og vann við það fag
þar um nokkurn tíma, fór til sjós
og árið 1979 gekk ég í lögregluna.
Eftir það varð ekki aftur snúið.
Það kom aldrei til að ég færi aftur
á Strandir, enda eru þær á mörk-
um hins byggilega heims ef svo
má að orði komast. Leið mín lá
ekki heldur aftur suður til Reykja-
víkur, enda á ég engar sérstakar
rætur þar,“ sagði Daníel, þegar
blaðamaður Dags ræddi við hann.
Viðmælandi okkar viðurkennir
að sín bíði nú nokkuð ögrandi við-
fangsefni; að vera yfirmaður 30
manna lögregluliðs á svæði þar
sem íbúar eru nærri 20 þúsund, en
starfssvæðið Akureyrarlögreglu
nær frá Dalvík í Eyjafirði vestan-
verðum og um allt Eyjafjarðar-
svæðið út að Grenivík. Svæðið
við austanverðan Eyjafjörð, það er
Svalbarðsströnd og Grýtubakka-
hreppur, tilheyrir reyndar Þingeyj-
arsýslum en með lögum sem sett
voru fyrir fáum árum bættust
þessar byggðir við umdæmi lög-
reglu og sýslumanns á Akureyri.
Minna slegist á böllum
„Það er helst að maður heyri um
það í fjölmiðlum að slagsmál og
harka meðal fólks sé að aukast.
Svona snýr þetta ekki að mér, þar
sem ég þekki best til í Þingeyjar-
sýslum. Sjaldnar er slegist á böll-
um en var, en þegar það gerist er
harkan meiri. Þáð er áhyggjuefni,“
segir Daníel.
Annað sem hann nefnir er sú
þróun að afbrotamenn af Reykja-
víkursvæðinu leita nú í auknum
mæli út á landsbyggðina. Slíkir
menn hafi verið á ferðinni norðan-
lands nú í sumar, svo sem á Þórs-
höfn og í Mývatnssveit, en engar
skemmdir unnið og engu stolið.
„Það er helst að þessir menn fari á
staði þar sem gæsla og eftirlit er
takmarkað. Hér á Akureyri er öfl-
ugt eftirlit og gæsla allan sólar-
hringinn og erfiðara fyrir afbrota-
menn að aðhafast neitt. En með
þessum málum verður fylgst
vandlega,“ segir Daníel.
Toppurinn á ísjakanum
Daníel getur þess að fíkniefnamál-
um sem koma á borð lögreglu á
Akureyri hafi fjölgað. Á síðasta
ári voru þau átta en eru orðin fjór-
tán það sem af er þessu. „Við höf-
um ekki aðstæður til að vinna sér-
staklega að þessum málaflokki, þó
þess væri jafnvel þörf. Þau koma
einfaldlega upp í hendur okkar.
Því má ætla að þessi fjórtán mál
sem ég nefni hér séu aðeins topp-
urinn á ísjakanum," segir Daníel.
Þau viðhorf eru uppi að stuðla
beri að því að lögreglumenn sem
teknir eru að reskjast geti hætt
Hljómsveitin Gloría:
Húsvískt gleðipopp á geisladiski
„Þetta er bara gott húsvískt gleði-
popp. Það er fyrst og fremst mein-
ingin að hafa gaman af þessu en
kannski ekki að verða ríkir, þó
ekki væri verra að við yrðum smá
þekktir," sagði Kristján Halldórs-
son í hljómsveitinni Gloríu frá
Húsavík, sem gaf út geisladisk á
dögunum. Hann selst eins og heit-
ar lummur þó útgáfutónleikamir
verði í raun ekki haldnir fyrr en
14. okt. Þá verður opið hús og öll-
um Húsvíkingum boðið að hlýða
á Gloríu.
Geisladiskurinn heitir „Jæja
góðir gestir" og á honum eru 10
frumsamin lög, níu eftir Kristján
og eitt eftir Öm Sigurðsson, sem
einnig er í Gloríu en þar má auk
þeirra finna: Víði Pétursson, Þrá-
inn Ingólfsson, Sigurjón Sigurðs-
son og Sigurpál ísfjörð.
