Dagur - 13.10.1995, Page 5
HVAÐ ER A-D C E RA5T
Föstudagur 13. október 1995 - DAGUR - 5
írsk menníitgar-
hátíð á Akureyri
Irsk menningarhátíð hefst formlega
í dag kl. 17 í Listasafninu á Akur-
eyri þegar Bjöm Bjarnason,
menntamálaráðherra, opnar hátíð-
ina og jafnframt myndlistarsýningu
írsku málaranna Jackie Stanley,
Guggi og James Hanley, auk þess
sem The Curfew Press sýnir nútíma
handritið „The Bible of Dreams“.
Þessir listamenn eru gott dæmi um
þá grósku sem ríkir í írskri mynd-
list í dag. Við opnunina mun Jacqu-
elin Simm leika á óbó. Sýningin
stendur til 5. nóvember nk. og
verður Listasafnið opið alla daga
kl. 14-18.
I kvöld mun síðan Leikfélag
Akureyrar frumsýna nýja leikgerð
írans Michael Scott á hinu klass-
íska meistaraverki gotnesku hryll-
ingssagnanna Dracula. Bram Sto-
ker höfundur bókarinnar var borinn
og bamfæddur Dublinarbúi.
Á morgun kl. 14 verður opinn
fundur með írsku listamönnunum í
Deiglunni í Grófargili.
Helgin 20.-22. október verður
Björn. Dracula.
helguð írskum bókmenntum. Upp-
lestrar, fyrirlestrar og umræður.
Sigurður A. Magnússon mun ræða
um James Joyce og þýðingu sína á
Ódysseifi. Þá mun bókaútgáfan
Fjölvi kynna nýútkomna bók um
írland eftir Sigurð A. Magnússon í
Deiglunni.
Á meðan á öllu þessu stendur
munu veitingahús og krár skapa
írskt andrúmsloft með að bjóða upp
á írska tónlist, drykki, mat og ann-
að til að skemmta fólki. Sérstök
gistitilboð verða boðin fyrir þá sem
vilja sækja bæinn heim.
Dúettínn
PAR-ÍS á
Odd-Vitanum
Það verður líf og fjör á Odd-Vitanum
við Strandgötu um helgina, en hann
hefur nú verið opinn í hálfan mánuð
og hefur fengið hreint prýðis viðtökur.
I kvöld og annað kvöld sér dúett-
inn PAR-ÍS um að skemmta gestum
Odd-Vitans. Húsið verður opið kl. 20-
03 bæði kvöldin. Tekið skal fram að
frítt er inn á Odd-Vitann alla daga.
Valgerður
með píanó-
tónleika
Valgerður Andrésdóttir heldur pí-
anótónleika í sal Tónlistarskólans
á Akureyri á morgun, laugardag,
kl. 16. Valgerður, sem búsett er í
Danmörku, hélt sína fyrstu tón-
leika á íslandi árið 1990 og hefur
síðan spilað margoft bæði ein og
með öðrum á tónleikum á Norður-
löndum og í Þýskalandi. Hún
stundaði nám m.a. hjá Önnu Þor-
grímsdóttur og Margréti Eiríks-
dóttur hér á íslandi og seinna við
Tónlistarháskólann í Berlín þaðan
sem hún lauk prófi árið 1992. Á
efnisskránni eru verk eftir Jórunni
Viðar, Debussy, Chopin, Mozart
og Liszt.
Milljóna-
mæringamir
og Snigla-
bandið
í Sjallanum
í kvöld, föstudagskvöld, skemmtir
hljómsveilin Milljónamæringarnir
gestum Sjallans á Akureyri. Mun
þetta vera í annað skipti sem
hljómsveitin spilar á Akureyri síð-
an Páll Óskar Hjálmtýsson hætti
með hljómsveitinni og nýr söngv-
ari tók við. Sjallinn ætlar að bjóða
nemendum framhaldsskólanna á
Akureyri, MA og VMA, frítt inn á
ballið til kl. 00.30.
