Dagur - 13.10.1995, Side 3

Dagur - 13.10.1995, Side 3
Föstudagur 13. október 1995 - DAGUR - 3 FRÉTTIR Kattaeinangrun í Hrísey: Vafasamt að gjaldtakan fái staðist Eigandi kattar sem fluttur var í Einangrunarstöð ríksins í Hrísey eftir búferlaflutning eigandans erlendis frá kærði það gjald sem hann þurfti að greiða, krónur 83.426, til umboðsmanns Al- þingis. Samkvæmt reikningum Ein- angrunarstöðvarinnar fyrir árið 1992 eru tekjur af gæludýrum 51,6% af heildartekjum ársins en gjöld stöðvarinnar af gæludýrum aðeins 29,5%. Telur kærandinn að gjaldi vegna gæludýra sé haldið óeðlilega háu til niðurgreiðslna á gjaldi fyrir nautgripi en Einangr- unarstöðin er bæði fyrir nautgripi og smádýr og er rekstur þeirra sameiginlegur. Landbúnaðarráðuneytið telur að daggjöld fyrir hunda og ketti séu þjónustugjöld en ekki skattur og reiknuð út frá rekstraráætlun sem gerð var árið 1989 vegna fyr- irhugaðrar opnunar stöðvarinnar. í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra er ekki gert ráð fyrir að greiða skuli gjald fyrir einangrun gæludýra í Einangrunarstöð ríkis- ins og því telur umboðsmaður Al- þingis, dr. Gaukur Jörundsson, vafasamt að gjaldtakan fái staðist og vafasamari sökum þess að gjaldið verði að teljast allhátt og miði beinlínis að því að ganga til reksturs stöðvarinnar. Kattareig- andanum hafi heldur ekki, í sam- ræmi við vandaða stjómsýslu- hætti, verið tilkynnt fyrirfram hvaða kostnað gæti þama verið um að ræða. Dr. Gaukur Jörunds- son telur ástæðu til að mælast til þess við landbúnaðarráðuneytið að það taki til athugunar grundvöll og fjárhæð þess gjalds sem kattar- eigandanum var gert að greiða og sett verði í lög ótvíræð heimild til gjaldtöku af þessu tagi. Leiði at- hugun landbúnaðarráðuneytisins ekki til þeirrar niðurstöðu sem áð- umefndur kattareigandi telur við- unandi, mun umboðsmaður Al- þingis taka afstöðu til þess hvort rétt sé að mæla með gjafsókn til höfðunar máls til endurgreiðslu gjaldsins, verði leitað eftir gjaf- sókn í málinu. GG Akureyri: Með sög og klauf- hamar í innbrotið Lögreglan á Akureyri náði í fyrrinótt þremur unglingspiltum við verslunina Esju þar sem þeir ætluðu að brjótast inn. Piltarnir voru nokkuð vel búnir því þeir höfðu meðferðis sög og klaufhamar en þau áhöld komu að litlum notum því innbrotstilraunin var stöðvuð af lögreglunni í tæka tíð. Piltamir þrír voru keyrðir til heimila sinna eftir heimsókn á lögreglustöðina. Þeir hafa aldrei áður komið við sögu hjá lögregl- unni. Að öðru leyti var heldur rólegt hjá lögreglunni á Akureyri í gær og fyrrinótt. Þó varð hjólreiða- maður fyrir bíl á Þingvallastræti við KA-húsið en ökumaður bílsins sá reiðhjólamanninn aldrei enda var hjól hans Ijóslaust. JÓH Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda: Framsal þorskafla- hámarks milli smábáta kann að verða leyft - segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráöherra Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst í gær- morgun á Hótel Sögu í Reykja- vík en fyrir fundinum liggur m.a. að móta stefnuna í baráttu- málum smábátaeigenda. Arthur Bogason, formaður LS, sagði við setningu fundarins að á fyrsta ári kvótakerfisins haft 890 bátar veitt 17 þúsund tonn af þorski af 280 þúsund tonna heildarafla. Það ár var hlutur smábátaeig- enda 6% heildarþorskaflans en á árinu 1994 voru tæplega 1.500 smábátar við veiðar og afli þeirra 45 þúsund tonn af þorski af 180 þúsund tonna heildarafla, eða 25%, eða fjórðungur alls aflans. Þorsteinn Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, sagði í ávarpi sínu að hugsanlega yrði leyft að fram- selja þorskaflahámark milli smá- báta en það hefur ekki verið leyft til þessa. Sjávarútvegsráðherra sagði í samtali við DAG að hann haft verið að greina frá þeim atrið- um sem hann hafi orðið var við í samtölum við forystumenn smá- bátaeigenda og eins einstaka trillukarla og með því væri hægt að laga lögin og gera þau jrjálli og framkvæmanlegri. „Eg er tilbúinn til að ræða við forystumenn smábátaeigenda að loknu þingi þeirra ef það er vilji af þeirra hálfu til að fara í viðræður um slíkar lausnir eins og t.d. fram- sal þorskaflahámarks o.fl. Allar breytingar verða þó að gerast inn- an þeirra heildarmarka sem menn eru bundnir af gagnvart heildar- kvóta en ég tel að það sé hægt að laga lögin með ýmsu móti og ýmsar ábendingar sem komið hafa fram hjá trillukörlum í viðræðutn við mig eru bundnar ákveðnum rökum og það er hægt að laga lög- in ef nienn setjast yfir það. Fram- sal þorskaflahámarks hjá smábát- um á ekki að auka afla þeirra fram yfir aflahámark," sagði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. GG A AKUREYRI TÖLVUTÆKI BÝÐUR NÚ AT.T.A Canon skrifstofutækjalínuna LJÓSRITUNARVÉLAR REIKNIVÉLAR FAXTÆKI PRENTARA Þú þekkir CðfllOH Þú þekkir T#LVUTÆICI tClvutæki FURUVÖLLUM 5 • SÍMI462 6100 Ymis tilboð i gangi á föstudag m m é ipi iWí Jr(

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.