Dagur


Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 7

Dagur - 13.10.1995, Qupperneq 7
Föstudagur 13. október 1995 - DAGUR - 7 frskir gestir komnir á írska menningarhátíð sem hefst á Akureyri í dag: I kjölfar Helga magra með írskum hreim laugardagskvöld Vcrð aOc iiis kr. 2.150,- Verð lau»artlaj>sk\öld kr. 2.500,-, þá iniiilalinn dansleiknr Miðaverð á danslcik kr. 500,- Akureyri: Tak með parket- og inn- réttingasýningu um helgina Trésmiðjan Tak, Dalsbraut 1 á Akureyri, verður með parket- og innréttingasýningu í sýningarsal sínum við Dalsbraut um helgina; á morgun, laugardag, kl. 10-16, og á sunnudaginn kl. 13-16. Á sýn- ingunni verður lögð áhersla á kynningu á parketgólfum frá Upo Floor, sem Trésmiðjan Tak annast sölu á hér á Akureyri. Um er að ræða allt að 20 tegundir af Upo Floor borðaparketi og gegnheilu stafaparketi í sýningarsal. Sér- fræðingar frá umboðsaðila Upo Floor í Reykjavík, Parket og gólf, verða í sýningarsal Taks um helg- ina og veita fólki allar nauðsyn- legar upplýsingar. Að sögn Kristins Skúlasonar hjá Trésmiðjunni Tak er sala á parketi einskonar hliðargrein hjá fyrirtækinu, en aðaláherslan er á innréttingasmíði. Á þessu ári hóf fyrirtækið sölu á parketi frá Upo Floor og gegnheilu parketi og seg- ir Kristinn að nú sé í raun verið að gera sérstakt átak til að kynna þessa parkettegund á markaðnum hér nyrðra. Hann segir að fyrir- tækið annist alla þjónustu varð- andi lagningu parketsins, þar með talda slípun á eldra parketi. óþh Tónlistarfélag Akureyrar: Ekki tónleikar nk. sunnudag í frétt frá Tónlistarfélagi Akureyr- ins verði nk. sunnudag. Hið rétta ar í blaðinu í gær var ranglega er að tónleikar Kuran Swing verða sagt að fyrstu tónleikar starfsárs- ekki fyrr en 29. október nk. Síðdegis í dag verður sett form- lega írsk menningarhátíð á Akur- eyri og með henni hefst nýr kafli í samskiptum íslendinga og íra en sem kunnugt er hafa samskipti þjóðanna á undanfömum árum fyrst og fremst snúið að haustinn- kaupaferðum íslendinga. Óhætt er að segja að írskur andi muni svífa yfir vötnum á Akureyri næstu 10 dagana og raunar lengur því sýn- ing írskra listamanna í Listasafn- inu á Akureyri, sem opnuð verður í dag, stendur til 5. nóvember og hjá Leikfélagi Akureyrar verður sýningin Drakúla á fjölunum fram eftir hausti. Haraldur Ingi Haraldsson, for- stöðumaður Listasafnsins á Akur- eyri, hefur haft veg og vanda að undirbúningi írsku menningarhá- tíðarinnar og í hans huga er ekki vafi að samskipti við íra geta átt eftir að verða mikilsverð í fram- tíðinni ef rétt verður haldið á spil- um. Hann bendir á að Akureyri og Eyjafjörður hafi söguleg tengsl við Ira þar sem landnámsmaður- inn Helgi magri kom frá Irlandi og þar með sé kominn sögulegur bakgrunnur sem styðji alla upp- byggingu á sambandi okkar við írland. „írarnir sjálfir eru mjög spennt- ir fyrir þessum samskiptum eins og sést af orðum Michael D. Higging, menntamálaráðherra ír- lands, í bæklingi sem gefinn er út vegna hátíðarinnar þar sem hann ámar okkur allra heilla. Það sést líka á því að í nóvember verður hluti þessarar sýningar hér settur upp í ráðuneyti hans í Dublin þar sem verður um leið vígður nýr sýningarsalur. Og þar fáum við tækifæri til að sýna stutt heimilda- myndband um írsku menningarhá- tíðina á Akureyri, sem tekið verð- ur upp á meðan á henni stendur. Einmitt þetta er mikilvægt því það gefur okkur tækifæri til að byrja umræðuna um hvernig við getum haldið samskiptunum áfram,“ seg- ir Haraldur Ingi og bætir við að væntanlega verði leitað eftir stuðningi margra aðila og m.a. má nefna að írska utanríkisráðuneytið hefur tekið málaleitan vel og von- ar Harldur Ingi að það sjái sér færl að styrkja áframhaldandi sam- skipti. „En það er mál sem tíminn verður að leiða í ljós hve langt verður komist með. Það hefur