Annað kvöld, laugardagskvöld,
verður svo hin sívinsæla hljóm-
sveit Sniglabandið í Sjallanum og
sér um að skemmta fólki eins og
henni einni er lagið. Miðaverð er
kr. 1000.
Á sunnudagskvöldið verður í
Sjallanum svokallað rjúpnaball og
stendur það til kl. 01. Húsið verð-
ur opnað kl. 22. Aldurstakmark
verður 16 ár og þess má geta að
„Flyörarí* verður á staðnum. Fyrir
þá sem ekki eru ( „Flyðrunni“
verður miðaverð kr. 500.
Gillespie og
Hljómsveit
Ingu Eydal
á KEA
í tilefni írskra menningardaga á Akur-
eyri, sem formlega hefjast í dag, sér
írski trúbadorinn Leo Gillespie um að
skemmta gestum Hótels KEA í kvöld
og annað kvöld. Annað kvöld leikur
einnig fyrir dansi á Hótel KEA hin sí-
vinsæla hljómsveit Ingu Eydal.
í tilefni frumsýningar L.A. á Dra-
kúla greifa býður Hótel KEA upp á
leikhúsmatseðil. Verð kr. 2.150. Verð
annað kvöld fyrir leikhúsmatseðilinn
og dansleikinn er kr. 2.500 en miða-
verð á dansleikinn er kr. 500.
Apollo 13 frum-
sýnd í Borgarbíói
Borgarbíói á Akureyri ásamt Laug-
arásbíói og Háskólabíói í Reykja-
vík frumsýna í kvöld stórmyndina
Apollo 13 með Óskarsverðlauna-
hafanum Tom Hanks í aðalhlut-
verki. Myndin byggir á sannri
hrakför þrettándu geimferðar
Bandaríkjamanna. í aprflmánuði
1970, átta mánuðum eftir fyrstu
spor Armstrongs á tunglinu, var
Ápollo 13 skotið á loft. Innanborðs
voru 3 geimfarar, Jim Lovell, Jack
Swigert og Fred Haise. Lovell var
einn reyndasti geimfari Bandaríkj-
anna og hafði m.a. verið varamaður
Armstrongs í fyrstu tunglferðinni.
Nú var komið að honum að verða
fimmti maðurinn til að ganga á
tunglinu.
Áhugi almennings á geimferð-
um hafði minnkað mikið þegar hér
var komið sögu. Fólk var farið að
líta á þær sem daglegt brauð og lít-
ið var fjallað um geimskotið þar til
hlutimir fóru verulega úrskeiðis um
borð í Apollo 13.
Sprenging í súrefnistanki rúst-
aði áformum geimfaranna og setti
þá í bráða lífshættu. Aleinir á spor-
baug um jörðu í löskuðu geimfari
urðu geimfaramir að beita öllum
ráðum til að komast aftur til jarðar.
Súrefnið átti að endast tveimur
mönnurn í tvo daga en þeir voru
þrír og áttu eftir fjögurra daga
ferðalag heim.
I fjóra daga stóð gervöll heims-
byggðin á öndinni og fylgdist með
ævintýralegri baráttu þriggja
manna í 330 þús. km. ljarlægð frá
jörðu.
Tom Hanks fer með hlutverk
Lovells. Tvö síðustu ár hefur hann
fengið Óskarsverðlaun fyrir aðal-
hlutverkin í Philadelphia og Forres
Gump. Með önnur hlutverk fara
Kevin Bacon, Bill Paxton, Gary
Sinise og Ed Harris. Leikstjóri er
Ron Howard en hann hefur leik-
stýrt myndunt á borð við Back-
draft, Far and Away og Parent-
hood.
Fyrirlestur um
veðurfræði
til fjalla
Björgunarskóli Landsbjargar og
Slysavarnafélags Islands stendur fyrir
fræðslufundi fyrir almenning um veð-
urfræði til fjalla á Akureyri á morgun,
laugardag, kl. 14. Fundurinn verður í
Lundi, húsnæði Hjálparsveitar skáta
og hefst kl. 14. Fyrirlesari verður Ein-
ar Sveinbjömsson, veðurfræðingur.
