Dagur - 11.10.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Miðvikudagur 11. október 1995 - DAGUR - 3
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
Hraðakstur
Á fundi skipulagsnefndar ný-
verið var tekið fyrir bréf frá
Ingibjörgu Jónasdóttur og
Kristínu Jóhannsdóttur, Heiðar-
lundi 2, fyrir hönd Húsfélagsins
í Heiðarlundi 2, þar sem greint
er frá áhyggjum íbúa vegna
hraðaksturs á Skógarlundi. Til-
efnið er m.a. tvö umferðar-
óhöpp sem orðið hafa í götunni
nýlega. Skipulagsnefnd bendir á
að endurbætur á hraðahindrun-
um á Skógarlundi standa fyrir
dyrum og telur að þær komi til
móts við kröfur bréfritara.
Gæðakerfí hjá Rafveitunni
Á fundi stjómar veitustofnana
nýverið kom fram að gerður
hafi verið samningur við Há-
skólann á Akureyri um fram-
kvæmd gæðakerfis hjá Rafveitu
Akureyrar sem hófst 1. október
sl. og eru áætluð verklok í maí
1996.
Vegagerð á Laugalandi
Þá hefur stjóm veitustofnana
samþykkt erindi oddvita Glæsi-
bæjarhrepps um að Hita- og
Vatnsveita Akureyrar taki þátt í
vegagerð á Laugalandi á Þela-
mörk. Stjórn veitustofnana sam-
þykkti að leggja 100 þúsund
krónur í vegagerðina, sem er
10% af heildarkostnaði.
Endurskoðun
Framkvæmdanefnd hefur sam-
þykkt að fela Ólafi Jakobssyni,
ráðgjafa hjá íslenskri gæða-
stjórnun, að endurskoða skipu-
lag og rekstur deilda og stofn-
ana tækniumhverfis og veitu-
sviðs í samstarfi við starfsmenn
og stjórnendur viðkomandi
deilda og stofnana. Við end-
urskoðun verði haft að leiðar-
ljósi h' ernig unnt er að bæta
skilvirkni og samstarf deilda og
stofnana og auka hagræðingu í
rekstri og framkvæmdum.
Sundlaugin fái afnot
af neðra tjaldsvæði
Á fundi íþrótta- og tómstunda-
ráðs nýverið var tekið fyrir bréf
frá forstöðumanni Sundlaugar
Akureyrar þar sem hann óskar
eftir því að ráðið hlutist til um
að neðra tjaldsvæðið og þær
byggingar sem því tilheyra,
verði til afnota fyrir starfsemi
fjölskyldugarðsins við Sund-
laug Akureyrar næsta sumar.
Gert er ráð fyrir að ráðist verði í
framkvæmdir á sundlaugarlóð-
inni næsta sumar, sem munu
þrengja verulega að garðinum í
núverandi mynd. íþrótta- og
tómstundaráð samþykkti að
rnæla með því fyrir sitt leyti að
Sundlaug Ákureyrar verði út-
hlutað neðra tjaldsvæðinu þ.e.
svæðinu milli sundlaugargirð-
ingarinnar að sunnan og íþrótta-
hallarinnar undir starfsemi á
vegum Sundlaugarinnar. Þá
samþykkti ráðið að leggja til að
gerður verði tengigangur milli
Sundlaugar Akureyrar og
íþróttahússins við Laugargötu
samkv. fyrirl iggjandi áætlunum
og teikningum.
Sameining aimannavarnanefnda Akureyrar og Dalvíkur á döfinni:
Héraösnefnd vill afstöðu bæjar-
stjórna fyrir 6. nóvember nk.
Sameining almannavarna-
nefnda Akureyrar og Dalvíkur
var til umræðu á fundi Héraðs-
nefndar Eyjafjarðar 3. október
sl. en það er mat Almannavarna
ríkisins að með fækkun al-
mannavarnanefnda verði starf
þeirra skilvirkara og eins að
fækka fjölda þeirra sem í nefnd-
unum sitja.