sýnt sig núna að margir sýna frsku samskiptunum strax í byrjun áhuga en maður getur sagt eins og Irarnir og kartöflubændur á ís- landi: Fyrsl er að setja niður kart- í tilefni frumsýningar L.A á Draltúla greifa bjóðum við glæsilegan leilthúsmatseðil Kúfskclsúpn mcð hvítlauksrístuðum brauðteningum Léttsteiktar lambalundir mcd blóðbergssósu Kastalatcrta HOTEL KEA Sími 462 2200 írski trúbadorinn HLJÓMSVEIT EVGU EYDAL landanna. Við höfum þá sögulegu skírskotun sem enginn annar hef- ur. Þar liggur okkar sérstaða en til viðbótar kemur að þetta er miklu skemmtilegra en margt annað. Síðan má benda á að stækkandi hópur fólks hefur fengið tilfinn- ingu fyrir hinni skemmtilegu írsku stemmningu eftir haustferðir þangað í haust og síðustu ár.“ Listin getur rutt brautina Ávinningurinn af menningarhátíð á borð við þessa kann að vera óljós við fyrstu sýn en Haraldur Ingi bendir á að hún geti rutt braut, sem hægt verði að nota enn meira í framtíðinni. „Ég vona að þegar þessu verð- ur lokið getum við litið yfir farinn veg, metið reynsluna af þessu öllu og séð möguleikana sem felast í menningarsambandi við írland. Ég vona líka að þetta laustengda samband sem komið er á milli fyr- irtækja og listgreina beri í sér frjó- korn einhvers meira og að menn átti sig líka á að svona samstarf er fýsilegt og bæjarfélaginu til hags- bóta. Listin getur haft forystu um svona samskipti og menn sjá þá líka að þeim fjármunum sem varið er til lista er vel varið og skila sér til baka til samfélagsins. Ef menn hafa þolinmæði til að byggja upp þá koma þessir peningar margfalt til baka,“ sagði Haraldur Ingi. Haraldur Ingi Haraldsson og Lárus Hinriksson, starfsmenn Listasafnsins á Akureyri, áttu annríkt í gær við að hengja upp myndir írsku listamannanna þriggja sem sýna í safninu næstu vikurnar. írarnir komu til Akureyrar í gærkvöld og verða viðstaddir opnun sýningarinnar og írsku menningarhátíðarinnar síðdegis í dag. Mynd: BG öflur, svo tekur við ntikil vinna við að rækta garðinn og loks er tekið upp að hausti og þá er spurn- ing hversu margföld uppskeran verður.“ Myndlist - leiklist - bókmenntir - skemmtun Setningarhátíð írsku menningar- hátíðarinnar verður kl. 17 í dag í Listasafninu á Akureyri og mun Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra, opna hana og um leið sýn- ingu írsku listamannanna Jackie Stanley, Guggi og James Hanley sem sýna 23 verk. Þessu til við- bótar verður athyglisverð sýning á Biblíu draumanna, sent írarnir kalla svo en hún er önnur hlið á írskri list þar sem byggt er á hand- ritahefð Ira. I kvöld verður svo einn af hápunktum hátíðarinnar þegar írsk leikgerð af Drakúla greifa verður frumsýnd hjá Leik- félagi Akureyrar. Á morgun kl. 14 gefst svo fólki tækifæri á fundi í Deiglunni að ræða við írsku listamennina þrjá sem sýna í Listasafninu en allir eru þeir þekktir í sínu heimalandi. írsk myndlist er gróskumikil og vaxandi um þessar ntundir. Fyrirhugað var að halda bóka- kynningu á sunnudag þar sem kynnt yrði ný bók Sigurðar A. Magnússonar um írland en sú kynning verður sunnudaginn 22. október. Þá helgi verður einnig dagskrá um bókmenntir íra, upp- lestrar og fyrirlestrar. írskur blær á skemmtanalífinu Eitt af því sem gerir írsku menn- ingarhátíðina athyglisverða er að meðan hún stendur munu veit- ingahús og skemmtistaðir, bregða upp írskri stemmningu, bæði í tónlist og á matseðlum. Haraldur Ingi segir að almennt hafi allir að- ilar verið jákvæðir fyrir að gera allt umhverfi í írskum anda og hver hafi sinn hátt á. Hann segist finna að þeir sem konti að hátíðinni núna sjái í henni gott tækifæri til að festa í sessi reglulega kafla í samskiptun- um við íra. „Ég held að ekki fáist betra tækifæri til að rétta af þenn- an viðskiptahalla sem er á milli

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.