Þátttökugjald er 1000 krónur og er
fræðslurit um veðurfræði innifalið.
Fundurinn er öllum opinn og em allir
þeir sem ferðast um hálendið að sumri
og vetri til velkomnir.
Dulrænir dagar
hjá Sálarrann-
sóknarfélagínu
Dulrænir dagar verða hjá Sálarrann-
sóknarfélagi Akureyrar um helgina; í
dag, á morgun og sunnudag. Erindi
verða flutt, spákonur spá fyrir fólk og
skyggnilýsingafundur verður í Lóni
við Hrísalund. Sjá nánar í auglýsingu í
Degi í dag.
Speedwell Blue í
Sæluhúsinu
Hljómsveitin Speedwell Blue leikur
fyrir dansi í Sæluhúsinu á Dalvík ann-
að kvöld, laugardagskvöld. Þetta eru
síðustu tónleikar sveitarinnar á Norð-
urlandi áður en hún fer til Bretlands.
Flóamarkaður
hjá Hjálpræðis-
hernum
Flóamarkaður verður á Hjálpræðis-
hemum Hvannavöllum 10 á Akureyri
í dag, föstudag, kl. 10-17. Eins og allt-
af er margt að skoða, mikið úrval af
fatnaði á góðu verði.
Landssöfhun
LAUF
í dag, föstudag, verður LAUF, lands-
samtök áhugafólks um flogaveiki,
með landssöfnun á Rás 2. Tilgangur
söfnunarinnar er tvíþættur, annars
vegar að safna fyrir aflestrartæki við
heilasírita á taugalækningadeild
Landsspítalans sem safnað var fyrir
árið 1991. Hins vegar stefnir LAUF
að því að efla og styrkja félagið svo
að það geti skapað sér félagsaðstöðu.
Landsöfnunin stendur í dag kl. 9-19 á
Rás 2. Skipulögð skemmtidagskrá
verður á Rás 2 og þeir sem leggja
söfnuninni lið geta átt von á að verða
dregnir út í happdrætti. Aðalvinning-
urinn verður utanlandsferð fyrir tvo til
Newcastle í 3 nætur með ferðaskrif-
stofunni Alís.
r ^
Cation
llósritunar-
vélar
Verðfrákr. 59.900
Tt LVUTÆKI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
L_______________A
Gönguferð um
nágrenni
Krossastaðagils
Á morgun, laugardag, er fyrirhuguð
síðasta ferð á áætlun Ferðafélags Ak-
ureyrar þetta sumar, gönguferð um
nágrenni Krossastaðagils á Þelamörk,
ef veður og aðrar aðstæður leyfa.
Brottför er kl. 13 frá skrifstofu Ferða-
félagsins í Strandgötu 23. Hér er um
að ræða létta gönguferð um svæði í
nágrenni bæjarins sern flestum hefur
líklega yfirsést að væri skoðunarvert.
Lýsingu á því er að finna í Árbók
Ferðafélags íslands 1991 á bls. 97.
Skrifstofa félagsins er opin í dag kl.
17.30 til 19 og verður þá enn tækifæri
til að skrá sig í ferðina í síma
4622720.
Tíu mínútna mót
hjá Skákfélaginu
Skákfélag Akureyrar verður með 10
mínútna mót í skákheimilinu við
Þingvallastræti í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 20. Mótið verður með nokk-
uð sérstöku sniði því menn ráða ekki
sínum fyrsta leik heldur verða skák-
irnar allar að byrja með d2-d4 leik hjá
hvftum og svartur verður að svara
með hollenskri vöm f7-f5.
■
KJÖRBÚDIN
KAUPANGI
FÖSTUDAGS-
TILBOÐ
SVÍNAKAMBSNEIÐAR
kr. S68 kf
PÖSTUDAGS-
KTNNING OG
TILBOÐ
„MEXICAN CASA FIESTA"
TVÆR TEGUNDIR
AF TAMPICO DRYKK
1
■
KIÖRBUDIN
KAUPANGI
SÍMI461 2933 - FAX: 461 2930