I almannavarnanefndum sitja
sýslumaður, bæjarstjóri, bæjar-
verkfræðingur, slökkviliðsstjóri
og tveir kosnir af bæjarstjórn. Við
vestanverðan Eyjafjörð eru
starfandi þrjár alntannavarna-
nefndir, þ.e. á Akureyri, Dalvík og
í Ólafsfirði en í sveitarfélögunum
þar á milli, t.d. í Arnarnes- og Ár-
skógshreppi, eru ekki starfandi al-
mannavarnanefndir heldur fellur
svæðið undir starfsemi nærliggj-
andi nefnda. Þar sem Ólafsfjörður
er sérstakt lögsagnarumdæmi er
ekki mögulegt að sameina al-
mannavarnanefndina þar öðrum
nefndum nema til komi lagabreyt-
ing á Alþingi. í almannavama-
nefndum í smærri byggðarlögum
komi oft upp vandamál vegna ná-
Bókasafn Dalvíkur aftur á sínum stað:
Kostnaður vegna við-
halds ogflutnings
1,8 milljón króna
Bóksafn Dalvíkur var í júnímánuði sl. flutt úr kjallara Ráðhúss-
ins á efstu hæð sömu byggingar eftir að vatnsagi mikill hafði
ógnað safninu eftir miklar rigningar og lofthita sem olli því að
staða yfirborðsvatns hækkaði mjög. Flæddi um alla jarðhæð
byggingarinnar sem og margar aðrar byggingar á Dalvík.
Unnið helúr verið að því að flytja bókasafnið aftur á sinn stað í
kjallaranum og var það opnað þar að nýju sl. föstudag, 6. október.
Við þessa flutninga auk þrifnaðar á húsnæðinu á sl. sumri hefur unn-
ið m.a. fólk sem hefur verið á atvinnuleysisskrá en auk þess koma að
verkinu iðnaðarmenn við málningu og dúklagninu o.il. Kostnaður
innanhúss er áætlaður 1,8 millj. króna. Bókasafnsverðir hafa verið í
100% vinnu tímabundið meðan þetta ástand hefur varað.
Sveinbjörn Steingrímsson bæjartæknifræðingur segir að í dag
verði opnuð tilboð í gerð drenskurða vestan og sunnan Ráðhússins
ásamt dælubrunnum til þess að vera í stakk búinn til að mæta viðlíka
flóðurn og áttu sér stað á sl. sumri. Um lokað tilboð er að ræða til
verktaka á Dalvík og á framkvæmdum að vera lokið fyrir veturinn.
GG
Arnar HU afhentur
nýjum eigendum nk.
mánudag á Akureyri
Togarinn Arnar HU-1 kom til
Skagastrandar sl. mánudags-
kvöld með 180 tonna afla að
verðmæti 66 milljónir króna.
Þetta var síðasti túrinn sem tog-
arinn var í fyrir Skagstrending
hf. Togarinn fer síðan til Akur-
eyrar í flotkvína til botnskoðun-
ar o.fl. en síðan verður hann af-
hentur nýjum eigendum, Royal
Greenland as., á Akureyri.
Um mánaðamótin nóvem-
ber/desember fær Skagstrendingur
hf. afhent frystiskipið Betty Be-
linda, sem keypt hefur verið frá
Grænlandi í stað Arnars gamla
HU sem seldur var til Samherja
hf. Engin ákvörðun hefur enn ver-
ið tekin um kaup á skipi í stað
Arnars HU, en bæði hafa verið
skoðuð skip hérlendis og erlendis.
Ákvörðun um skipakaup verður
hraðað eins og nokkur kostur er.
Nokkrir úr áhöfn Amars HU fara
á það skip, aðrir á Örvar HU
þannig að nokkur hluti áhafnar
Arnars HU verður í fríi í allt að
átta vikur.
Stjórn Skagstrendings hf. tekur
ákvörðun seinna í mánuðinum um
það hvort auglýst verður eftir nýj-
um framkvæmdastjóra eða að sett-
ur framkvæmdastjóri, Óskar Þórð-
arson, verður ráðinn í starfið. Sem
kunnugt er var Sveini Ingólfssyni,
sem er í leyfi frá störfum til næstu
áramóta, sagt upp störfum nýver-
ið. GG
r ULIIND0UJ5 95'
íslenska UUINDDUU5 95
bókin fæst hjá okkur.
Sendum í postkröfu.