Upptaka disksins fór fram í
nýju hljóðveri í Reykjavík, Fíla-
beinskjallaranum. Tvö lög eftir
Kidda með Gloríu hafa áður kom
út á Landvættarokki ’93. Það mun
störfum fyiT en almennt tíðkast
hér á landi, til dæmis í kringum
sextugt. Málið snýr fyrst og
fremst að bættum lífeyrisréttind-
um. í dag miðast eftirlaunaaldur
lögreglumanna hinsvegar við sjö-
A Daníel Guðjónsson, nýr
yfiilögregluþjónn á Ak-
ureyri. Hann segir lögregl-
una í eðli sínu vera íhalds-
sama stofnun en ýmissa
breytinga sé að vænta, til
dæmis hvað varðar tæki og
búnað.
Ljósmynd: Sigurður Bogi.
tugt líkt og annarra launþega. Pól-
itík í þessa veru hefur verið rekin í
kjaraviðræðum og skilningur á
þessum málstað lögreglumanna
hefur verið að aukast, að mati
Daníels. Hann segir að öllum
megi vera ljóst að tveir lögreglu-
menn um sjötugt ráði tæpast við
erfið útköll, á vettvangi þar sem
allt veður á súðum. Hér verði
breyting að verða á.
Tölvur í löggubflana
Margar breytingar aðrar segir
Daníel að séu fyrirsjáanlegar í
starfi lögreglunnar. Tölvu- og
upplýsingatæknin sé öllu að bylta
og breyta. Vestur í Bandaríkjun-
um séu tölvur komnar í lögreglu-
bflana og í gegnum þær megi á
vettvangi hafa allar upplýsingar
um staðhætti og þá einstaklinga
sem hlut eiga að máli. Ef til vill
verði þessi tækni orðin almenn hjá
lögreglunni hér á landi innan fárra
ára. „Starfsumhverfi íslenskra lög-
reglumanna í dag er ólíkt því sem
var fyrir tíu árum eða svo. Og enn
meiri breytingar eigum við eftir að
sjá,“ segir viðmælandi okkar.
„Ég á eftir að selja húsið mitt á
Húsavík og kaupa síðan annað á
Akureyri. Á meðan leigi ég mér
herbergi hér í bænum, en ég býst
við að verða fluttur um áramót,"
segir Daníel, sem er kvæntur
Önnu Haraldsdóttur frá Akureyri.
Þau eiga eina uppkomna dóttur.
-sbs.
Hljómsveitin Gloría.
Mynd: Hallgrímur Sigurðsson.
meira efni vera til því Kiddi segist
alltaf vera að semja.
Það var 1989 sem Gloría var
stofnuð, en það gerðu vanir menn
úr öðrum hljómsveitum. Kiddi og
Sigurjón bættust síðan í hópinn ári
síðar. Gloría spilar alla músík og
leikur á framhaldsskólaböllum til
gömludansaballa. Það er mikið að
gera hjá Gloríu um þessar mundir,
svo að þeir hafa hreinlega ekki
enn haft tíma til að fylgja útgáfu
disksins eftir. Mikil samkeppni er
þó á hljómsveitamarkaðnum og
Gloríu hefur ekki tekist að komast
inn á Akureyrarmarkaðinn þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir, að sögn
Kidda.
Kiddi sagði að hljómsveitin
væri mjög sátt við diskinn, miðað
við þann tíma sem upptaka hefði
staðið, eða hálfan mánuð í stúdíói.
„Það er dýrt dæmi að gefa út disk-
inn og við skuldum víxil upp á
nokkur hundruð þúsund. Við von-
um að fólk taki okkur vel þegar
við göngum í hús til að selja disk-
inn,“ sagði Kiddi. Diskurinn fæst
hjá hljómsveitinni, á bensínstöðv-
um á Húsavík, Olís á þórshöfn og
í Tónabúðinni á Akureyri. IM
KAUPANGI
Miðvikudagstilboð
JUIai tegundir kjðtfan
28% alsláthu
Fimmtudagstilboð
Nautahakk 595 ki. kg
Föstudagstilboð
Svínakambsnaiðai 898 ki. kg
FIMMTUDAGSKYNNING
OG TILBOD
Jexican Casfíesta“ Taco kynning ,
hi SÓL M., 2 tegundir Tampico drykkir
VIKUTILBOD
- frá miðvikud. til miðvikud.
Frá Brauðgerð Kr. Jónssonar:
Massarína 8B9 kr. áöur 389 kr.
Miinuhringlr með hrís 4 stk. i pk. 140 kt.
KJÖRBÚÐEN
SÍMI 461 2933 - FAX 461 2936.