T#LVUTÆICI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
L__________________A
lægðar og persónulegra tengsla
nefndarmanna við þá sem lenda í
slysum. Eins kunni að konta upp
ágreiningur milli nefnda um það
hver eigi að hafa yfirumsjón með
starfi þegar verkefnið liggur t.d. á
mörkum áhrifasvæða almanna-
varnanefnda. Ef lögsagnarum-
dærni sýslumanns í Ólafsfirði yrði
útvíkkað til Dalvíkur, Svarfaðar-
dals og jafnvel fleiri sveitarfélaga
við utanverðan Eyjafjörð að vest-
an opnuðust möguleikar á að
starfrækja eina almannavama-
nefnd á umræddu svæði. Héraðs-
ráð hefur sent bréf til bæjarstjórna
Akureyrar og Dalvíkur þar sem
óskað er eftir afstöðu þeirra fyrir
6. nóvember nk. hvort þær eru
fygjandi því að sótt verði um sam-
einingu nefndanna. Niðurstaðan
verður svo rædd á haustfundi Hér-
aðsnefndarinnar í lok nóvember-
mánaðar. Hvert byggðarlag þarf
eftir sem áður að vera með ein-
hverja ábyrga aðila vegna fyrstu
viðbragða ef t.d. náttúruhamfarir
ber að höndum. Það gætu verið
björgunarsveitir, en nefndin kæmi
inn í málið á seinni stigum. GG
Davíð í heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið
Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítalanna, verður næsti
ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu. Hann tek-
ur við starfmu 1. desember næst-
komandi.
Davíð Á. Gunnarsson er borinn
og barnfæddur Reykvíkingur. Hann
hefur próf í vélaverkfræði, rekstrar-
hagfræði, þjóðhagfræði, þjóðfélags-
fræði, stjórnmálafræði og sjúkra-
húsaverkfræði.
Hjá Ríkisspítölunum hefur Davíð
starfað síðan 1969, fyrst sem ráð-
gjafí, sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri 1973-1979, sem framkvæmda-
stjóri árið 1979 og sem forstjóri frá
1. janúar 1980. Hann var aðstoðar-
rnaður heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra og samgönguráðherra
1984-1985. JÓH
HROSSAUPPBOÐ
Laugardaginn 14. október nk. kl. 14 verður
haldið uppboð á 85 hrossum að Árbakka í Hró-
arstungu, Norður-Múlasýslu (u.þ.b. 6 km neðan
við nýju Jökulsárbrúna).
Hrossin eru úr þrotabúi Guðmundar Sveinsson-
ar að Bakka í Borgarfirði eystra.
Skiptastjóri.
EFTA DOMSTOLLINN
Starf við fjármál og stjórnun
EFTA dómstóllinn starfar eftir ákvæðum í Samningn-
um um evrópska efnahagssvæðið, sem gildir milli Evr-
ópusambandsins annars vegar og íslands, Liechten-
stein og Noregs hins vegar. Dómstóllinn starfar í Genf,
en verður fluttur til Luxemborgar, sennilega fyrir mitt
næsta ár.
Hjá dómstólnum er laust starf við fjármál og stjórnun.
Starfsmaðurinn skal bera ábyrgð á daglegri stjórnun á
skrifstofu dómstólsins, öllu bókhaldi og reikningsskil-
um, undirbúningi fjárhagsáætlana, starfsmannahaldi,
skjalasafni o.fl.
Umsækjendur, sem til greina koma, þurfa að hafa
nokkurra ára reynslu á sviði fjármála, við áætlanagerð,
bókhald og reikningsskil, svo og af starfsmannamáium
og eignaumsýslu. Þá er krafist góðrar enskukunnáttu.
Einnig er æskilegt að umsækjandi hafi vald á frönsku,
hafi starfað hjá alþjóðastofnun og hafi þekkingu á
tölvuvinnslu.
Ráðning er til tveggja eða þriggja ára og framlenging
getur komið til greina. Starfsstaður er Luxemborg, en
æskilegt er að starfsmaðurinn geti byrjað starfið í
Genf. Umsóknarfrestur er til 3. nóvember 1995.
Upplýsingar um starfið eru veittar hjá:
EFTA-Court,
Avenue des Morgines 4,
CH-1213 Petit-Lancy (Geneva)
Switzerland
Fax (41.22)709 09 98. Sími (41.22)709 09 11.